Dagur - 17.02.1986, Blaðsíða 9

Dagur - 17.02.1986, Blaðsíða 9
17. febrúar 1986 - DAGUR - 9 Má bjóða ykkur tíu? -Um „brúna gullið“, þjóðardrykk Islendinga íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem drekka hvað mest kaffi, sé miðað við íbúatölu. Að meðaltali notar hvert mannsbarn á landinu 10 kg af kaffi á ári, mælt í óbrenndu kaffi, eða sem svarar til u.þ.b. 3 bollum á dag. Það eru ekki mörg ár síðan að kaffi var kaffi. Þá var ekki spurt um margar mismunandi tegundir eða bragðeinkenni. Þá var Ríó kaffi frá Brasilíu allsráð- andi og enn í dag er það mest notaða kaffið hérlendis. Nú eru hins vegar margar mismunandi tegundir af kaffi á markaðinum með ýmsum bragðeinkennum. Má bjóða þér kajfisopa? Já kannski tíu. Allir geta lagað kaffi, en það tekst ekki öllum jafnvel í að laga gott kaffi. Ef þú ert meðal þeirra sem finnst að kaffið bragðist ekki alltaf jafn vel, ættirðu að athuga eftirfar- andi. Yfirleitt þarf ekki mikið til að auka gæðin á nýlagaða kaffinu sem þú hellir í bollann. Þar sem 98,5% af lagaða kaffinu er vatn, skiptir miklu máli að vatnið sé gott. Gott kaffivatn verður að vera ferskt og súrefnisríkt. Vatn sem hef- ur staðið lengi, eða verið hitað upp áður, er snautt af súrefnum, en sú- refni þarf til ef hin góðu bragð- og ilmefni eiga að losna úr kaffinu. Þannig vatn vantar allan ferskleika og bragðið af kaffinu fer eftir því. Hversu sterkt eða veikt kaffið á að vera, er smekksatriði, en viljirðu fá virkilega bragðmikið kaffi er hæfilegt að nota milli 60 og 70 g af kaffi á móti 1 lítra af vatni, eða um 10 g á bolla, miðað við að stærð bollans sé 15 cl. Við uppáhellinguna er best að nota trekt með kaffifilter, hvort sem notuð er gamla uppáhellingaraðferð- in, eða sjálfvirk kaffikanna. Áríð- andi er, að filterinn passi í trektina og athugið að filterinn sem fæst í verslunum, er af misjöfnum gæðum. Það er ekki hægt að mæla með málm- síum eða nylonsíum. Þessum síum er gjamt að þéttast og kaffileifar sem festast í þeim geta jafnframt gefið frá sér vont bragð. Þegar hellt er upp á með gamla laginu er rétt að hefja „uppáhelling- una“ strax og suðan hefur komið upp í katlinum. Rétt er að láta bununa fara í miðja trektina og sumir telja mikilvægt að láta bununa aldrei slitna. í það minnsta er mikilvægt, að Gunnar Karlsson er fram- kvæmdastjóri Kaffibrennslu Akureyrar, en þaðan kemur vinsælasta kaffið á íslandi í dag, Braga-kaffið, en Kaffibrennsla Akureyrar hefur framleitt kaffi allt frá árinu 1931. Og Kaffi- brennslan hefur fylgst með þró- uninni, því nú er hægt að fá 5 mismunandi kaffitegundir þaðan. En mönnum er mislagið að „hella upp á“. í meðfylgj- andi grein bendir Gunnar á ýmsar leiðir til að laga betra kaffi, jafnframt því sem hann gerir grein fyrir þeim mismun- andi tegundum, sem Kaffi- brennsla Akureyrar býður upp á. láta ekki setjast í trektinni fyrr en uppáhellingu er lokið. Það er líka matsatriði, hvort allt vatnið er látið fara í gegnum trektina, því þegar hellt er upp á er vatnið búið að taka það besta úr kaffinu, þegar um það bil helmingnum af því hefur verið hellt