Dagur - 07.03.1986, Side 9

Dagur - 07.03.1986, Side 9
8 - DAGUR - 7. mars 1986 7. mars 1986 - DAGUR - 9 Sigurður Friðriksson skipstjóri á Stakfellinu í helgarviðtali Hann á að baki 30 ára sjómennskuferil í haust, hann Sigurður Friðriksson skipstjóri á Stakfellinu. Sigurður er maður hress og hefur skoðanir á hlutunum. Um þœr er hægt að lesa í þessu helgar- viðtali. Sigurður hefur búið á Þórshöfn um nokkurra ára skeið ásamt konu sinni, Dröfn Þórarinsdóttur og tveimur börnum. Við hittum Sigurð að máli á heim- ili þeirra að Fjarðarvegi 39 kvöld eitt í síðustu viku. Sigurður er fæddur á Daivík, en flutti 6 ára gamall á Árskógsströndina. Þegar hann var 8 ára lagðist hann á sjúkrahúsið á Akureyri og lá þar í 2 ár vegna beinsjúkdóms. „Æ, jú, það var hálf ömurlegt að liggja á sjúkra- húsinu," sagði hann. Nánast alla sína starfsævi hefur Sigurður verið sjómaður. Hann var á Akranesi í 3 ár, á ýmsum skipum Út- gerðarfélags Akureyringa í 10 ár og á Brettingi frá Vopnafirði í 2 ár. - Hvernig er að vera sífellt að flytja á milli staða? „Það er að vissu leyti erfitt á með- an á því stendur. En þetta gengur svona. Það eru ýmsar ástæður fyrir flutningunum, t.d. þegar við fórum til Vopnafjarðar, þá ætlaði ég upp- haflega að fara 1-2 túra, en þetta teygðist í 2 ár. Okkur var boðin íbúð, þannig að við ákváðum að slá til. Okkur leist vel á fólkið og allt sem við sáum. Þetta var indæll tími og við skildum við staðinn með nokkurri eftirsjá. En kringumstæð- urnar réðu því að við fluttum aftur til Akureyrar. Það var sumarið 1975. Ég réðist sem stýrimaður á Snæfellið og fór út til Noregs að ná í skipið. Á Snæfellinu var ég í 2 ár. Síðan gerist það eftir nokkrar um- ræður að ég ræðst hingað austur sem skipstjóri á fyrsta togara þeirra Þórs- hafnarbúa, sem þá hét Fontur. Þórs- hafnarmenn keyptu þetta skip sunn- an af Suðurnesjum og ýmsar aðstæð- ur réðu því að kaupverðið var allt of hátt, skipið fremur lélegt og illa við- haldið. Þannig að ýmsar ástæður lágu að baki þess að útgerðin gekk fremur böksulega. Bilanatíðni var nokkuð mikil og erfitt um vik að fá viðgerðir. Þá var lítil þjónusta hér, þessi staður var í rauninni ekki tilbúinn til að þjóna togara á þessum árum. Þetta endaði því með að þegar búið var að koma skipinu í þokkalegt horf með ærnum tilkostnaði, að það var selt á uppboði. Þetta skip heitir nú Siglfirð- ingur og er gert út frá Siglufirði.“ - Það gekk sem sagt illa með Fontinn? „Að því leytinu til, já, að það bil- aði mikið. En ég er ekki reiðubúinn til að viðurkenna að illa hafi gengið á meðan það var í lagi. En vissulega höfðu þessar bilanir mikið að segja. Þetta voru ótrúlegustu bilanir sem upp komu, það má eiginlega segja að allt skipið hafi verið í niðurníðslu. Það hefði þurft að gera gagngerar endurbætur á skipinu öllu, ekki að bíða eftir að hlutirnir biluðu.“ - Höfðu menn ekki skoðað skipið nægilega vel áður en það var keypt? „Það er nokkuð löng saga að segja af hverju Þórshafnarmenn keyptu þetta skip. En sannleikurinn er sá að þeim bauðst skip úti í Noregi sem var í alla staði betra skip en Fonturinn var og að mig minnir að minnsta kosti um 100 milljónum ódýrara. En á þessum tíma var allur innflutningur á skipum stoppaður af. Þannig að Þórshafnarmenn áttu þennan kost, annað hvort að taka Fontinn eða fá ekkert skip. Það má því kannski segja sem svo að þeir hafi neyðst til að taka þennan kostinn. Á þessum tíma stóðu þeir uppi með nýreist frystihús og það vantaði hráefni. Þess vegna var nú farið út í þetta, kannski meira af kappi en forsjá. En sem sagt þetta var hálfgert neyðarúrræði og það tókst ekki að halda útgerðinni gangandi." Jafnvel sagt að Þorshafnarbúum vœri fœrður togari á silfuifati