Dagur - 19.02.1986, Qupperneq 5
19. febrúar 1986 - DAGUR - 5
Flestir sjálfboðaliðanna gera
sér enga sérstaka rellu út af af-
leiðingum þessara tilrauna, sér-
staklega þeir sem eru stranda-
glópar og þurfa á peningum að
halda til að komast heim.
Benny Butler frá Skotlandi
fékk eindregnar ráðleggingar frá
lækni skammt frá Mannheim þess
efnis að hann skyldi drífa sig
heim þar sem hjartað í honum
væri ekki eins og það ætti að
vera. Engu að síður var hann
þrem dögum síðar kominn til
Iphar Institute í von um að þessi
ágalli hans uppgötvaðist ekki og
hann fengi að taka þátt í tilraun.
„Hvað annað gat ég gert? Ég
er blankur og einhvern veginn
verð ég að vinna mér inn peninga
fyrir farinu heim,“ sagði hann.
Ungur maður frá Birmingham
hafði eytt heilu ári í ferðalög sem
hann hafði fjármagnað með því
að taka þátt í lyfjaprófunum.
Þegar hann kom aftur heim til
Englands fyrir skömmu komst
hann að því að hann hafði enga
von um vinnu og átti ekki rétt á
atvinnuleysisbótum. Innan viku
var hann kominn aftur til Iphar
Institute, bitur og fullur eftirsjár.
Pað er ekki óalgengt að sami
maður hafi tekið þátt í yfir 20 til-
raunum. Þrátt fyrir að hver stofa
krefjist þess að heill mánuður líði
frá því að síðustu tilraun lauk þar
til sjálfboðaliði tekur þátt í nýrri
tilraun er ekkert sem kemur í veg
fyrir að maður færi sig milli stofn-
ana og taki þátt í nýrri tilraun ör-
fáum dögum eftir að þeirri síð-
ustu lauk. Pað er jafnvel mögu-
legt að taka þátt í fleiri en einni
tilraun í senn hjá mismunandi
stofnunum.
Sumir sjálfboðaliðar lofa sjálf-
um sér því að taka bara þátt í
einni eða tveimur tilraunum en
verða svo háðir þessari einföldu
gróðalind og jafnvel áfall hræðir
þá ekki frá því að koma aftur og
aftur.
Lee Faulkner féll þrisvar í
yfirlið á meðan hann tók þátt í
einni tilrauninni. „Þetta var allra
síðasta sinn hjá mér,“ sagði hann
eftir á en tveim vikum síðar var
hann byrjaður í þriðju tilrauninni
á tveimur mánuðum.
Doktor Muller við Iphar Insti-'
tute segir að „mjög fáir hafi dáið
úr afleiðingum tilrauna." Stofn-
unin gerir að, sögn forsvars-
manna, allar nauðsynlegar ráð-
stafanir til að forðast læknisfræði-
leg óhöpp.
Fyrir þátttakendur eru lyfja-
prófin ekki ósvipuð því að taka
þátt í Rússneskri rúllettu því um
helmingur þátttakenda fær mein-
laus platlyf. Það er gert til að
læknar geti borið saman áhrif
raunverulegu lyfjanna miðað við
þá sem fá platlyf en halda e.t.v.
að þeir séu að prófa raunveruleg
iyf •
NATIONAL ENQUIRER
Hugsanir.. .
FYRST VIÐ
GETUM EKKI
FLOGIÐ, Á
HANN ENGAN
MÖGULEIKA.
Kynfræðifélag Islands
stofnað í Reykjavík
Tvísýn keppni á
Skákþingi Akureyrar
Senn iíður að lokum Skákþings
Akureyrar en nú eru búnar sex
umferðir í öllum flokkum, en alls
verða tefldar níu umferðir. Staða
efstu manna í opna flokknum er
þessi:
Efstur er Gylfi Þórhallsson
með 4Vi v. í öðru til sjötta sæti eru
Arnar Þorsteinsson, Friðgeir
Kristjánsson, Sigurjón Sigur-
björnsson, Tómas Hermannsson
og Þór Valtýsson allir með 4 v.
Helstu úrslit í fimmtu og sjöttu
umferð urðu þessi:
í fimmtu umferð vann Gylfi
Tómas, Arnar vann Friðgeir, Þór
vann Sveinbjörn Sigurðsson og
Sigurjón vann Boga Pálsson. í 6.
umf. Friðgeir vann Gylfa, Sigur-
jón vann Sveinbjörn og jafntefli
varð hjá Arnari og Þór, einnig
varð jafntefli hjá þeim Tómasi og
Jakobi. Sjöunda umf. verður
tefld á fimmtudaginn í Verk-
menntaskólanum.
í unglingaflokki er Tómas Her-
mannsson efstur með 5 v. í 2.-4.
sæti eru Skafti Ingimarsson, Bogi
Pálsson og Rúnar Sigurpálsson
með 4'/2V. í drengjaflokki er
Valdimar Sævarsson efstur með 4
v. og í 2.-5. sæti eru Örvar Arn-
grímsson, Eiríkur Hauksson,
Hreinn Hringsson og Gestur Ein-
arsson allir með 3Wv.