í gegnum trektina. Sumir hafa því þann háttinn á, að hella um það bil helmingnum af vatninu í trektina, en afganginum beint í könnuna. Þessi aðferð kemur í veg fyrir, að ýmis óæskileg efni losni úr korginum. En sé þessi aðferð viðhöfð þarf að sjálfsögðu að hrista vel upp í könn- unni, þannig að kaffið og vatnið blandist vel saman. Munið þegar uppáhellingu er lokið, að hræra í könnunni, því að fyrstu 40 prósentin af vatninu sem fara í gegnum kaffið, taka með sér 80 prósent af styrknum. Sé það ekki gert, situr sterka kaffð á botninum, en það veikara efst í könnunni. Hell- ið hins vegar aldrei lagaða kaffinu Fimm kaffitegundir Elsta og þekktasta tegundin er gulur Bragi, sem er hreint Ríó kaffi frá Brasilíu. Gulan Braga er hægt að fá fínmalað- an í 250 g og 1 kg pokum og grófmalaðan í 1 kg pokum. Santosblanda í rauðum pok- um er það nýjasta á markaðin- um frá Kaffibrennslunni. í nýju Santosblöndunni er Sant- os kaffi af mun hærri gæða- flokki en það sem var í gamla Santos kaffinu frá Kaffi- brennslunni, blandað með há- gæðakaffi frá Colombiu og' Mið-Ameríku. Santosblandan er fínmalað kaffi í 250 g pokum. Colombia kaffið í grænu pökkunum er að stærstum hluta hágæðakaffi frá Col- ombiu, blandað með Costa Rica kaffi, einnig af háum gæðaflokki. Gæðalega séð besta kaffið frá Kaffibrennsl- unni. Coiombia kaffið er fín- malað í 250 g pokum. Ameríka, í bláum pokum, er blandað úr ýmsum tegund- um af Mið-Ameríku kaffi. Þetta ct goít kaffi sem Kaffi- brennslan hefur reynt að bjóða á hagstæðu verði. Ameríku kaffið er milli gróf- malað í 1 kg pokum. Á næst- unni verður einnig hægt að fá þetta kaffi í 250 g pokum. Koffínlaust kaffi. Fyrir rúmu ári hóf Kaffibrennslan að framleiða koffínlaust kaffi. Þetta er gæðakaffi frá Mið-Ameríku. Koffínið er fjarlægt úr baununum með sérstakri aðferð, en síðan eru þær meðhöndlaðar á sama hátt og aðrar kaffibaunir. Þó að koffínið sé fjarlægt úr kaff- inu, hefur það engin áhrif á bragð eða ilm kaffisins og það er hellt upp á koffínlausa kaff- ið á sama hátt og annað kaffi. aftur yfir korginn. Við það losna að- eins óæskileg efni úr korginum og nokkuð af góðu bragð- og ilmefnun- um sem fengist höfðu úr kaffinu tapast. Best er síðan að framreiða kaffið eins fljótt og auðið er, því að eftir tiltölulega stuttan tíma á könn- unni tapast mikið af gæðunum. Hreinsun kaffikönnunnar er mikilvœg. Sérstaklega að innan Engin eða lítil hreinsun sjálfvirkra kaffivéla er ein algengasta ástæða þess að kaffið bragðast ekki eins og það á að gera. Sjálf kannan er ekkert vandamál, heldur vatnsgeymirinn og rörin innan í könnunni. Ástæða þess að könnurnar stíflast, er yfirleitt ekki vegna kalks í vatninu, því hér á landi er yfirleitt hverfandi lítið kalk í drykkjarvatni. Hins vegar nota flestir sjálfa kaffikönnuna þegar þeir setja vatn í kaffivélina, án þess að þvo könnuna nægilega vel áður. Með þessu móti fara kaffileifar og fita úr kaffinu með vatninu í kaffivélina og festast f rörunum ásamt óhreinindum úr sjálfu vatninu. Skánin sem þannig myndast innan í rörunum gefur frá sér bragð og minnkar auk