Fonturinn var seldur til Siglufjarðar seinni part vetrar árið 1979, síðan liðu 3 ár, þangað til náð er í Stakfell- ið til Noregs, en það var vorið 1982. Skipstjóri á Stakfellinu var Ólafur Aðalbjörnsson, en Sigurður var stýrimaður. Ólafur fór í land eftir hálft annað ár vegna heilsubrests og þá tók Sigurður við skipinu. Sigurður hefur verið skipstjóri á Stakfellinu síðan haustið 1984. - Stakfellið var mjög umdeilt skip á sínum tíma. „Það fóru fram miklar umræður um skipið í þjóðfélaginu og þeir höfðu hæst sem minnst vit höfðu á útgerð. Erfiðasti tíminn var á meðan skipið var enn í smíðum. Við vissum það sjálfir að fengjum við gott og vel búið skip gætum við staðið okkur eins og aðrir í því að fiska. En við gátum ekkert sannað á meðan skipið var í smíðum. Það kom svo strax í ljós fyrsta mánuðinn að við fiskuðum vel og þá hljóðnaði þessi neikvæða umræða. Ég vil leyfa mér að segja að það hafi gengið afbragðsvel hjá okkur.“ - Að hverju beindist gagnrýnin aðallega? „Gagnrýnin var af ýmsum toga, en fyrst og fremst hefur forsagan haft sitt að segja, þ.e. hvernig gengið hafði með Fontinn. Fólk vildi meina að þetta byggðarlag væri ekki í stakk búið til að gera út togara. Þar væri engin kunnátta fyrir hendi til að reka skip. Nú, það var talað um að engir peningar væru til og allt væri fengið að láni. Jafnvel var sagt að verið væri að færa Þórshafnarbúum togara á silfurfati. Þegar verið er að tala um þessi mál, er ekki annað hægt en að minn- ast á Stefán Valgeirsson alþingis- mann. Hann var driffjöðrin í þessu máli og aðalhvatamaðurinn að því að skipið kom hingað. En hann fékk ótæpiiegar ádrepur frá starfs- bræðrum sínum á þingi og var húð- skammaður af ýmsum mönnum í þjóðfélaginu. Það var talað um að með þessu tiltæki væri verið að setja 900 þúsund króna skuld á bakið á hverjum Þórshafnarbúa. Svo var reiknað út hversu mikið væri tekið úr vasa hvers íslendings til að hægt yrði að gefa Þórshafnarbúum togarann. Við þessu gleyptu menn. Það eru æði margir þannig að fregnir af verra taginu eiga greiðari aðgang að hug- um þeirra, en hinar. En eftir að togarinn var kominn hingað, þá held ég að menn hafi neyðst til að viðurkenna að þeir höfðu ekki rétt fyrir sér. Á sínum tíma voru þessi togarakaup Þórs- hafnarmanna kölluð skólabókar- dæmi um hvernig ekki ætti að fara að hlutunum. En ég held að þessu sé þveröfugt farið. Þetta er kannski ein- mitt skólabókardæmi um hvernig fara á að þessum hlutum. Margir frammámenn í þessu þjóð- félagi eru búnir að viðurkenna það opinberlega að þeim hafi skjátlast í dómum sínum um þetta skip. Og það er vissulega vel, þegar menn kannast við að þeir hafi ekki haft rétt fyrir sér. Þeir verða menn að meiri fyrir vikið.“ - Nú hefur útgerð gengið vel hér á Þórshöfn á síðari árum og jafnvel fáir staðir sem standa jafnvel að vígi hvað það varðar. Áttu skýringar á velgengni ykkar? „Það eru sjálfsagt margar skýring- ar á því. Ég vil f fyrsta lagi nefna að við höfum gott skip og vel útbúið. Strax í upphafi var ákveðið að vanda vel til áhafnarinnar. Allur undirbún- ingur var því mjög góður. Menn gerðu sér grein fyrir hvað var í húfi og hvað það myndi þýða ef illa gengi og spár fólksins í landinu myndu rætast. Þá yrði ekki gaman að lifa. Á þessum tíma var lítið um vana togarasjómenn á staðnum, þannig að sóst var eftir mannskap frá Akureyri. Og í sannleika sagt var lítið sóst eftir plássi af heimamönnum til að byrja með. Mannabreytingar hafa ekki verið miklar, þetta eru mest sömu mennirnir og í upphafi. En ásókn - ----------------------------------------------------------------------------------------------, Mrn verÖa að hafa rnetmð í bm st - metnað til að standa upp úr heimamanna hefur aukist og nú er töluverður biðlisti manna sem vilja komast að á Stakfellinu.