Dagur - 17.03.1986, Page 3

Dagur - 17.03.1986, Page 3
17. mars 1986 - DAGUR - 3 Febrúar: Atvinnu- leysi á Norðurlandi I febrúarmánuði voru á land- inu öllu skráðir 23.810 atvinnuleysisdagar á landinu öllu. Þetta jafngildir því að 1100 manns hafi verið á at- vinnuleysisskrá allan mánuð- inn en það svarar til 0,9% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði samkvæmt spá Þjóð- hagsstofnunar. Þetta er mun minna atvinnu- leysi en verið hefur í febrúarmán- uði undanfarin ár og þarf að fara allt aftur til ársins 1982 til að finna minna atvinnuleysi í febrú- ar. Það ár var fjöldi atvinnuleys- isdaga 20.465 en hámarki náði at- vinnuleysi í febrúar árið 1984 er 56.479 atvinnuleysisdagar voru í febrúar. A Norðurlandi eystra voru 4510 atvinnuleysisdagar í febrú- ar en á Norðurlandi vestra 2330 dagar. Skiptingin milli kynja var þannig að á Norðurlandi eystra voru atvinnuleysisdagar karla 2182 en hjá konum 1986. Á Norðurlandi vestra voru atvinnu- leysisdagar karla í febrúar 1188 en hjá konum 1142. gk-. Hvað er betra en útreiðartúr á góðum degi? Og ekki er verra að fararskjótinn sé svona glæsilegur. Mynd: KGA. Keppt í dorgveiði á Mývatni um páskana Það er ekki á hverjum degi sem keppt er í fískveiðum hér á landi en ein slík keppni verð- ur þó haldin á Mývatni hinn 29. mars n.k. Hér er um að ræða dorgveiði- keppni á ís og stendur keppnin yfir í 5 klukkustundir, frá kl. 11 til 17 en skráningu lýkur í Hótel Reynihlíð klukkustundu áður en keppni hefst. Hver keppandi fær keppnis- númer og velur sér keppnisstað er hann tilkynnir keppnisstjórn og sér sjálfur um að koma sér á keppnisstað. Mótslok verða í Hótel Reyni- hlíð og þar verða afhent verðlaun fyrir flesta fiska, besta gæðamat fiska, fyrsta fisk dagsins, stærsta fisk dagsins, flestar tegundir, fjölskylduverðlaun verða veitt, einnig verðlaun fyrir flesta fiska barna yngri en 12 ára og stærsta fisk er börn veiða. Forsvarsmenn keppninnar vilja sérstaklega leggja áherslu á að hér er um hentuga skemmtun fyrir fjölskyldur að ræða og er veittur sérstakur fjölskyldu- afsláttur af keppnisgjaldi. Helgardvöl á Hótel Sögu í vetur hefur Hótel Saga boðið upp á sérstaka „helgardvöl í höfuöborginni‘% sem mælst hefur einstaklega vel fyrir meðal fólks af landsbyggðinni. Hægt er að velja um tveggja eða þriggja nátta gistingu en auk þess er boðið upp á veit- ingar og skemmtanir, sem gera helgarferðina ógleymanlega. Það hefur sennilega ekki farið framhjá neinum að sýningin „Laddi á Sögu“ hefur verið eitt aðal aðdráttaraflið í íslensku skemmtanalífi í vetur. Sýning Ladda þykir einstaklega vel heppnuð, enda ekkert til sparað að gera hana sem glæsilegasta. Auk Ladda fara þarna á kostum, þeir Eiríkur Fjalar, Þórður hús- vörður, Búfræðingurinn, Mann- fræðingurinn, James Bond, Rauða ljónið og allir hinir gems- arnir. Á eftir sýningu Ladda er al- mennur dansleikur en fyrir dansi leikur hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar sem af mörgum er talin ein besta hljómsveit lands- ins um þessar mundir. Þarf engan að undra, því auk Magnúsar eru í hljómsveitinni, heimsfrægir tón- listarmenn á borð við Eyþór Gunnarsson (Mezzoforte) og Kristin Svavarsson (fyrrum saxófónleikara Mezzoforte). Söngkona hljómsveitarinnar er Ellen Kristjánsdóttir. Það er Gildi hf. sem sér um all- an veitingarekstur á Hótel Sögu. í Grillinu er boðið upp á „dögurð“ að morgni brottfarar- dags, en „dögurðurinn“ er eins konar sambland af morgunverði og hádegisverði. Til þess að gest- ir geti sofið fram eftir, er „dög- urðurinn" borinn fram frá kl. 11 til 14.30. Hótel Saga sér að sjálfsögðu um að panta miða í leikhús eða í óperuna, en flestir nota föstu- dagskvöldið til þess að bergja á menningunni og byrja þá á sér- stökum leikhúskvöldverði í Grill- inu. Þá sér hótelið um að panta bílaleigubíl fyrir gesti. Laddi í einu hlutverkanna í sýningu sinni. