Dagur - 27.12.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 27. desember 1985
_matarkrókuL
Friðjón Ámason veitingamaður á Akureyri:
Landið þitt
ísland
iokabindi og lykilbók
í tilefni þess að út er komið 6. bindi
hins mikla ritverks Lundid þitt Is-
l;ind sem jafnframt er lokabindi og
lykilbók að öllu ritverkinu, efndu
Bókaútgáfan Örn og Örlygur og
Prentsmiðjan Oddi hf. til blaða-
mannafundar og útgáfuhátíðar í
húsakynnum prentsmiðjunnar að
Höfðabakka í Reykjavík. Þar
greindi Þorgeir Baldursson forstjóri
prentsmiðjunnar frá því að það
hefðu verið mikil tímamót í ís-
lenskri prentsögu þegar bókaútgáf-
an ákvað að flytja prentun þessara
bóka inn í landið, en tvö fyrstu
bindin voru prentuð í Danmörku.
Ástæðan fyrir þeirri ákvörðunar-
töku bókaútgáfunnar hefði verið sú
að prentsmiðjan hefði þá tckið í
notkun nýjar og afkastamiklar
prent- og bókbandsvélar sem gátu
annað jafn viðamiklu verkcfni og
bækurnar Landid þitt ísland \ raun-
inni eru. Þorgeir gat þess einnig að
það væru að sama skapi mikil tíma-
mót í íslenskri prentsögu þegar lok-
ið væri við frumprentun allra sex
bindanna því þetta verk ætti sér
enga hliðstæðu hérlendis.
Örlygur Hálfdanarson bókaútgef-
andi greindi frá efni hinnar nýju
bókar og gaf jafnframt yfirlit varð-
andi umfang alls verksins. Hann gat
þess að fyrri útgáfan sem kom út
1966 og 1968 hefði verið tveggja
binda verk, alls 696 blaðsíður. Upp-
flettiorð beggja bindanna voru
2660, myndir voru 47 og allar svart-
hvítar, staðanöfn voru 5686 og nöfn
á mönnunt, verum og vættum 1923.
Nýja útgáfan er sex bindi, blaðsíð-
urnar 1869 (þriðjungi stærri en í
fyrri útgáfu), uppflettiorðin um
4600, myndir rúmlega 1400 og nær
allar í lit, staðanöfnin eru 14.300 og
nöfn á mönnum, verum og vættum
um 4300. Aðalhöfundar fimm fyrstu
bindanna eru þeir Þorsteinn Jóseps-
son og Steindór Steindórsson en
Helgi Magnússon bókavörður ann-
aðist ritstjórn.
Lokabindið er 416 blaðsíður og
hefst það á sérkafla um Bessastaði
eftir Einar Laxness sagnfræðing.
Á eftir kaflanum urn Bessastaði
er annar sem ber heitið Leiftur frá
liðnum öldum. Þar er í tugum ljós-
mynda og litaðra teikninga dregið
fram það líf sent lifað var í landinu
til sjávar og sveita. Verkmenning
fyrri alda og kjör fólks koma t.d. vel
fram í myndum er sýna hlóðaeld-
hús, eyðibýli, kvíaból, hlaðnar fjár-
borgir, yfirgefin amboð, ferðabúnað
og steinatök þar sem þolrif manna
voru reynd og prófuð í verstöðvun-
Innanhússmót KRA í knatt-
spyrnu verður haldið dagana
27. og 28. des. 1985. Til leiks
mæta lið frá KA, Þór og
Vaski.
Mótið hefst kl. 18.15 á föstu-
daginn og eru það yngstu knatt-
spyrnumennirnir sem þá spila.
Leikið verður til kl. rúmlega 23
og lýkur fyrri degi keppninnar
um. F.in myndanna er úr baðstof-
unni í Glaumbæ í Skagafirði. Sú
mynd fylgir einnig bókinni sérprent-
uð, 58x68 cm, ætluð til innrömmun-
ar þeim sem það vilja.