“ Ég vil ekki kerfi sem miðar að því að ná meðalmennskunni út úr öllu - Hefur nálægð við miðin eitthvað að segja í sambandi við að vel hefur gengið hér? „Þegar talað er um góða aðstöðu til togaraútgerðar, þá er talið að Vestfirðingar standi best að vígi vegna nálægðar við miðin. Auðvitað er það tími af árinu sem fiskur er á þessari slóð en það er æði oft sem langt er á miðin. Öll mið í kringum landið eru okkar mið. Eftir að skrap- dagakerfið var tekið upp og síðan skömmtun á þorski þá þurfum við að veiða bæði karfa og grálúðu. Og það er enginn karfi á þessu landshorni. Við verðum því að sækja vestur í Víkurál eða suður fyrir land, eða Rósagarð. Stóran hluta ársins er langt á miðin. Þannig að skýringin liggur ekki í því að stutt sé á miðin.“ Það er ekki hægt að tala við skipstjóra án þess að minnast á kvótamálin. Við skulum staldra ögn við þau. „Það sem verið er að gera með því að hafa stjórn á fiskveiðum er til- raunastarfsemi. Fiskifræðin er ung vísindagrein hér á landi. Og í raun- inni er fleiri spurningum ósvarað, en mönnum hefur látið sér detta í hug að til séu lausnir á. Stjórnun á fisk- veiðum hlýtur því að vera ákaflega erfitt mál og vandmeðfarið. Ég er ekkert viss um að við séum búin að finna bestu lausnina. En aðalatriðið er það að eitthvað þurfti að gera. Það þarf einhverjar takmarkanir, flotinn er það stór og kröftugur. Úr því þessi floti er staðreynd þá var það engin spurning, eitthvað þurfti að gera. Sérstaklega á þeim árum þegar var slæmt útlit í náttúrunni fyrir lífsskil- yrði fisksins. Ég veit ekki hvort ég á að fara að gera upp á milli þeirra aðferða sem notaðar hafa verið. Fyrst var það skrapdagakerfið og síðan afla- og sóknarmark. Ég vel það kerfi og tel það æskilegast og best, sem hvetur hvern og einn til að skila því besta sem hann getur. Ég vil ekki kerfi sem miðar að því að ná meðalmennsk- unni út úr öllu. Að mínu mati er afla- markið því afleitasti kosturinn af þessum. Sóknarmarkið er það besta sem við höfum fundið upp ennþá, en vonandi eru til betri kostir en það. Við völdum aflamarkið í fyrra vegna þess að framundan voru breyt- ingar á skipinu. Því var breytt í það sem kallað er hálffrystiskip, við heil- frystum aflann um borð. Við bjugg- umst við að verulegur tími færi í þessar breytingar sem það gerði líka. Þannig að við óttuðumst að ná ekki nógum afla út úr sóknarmarkinu. En það kom á daginn að þó við værum stopp vegna breytinganna þá vorum við búnir með kvótann okkar í endaðan ágúst. Þá fórum við suður fyrir land og keyptum fisk og lönduð- um fyrir aðra. í ár var sóknarmarkið valið fyrir Stakfellið. í sóknarmarkinu felst að árinu er skipt niður í fjögur tímabil. Skipið má vera úti á sjó í 270 daga á ári. Dögunum er skipt niður á tíma- bilin. Það fyrsta tekur yfir janúar og febrúar og þá má skipið vera að veið- um í 40 daga. Næsta tímabil er mars og apríl og þá þarf skipið að vera frá veiðum í 12 daga. Síðan koma 2 fjögurra mánaða tímabil og þá þarf að skila 63 dögum í höfn. Sem sagt í stuttu máli, Stakfellið má vera á veiðum í 270 daga á árinu og þarf að skila 90 dögum í höfn. Aflahámark á þorski hjá Stakfellinu er 1915 tonn, en aðrar tegundir má veiða óheft. Við klárum það án efa. Við reyn- um að vísu að jafna því niður, en óneitanlega er hagkvæmast að veiða mest yfir sumarmánuðina þegar veið- in er mest. En til allrar hamingju er enginn vafi um það í mínum huga að „Það sem gerír mann að fiskimanni er dugnaður, árvekni, gott minni og brennandi áhugi á starfinu.“ Myndir: - mþþ við náum þessum 1900 tonnum af þorski. Það sem af er þessu ári erum við komnir með um 500 tonn af þorski fyrir utan annan afla.