Dagur


Dagur - 17.03.1986, Qupperneq 5

Dagur - 17.03.1986, Qupperneq 5
17. mars 1986 - DAGUR - 5 Sumardvöl þroskaheftra Á vegum Vistheimilisins Sól- borgar var um árabil rekin sér- stök sumardvöl fyrir þroskaheft börn og unglinga. í flestum tilvik- um var tekið á leigu heimavistar- húsnæði við skóla í nágrenni bæjarins til sumardvalarinnar. Dvalartími var mismunandi eða frá einni viku til ÍV2 mánaðar fyrir hvern þátttakanda. Flestir þátttakenda nutu ekki annarrar þjónustu en dagvistar annan hluta ársins, enda þjónusta þessi í aðra röndina hugsuð til hvíldar fyrir fjölskyldur þeirra er þátt tóku í sumardvalarstarfinu. Við yfirtöku Svæðisstjórnar málefna fatlaðra á rekstri Vistheimilisins Sólborgar hefur sérstök opinber fjárveiting fengist til þessarar starfsemi sem mun á komandi sumri verða rekin á ábyrgð svæðisstjórnar. Til rekstursins verður nýtt aðstaða sú sem Foreldrafélag barna með sérþarfir og Styrktar- félag vangefinna hafa komið upp að Botni í Flrafnagilshreppi, en þar skortir nú aðeins herslumun- inn til að fullbúin séu í þessu skyni tvö hús sem félögin hafa unnið að endurbótum og bygg- ingu á. Á sl. árum hefur þjónusta þessi einungis staðið til boða tiltölu- lega fámennum hópi m.a. vegna takmarkaðrar fjárveitingar og skorts á hentugu húsnæði. Von- Þingeyskir leiðsögumenn í landssamtök leiðsögumanna Aðalfundur Félags leiðsögu- manna í Þingeyjarsýslum var haldinn á Flótel Húsavík síðast- liðið fimmtudagskvöld. Stjórn var endurkjörin. Formaður er Sigrún Ingvarsdóttir. Rætt var um atvinnuhorfur 1' sumar. Ferðaskrifstofum og fleiri aðilum sem hafa með ferðamál að gera hefur verið sent bréf til kynningar á félaginu. Félagsmenn fengu aðild að Félagi leiðsögumanna á aðal- fundi félagsins sent haldinn var í Reykjavík 27. febr. sl. Fréttatilkynning ast er til að sú aðstaða sem nú er að rísa að Botni verði til þess að fleiri geti nýtt sér sumardvöl en verið hefur til þessa. Svæðisstjórn vinnur nú að undirbúningi sumardvalarinnar fyrir komandi sumar. Með tilliti til skipulags starfseminnar og alls undirbúnings er nauðsyn á að fá sem fyrst nokkra hugmynd um fjölda þeirra sem munu óska eftir þátttöku. í því skyni verður á næstu dögum sent út bréf til þeirra sem kunnugt er um að áhuga hafa á sumardvöl og þeir beðnir að gera grein fyrir óskum sínum. Á miðvikudag og fimmtudag 19. og 20. mars, verður haldin ráð- stefna um fjarkennslu í Borgar- túni 6 í Reykjavík. Þeir sem standa fyrir ráðstefnunni eru: Fræðslumiðstöð iðnaðarins, Há- skóli íslands, Iðnfræðsluráð, Kennaraháskóli íslands, Náms- gagnastofnun, Póstur og sími og Stjórnunarfélag íslands. í fjarkennslu þurfa kennarar og nemendur ekki að vera á sama stað í kennslu. Hún hefur alllengi verið iðkuð hérlendis í formi bréfaskóla og einnig var tungu- málakennsla í útvarpi og sjón- varpi fjarkennsla. Með aukinni tækni er unnt að takast á við sífellt flóknari verk- efni í fjarkennslu. Að líkindum er þekktasta dæmið um hana fjarkennsla Opna háskólans breska, Open University, en víða um lönd hafa augu manna beinst að þessu kennsluformi nú síðustu árin, vegna þess að með því má nýta þekkingu og leiðsögn kennara á mörgum stöðum í einu. Með fjarkennslu fá þeir að- stöðu til náms, sem vegna búsetu sinnar, starfa eða efnahags, geta ekki stundað reglubundið skóla- nám. Hérlendis hefur vaknað mikill áhugi á því að kanna hvort fjar- Svör þurfa að berast til skrif- stofu svæðisstjórnar fyrir 1. apríl nk. Þar