Dagur - 07.03.1986, Blaðsíða 5
r-hjátrú eða hvaðl
7. mars 1986 - DAGUR - 5
Haraldur Ingi
Haraldsson
skrifar
Andar framliðinna
Peim hjátrúarfulla verður ekki um
sel ef fugl flýgur inn í hús hans eða
sest á gluggakistu og goggar i
rúðuna. Þetta háttalag boðar ekkert
gott og eins víst að dauðsfall verði í
fjölskyldunni innan árs. Fuglar voru
nefnilega taldir vera m.a. sálir fram-
liðinna og verður þá þessi hjátrú vel
skiljanleg því mannskepnan hefur
gegnum tíðina verið ákaflega tortryggin í garð framliðinna og
gripið til ýmissa varúðarráðstafana gegn því að þeir gerðu
óskunda í mannheimum.
Framliðnir voru og eru ekki alltaf við alþýðuskap eins og ís-
lensku draugasögurnar bera vitni um svo ekki sé talað um
hremmingar eins og vampírur sem þjökuðu Evrópubúa á miðöld-
um.
Sálir framliðinna í fuglslíki voru því ekki velkomnar í hús
manna og svo rammt kvað að þessum ótta að enn er til fólk sem
ekki vill hafa veggfóður með fuglamyndum í herbergjum sínum.
Rómverjar
Virðingarsess þann sem fuglar höfðu
í fornöld má glögglega sjá hjá Róm-
verjum hinum fornu. Þeir treystu
„dómgreind“ þeirra miklu betur en
sinni eigin. Hinir opinberu spámenn
nutu mikillar virðingar, en aðalhlut-
verk þeirra var að segja fyrir um
framtíðina og túlka mannleg málefni
af ýmiss konar teiknum og táknum
meðal annars af flugi og háttalagi fugla. Þessir spámenn voru
virðulegir eldri menn sem klæddust sérstökum kyrtlum og studd-
ust við langa stafi. Þeir höfðu eytt fjölmörgum árum í það eitt að
læra hin flóknu fuglafræði, hvað læra mætti af flugi fuglanna og
kvaki þeirra.
Páfagaukar
Margir fuglar hafa haft um sig svo
sterkan hjátrúarhjúp að slitur af
honum hefur varðveist til okkar tíma
þar sem skynsemin ríður húsum. Um
þetta er hrafninn gott dæmi og er ég
nýlega búinn að greina frá ýmislegu í
sambandi við hann. Mikið hrafnager
hefur búið um sig í sjávarkambinum
fyrir neðan Drottningarbrautina og
er þar upplagt að leita svara um framtíðina af flugi þeirra sem oft
er hrein unun að fylgjast með.
Annað dæmi kemur erlendis frá. Ferðalangar hafa eflaust tek-
ið eftir því að í stórborgum má stundum sjá á meðal götusalanna
og skemmtikraftanna, grænan páfagauk sem vinnur fyrir eiganda
sínum með því að velja spjald fyrir viðskiptavininn þar sem spáð
er fyrir um framtíðina. - Svona er komið fyrir rómversku spá-
mönnunum.
Spár
Til þess að geta túlkað á jákvæðan
eða neikvæðan hátt það sem fuglarn-
ir sögðu um mannleg málefni skiptu
spámennirnir himninum niður í reiti,
á svipaðan hátt, segja menn, og fall-
byssuskyttur í nútíma stríðsleikjum.
Spámaðurinn gekk upp á næsta leiti
og framkvæmdi helgiathöfn sem
meðal annars fól í sér að dýri var
fórnað og bænir beðnar, þá tók hann sér áhrifamikla stöðu með
stafinn í hendi og beið eftir að sjá fyrsta fuglinn birtast við sjón-
deildarhring. Ef fuglinn flaug inn í sérstakan reit á ákveðnum
tíma, var um gott teikn að ræða - ef svo heppilega vildi til að ann-
ar flygi fljótlega í kjölfarið. Ef seinni fuglinn lét ekki sjá sig eða
hagaði sér á annan hátt mátti búast við illu. Spámaðurinn túlkaði
síðan flug fuglsins fyrir þeim sem hafði borið fram ákveðna
spurningu. Hér hefur aðeins verið tekið eitt dæmi af fjölmörgum
um það hvernig spámennirnir unnu. Þeir voru í miklum metum
og engum datt í hug að draga vísdóm þeirra í efa. Þeir voru látnir
fremja athafnir sínar fyrir allar meiri háttar ákvarðanir og aö-
gerðir sem valdhafar tóku sér fyrir hendur. Alexander mikli lét til
dæmis alltaf spá í innyfli dýra fyrir allar orustur sínar - oftar en
ekki var um fugla að ræða.
