Dagur - 17.02.1986, Page 3

Dagur - 17.02.1986, Page 3
17. febrúar 1986 - DAGUR - 3 Júlíus Krístjánsson framkvæmdastjóri AKVA ásamt þýskum sérfræðingi. Hér er vatnið komið í umbúðir. Myndir: KGA. „Stendur og fellur með góðri vöm“ - Rætt við Þórarinn Sveinsson um vatnsútflutning AKVA Þá er stundin runnin upp. Byrjað er að pakka vatni til útflutnings frá Mjólkursamlag- inu á Akureyri. Hugmyndin um vatnspökkun er nokkuð gömul og margir hafa sýnt henni áhuga. Kaupfélög á Norður- landi tóku sig saman og stofn- uðu fyrirtækið AKVA til að hrinda þessum áformun í fram- kvæmd og nú eru fyrstu fern- urnar komnar í gegnum pökkunarvélina. Er vatnið framleitt undir heitinu Natural Icelandic Aqua minerale. Vélin sjálf er búin að standa ónotuð nokkurn tíma, en ýmis- legt hefur orðið þess valdandi að ekki var byrjað að pakka fyrr en í dag. Umbúðir voru ekki tilbún- ar, bilun í prentvél og fleiri atriði komu þar inn í. Það var ríkjandi nokkur eftir- vænting meðal starfsmanna þegar pökkunin hófst. Menn voru að líta inn í salinn þar sem vélarnar komu frá sér fullpökkuðu vatn- inu. Gul aðvörunarljós blikkuðu þegar eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Þýskir sér- fræðingar frá verksmiðjunni sem framleiðir vélarnar voru að störf- um ásamt starfsmönnum Mj ólkursamlagsins. Vélin sér um alla þætti pökkunarinnar, eða frá því tómar umbúðir eru settar í hana og þar til fernurnar eru komnar í plastumbúðir og tilbún- ar til útflutnings. Þórarinn Sveinsson Mjólkur- samlagsstjóri sagði að hreinlæti væri stór liður í því að þessi til- raun til útflutnings tækist. Enda kemur mannshöndin hvergi ná- lægt þegar vatnið streymir í um- búðirnar. Vélin sér sjálf um geril- sneiðingu vatnsins og pakkar því undir þrýsting. Síðan er hátíðni- hljóði beitt til að loka umbúðun- um. Á vélum sem loka mjólkur- fernum er hins vegar hiti, eða raf- magn notað til þess. Þórarinn sagði að það gæti komið bruna- bragð af mjólk við slíka lokun umbúða. „Vatn er þannig saman- sett að það hefur ekki nein efni til að fela aukabragð," sagði Þórar- inn, „svo þessi aðferð er nauð- synleg. Enda leggjum við mikið kapp á að vatnið komist sem best til notenda. Vatnið er pakkað með 6 mánaða geymsluþol í huga, en það endist mun lengur," sagði hann og bætti við, „Þessi framleiðsla stendur og fellur með góðri vöru og góðri sölu." AKVA sér ekki um sölu vatnsins, heldur er það danskt fyrirtæki sem var stofnað sérstak- lega til að annast sölu fyrir AKVA. Nefnist það Icelandic Supply APS og er staðsett í Odense í Danmörku. Helsti markaður sem þetta fyrirtæki er í sambandi við eru Evrópulönd og Bandaríkin. Einnig standa yfir viðræður við aðila í Austurlönd- um nær, en þar á áð vera stór markaður ef að líkum lætur. Umbúðirnar sem pakkað er í eru 0,2 og 0,5 lítra og fær AKVA 6,10 krónur fyrir 0,5 lítra og 4,62 krónur fyrir 0,2 lítra. Þetta er fob. verð á Akureyri. Áætlanir um framleiðslu eru 10 milljónir pakkninga á ári og er þá unnið í dagvinnu við pakkninguna, en framleiðslugeta verksmiðjunnar er mun meiri. Ef framleiðsla í dagvinnu selst, á verksmiðjan að standa undir sér. Stofnkostnaður verksmiðjunnar liggur ekki endanlega fyrir, en talað er um kostnað á bilinu 8-12 milljónir. Þórarinn var spurður um vonir í sambandi við sölu. „Við gerum okkur góðar vonir og munum kappkosta að vanda framleiðsl- una. Það er mikið gæðaeftirlit með framleiðslunni, bæði hjá okkur og einnig hjá söluaðila er- lendis svo þetta lofar góðu.“ gej- Fóstrur - Starfsfólk! Starfsfólk vantar að leikskólunum Árholti og Lundarseli frá 1. apríl 1986. Allar nánari upplýsingar á Félagsmálastofnun Ak- ureyrar alla virka daga frá kl. 10-12, sími 25880. Skriflegar umsóknir skilist inn fyrir 1. mars nk. Dagvistarfulltrúi. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI leitar að manni til að starfrækja vélahermi (simulator) Nauðsynlegt er, að viðkomandi hafi lokið námi í vél- fræði, véltæknifræði eða hliðstæðum greinum. Starfsþjálfun fer fram erlendis. Upplýsingar veitir skólameistari í síma 96-26811 og fulltrúi bygginganefndar í síma 96-23251. Skólanefnd. Markaðsdagar í Grýtu 14. febrúar-22. febrúar Hvítt postulín á tilboði! Bastvörur - Trévörur - Leir og postulín - Glervörur - Plastvörur - Stálvörur - Gólfmottur. Hestamenn! Látum ekki aka á okkur í skammdeginu - notum ENDURSKINSMERKI LETTIR >, \ísuki»/ HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR Slolnað 5 nov 1928 P O Bo\ 348 - 60? At.uiey

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.