Dagur - 03.12.1985, Page 12

Dagur - 03.12.1985, Page 12
Smiðjan minnir á leikhústílboðið Sæsniglasúpa. Lambahnetusteikur með kryddjurtasósu. Kaffi og konfekt. Verð kr. 600,- Smiðjan opnuð kl. 18.00. Misdyrt að hringja - Dýrara að hringja tii Akureyrar frá Hrafnagiii en frá Reykjum í Fnjóskadai Ibúar í Hrafnagilshreppi eru óánægðir með það að þeir þurfa að greiða hærra gjaid fyrir símtöl til Akureyrar en t.d. íbúar í Fnjóskadal eða Öxnadal. Að sögn Gísla Eyland hjá Pósti og síma er ástæðan fyrir þessum mismun sú að íbúar Hrafnagilshrepps þurfa að fara með sín símtöl í gegn um sím- stöðina á Hrafnagili á meðan íbú- ar í Fnjóskadal, hluta Önguls- SVÁi Far- gjöld hækka Fargjöld með strætisvögnum Akureyrar hækka um u.þ.b. 9% um næstu áramót ef bæjar- stjórn staðfestir tillögur stræt- isvagnastjórnar þar um á fundi sínum í dag. Að sögn Stefáns Baldurssonar, framkvæmdastjóra Strætisvagna Akureyrar, eru ástæður þessarar hækkunar fyrst og fremst þær að kostnaður við rekstur strætis- vagnanna hefur aukist með hækkun verðlags og launa svo eitthvað sé nefnt. Sem dæmi um fyrirhugaðar hækkanir má nefna að einstök fargjöld fullorðinna hækka úr 22 kr. í 25 kr., fargjöld barna hækka úr 7 kr. í 8 kr., 20 ferða kort full- orðinna hækka úr 360 kr. í 400 kr., 20 ferðakort barna hækka úr 90 kr. í 100 kr. og 20 ferða kort aldraðra hækka úr 180 kr. í 200 kr. -yk. staðahrepps, Svalbarðsströnd, Glæsibæjarhreppi, Arnarnes- hreppi, Hörgárdal og Öxnadal eru tengdir beint inn á símstöð- ina á Akureyri. Peir sem hringja í númer innan sömu símstöðvar borga Iægsta gjald en um leið og símtalið fer í gegn um aðra sím- stöð hækkar gjaldið til muna. Þannig er t.d. dýrara að hringja til Akureyrar frá Hvammi í Hrafnagilshreppi sem er 5 kíló- metra frá símstöðinni á Akureyri en frá Reykjum í Fnjóskadal. Þegar símstöðin var sett upp á Hrafnagili var ekki unnt, fjar- lægðarinnar vegna, að tengja sveitirnar sunnan Akureyrar beint inn á stöðina á Akureyri en með nýrri tækni er nú hægt að tengja t.d. allan Fnjóskadal inn á stöðina á Akureyri. Það þyrfti því að breyta öllu gjaldtökukerfi símans ef koma ætti á jafnri stöðu allra símnot- enda á þessu svæði. Þess má að lokum geta að fyrir Alþingi hefur verið lagt frumvarp þess efnis að landið allt verði gert að einu gjaldsvæði í áföngum. -yk. , víT.J, iimunSCttMb Skyldi vera bræla? Eða bara frí? Mynd: KGA Atvinnuleysisbætur í S.-Þingeyjarsýslu: 260 einstaklingar fá 1800 þús. krónur er „Þetta vinnuleysi miðað við ovenju mikið at- í nóvembermánuði undanfarin ár og Jarðgöng um Ólafsfjarðarmúla: Engin fjárveiting Samkvæmt vegaáætlun er eng- in fjárveiting til framkvæmda á næsta ári við göng í gegnum Ólafsfjarðarmúla. í sumar var grafið og sprengt frá væntanlegum munnastæðum, sitt hvorum megin fjallsins og voru það að sögn Helga Hall- grímssonar hjá Vegagerð ríkisins lokaaðgerðir á vettvangi áður en gerð ganganna sjálfra hefst. Lítils háttar fjárveiting er á árinu 1987 til hönnunarvinnu en ekki verður byrjað á göngunum fyrr en árið 1988. Það ár eru áætlaðar 50 milljónir króna til verksins. Vegaáætlun verður endurskoð- uð eftir ár og þá kunna að verða einhverjar breytingar á fyrirhug- uðum hraða verksins en ljóst er að ekkert gerist á næsta ári. -yk. Tíminn útrunninn? Eða rétt að Mynd: KGA horfurnar fyrir desember eru ennþá dekkri,“ sagði Snær Karlsson hjá Verkalýðsfélagi Húsavíkur í samtali við Dag í gær. Þar verða í dag greiddar at- vinnuleysisbætur fyrir nóvember. Alls verða greiddar um 1800 þús- und krónur til 260 einstaklinga vegna 2755 atvinnuleysisdaga í nóvembermánuði. Þar af eru á Húsavík 227 skráðir atvinnulaus- ir, samtals í 2220 daga. Að sögn Snæs Karlssonar er atvinnulaust fólk þar í bæ að langmestu leyti starfsfólk Fiskiðjusamlagsins sem sagt var upp er togarinn Kol- beinsey fór frá staðnum. í hreppunum var ástandið þannig að í Reykjahreppi var einn atvinnulaus í 21 dag, tveir í Fnjóskadal í 63 daga, 6 á Tjör- nesi í 60 daga, tveir í Reykjadal í 27 daga, 7 í Aðaldal í 26 daga og 14 í Skútustaðahreppi í samtals 208 daga. - IM Ný framleiðsla: Vélsmiðjan Atli framleiðir toghlera Vélsmiðjan Atli á Akureyri hefur í samvinnu við Haföldu hf í undirbúningi framleiðslu og sölu norska toghlera sem Hafalda hefur fengið einka- leyfi á. Starfsmenn Atla hafa unnið að þvi undanfarið að þróa og styrkja hlerana þannig að þeir henti stórum togskip- um. Hierarnir reyndust of veikir til veiða á stórum togskipum eins og þeir komu frá framleiðendum í Noregi. Eftir að starfsmenn Atla höfðu endurbætt teikningar og smíði hleranna voru þeir prófaðir á Svalbak EA og reyndust nokk- uð vel þó að þeir hafi ekki verið með öllu gallalausir. í næstu veiðiferð Svalbaks kemur vænt- anlega í ljós hvort tekist hefur að komast fyrir alla þá galla sem á hlerunum hafa fundist. Ef svo vel tekst til verður væntanlega farið að undirbúa framleiðslu og sölu á fyrstu toghlerum sem fram- leiddir hafa verið á Akureyri eftir að farið var að hafa þá úr stáli. -yk. Saurbæjarhreppur: Sýktfé á einum bæ I haust voru tekin heilasýni úr öllu fullorðnu fé sem slátrað var frá 15 bæjum í Saurbæjar- hreppi til þess að kanna hvort riðuveiki leyndist á einhverj- um þessara bæja. Tvær kindur frá einum bæ, Villingadal, reyndust vera sýktar en þar kom fram riðuveiki í fé fyrir þremur árum, að sögn Ólafs Vagnssonar ráðunautar. Mörg ár höfðu þá liðið án þess að vart yrði við riðu á þessu svæði en allt í einu kom hún fram á þrem- ur bæjum. -yk.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.