Dagur - 13.12.1985, Page 16
Vantar þig
smurt brauð, snittur, cocktailsnittur, ostapinna,
ostabakka, smurbrauðstertur eða rjómatertur,
hafið samband við smurbrauðsstofu Bautans sími 21818
og hún uppfyllir óskir þínar fljótt og vel.
Ullariðnaður:
„Verulegur
halli“
- segir Jón Sigurðarson
Allur ullariðnaður á íslandi er
rekinn með verulegum halla
um þessar mundir, að sögn
Jóns Sigurðarsonar, forstjóra
Iðnaðardeildar Sambandsins.
í samtali við Dag sagði Jón að
ullariðnaðurinn sæti við svipað
borð og fiskvinnslan, megnið af
afurðunum væri greitt í dollurum
sem hækka nánast ekkert á sama
tíma og allur kostnaður fer upp
á við. Fyrstu 9 mánuði þessa árs
hækkaði dollarinn ekki nema um
3-4% á sama tíma og kostnaður í
vinnslu hækkaði um u.þ.b. 27%.
Jón kvaðst áætla að tapið í ullar-
iðnaði yrði um 8% á árinu.
„Vöruþróun í ullariðnaði hefur
verið sorglega lítil í ullariðnaði
að undanförnu,“ sagði Jón. Hann
kvaðst telja að mjög vel hefði
verið staðið að markaðssetningu
íslenskra ullarvara á eriendum
markaði en menn hefðu e.t.v.
sofnað á verðinum og ekki staðið
sig í vöruþróun á síðustu árum.
■yk.
Aðalfundur Höfða hf.:
Fjárhagsstaðan
ákaflega
Kínverskir dagar
I gærkvöldi var opnuð sýning á kínverskum listmunum í kjallara Möðruvalla í M.A. Það eru nemendur í 3. bekk
samfélagsfræðideildar sem standa fyrir sýningu þessari, sem og fleiri uppákomum tengdum Kína og menningu
landsins. Þarna getur m.a. að líta þennan glæsilega blævæng sem stúlkurnar eru að skoða. Mynd KGA.
Fá bændur sauðfjárafurðir ekki greiddar 15. september?
bágborin
- Þar munar mestu um
erfiðleika Kolbeinseyjar
Útgerðarfélagið Höfði hf á
Húsavík hélt aðalfund sinn í
gær. Þar kom fram að fjár-
hagsstaöa fyrirtækisins er ákaf-
lega bág og munar þar mest
um erfiöleikana vegna Kol-
beinseyjar sem flestum eru nú
kunnir.
Höfði gerir hinsvegar út annan
togara, Júlíus Havsteen, en hann
hefur verið á rækjuveiðum allt
þetta ár og er búinn að bera 950
tonn af rækju að landi. Aflaverð-
mæti er komið í rúmar 30 millj-
ónir króna. Ákveðið hefur verið
að setja frystibúnað í Júlíus en
með því að frysta stóra rækju um
borð fæst mun hærra verð fyrir
hana, að sögn Kristjáns Ásgeirs-
sonar framkvæmdastjóra. Verkið
verður unnið í Slippstöðinni í
febrúar á næsta ári.
Takist Húsvíkingum að endur-
heimta Kolbeinsey verður líklega
hafður sami háttur á næsta ár eins
og gert hefur verið á þessu ári, að
Kolbeinsey veiði upp í kvóta
beggja skipanna en Júlíus verði
á rækjuveiðum. -yk.
Forsendur fyrir
greiðslum vantar
Samkvæmt lögum frá því í vor
um framleiðslu, verðlagningu
og sölu landbúnaðarafurða,
skal mjólkurinnleg innan bú-
marks greiðast bændum 10.
næsta mánaðar eftir innlegg.
Sauðfjárafurðir innan búmarks
eiga að greiðast þannig að
u.þ.b.75% af verðinu greiðist
eftir sláturtíð eða 15. október
en 25% eigi síðar en 15. des-
ember.
Hjá Kaupfélagi Eyfirðinga
hafa greiðslur varðandi mjólkina
gengið fyrir sig með eðlilegum
hætti, þannig að mjólkin hefur
verið greidd 10. næsta mánaðar
eftir innlegg. 75% af haustgrund-
vallarverði sauðfjárafurða var
greitt út í haust, en hins vegar er
ekki alveg ljóst hvernig verður
með þau 25% sem eiga að greið-
ast 15. desember.