munu jafnframt liggja frammi umsóknareyðublöð til útfyllingar fyrir þá sem ekki fá send bréf eða fyrirspurn og er öll- um sem áhuga hafa bent á að snúa sér til skrifstofunnar með beiðnir sínar. Svæðisstjórn væntir þess að heyra sem fyrst frá þeim sem mál þetta varðar svo takast megi með góðum fyrirvara að skipuleggja sumardvölina og vinna að nauð- synlegum undirbúningi. Lesið auglýsingu sem birtist með til- kynningu þessari. Fréttatilkynning kennsla geti leyst vandamál þeirra, sent búa fjarri helstu menntastofnunum. Má í því sambandi nefna að menntamála- ráðherra hefur nýlega skipað nefnd til þess að kanna þessi mál og á Alþingi hafa verið flutt þingsályktunartillaga og frum- varp um málið. Ráðstefnunni í næstu viku er ætlað að auka þekkingu manna hérlendis á þessu máli, svo auðveldara verði að gera sér grein fyrir því hversu vel fjarkennsla hentar íslenskum aðstæðum. Margir fyrirlesarar verða á ráð- stefnunni bæði innlendir og er- lendir, eins og dagskráin ber með sér. Samhliða ráðstefnunni verður haldin sýning á námsgögnum fyr- ir fjarkennslu, erlendum og inn- lendum, og verður hún opin frá hádegi, fimmtudaginn 20. mars á ráðstefnustað. Tekið er á móti þátttöku- tilkynningum á ráðstefnuna í skrifstofu Háskóla íslands, í síma (91) 2-50-88. Nánari upplýsingar veita ráð- stefnustjórarnir, Margrét S. Björnsdóttir, endurmenntunar- stjóri Háskólans, i' síma 2-37-12 og Þuríður Magnúsdóttir, for- stöðumaður Fræðslumiðstöðvar iðnaðarins í síma 68-70-00. Ráðstefna um fjarkennslu UiögnL Það kostar mikiö fyrir svona litla þjóð, að vera sjálfstæð, var sagt á dögunum. Að sjálfsögðu er mikið til f því. Það andlega og líkamlega atgervi, sem ís- lenski þjóðflokkurinn ræður yfir, hefur líka kostað sitt. Að lifa af Sturlungaöld, var afrek út af fyrir sig fyrir svona litla þjóð. Við skulum muna, að í þann tfð var talið sjálfsagt og eðlilegt að höggva menn í herð- ar niður og þótti sá naumast maður með mönnum, sem ekki stundaðí slíkt sport af kappi. Það var heldur ekki svo lítið af- rek fyrir svona litla þjóð, að lifa af móðuharöindi, eldgos og svartadauða. Og ekki má gleyma danskri kúgun öldum saman, möðkuðu mjöli, við- reisnarstjórn og vinstri stjórn að ógleymdri tvö hundruð prós- enta verðbólgu. Að lifa þetta allt af, sýnir og sannar ótvíræða yfirburði stofnsins, ekki síst þegar haft er f huga að hér er um svo litla þjóð að ræða. Af framanskráðu má þaö Ijóst vera, aö út úr öllum þessum eldraunum komu afburða menn og konur. Það væri allt of langt mál, að fara að telja upp öll þau undur og afrek, sem unnin hafa verið aö undanförnu. Ég ætla þvi rétt aðeins að nefna nokkur. Við getum státað af sterkasta manni heims og þurfum i því sambandi ekki einu sinni að miða við mannfjölda. Nú, við „eigum" fallegustu stúlku f heimi, og þurfum þar heldur ekki að miða við mannfjölda. En svo við miðum nú við mann- fjölda, þá „eigum“ við flesta stórmeistara allra þjóða og erum yfirleitt sterkasta skákþjóð í heimi. Og að lokum erum við svo nýbúnir aö sanna umheimi, að við erum þeir sjöttu bestu f handbolta. Þetta er vissulega stórafrek, því samkvæmt frá- sögn fjölmiðla er einmitt sjötta sætið það eftirsóknarverðasta af öllum. Og nú líður óðum að enn ein- • ■ « um sigrinum. Framundan er raulkeppni sjónvarpsstöðva. Sú keppni hefur um mörg undan- farin ár verið haldin án okkar ís- lendinga, - hvernig sem það hefur nú verið hægt. En við höf- um verið svo hræddir við að sigra, að við