Dagur - 17.02.1986, Blaðsíða 11
17. febrúar 1986 - DAGUR - 11
„Við viljum mýið“
- segir Arngrímur Geirsson, en, Mývetningar hafa áhyggjur
vegna breytinga á lífríki vatnsins
N
Gömul mynd tekin á Mývatni þegar veiðin var góð og silungarnir vænir.
„Eins og er virðist vera tölu-
vert af smáum silungi í Mý-
vatni og hann er nokkuð vel á
sig kominn holdafarslega séð.
Hins vegar er ekki mjög bjart
framundan, þar sem ekki virð-
ist ætla að koma upp mý eitt
árið enn hér í sveitinni, en það
er eitt af skilyrðum fyrir því að
góður silungur veiðst í vatn-
inu,“ sagði Arngrímur Geirs-
son formaður Veiðifélags
Mývatns.
Nokkrar breytingar hafa orðið
á lífríki Mývatns á undanförnum
árum og greinir menn á um hver
ástæðan sé fyrir því. Árið 1982
varð mikið hrun á átu í Mývatni,
en þá voru veiðitakmarkanir, en
veiði var góð það vor og sumar,
þegar kvótinn kláraðist. Ætluðu
Mývetningar síðan að láta silung-
inn sem eftir var vaxa og veiða
hann næsta sumar. Þessi silungur
skilaði sér ekki þar sem átustofn-
inn í vatninu hrundi. Eftir þenn-
an tíma hefur verið mikil lægð í
vatninu og silungurinn lélegur.
Af þeim sökum var lítið veitt árið
1984. Pað gerist svo á síðast
sumri að hluti átunnar kemur til
baka. Er um að ræða 2 tegundir
krabbadýra sem bændur kalla sín
á milli kornátu. Petta eru krabba-
dýr sem kvikna í júlí og ágúst og
lifa fram í október. Tilkoma át-
unnar virkaði eins og vítamín-
sprauta á lífið í vatninu og fiskur-
inn sem veiddist síðla sumars í
fyrra var í þokkalegu standi og
sumt af honum var mjög gott.
Síðastliðið sumar fóru fram
miklar rannsóknir sem Jón Krist-
jánsson fiskifræðingur stjórnaði.
Niðurstöður þeirra rannsókna
voru þær helstar að nokkuð mik-
ið virðist vera af smærri silungi í
vatninu sem ekki hefur náð að
vaxa upp í þá stærð sem bændum
þykir æskileg, en það er 500
gramma silungur. Svo kemur í
ljós að vænni silungur er farinn
að éta hornsíli sem mikið er af í
vatninu en er engin kjörfæða
fyrir bleikju og hún étur ekki ef
hún hefur annað sem hún vill
frekar. Mönnum hefur m.a. dott-
ið í hug að mikill aukning á horn-
síli eigi sinn þátt í því á átustofn-
inn hrundi. Fiskifræðingar lögðu
svo til í framhaldi af rannsóknun-
um, að möskvastærð neta yrði
minnkuð til að veiða smærri sil-
ung og hlífa þeim stærsta og leyfa
honum að éta hornsíli, jafnframt
því að fá fram nokkuð öruggan
hrygningarstofn.
í framhaldi af þessum niðurstöð-
um var gerð samþykkt veiði-
bænda í janúar, þar sem leyft er
að nota net með 39 mm möskva-
stærð. Annað sem ekki er talið
síður mikilvægt, er að þak var
sett á möskvastærðir. Nú er
óheimilt að nota stærri möskva
en 45 mm sem ætti að tryggja að
stærsti silungurinn fær að vera
áfram í vatninu. Arngrímur sagði
að með þessum aðgerðum væri
verið að hlífa hornsílaætunum í
vatninu og prófa að láta silunginn
sjálfan hafa áhrif á vistfræðina
með því að halda hornsílunum
niðri.
Veiðimálastofnun hefur unnið
allmikið verk við rannsóknir í
Mývatni. Tekin eru sýni reglu-
lega af vatninu og sýni úr silungs-
mögum. Þrátt fyrir það er ýmsum
spurningum ósvarað varðandi
þetta mál. Einnig á eftir að koma
í ljós hvort nægjanlegt sé fyrir sil-
unginn að hafa hornsíli til matar
og kornátu þegar líða tekur á
sumarið.
Gísli Már Gíslason frá Náttúru-
verndarstofnun Háskólans hef-
ur stundað rannsóknir á mýi við
Mývatn undanfarin ár og verið
sannspár um mýgöngur við
vatnið. Rannsóknir hans benda
til þess að ekki verði um verulega
uppsveiflu í mýstofninum á næsta
sumri. „Þegar mýið er í blóma,“
eins og Arngrímur orðaði það,
elur Mývatn miklu meira magn af
silungi en þar er núna, auk þús-
unda af ýmsum tegundum fugla,
sem hefur fækkað verulega síð-
ustu ár þegar átan hefur verið í
lægð. Bleikjan og hluti af anda-
stofninum eru keppinautar um
ákveðnar fæðutegundir. „Við
viljum sem sagt fá mýið,“ sagði
Arngrímur og bætti við: „Bænd-
ur eru farnir að átta sig á því æ
betur eftir því sem árin líða, að ef
menn ætla að hafa teljandi hlunn-
indi af vatninu, verður að nota
skynsemina í stað þess að gína
yfir öllu sem mögulegt er. Það
verður að fara að með vissri gát.“
gej-
Gerð: 1
Herraskór
St. 40-45
DÖkk gróir
kÁður: 2.270.
Ite: 1.090.-
erð: 4
ý. kulda-
Jgvél
j. 35-41
jólubiátt
.ður: 2.590,
lú: 1.090.-
I tilefni 100 ára afmælis KEA ög
50 ára afmælis skógerðarinnar,
bjóðum við skó á alla fjölskylduna
á stórlækkuðu verði.
Þetta tilboð gildir dagana
17.-22. febrúar.
St. 24-35
Gerð: 3 jfl
Dömuakóflj
Boxer 9
St. 36-41 fl
Svartir
Áður: 2.075.
Nú: 1.090.-
Gerð: 2
Herra-
götuskór
St. 40-45
Dökkgráir
Áður: 2.180.
Nú: 1.090.-
Gerð: 5
Kv. kulda-
skór
St. 35-41
Grœnlr
- Fbl -
Futzia
Áður: 2.270.
Nú: 1.Q90.-
Hr. ökkia-
skór
St. 40-45
Dökkgráir
Áður: 2.600.
Nú: 1.090.-
Vinnu- og
götuskór
St. 40-45
Dökkbláir
Áður: 1.995.
■*l1.090.-
SKOGERÐIN
AKUREYRI