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Norðurlandi eystra. Vistheimilið Sólborg Saumakona óskast til starfa frá 1. apríl n.k. Stöðuhlutfall 80%. Nánari upplýsingar í síma 21755 virka daga frá kl. 10-16. Forstöðumaður. Tölvuskráning Óskum að ráða starfsmann til starfa við tölvu- skráningu og almenn skrifstofustörf til áramóta. Þarf að geta hafið störf 1. apríl. Um heilsdags starf er að ræða. Reynsla í skrif- stofustörfum æskileg. Góð laun í boði. RAÐNINGARÞJONUSTA FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri ■ simi 25455 Auglýsing um aðalskoðun bifreiða á Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu 1986 Samkvæmt umferðarlögum hefir verið ákveðið að aðalskoðun bifreiða 1986 hefjist 24. mars nk. og verði sem hér segir: 24. mars skoðun á Dalvík (Víkurröst). 25. mars skoðun á Dalvík (Víkurröst). 26. mars skoðun á Dalvfk (Víkurröst). 1. apríl A- 1 tll A- 250 2. apríl A- 251 til A- 500 3. apríl A- 501 tll A- 750 4. apríl A- 751 til A- 1000 7. apríl A- 1001 tll A- 1250 8. apríl A- 1251 til A- 1500 9. apríl A- 1501 til A- 1750 10. apríl A- 1751 til A- 2000 11. apríl A- 2001 til A- 2250 14. aprll A- 2251 til A- 2500 15. apríl A- 2501 til A- 2750 16. apríl A- 2751 til A- 3000 17. apríl A- 3001 til A- 3250 18. apríl A- 3251 til A- 3500 21. apríl A- 3501 til A- 3750 22. apríl A- 3751 til A- 4000 23. apríl A- 4001 til A- 4250 25. apríl A- 4251 tll A- 4500 28. apríl A- 4501 til A- 4750 29. apríl A- 4751 til A- 5000 30. apríl A- 5001 til A- 5250 2. maí A- 5251 til A- 5500 5. maí A- 5501 til A- 5750 6. maí A- 5751 til A- 6000 7. maí A- 6001 til A- 6250 9. maí A- 6251 til A- 6500 12. maí A- 6501 til A- 6750 13. maí A- 6751 til A- 7000 14. maí A- 7001 til A- 7250 15. maí A- 7251 til A- 7500 16. maf A- 7501 til A- 7750 20. maí A- 7751 til A- 8000 21. maí A- 8001 til A- 8250 22. maí A- 8251 til A- 8500 23. maí A- 8501 til A- 8750 26. maí A- 8751 til A- 9000 27. maí A- 9001 til A- 9250 28. maí A- 9251 til A- 9500 29. maí A- 9501 til A- 9750 30. maí A- 9751 til A-10000 2. júní A-10001 og hærri númer Skoðun léttra bifhjóla fer fram 14. til 18 apríl nk. Eigendum eða umráðamönnum skoðunarskyldra bifreiða ber að koma með bifreiðir sínar að skrifstofu Bifreiðaeft- irlitsins í Lögreglustöðinni við Þórunnarstræti og verður skoðun framkvæmd þar mánudaga til föstudaga frá kl. 08.00 til 16.00. Festivagnar og tengivagnar skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiöanna leggja fram full- gild ökuskírteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts 1986 og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður skoöun ekki fram- kvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd. Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg, og í skráningarskírteini skal vera áritun um að aðalljós bifreiðarinnar hafi verið stillt eftir 31. júlí 1985. Ennfremur skal athygli serstaklega vakin á nýjum reglum um aurhlífar bifreiða og tengi- og festivagna. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum sam- kvæmt umferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máii. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. 12. mars 1986.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.