“ Hafið svo óendanlega miklu sterkara - Það er stundum talað um fiskna skipstjóra og menn virðast trúa því að skipstjórar séu misjafnlega fisknir. En nú hafa mannfræðingar komist að því að þjóðsagan um fiskna skipstjórann eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum. Hvað finnst þér, eru til fisknir skipstjórar? „Ég er ekki á sama máli og þessir vísindamenn. Ég hef mínar skoðanir á því af hverju sumir menn standa svolítið upp úr í sambandi við fiskirí. Það er enginn vafi á því að þeir sem veljast í þetta starf eru duglegir menn. Misjafnlega duglegir þó og þeir menn sem standa upp úr eru af- burðaduglegir og áhugasamir. Þeir eru athugulir og minnugir. Svo þurfa menn auðvitað að vera með góð skip og sambærileg við aðra. Óg ekki skaðar að vera heppinn með úigerð- arstað, að vera vel í sveit settur hvað varðar fiskimið. Það sem gerir mann að fiskimanni, er dugnaður, árvekni, gott minni og brennandi áhugi á starfinu. Menn verða að hafa metnað í þessu starfi, metnað til að skara fram úr. Hafið er ein af höfuðskepnunum og það er ekki sama hvernig sjómað- ur umgengst það. Sjómaður verður að umgangast hafið með ákaflega miklum næmleik, hann verður að bera virðingu fyrir því og hann verð- ur að kynna sér eiginleika þess. En það að bera virðingu fyrir hafinu er það sem gerir góðan sjómann að því sem hann er. Sjómenn verða að gera sér grein fyrir því að ef aðgæsla og árvekni eru ekki í fyrirrúmi þá yfir- bugar hafið okkur. Hafið er svo mik- ið sterkara en við og við getum um- gengist það með sýna því virðingu, gætni og einnig djörfung. En ég vil ekki og get ekki kyngt því að sjómannastéttin sé eina stéttin í landinu sem ekki eigi sér neina af- burðamenn.“ - Er það ekki oft á tíðum mikil barátta að vera skipstjóri? „Þetta er erfitt starf og krefjandi. Og því fylgir mikil ábyrgð. Og ég fullyrði að það sé hvergi eins áber- andi í nokkurri starfsstétt að menn eru dregnir til ábyrgðar fyrir mistök í starfi. Það þarf ekki annað en að líta á meðalaldur skipstjóra er þeir fara í land. Menn fara úr starfi 55-60 ára gamlir og eru þá orðnir fullsaddir á baráttunni.“ - Þú hefur aldrei orðið hræddur á sjónum? „Það kemur margt óvænt upp á á sjónum. En til allrar hamingju hef ég aldrei lent í neinu þannig að ég hafi haft ástæðu til að verða hræddur. En því er ekki að neita að oft á tíðum er viss kvíði í manni. Ég tel að þessi kvíði sé nauðsynlegur til að tnenn haldi vöku sinni í starfinu. Þegar tak- ast á skip og haf, þá er hafið svo óendanlega miklu sterkara að illa getur farið ef menn gæta ekki fyllstu árvekni. Jú, ég hef óteljandi sinnum lent í vondum veðrum. En aldrei í beinum lífsháska." - Geturðu sagt okkur einhverja sögu af stórviðrum á sjónum? „Það er vandi að velja. Jú, ég man eftir því er ég var mjög ungur, lík- lega svona 15 ára, að ég var á togar- anum Bjarna Ólafssyni frá Akranesi. Við vorum að koma frá Vestur- Grænlandi, vorum við Hvarf. Þá lentum við í ansi slæmu veðri. Ég var það ungur að ég gerði mér ekki grein fyrir hversu vont veðrið í rauninni var. Það var mjög mikill sjór og veðr- átta við Grænland getur vægast sagt verið leiðinleg. En við vorum sem sagt á siglingu fyrir Hvarf og við stóðum nokkrir ungir menn frammi í lúkarsdyrum fram undir hvalbak og vorum að horfa á sjóinn. Við vorum á lensi sem kallað er, keyrðum undan vindi. Þetta var mjög tilkomumikil sjón. Nema hvað, í einum öldudaln- um byrjaði skipið að síga niður að aftan. Skipið seig það mikið að það leit út fyrir að báðir björgunarbát- arnir, sem í þá daga voru trébátar, væru sjósettir. Allt afturskipið fór í kaf. Og sjórinn freyddi yfir stefnið á bátunum, en alla jafna voru þeir 3-4 metra yfir sjó. Við horfðum á þetta, en áttuðum okkur ekki á hvað var að gerast. En skipið reif sig upp úr þessu og við fengum seinna þá skýringu, að um leið og þetta gerðist hafði skip- stjórinn, Jónmundur Gíslason gam- alreyndur sjómaður, hringt niður í vél og beðið um alla þá ferð sem möguleiki var á að ná út úr vélinni. Ef þarna hefði ekki verið gripið til þess eina ráðs sem rétt var og á ná- kvæmlega réttri sekúndu þá hefði farið illa.