í síðari hluta bókarinnar er lykill
að fyrri bindunum fimm. Svo sem
alkunna er þá er Landið þitt ísland í
handbókarformi og uppflettiorðin
eru staðanöfn. Uppflettiorðin eru
alls um 4600, eins og áður segir, en
staðanöfn í öllum bindunum eru
hins vegar 14.300. Þá eru í bókun-
um um 4300 nöfn á mönnum, verum
og vættum. Það hefur því stundum
viljað vefjast fyrir mönnum að finna
nöfn sem ekki eru uppflettiorð, en
með þessum lyklum, nafnaskrám
bókarinnar, er úr þessu bætt.
lyiinningar Huldu
Á. Stefánsdóttur
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur
gcfið út fyrsta bindi minninga Huldu
Á. Stefánsdóttur. Hulda hefur
skráð bók sína sjálf en Hjörtur Páls-
son bjó hana til prentunar.
Á bókarkápu segir m.a.: í fyrsta
bindi endurminninga sinna segir
Hulda Á. Stefánsdóttir frá ætt sinni
og uppruna, foreldrum sínum og
bernskudögum í Hörgárdal, en
breiddin í frásögn hennar tengir
sögu og samtíð og bregður ljósi yfir
liðinn tíma, m.a. með gömlum bréf-
um og óbirtum kveðskap. Fólk, at-
vik og staðir verða Ijóslifandi í frá-
sögn Huldu. Mannlýsingar hennar
eru skýrar og hispurslausar, yljaðar
kímni og næmum lífsskilningi. Þar
er dregin upp mynd af gömlum
búskaparháttum og daglegu lífi í
sveit og bæ fyrir áratugum. Alþýða
og höfðingjar, karlar og konur,
bændur og Hafnarstúdentar, hefð-
arkonur og heldrimenn koma við
sögu í ólíkum verkahring og mis-
jöfnu umhverfi sem vel er lýst. Þess
vegna verða minningar hennar
náma fyrir alla sem unna mannfræði-
menningarsögu og þjóðlegum fróð-
leik í víðum skilningi. Öll frásögnin
er eðlileg og yfirlætislaus. Penninn
leikur í höndum Huldu sem kann þá
list að segja sögu, þannig að mál og
stíll hlýði höfundinum og hrífi með
sér lesandann.
Minningar Huldu Á. Stefánsdótt-
ur munu, ef að líkum lætur, skipa
henni á bekk með nokkrum þeint
löndum hennar sem samið hafa
merkastar minningabækur á síðustu
áratugum.“
Bókin Minningar Huldu Á. Stef-
ánsdóttur er sett og prentuð í Prent-
stofu G. Benediktssonar en bundin í
Arnarfelli hf. Kápumynd er mál-
verk sem Kristín Jónsdóttir listmál-
ari málaði af Huldu þegar hún var
um tvítugt.
með leik Þórs og KA í meistara-
flokki karla. Daginn eftir hefst
keppnin kl. 12.15 og er reiknað
með að mótinu Ijúki kl. 15.50
með verðlaunaafhendingu.
Er hér gullið tækifæri fyrir
knattspyrnunnendur að sjá
marga góða leiki og víst er að
ekkert verður gefið eftir frekar
en fyrri daginn.
Pað er ekki í kot vísað
þar sem er Friðjón
Arnason veitingamaður
í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri. Friðjón er Akur-
eyringur að upplagi og
nam veitinga- og hótel-
rekstur bœði hér heima
og í Florida í Banda-
ríkjunum. Ef allt fer að
óskum, opnar Friðjón
ásamt eiginkonu sinni
og bróður veitingahús á
efstu hœð Alþýðuhúss-
ins nýja. Ef veitingar
verða í sama stíl og
kemur fram í uppskrift-
um hans verður ekki
amalegt að fá sér í
svanginn á „Fiðlaran-
um, “ eins og nýi veit-
ingastaðurinn á að
heita. Friðjón segir að
fyllt kartöfluhýði sé al-
gert sœlgæti. Pá er ekk-
ert eftir nema setja á sig
svuntuna og byrja mats-
eldina. Ekki sakar að
bjóða gestum í mat og
smakka góðgætið.
