Dagur - 27.12.1985, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 27. desember 1985
Getur einhver leigt mér 3ja
herb. íbúð? Skilvísi og góöri um-
gengni heitið. Uppl. í síma 23886.
ibúð óskast:
Óska eftir 2ja herb. íbúð sem fyrst.
Er einn í heimili. Uppl í síma 96-
63132 eftir kl. 19.00.
Hreingerningar, teppahreinsun,
gluggaþvottur.
Tökum að okkur hreingerningar á
íbúðum, stigagöngum og stofnun-
um, einnig teppahreinsun með
nýrri djúphreinsivél sem hreinsar
með góðum árangri. Vanir og
vandvirkir menn. Aron í síma
25650 og Tómas í síma 21012.
Hreingerningar-Teppahreinsun.
Tökum að okkur teppahreinsun,
hreingerningar og húsgagna-
hreinsum með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
Jólaglögg og líkjörar í flöskum.
Víngerðarefni, sherry, vermouth,
rósavín. Bjórgerðarefni frá Dan-
mörku, Þýskalandi og Englandi.
Gernæring, vitamín, essensar,
síur, felliefni, sykurmælar, vatns-
lásar, tappavélar, bjórkönnur, alls
konar mælar og fleira og fleira.
Sendum í póstkröfu.
Hólabúðin, Skipagötu 4,
sími 21889.
Hestamenn - Hestamenn.
Tökum að okkur tannröspun og
járningar á hestum í vetur. Útveg-
um skeifur. Vanir menn.
Einar Jónasson, sími 25068.
Einar Örn Grant, sími 22029.
Ökukennsla.
Vilt þú læra á bíl eða bifhjól?
Lærið á hagkvæman og öruggan 1
hátt á nýjan GM Opel Ascona
1600. Útvega öll prófgögn og
vottorð.
Egill H. Bragason, ökukennari,
sími 23347.
: Leikfélag
] Akureyrar
m
: Jóíaæviniýri
■ Söngleikur byggður á sögu eftir
^ Charles Dickens.
jFöstud. 27. des. kl. 20.30.
■ Laugard. 28. des. kl. 20.30.
^Sunnud. 29. des. kl. 16.00.
“ Mánud. 30. des. kl. 20.30.
: Miðasala opin í Samkomuhúsinu
J sýningardagana frá kl. 14.00
■ og fram að sýningum.
: Miðapantanir í
; síma 24073.
ATHUGIB
SUF vinningsnúmer:
24. des. 4377
Minningarspjöld minningarsjóðs
Guðmundar Dagssonar Kristnes-
hæli fást í Kristneshæli, Bóka-
verslúninni Eddu Akureyri og
hjá Jórunni Óiafsdóttur Brekku-
götu 21 Akureyri.
Munið minningarspjöld kvenfé-
lagsins „Framtíðin". Spjöldin fást
í Dvalarheimilunum Hlíð og
Skjaldarvík, hjá Margréti Kröyer
Helgamagrastræti 9, Bókabúð Jón-
asar, Versluninni Skemmunni og
Blómabúðinni Akri, Kaupangi.
Allur ágóði rennur í elliheimilis-
sjóð félagsins.
Maðurinn minn,
ÓLAFUR MAGNÚSSON,
pípulagningameistari,
Brekkugötu 25,
verður jarðsunginn mánudaginn 30. des. kl. 13.30 frá Akureyr-
arkirkju. Blóm og kransar afþakkað.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Barnadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Droplaug Pálsdóttir,
dætur, tengdasynir og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
ÞÓRHALLUR JÓNASSON,
Hafnarstræti 33, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 28. des-
ember kl. 11.00 f.h.
Lilja Guðlaugsdóttir,
Margrét Þórhallsdóttir, Karl Eirfksson,
Þórhalla Þórhallsdóttir, Hjörtur Hjartarson,
Valdimar Þórhallsson, Inga Hjáimarsdóttir,
Gylfi Þórhallsson,
Eyþór Þórhallsson
og barnabörn.
„íslendingar þurfa
meira en bamatrú“
- Tveir ungir mormónatrúboðar í viðtali
Darron og Michael John.
Eflaust hefur dyra-
bjöllunni verið hringt
hjá þér ogþú farið til
dyra og búist við öðru
en því að tveir ungir
menn, snyrtilegir og
kurteisir, kynni sig sem
menn frá „kirkju Jesú
Krists, hinna síðari
daga heilögu. “ Það
kemur fyrir að þessir
ungu kurteisu mennfái
ekkert svar, heldur sé
útihurðinni skellt að
stöfum. Þeir segja að
það sé óþægilegt þegar
þvílíkt gerist, en ekki
dugi að gefast upp
heldur fara og hitta
nœsta mann og byrja á
sömu kynningunni, við
erum frá kirkju...,og
svo framvegis.
Þessir tveir ungu menn birtust
við útidyr mínar fyrir skömmu og
vildu tala um sín hjartans mál.