þess innanmál röranna. .Við það verður uppáhellingin hægari og sá tími sem vatnið er í snertingu við kaffiduftið lengri, en við það leysast óæskileg efni úr kaffinu og árangurinn verður beiskt og biturt kaffi. í verslunum fæst hreinsiefni, sem er sérstaklega gert til að fjarlægja þessa skán. Það skal tekið fram, að edikssýruupplausn vinnur ekki á þessari skán, heldur eingöngu á kalki, en eins og áður sagði er það yfirleitt ekki vandamálið hérlendis. Það á hins vegar við í löndum eins og til dæmis Danmörku, þar sem mikið kalk er í drykkjarvatni. Við val á sjálívirkum kaffikönnum ætti að hafa eftirfarandi í huga: 1. Tímann sem tekur könnuna að tæma vatnið í gegnum sig. Sá tími ætti ekki að fara yfir 5 mínútur. Þeim mun lengri sem tíminn er framyfir það, þeim nrun verra kaffi án tillits til magns. (Það er jú notaður sami steikingartími hvort heldur það er eitt eða tvö læri í ofninum.) 2. Hitastigið á vatninu þegar það kemur í snertingu við kaffið, en það á að vera milli 92 og 96°C. Ef hitinn er lægri losna ekki öll æskilegu bragðefnin, en ef hann er hærri losna óæskileg efni úr kaffinu, þannig að kaffið verður beiskt og biturt. 3. Hitaplatan undir kaffikönnunni má ekki vera heitari en 80-85°C. Að lokum, - nokkrar góðar upp- skriftir. • Kaffi með rjómaís. 1 dl sterkt, kalt kaffi - 2 dl. rjómaís. Hrært og skreytt með þeyttum rjóma. Borið fram í háu glasi með sogröri. • ískaffi. Kalt kaffi, sykur og ísmolar (helst frystir úr kaffi). Framreitt í háu glasi. • Hawaiikaffi. 6 cl sterkt, kalt kaffi - 3 cl grapesafi - 4 cl ananassafi - sykur - 1 matskeið vanilluís - mulinn ís. Hrært og síað í rauðvínsglas. Skreytt með vanilluís. Sogrör. • Sumarblær. 2 dl sterkt, kalt kaffi - 1 dl appel- sínusafi - 1 eggjarauða - sykur - mulinn ís. Hrært og borið lram í háu glasi. Skreytt með vanilluís og app- elsínusneið. Sogrör. • Súkkulaðikaffi. Heitu kaffi og heitu súkkulaði bland- að saman í jöfnum hlutföllum. Skreytt með þeyttum rjóma og kanil stráð yfir. Framreitt í bolla. Firmakeppni í knattspyrnu innanhúss Knattspyrnuráð Akureyrar auglýsir eftir þátttöku í firmakeppni innanhúss 1986. Þátttökurétt hafa öll fyrirtæki/starfshópar á Akureyri og í nágrenni. Heimilt er fyrir tvo aðila að sameinast um lið í keppnina, ef þeir vegna fámennis hafa ekki í lið. Með þátttökutilkynningum skal fylgja nafnalisti yfir þá leik- menn er þátt taka og er óheimilt að breyta þeim lista eftir að keppni er hafin. Þátttökurétt hafa þeir starfsmenn sem voru á launaskrá fyrirtækis 1. febrúar sl. Bent skal sérstaklega á að leikið verður samkvæmt nýj- um reglum er samþykktar voru á síðasta K.S.Í. þingi. Þátttökulistum, ásamt þátttökugjaldi, kr. 3.000 fyrir 1 lið, kr. 5.000 fyrir 2 lið og kr. 1.000 fyrir hvert lið umfram 2, skal skila til Sveins Björnssonar Plastiðjunni Bjargi eða Davíðs Jóhannssonar N.T. umboðinu, fyrir 22. febrúar 1986. K.R.A. Framsóknarvist Framsóknarvist verður að Hótel KEA föstudaginn 21. febrúar og hefst kl. 20.30. Góð verðlaun. Allir velkomnir. „ Framsoknarfelag Akureyrar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.