höfum ekki þorað. En loksins höfum við yfirunnið hræðsluna og nú mega hinir fara að vara sig. Lengi vel sáu frændur vorir, Norðmenn, um neðsta sætið í þessari keppni og unnu það oft- ast með miklum sóma. En svo tóku þeir upp á því að sigra, þannig að þeirra pláss er laust til umsóknar. Sumum finnst reyndar neðsta sætið ekki nógu gott. En þótt við hrepptum það, höfum við tvö hundruð og fimmtíu þús- und gildar afsakanir í málinu: Þetta er nú í fyrsta skipti, sem við erum með og þar að auki er það næstum því aiger sigur fyrir okkur að lenda í neðsta sæti, - svona litla þjóð. Högni. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 114., 117. og 121. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Hrafnagilsstræti 10, neðri hæð, Akureyri, þingl. eign Db. Benedikts Söebeck, fer fram eftir kröfu Gunn- ars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 136., 143. og 147. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Sunnuhlíð 12r, Akureyri, þingl. eign Hall- gríms B. Valssonar, ferfram eftir kröfu Gústafs Þórs Tryggva- sonar hdl. og Ragnars Steinbergssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 136., 143. og 147. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Strandgötu 41, neðri hæð, Akureyri, talinni eign Auðar Guðjónsdóttur, fer fram eftir kröfu Ragnars Steinbergssonar hrl. og Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 13.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 66., 67. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á fasteigninni Hafnarstræti 88, efri hæð að norðan, Akureyri, þingl. eign Stefáns Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeild- ar Landsbanka fslands, bæjargjaldkerans á Akureyri, Trygg- ingastofnunar ríkisins og Jóhanns Salberg Guðmundssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 16.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Fjólugötu 8, neðri hæð, Akureyri, þingl. eign Bjargar Bjarnadóttur, fer fram eftir kröfu Jóns Kr. Sólnes hrl., Skúla Bjarnasonar hdl. og Tryggingastofnunar ríkisins á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 16.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var.í 105., 107. og 108. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Strandgötu 19, efri hæð, Akureyri, talinni eign Ólafs A. Hilmarssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 17.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Hjallalundi 1a, Akureyri, þingl. eign Gunn- ars Sveinarssonar, fer fram eftir kröfu Björgvins Þorsteinsson- ar hdl., Veðdeildar Landsbanka íslands, Gunnars Sólnes hrl.. Róberts Á. Hreiðarssonar hdl., Ásgeirs Thoroddsen hdl., Árna Guðjónssonar hrl., Ólafs Axelssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 14.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 131., 138. og 145. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Glerárgötu 34, vörugeymslu a baklóð A- hl., Akureyri, þingl. eign Braga Kjartanssonar, fer fram eftir kröfu Steingríms Þormóðssonar hdl. og Verslunarbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 17.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 136., 143. og 147. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Sólvöllum II, Akureyri, talinni eign Halldórs I. Tryggvasonar o.fl., ferfram eftir kröfu Hreins Pálssonar hdl. og Gunnars Sólnes hrl. á eigninní sjálfri föstudaginn 21. mars 1986, kl. 13.30. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.