Þrjár síðustu umf. í unglinga-
og drengjaflokki verða tefldar á
laugardaginn í Barnaskóla Akur-
eyrar. Febrúar 15 mínútna mótið
verður í Barnaskóla Akureyrar
n.k. föstudag kl. 20.00
Toshiba örbylgjuofninn fæst hjá okkur
Verió velkomin og kynnist þvi hvernig hægt er að matreiða allan venjulegan mat i Toshiba örbylgjuofninum
á ótrúlega stuttum tima. Hvers vegna margir róttir verða betri úr Toshiba ofninum en gömlu eldavélinni.
Og þór er óhætt að láta börnin baka.
Og siðast en ekki sist. Svo þú fáir fullkomíð gagn af ofninum þinum holdum við matreiðslunámskeið fyrir
__________________________elgendur Toshiba ofna.
Nýkomin búsáhöld fyrir örbylgjuofna
SIEMENS
Þvottavélar, eldavélar, ísskápar
og fleira, einnig smá heimilistæki
í úrvali
til dæmis:
Hitateppi:
Tilvalin gjöf handa pabba og mömmu
eia afa og ömmu.
Einnig kaffikönnur,
handhrærivélar ásamt fylgi-
hlutum, brauöristar með hita-
grind, eggjasjóðarar,
straujárn með og án gufu,
hraðgrill og ótal margt fleira.
Tótu barnastóllinn
Sérstaklega hentugur og þægilegur i flutningi.
PETRA
Blomberq
þvottavélar, ísskápar
og eldavélar.
Viðurkennd gæðavara.
2ja ára ábyrgð.
Búsáhöld í úrvali
smá heimilistæki í urvali.
Nyjung t.d. hradsudukanna,
nytsöm til margra hluta.
JA — NYLAGNlR
w mor «
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400
Verslið hjá fagmanni.
Aðalfundur
Ungmennafélags Framtíðar verður haldinn í
Laugaborg laugardaginn 22. febrúar nk. kl.
14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ungmennafélagar og allir þeir sem áhuga hafa á
starfsemi félagsins eru hvattir til að mæta á
fundinn.
Stjórnin.
Sýnikennsla á
Stofnað var í Reykjavík, þann 9.
desember sl. Kynfræðifélag
íslands. Undirbúningsnefnd
hafði þá starfað um nokkurn
tíma, eftir að fjöldi fólks hafði
lýst áhuga fyrir stofnun slíks
félags.
Á stofnfundinn komu rúmlega
tuttugu manns úr ýmsum áttum,
sálfræðingar, félagsráðgjafar,
læknar, hjúkrunarfræðingar,
kennarar o.fl. Á fundinum var
greinargerð undirbúningsnefndar
lesin, samþykkt lög fyrir félagið
og tvær tillögur til bráðabirgða,
sem tengjast lögunum, samþykkt
árgjald fyrir starfsárið 1985-1986
og kjörið í stjórn félagsins.
Stjórnin hefur nú skipt með sér
verkum, en Nanna K. Sigurðar-
dóttir félagsráðgjafi var kjörin
formaður. Aðrir í stjórn eru: Sig-
tryggur Jónsson sálfræðingur, rit-
ari, María Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur, gjaldkeri og
Kjartan Magnússon krabba-
meinslæknir og Hope Knútsson
iðjuþjálfi, meðstjórnendur.
Félagið er ætlað fagfólki, sem
hefur menntun á sviði heilbrigð-
is-, félags- eða sálarfræða, svo og
öðrum, sem fást við kynfræði í
starfi sínu.
Markmið þess er að efla fræði-
greinina kynfræði (secologi) á Is-
landi og stuðla að samstarfi
fagfólks, sem fæst við meðferð,
kennslu eða rannsóknir á sviði
kynfræða.
Þar sem starfsgrundvöilúr fé-
lagsins er ákaflega breiður, er
ætlunin sú að innan félagsins
starfi sérstakir vinnu- eða áhuga-
mannahópar um sérstök verkefni
eins og t.d. meðferð kynlífs-
vandamála, fræðistörf. kennslu
o.s.frv.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn í maí nk., en þeir sem
ganga í félagið fyrir þann tíma
teljast stofnfélagar. Umsókn um
aðild að félaginu berist stjórn fé-
lagsins á þar til gerðum umsókn-
areyðublöðum, en þau er hægt að
fá hjá stjórnarmönnum. Pósthólf
félagsins er 1771 - 121 Reykja-
vík.
örbylgjuofiium
verður fyrir viðskiptavini okkar
fimmtudaginn 20. febrúar kl. 8 e.h.
í Hafnarstræti 91, 4. hæð.
Járn- og
glervörudeild.
SÍMI
(96)21400