Þeir eru í einfaldari skýringu
mormónar. Margir hafa talið
mormóna fjölkvænismenn. Það
var reyndin fyrr á árum, eða um
það leyti þegar íslendingar hófu
för sína til Vesturheims og margt
hefur verið ritað um. Þeir Darron
Allred og Michael John Miller
eru Bandaríkjamenn báðir, enda
mormónstrúin útbreidd í því
stóra landi og upprunnin. Darron
er frá Utah þar sem eru höfuð-
stöðvar Mormóna. Michael John
er frá New York ríki en býr einn-
ig í Utah. Báðir eru þeir komnir
af mormónafjölskyldum. Faðir
Darrons er sálfræðingur og hygg-
ur sonurinn á samskonar nám.
Michel John segist ætla í raf-
magnsverkfræði. Báðir hafa þeir
lokið einu ári f háskóla. Munu
þeir væntanlega snúa sé að nám-
inu loknu að trúboðsstarfi hér á
íslandi. Sóttu þeir um að fá að
stunda trúboð í tvö ár. Ekki vissu
þeir neitt um ísland er ákveðið
var að þeir færu þangað. Því
þurfti að byrja á því að kynna sér
land og þjóð í gegnum þá menn
sem starfað höfðu hér á landi
áður. íslenskukennslu fengu þeir
hjá þeim líka. Darron sem kom
hingað í september 1984 talar
mjög góða íslensku. Michael
John kom í ágúst s.I. Fær hann
því ekki að fara heim til Utah
fyrr en í júní 1987. Darron fer
hins vegar heim um mitt næsta
ár.
- Hvað tekur þá við hjá þér?
„Ætli maður fari ekki að huga
að því að gifta sig,“ segir hann.
Að sjálfsögðu held ég áfram
námi í Brigham Young-háskólan-
um. Það er mormónaháskóli sem
einnig er opinn öðrum en morm-
ónum.“
- Nú þarft þú John Michael að
vera hér í eitt og hálft ár til við-
bótar. Færðu að fara heim í milli-
tíðinni?
Nei, það er ekki leyft. Trúboð-
ið felst í því að vera í burtu í tvö
ár.“
- Er það ekki erfitt að vera að
heiman svo lengi?
„Það getur verið mjög erfitt
stundum,“ segir Darron. Það má
ekki gleyma því, að við förum í
trúboð af fúsum og frjálsum vilja.
Þetta er nokkurs konar reynslu-
tími hjá okkur.“
- Eru þá öll ykkar verk tengd
trúnni, eða hafið þið tómstundir?
„Allt okkar líf er trú. Tóm-
stundir fara í að lesa í Mormóns-
bók og Bíblíunni."
- Þeir trúbræður hafa báðir
lært á hljóðfæri, Darron á tromp-
et í átta ár og John Michael á
píanó og gítar í svipaðan tíma.
Þeir segja báðir að ekki sé leyft
að hafa hljóðfærin með í trúboðs-
ferðir. Það taki of mikinn tíma
frá trúboðinu. „Við erum með
hugann við trúboðið allar
stundir. Annað er ekki hægt,“
segir John Michael.
- Hver sér ykkur fyrir pening-
um til að vera hér á landi í tvö ár?
„Söfnuðurinn styrkir okkur til
að komast á áfangastað. Að öðru
leyti sjáum við um okkur sjálfir.
Ég var búinn að safna peningum
til að komast í þessa ferð og lifi á
þeim núna,“ segir Darron. Sama
er að segja um John Michael.
„AHir trúboðar kosta sitt starf
sjálfir. Það eru talin forréttindi
að fá að fara í trúboð, þess vegna
borgum við allt sem við þurfum.“
- Samkvæmt reglum sem
mormónar setja sér gagnvart
trúboði, verða menn að vera
orðnir 19 ára þegar þeir hefja
starfið. Þá eru þeir „kallaðir,“
eins og það heitir hjá þeim.
Ævinlega er mikill fjöldi af ungu
fólki sem sækir um að komast í
trúboð, en fáir eru útvaldir. Á ís-
landi telur söfnuðurinn 110
manns. Flestir eru í Reykjavík.
Einnig er 50 manna söfnuður í
Keflavík og tengist sá hópur her-
stöðinni. Það eru hermenn og
fjölskyldur þeirra. Töluverð
hreyfing er í þeim hópi vegna
tíðra flutninga manna þar.
- Hvernig hefur svo ísland og
íslendingar tekið á móti morm-
ónatrúboðunum ungu sem báðir
eru um tvítugt?
Þeir voru sammála um það
félagarnir að þeim liði vel á ís-
landi. Hér væri fallegt land og
fallegt fólk. Einnig væri margt
gott fólk hér. Misjafnt fólk er að
sjálfsögðu hér eins og annars
staðar.
- Hvernig gengur svo trúboðið
á íslandi?
„Það gengur ágætlega. Þó ekki
séu það margir sem gangi í
söfnuðinn hverju sinni, er
trúboðið fyrir mestu og að kynna
fólki það sem mormónatrú hefur
upp á að bjóða. Okkur finnst að
Islendingar þurfi meira en barna-
trú.“ gej-
Leiðrétting
í afmælisgrein um Jónínu Guð-
mundsdóttur, sem birtist í blað-
inu á Þorláksmessu, urðu þau
mistök í fyrirsögn að sagt var að
hún yrði níræð á jóladag. Það átti
að vera 95 ára, enda kemur fram
strax í upphafi' greinarinnar að
hún er fædd 1890. Eru hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á þess-
um mistökum.