“ Menn vilja skip - í framhaldi af sögunni áðan, þar sem þú sagðir að björgunarbátarnir hefðu verið trébátar. Hafa öryggis- mál sjómanna ekki breyst mikið síðan? „Jú, þau hafa breyst og eru að breytast. Sjómenn eru að vakna til betri meðvitundar um sín öryggis- mál. Á undanförnum árum hafa ver- ið gerðir góðir hlutir í öryggismálum sjómanna, en þó vantar mikið á að búið sé að gera allt sem gera þarf. En eins og ég segi, númer eitt er almenn vakning meðal sjómanna sjálfra. Því miður má deila á okkur yfirmenn fyr- ir að hafa ekki sinnt þessum málum nógu vel. Ástæðan er ekki áhuga- leysi, þetta á sér eflaust margar skýringar. Við erum keyrðir áfram, erum hluti af maskínu sem á að moka upp fiski. Það hefur verið númer eitt, tvö og þrjú. Hitt kemur allt á eftir. En ég held ég geti fullyrt að núna séu sjómenn að vakna til meðvitundar um sín öryggismál, ég heyri oft rætt um þessi mál í talstöð- inni, en slíkar umræður heyrðust varla fyrir nokkrum árum. Og ég tel því að þessi mál komist í nokk- uð gott horf eftir nokkurn tíma. Það þurfa allir að leggjast á eitt til að svo verði. Menn munu þurfa að sækja námskeið í framtíðinni, en þá kemur aðstöðumunurinn í ljós. Námskeiðin eru haldin í þéttbýlinu og við eigurn ekki eins gott með að sækja þau, sem búum utan alfaravegar ef ég má orða það svo.“ - Ef við víkjum þá að öðru, þið eruð að reyna að fá annað skip? „Draumurinn er að fá annað skip í hráefnisöflun fyrir staðinn. Þegar er búið að gera miklar breytingar á Stakfellinu, það á aðeins eftir að setja flökunarvél og alfrystingu um borð svo að við séum komnir með frystiskip. Á þessu ári verður útgerð- in af tekjum sem nema 60-80 milljón- um miðað við að um frystiskip væri að ræða. Og það er vissulega slæmt. En það er á margt að líta, það er spurning hvort er betra að gera þessa breytingu og útgerðin gangi. Eða halda áfram í sama farinu. Við sjáum fram á erfiðleika hér líka ef ástandið lagast ekki verulega. Það hefur teygst lengur úr hér m.a. vegna hag- stæðra lána. Menn voru heppnir hér, lánin voru tekin í hagstæðum gjald- miðli og það hefur sitt að segja. Skipakaupin hafa gengið brösug- lega. Það er mikil ásókn í hvert skip. Menn eru að átta sig á því að hvert skip sem sett er á sölu getur verið það síðasta. Afleiðingarnar hafa ekki látið á sér standa, verð á skipum hef- ur rokið upp úr öllu valdi og er í dag komið út fyrir öll mörk skynseminn- ar. Ég veit ekki hvaða hagsmunum það þjónar að menn eru að bjóða 190 milljónir í skip eins og raðsmíðaskip- in. Það er ekki hægt að borga meira fyrir þau en skip eins og Kolbeins- eyna. Þetta eru skip með ávísun upp á 200 tonn af þorski og rækju það sem eftir er. Það væri kannski annað mál ef þessi skip hefðu kvóta eins og önnur skip. En menn vilja skip og bjóða í öll skip sem í boði eru.” Við höfum setið lengi hjá Sigurði skipstjóra á Stakfellinu. Mál til kom- ið að kveðja og þakka fyrir sig. Við spyrjum að lokum hvernig honum og fjölskyldu hans líki á Þórshöfn. „Okkur líkar alveg þokkalega, ann- ars værum við ekki hér. Mannlíf er gott og bömin hafa nóg að gera. Það er mikið gert fyrir börnin hér og þau vilja sjálfsagt hvergi annars staðar vera en hér á Þórshöfn." -mþþ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.