Rœkjur í bjór
fyrir ca. 6 manns
1 flaska pilsner (eða bjór eftil er)
1 lárviðarlauf
chilipipar á hnífsoddi
1 msk. franskt sinnep
1 tsk. malaður svartur pipar
400 g rœkjur
2 tsk. borðedik
1 hvítlauksrif saxað.
Hellið ölinu/bjórnum á pönnu
ásamt laufinu, piparnum og sinn-
epinu, látið sjóða niður um ca.
Vs. Takið af hitanum, bætið rækj-
unum út í ásamt ediki og hvítlauk
og hrærið vel saman. Kælið í ca.
30 mín., síið vökvann frá rækjun-
um og berið fram með ristuðu
brauði og smjöri og skreytingu
eftir smekk.
New-River salat
fyrir ca. 6 manns
3A haus Iceberg rifið
'A haus rauðkál rifið
150 g rœkjur
3 mandarínur klofnar í báta
50 g saxaðar möndlur
3-4 litlir tómatar skornir í báta
100 g ferskir sveppir skornir
í sneiðar.
Framangreind atriði eru blönduð
vel saman og borin fram með
New-River dressingu eða annarri
dressingu eftir vali.
New-River dressing
150g hunang
150 g appelsínusafi
50 g sítrónusafi
!A tsk salt
!A tsk. paprika.
Hrært vel saman.
Fyllt kartöfluhýði
fyrir ca. 6 manns
6 stórar bökunarkartöflur
12 ostsneiðar (óðalsostur)
150 g bacon saxað smátt
150 gferskir sveppir saxaðir smátt
1 dós sýrður rjómi.
Burstið kartöflurnar vel undir
rennandi vatni, þerrið og nuddið
þær utan með fínu salti. Bakið f
ofni við ca. 175°C hita í 1 klst.,
látið kólna og dustið saltið af.
Skerið hverja kartöflu til helm-
inga, skafið innan úr hýðinu en
skiljið eftir ca. 5 mm þykkt kart-
öflulag innan á hýðinu. Brúnið
baconið á vel heitri pönnu, bætið
sveppunum út í og steikið þar til
þeir verða meyrir. Takið af hitan-
um og bætið kartöfluskafinu og
sýrða rjómanum út í. Leggið eina
ostsneið í hvern kartöfluhelming,
fyllið með fyllingunni (kartöflu/
bacon/sveppa-massanum) og
bakið í ofni við ca. 200°C hita í
ca. 5 mín., eða þar til fyllingin
byrjar að brúnast ofan. Krydda
má fyllinguna með salti og pipar
eftir smekk. Borið fram eitt sér
með skreytingu sem smáréttur.
Frosinn
appelsínubúðingur
fyrir 6-8 manns
2 msk. (ca. 12 blöð) matarlíms-
duft leyst upp í 'A bolla
af köldu vatni
6 eggjarauður
V/2 bolli appelsínusafi
2 bollar sykur
% bolli appelsínulíkjör
!/i l rjómi, þeyttur
saxaðar möndlur og
súkkulaðispœnir.
Hitið matarlímslausnina að suðu.
Þeytið eggjarauðurnar í skál,
blandið þeytta rjómanum varlega
saman við. Blandið appelsínusaf-
anum, sykrinum og líkjörnum út
í matarlímslausnina, þeirri lausn
síðan varlega saman við þeytta
rjómann með eggjarauðunum.
Hellið í litlar skálar og frystið í
a.m.k. 4 klst. Takið úr frysti ca.
!Á klst. áður en bórið er fram og
skreytið að vild með þeyttum
rjóma, súkkulaðispónum og
möndlum.
Inmmhússmót KRA