Dagur - 28.11.1985, Síða 7
28. rióvember 1985 - DÁCílíR - 7'
Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri. Hjörtur E. Þórarinsson stjórnarfor- Karl Gunnlaugsson kaupfélags-
maður KEA. stjóri.
hverjir verði hreinlega gerðir upp
og bú þeirra tekin til gjaldþrota-
skipta.
Tvö einbýlishús
upp í reikning
Það eru ekki bara einstakir við-
skiptamenn félagsins sem skulda
því mikið heldur eru líka starfs-
menn í þeim hópi. Karl kaupfé-
lagsstjóri og Máni Laxdal gjald-
keri skulda þannig samanlagt um
8 milljónir króna. Þessar skuldir
eru fyrst og fremst þannig til
komnar að þeir hafa báðir verið
að reisa sér hús á Svalbarðseyri
og hafa tekið efni og annað vegna
byggingar húsanna út úr kaup-
félaginu. Karl mun ekki einu
sinni hafa haft fyrir því að taka
húsnæðismálastjórnarlán vegna
byggingar síns húss. Líklega mun
kaupfélagið hirða bæði húsin upp
í skuldir og er talið að þau séu
á mörkum þess að duga fyrir
skuldunum.
Einn starfsmaður til viðbótar
hefur einnig fengið mikið lánað
hjá kaupfélaginu vegna bygging-
ar síns húss en talið er að hann
geti haldið því og greitt skuldina
með því að leita eftir eðlilegri
fyrirgreiðslu hjá lánastofnunum.
Kjöt og franskar
gerö upptæk
Helstu lánardrottnar Kaupfélags
Svalbarðseyrar eru Samvinnu-
bankinn, Sambandið, KEA, Ol-
íufélagið hf, Áburðarverksmiðja
ríkisins og ríkissjóður.
Sambandið lagði hald á kjöt-
birgðir Kaupfélags Svalbarðseyr-
ar eftir sláturtíðina í haust. Meg-
inhluti skulda félagsins við SÍS er
vegna afurðalána frá síðasta ári
og átti Sambandið veð í kjötinu
til tryggingar á endurgreiðslum
afurðalánanna. Nú þarf kaupfé-
lagið nánast að staðgreiða allt
kjöt sem það tekur úr eigin frysti-
geymslu til kjötvinnslunnar.
Samvinnubankinn hefur lagt
hald • á söluverðmæti franskra
kartaflna sem Grænmetisverslun
landbúnaðarins dreifir fyrir
Kaupfélag Svalbarðseyrar. Nú í
vikunni var hráefni kartöfluverk-
smiðjunnar á Svalbarðseyri á
þrotum og var ákveðið að kaupa
kartöflur af sunnlenskum
bændum. Grænmetisverslunin
hugðist tryggja sunnlenskum
bændum greiðslur fyrir hráefnið
og ætlaði að ná þeim inn með
því að halda eftir samsvarandi
upphæð af verði frönsku kart-
aflnanna. Samvinnubankinn kom
í veg fyrir þessar ráðagerðir og
gæti því farið svo að vinnsla
stöðvaðist í kartöfluverksmiðj-
unni. Stjórn Kaupfélags Sval-
barðseyrar þykir þessar aðferðir
bankans helst til harkalegar og
hyggst kanna hvort þær séu lög-
legar.
Aðrir lánardrottnar hafa ekki
gripið til sérstakra aðgerða til að
innheimta sitt fé og bíða líklega
átekta á meðan í ljós kemur hver
árangur verður af viðræðum
kaupfélaganna tveggja við Eyja-
fjörð.
Fá bændur afurðir
sínar greiddar?
Margir bændur eru uggandi um
að þeir fái ekki fullt verð fyrir
innlegg sitt í Kaupfélag Sval-
barðseyrar. Það hefur m.a. kom-
ið fram í því að í haust varð þó
nokkur samdráttur í sauðfjár-
slátrun á Svalbarðseyri frá því
sem verið hefur síðustu ár. Mun
minna hefur verið lagt inn af
kartöflum í haust en reikna hefði
mátt með að öllu eðlilegu. Þar
kann að ráða nokkru sú stað-
reynd að kaupfélagið taldi sér
ekki fært að greiða fullt verð fyrir
uppskeru ársins 1984 og margir
bændur vilja heldur bíða og sjá
hverju fram vindur áður en þeir
leggja kartöflurnar inn.
Einn þeirra bænda sem ótrauð-
ir hafa lagt sínar kartöflur inn í
Kaupfélag Svalbarðseyar er Guð-
mundur Þórisson í Hléskógum,
formaður Félags kartöflubænda
og stjórnarmaður í kaupfélaginu.
