Dagur - 13.12.1985, Side 4
4 - DAGUR - 13. desember 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58,
AKUREYRI, SlMI 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON
AÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR,
BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (HÚSAVlK),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRIMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Erum mgir eftirbátar
í fikrúeftumotkun
leiðari
Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar á notkun
ávana- og fíkniefna hér á
landi, sem nýlega hefur
verið kynnt, má ætla að um
eitt þúsund manns á aldrin-
um 16-36 ára neyti kanna-
bisefna reglulega. Þessi
rannsókn og niðurstöður
hennar voru fyrst og fremst
ætlaðar sem tilraun til að
bæta úr þeim skorti sem
hefur verið á marktækum
gögnum um útbreiðslu og
notkun ólöglegra fíkniefna
hér á landi. Rannsóknin
byggir á 600 manna úrtaki
sem valið var af handahófi
úr þjóðskránni
Samkvæmt niðurstöðun-
um verður ekki séð að út-
breiðsla og notkun kanna-
bisefna sé minni hér á landi
en á öðrum Norðurlöndum,
en erfiðara er að segja til
um útbreiðslu annarra og
þá oftast sterkari efna.
Ýmislegt bendir hins vegar
til þess að meira hafi borið
á innflutningi á sterkum
ávana- og fíkniefnum síð-
ustu ár. Útbreiðsla á amfet-
amíni virðist vera svipuð
hér á landi og í Noregi.
í þessari skýrslu kemur
enn fremur fram, að fíkni-
efnamarkaðurinn á Islandi
einkennist af því að fáir að-
ilar einoki markaðinn og að
þeir undirbjóði ekki hver
annan. Svo virðist sem inn-
flytjendur og seljendur við-
haldi ákveðnu verðmynd-
unarkerfi en það er bundið
því að hópurinn þekkist að
einhverju leyti. Sala efn-
anna byggist aðallega á til-
tölulega lokuðum markaði.
í skýrslunni kemur einnig
fram, að áfengi og tóbak
séu samt sem áður lang-
mest notuðu ávana- og
fíkniefnin hér á landi og
vandamál af þeirra völdum,
t.d. varðandi dauðsföll og
innlagnir á sjúkrahús, séu
það mikil að önnur vímu-
efnavandamál falli í
skuggann.
Margt má vafalaust læra
af þessari könnun. Eitt er
þó e.t.v. athyglisverðara en
annað, við fyrstu skoðun,
og það er sú staðreynd að
ísland er ekkert einangr-
aðra en önnur lönd hvað
þetta varðar. íslendingar
geta ekki skákað í skjóli
þeirrar vonar að það hve af-
skekkt landið er muni valda
minni notkun þessara efna
hér en annars staðar. Við
erum engir eftirbátar ann-
arra Norðurlandaþjóða í
fíkniefnanotkun. Hér er
kominn upp seljenda- og
neytendamarkaður sem
fyrr en varir getur stækkað
svo um munar. Það er eðli
fíkniefnanotkunar, að
hringurinn stækkar sífellt,
fleiri ánetjast, rétt eins og
um frumuskiptingu sé að
ræða.
Mikið er í húfi að menn
haldi vöku sinni og að þetta
leiði ekki til óviðráðanlegs
krabbameins í þjóðarlíkam-
anum.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi:
RARIK-85015: Innlend stálsmíði. Háspennulínur.
Opnunardagur: miðvikudagur 15. janúar 1986, kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
mánudegi 16. desember 1985 og kosta kr. 300.-
hvert eintak.
Reykjavík 11. desember 1985
Rafmagnsveitur ríkisins.
$ SAMBANO ÍSLENZKRA SAMVINNUFÍLAGA
Iðnaðardeild - Akureyri
Til sölu IBM System/34
tölva með línuprentara
Tölvan er með magasíni fyrir segulplötur,
256k minni, og 193 Mb diskarými (3 diskar),
og fjarvinslubúnaði fyrir 1 línu (geta verið 2).
Prentarinn er IBM 5211 Model 2, 300 LPM.
Til afhendingar í maí/júní 1986.
Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Magnússon, tölvudeild Iðnaðardeildar,
sími 96-21900 og
Ragnar Pálsson, Tölvudeild SÍS, sími 91-28200.
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900
Sennkomajólin
Jólasveinarnir eru lagðir af stað ofan
úr fjöllum. Á sunnudaginn, 15. des-
ember, kl. 3 e.h. koma þeir til byggða.
Ef veður leyfir getið þið heyrt þá og séð
á svölum Vöruhúss KEA, Hafnarstræti 93.
Þá verða þeir örugglega komnir í besta jólaskap og raula fyrir okkur
nokkrar vísur.
Kaupfélag Eyfirðinga
Halló
krakkar
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskrift og auglýsingar ® (96) 24222*^^