HotBSSsí BÍIASAIA
j C L C Cj,
BÍIASAUNN
VID HVANNAVíLll
5:24119/24170
Lada Sport árg. ’84.
Ekin 10.000. Verð 270.000.
Mazda 929 árg. ’83.
Ekin 34.000. Verð 380.000.
Range Rover árg. ’77.
Verð 460.000.
MMC Cordia árg. ’83.
Ekinn 23.000. Verð 320.000.
Erum með mikið af nýjum og
notuðum bílum í hlýjum og
rúmgóðum sýningarsal.
Opið frá kl. 9-19 daglega.
Laugardaga kl. 10-17.
KFUM og KFUK,
' Sunnuhlíð.
Sunnudaginn 9. mars
almenn
samkoma kl. 20.30. Ræðumaður
Bogi Pétursson. Allir velkomnir.
hvimsumummn vsmmsnub
Sunnud. 9. mars kl. 11.00.
Sunnudagaskóli. Öll börn velkom-
in. Sama dag kl. 20.00. Almenn
samkoma, Ræðumaður Snorri
Óskarsson frá Vestmannaeyjum.
Fórn tekin fyrir innanlandstrúboð-
ið. Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnusöfnuðurinn.
= COMBAC
Frístandandi sturtuklefar
með sjátfstillanlegum blöndunartækj-
um. Hentar alls staðar fyrir heimili og
vinnustaði.
■
Stærðir: 80x80 — 90x90 — 70x90 — 90x70
Auðvett í uppsetningu; aðeins þarfað
tengja vatn og frárennsli.
ÚTSÖLUSTAÐIri:
Kaupfélag Þingeyinga Kaupfélag Húnvetninga
Byggingavörudeild Byggingavömdeild
Kaupfélag Eyfirðinga
Byggfngavörudeild
Hiti s/f
Draupnisgötu 2
Kaupfélag Skagfirðinga
Byggingavörudeild
Kjörfundur
framsóknarfélaganna á Akureyri
Laugardaginn 8. mars nk. halda framsóknarfélögin á Akureyri kjörfund í starfs-
mannasal KEA í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð.
Kjörfundurinn hefst klukkan 13.30.
Á kjörfundinum fer fram val á framboðslista framsóknarmanna til bæjarstjórn-
arkosninga á Akureyri vorið 1986. Kjörfundur velur í 1. til 8. sæti á framboðslist-
anum og er sú kosning bindandi.
Kosið verður um eitt sæti í senn þar til skipan í 8 efstu sætin liggur fyrir.
Einungis félagsbundnir framsóknarmenn eiga rétttil þátttöku á kjörfundinum.
Við komu á kjörfundinn fær hver fundarmaður möppu með tölusettum kjörseðl-
um og prentuðum nöfnum allra frambjóðenda á hverjum seðli. Kjörmaður skal
setja kross við eitt nafn á seðlinum við hverja kosningu. Talning atkvæða fer
fram strax að lokinni kosningu í hvert sæti. Ath. sjónvarp á staðnum.
Eftirtaldir aðilar eru í kjöri:
Ársæll Magnússon, umdæmisstjóri
Ásgeir Arngrímsson, útgerðartæknir
Áslaug Magnúsdóttir, blaðamaður
Björgvin Yngvason, litunarfræðingur
Hallgrímur Skaptason, skipasmiður
Jóhannes Sigvaldason, tilraunastjóri
Jónas Karlesson, verkfræðingur
Kolbrún Þormóðsdóttir, húsmóðir
Magnús Orri Haraldsson, nemi
Ólafur R. Sigmundson, gjaldkeri
Sigfús Karlsson, bankastarfsmaður
Sigurður Jóhannesson, aðalfulltrúi
Snjólaug Aðalsteinsdóttir, húsmóðir
Unnur Pétursdóttir, iðnverkakona
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, skrifstofumaður
Þórarinn E. Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri
Kjörnefnd framsóknarfélaganna á Akureyri