í samtali við Dag benti hann á
þá staðreynd að það hefur aldrei
komið fyrir að bændur fengju
ekki fullt verð fyrir sínar afurðir
þó kaupfélag færi á hausinn.
Viðræður að hefjast
Bæði KEA og Kaupfélag Sval-
barðseyrar hafa skipað þriggja
manna viðræðunefndir sem er
ætlað að sjá um samningaviðræð-
ur vegna hugsanlegrar samein-
ingar. í nefnd KEA sitja Valur
Arnþórsson kaupfélagsstjóri,
Hjörtur E. Þórarinsson stjórnar-
formaður og Jóhannes Sigvalda-
son varaformaður stjórnar. Hjá
Kaupfélagi Svalbarðseyrar hafa
verið valdir í viðræðunefnd þeir
Karl Gunnlaugsson kaupfélags-
stjóri, Tryggvi Stefánsson stjórn-
arformaður og Guðmundur Þór-
isson í Hléskógum. Til stóð að
fyrsti viðræðufundur nefndanna
yrði haldinn í þessari viku.
Ef stjórnir félaganna ná sam-
komulagi um sameiningu félag-
anna þarf að bera þá samþykkt
undir fulltrúafundi í báðum fé-
lögum og þurfa tveir þriðju hlut-
ar fulltrúa að fallast á samein-
ingu. Þá þarf að halda fundi í öll-
um deildum beggja félaga og
kjósa fulltrúa á nýjan fulltrúa-
fund þar sem aftur þarf samþykki
tveggja þriðju hluta fulltrúa til að
sameiningin geti orðið að lögum.
Kjötvinnsla Kaupfélags Svalbarðseyrar hefur getið sér gott orð og þaðan er framleiðsla flutt víða um land.
Mvndir: - KGA.
<i.r ..... —— iii ........ ............................. n ii
Basar - Basar - Basar
Styrktarfélagar vangefinna heldur muna- og kökubasar
í Húsi aldraðra, laugardaginn 30. nóv. kl. 14.00. Nefndin.
Iðjufélagar
Myndasýning úr sumarferð Iðju 1985 verður sunnud.
1. desember í Alþýðuhúsinu 4. hæð og hefst stund-
víslega kl. 20.30.
Félagar og gestir velkomnir. Kaffiveitingar.
Ferðanefnd.
Iðntölvukynning -
Námskeið
Kúlulegusalan hf. -Tölvusalan hf. standa fyrir kynn-
ingu og námskeiði á iðntölvum dagana 28., 29. og
30. nóv. n.k. í samkomusalnum Áin, Skipagötu 13.
Fimmtud. 28. nóv. frá kl. 13-18. Kynning.
Föstud. 29. nóv. Námskeið á Tl 100 iðntölvum.
Laugard. 30. nóv. frá kl. 9-12 og 13-17. Kynning.
Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast og sjá það
nýjasta á þessu sviði.
Námskeiðsþátttaka tilkynnist Árna Friðrikssyni Raf-
tákni hf. sími 96-24766 eða til Tölvusölunnar hf. sími
91-84779
Kúlulegusalan hf. - Tölvusalan hf.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík.
Umboðsmenn Dags
Sauðárkrókur: Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828.
Siglufjörður:
Blönduós:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Dalvík:
Grenivík:
Húsavík:
Mývatnssveit:
Kópasker:
Raufarhöfn:
Kópavogur:
Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581.
Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728.
Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Anna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
Guðbjörg Bjarnadóttir, Vallhólma 12, sími 641562.
"TF"
Ingvar Helgason hf.
ARLI
IMISSAIVI
Vetrarskoðun
sem framkvæmd skal á þjónustuverkstæðum Nissan og
Subarn í nóvember og desember.
1. Rafgeymasambönd athuguð.
2. Viftureim athuguð.
3. Rafgeymir og hleðsla mæld.
4. Vél þjöppumæld.
5. Skipt um platínur.
6. Skipt um kerti.
7. Skipt um bensíndælu.
8. Vél stillt (kveikja, blöndungur,
ventlar).
9. Frostþol vélar mælt.
10. Kúpling yfirfarin.
11. Ljósabúnaður yfirfarinn.
12. Loftsía athuguð.
13. Bremsuvökvi athugaður.
14. Hemlar reyndir.
15. Rúðuþurrkur athugaðar.
16. Frostvari á mðusprautur.
Verð: Kr. 2.900.-
Innifalið í verði: Kerti, platínur, bensínsía, frostvari á rúðuspraut-
ur, rúðuskafa, frostvari í læsingar.
Bifreiðav. Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 a • S. 22520