„Eins og málin standa í dag
Verðjöfnunargjaldið óbreytt
- Taxtar Rafmagnsveitna ríkisins hækka um áramót
Iðnaðarráðherra hefur Iagt fyr-
ir Alþingi frumvarp þess efnis
að verðjöfnunargjald verði
óbreytt á næsta ári frá því sem
nú er eða 16%. Stefna stjórnar-
innar var að fella verðjöfnun-
argjald niður í áföngum en nú
virðist eiga að fresta því a.m.k.
um eitt ár.
Páll Flygering sagði í samtali
við Dag að iðnaðarráðherra
hefði metið það svo að rétt væri
að leggja til óbreytt verðjöfnun-
argjald á næsta ári þar sem ríkis-
sjóður réði ekki við að leggja
Orkubúi Vestfjarða og Raf-
magnsveitum ríkisins til það fé
sem nauðsynlegt er talið til þess
að mæta niðurskurði verðjöfnun-
argjalds.
Verðjöfnunargjald er lagt á
raforku aðra en húshitunarorku
hjá öllum rafveitum landsins að
Orkubúi Vestfjarða og Raf-
magnsveitum ríkisins undan-
skildum. Verðjöfnunargjaldið er
síðan notað til að greiða niður
raforku hjá þessum tveim orku-
veitum og fær Orkubúið 20% en
Rafmagnsveiturnar 80%.
Það hefur vakið athygli og þyk-
ir sumum óréttlátt að á sama
tíma og Hitaveita Akureyrar og
fleiri hitaveitur eiga í miklum erf-
iðleikum eru notendur þessara
sömu veitna að taka þátt í því að
greiða verðjöfnunargjald sem
notað er til að greiða niður hitun-
arorku hjá öðrum. Til dæmis um
þetta má nefna að í kring um Ak-
ureyri, á orkusölusvæði Raf-
magnsveitna ríkisins, greiða not-
endur niðurgreiddrar raforku
minna fyrir húshitun en þeir sem
fá sinn hita frá Hitaveitu Akur-
eyrar. Á sama tíma greiða Akur-
eyringar verðjöfnunargjald af
rafmagni frá Rafveitu Ákureyr-
ar. Páll kvaðst kannast við þetta
en vissi ekki til þess að til stæði
að breyta lögum um verðjöfnun-
argjald í því skyni að rétta af hlut
Akureyringa og annarra sem búa
við háan húshitunarkostnað
vegna erfiðrar stöðu hitaveitna.
Hinsvegar sagðist hann vita til
þess að gjaldskrá Rafmagns-
veitna ríkisins yrði hækkuð þó
nokkuð um áramót og eftir þá
hækkun yrði húshitunartaxti
þeirra ekki hagstæðari en hjá
Hitaveitu Akureyrar. -yk.
skortir forsendur fyrir þeirri
greiðslu,“ sagði Valur Arnþórs-
son kaupfélagsstjóri. „í fyrsta
lagi hefur yfirlit um búmark
hvers og eins framleiðanda ekki
borist frá landbúnaðarráðuneyt-
inu. Við vitum því ekki hversu
mikil framleiðsla er innan bú-
marks og hversu mikil utan, en
okkur er óheimilt að greiða fyrir
framleiðslu utan búmarksins.
í öðru lagi hafa greiðslur frá
ríkinu ekki borist en ríkið ætlaði
að fjármagna þessa hröðu út-
borgun með því m.a. að greiða
útflutningsbætur og niðurgreiðsl-
ur fyrirfram. Við vitum ekki hve-
nær von er á þeim greiðslum eða
hvort þær eru yfirleitt í farvatn-
inu. Loks áttu afurðalán að
hækka núna en sú hækkun hefur
ekki séð dagsins ljós enn þá.“
Valur benti á að einungis þrír
daga væru til stefnu og hann von-
aði að þessi mál mundu skýrast
sem fyrst. BB
ísafjarðarútvarpið:
Dómnum áfrýjað
Mennirnir tíu sem dæmdir
voru í sektir þann 3. desember
s.I. fyrir rekstur ólöglegrar út-
varpsstöðvar á Isafirði í verk-
falli opinberra starfsmanna
haustið 1984 ákváðu á fundi í
gær að áfrýja dómnum til
Hæstaréttar.
Útvarpsstöðin sem nefnd var
ísafjarðarútvarpið var starfrækt í
tvo daga í verkfalli opinberra
starfsmanna í fyrrahaust og var
útsendingum hennar hætt um leið
og Ríkisútvarpið tók að útvarpa
fréttum. Fulltrúi sýslumanns á
ísafirði kvað upp dóminn þar
sem ákærðu var gert að greiða
samanlagt 35 þúsund krónur í
sekt auk málskostnaðar sem
nemur 43 þúsundum króna.
Verjandi tímenninganna er Jón
Steinar Gunnlaugsson hrl. -yk.