Dagur - 17.03.1986, Side 6
6 - DAGUR - 17. mars 1986
Knal í-
spyrt úrsli 1U it
Úrslit leikja í 1. og 2. dcild ensku knattspyrnunnar um
helgina urðu þessi:
1. deild
Arsenal-West Ham 1-0 l|
Birmingham-Tottenham 1-2 2
Coventry-ShefT.Wed. 0-1 2
Everton-Cheisea 1-1
Luton-Oxford 1-2
Man.City-Watford 0-1 2
Newcastie-Ipswich 3-1 1
Noltm.Forest-Aston Villa 1-1
Q.P.R.-Man.United 1-0 1
Southampt.-Liverpool 1-2 2
W.B.A.-I.eicester 2-2 x
2. deild
Barnsley-Bradford 2-2
Blackbum-Millwall 1-2
Brighton-Stoke 2-0 1
Charlton-Portsmouth 1-2 2
Fuiham-Wimbledon 0-2 2
Huddersf.-Shrewsbury 1-0
Hull-Sunderland 1-1 X
Middlesbro-Leeds 2-2
Norwich-Carlisle 2-1
Oldham-C.Palace 2-0
Sheff.U-Grimsby 1-1
STAÐAN
1. deild
Everton 32 20- 6- 6 72:37 66
Liverpool 33 18- 9- 6 65:36 63
Man.United 31 18- 5- 8 52:25 59
Chelsea 29 17- 7- 5 47:30 58
Arsenal 30 16- 7- 7 39:32 55
ShefT.Wcd 31 15- 7- 9 50:46 52
West Hani 27 15- 6- 6 42:25 51
Luton 32 14- 9- 9 49:35 51
Newcastle 30 13- 9- 8 45:44 48
Nottm.Forest31 14- 5-12 53:44 47
Tottenham 31 13- 5-13 41:36 44
Watford 28 12- 6-10 47:43 42
Man.Cily 33 11- 8-14 36:43 41
Southampton 32 11- 7-14 40:42 40
Q.P.R. 33 11- 4-18 31:44 37
Leicester 31 8-10-13 45:56 34
Oxford 31 8- 8-15 47:58 32
Coventry 32 8- 8-16 43:57 32
Ipswich 31 8- 5-18 25:45 29
AstonViUa 31 5-11-15 33:50 26
Birmingham 33 7- 4-22 25:53 25
W.B.A. 32 3- 8-21 27:75 17
STAÐAN
2. deild
Norwich 31 19- 7- 5 63:29 64
Portsmouth 32 18- 5- 9 53:28 59
Wimbledon 31 16- 7- 8 42:29 55
Charlton 29 15- 6- 8 53:33 51
Sheif.U. 31 13- 8-10 51:45 47
C.Palace 31 13- 7-11 38:37 46
Brighton 30 13- 7-10 51:44 46
Hull 32 12-10-10 52:45 46
Oldham 31 13- 5-13 51:50 45
Barnsley 31 11-10-10 34:33 43
Crimsby 32 11- 9-12 47:48 42
Stoke 32 10-12-10 39:42 42
Millwall 29 12- 4-13 44:44 40
Huddersf. 31 10-10-12 42:48 40
Blackbum 32 10-10-12 40:46 40
Shrewsbury 32 11- 6-15 38:47 39
Leeds 32 11- 6-15 42:54 39
Bradford 28 11- 4-13 34:43 37
Sunderland 32 9- 8-15 34:50 35
Middlesbro 30 7- 8-15 28:40 29
Fulham 28 8- 4-16 29:40 28
Carlisle 30 6- 6-18 29:58 24
íþróttÍL
Kjartan Guðmundsson lék mjög vel fyrir Þór gegn KA í gær.
Þórsarar í úrslit í 3.
flokki eftir sigur á KA
- í Höllinni í gær 19:12 í skemmtilegum leik
Þeir voru aldeilis kátir strákarnir í
3 flokki Þórs þegar flautað var til
leiksloka í leik þeirra við KA í
íslandsmótinu í handbolta. Þórs-
arar sigruðu nokkuð örugglega í
skemmtilegum leik 19:12. Þetta
var þriðji og síðasti leikur liðanna
í Norðurlandsriðli og fyrir þennan
leik í gær höfðu bæði liðin unnið
sitt hvom leikinn og var því um
hreinan úrslitaleik að ræða.
Leikurinn hófst með krafti og var
jafnt á öllum tölum fram í miðjan
fyrri hálfleik og staðan þá 4:4. Þá var
einum Þórsararnum vikið af leikvelli
i 2 mín. og í stað þess að KA-menn
nýttu sér það breyttu Þórsarar stöð-
unni í 6:4 sér í vil. Þeir náðu síðan að
skora 2 mörk í viðbót fyrir leikhlé en
KA-menn aðeins 1 og var staðan 8:5
fyrir Þór í hálfleik.
í síðari hálfleik hélst þessi 3 marka
munur framan af en í lokin náðu
Þórsarar að auka muninn enn meira
og á þeim tíma gekk flest á afturfót-
unum hjá KA. Síðan má segja að
KA-menn hafi hreinlega gefist upp
og þegar flautað var til leiksloka
höfðu Þórsarar unnið góðan sigur
19:12.
KA-menn gripu til þess ráðs að
taka þá Árna Árnason og Pál Gísla-
son úr umferð en við það losnaði um
Kjartan Guðmundsson og skoraði
hann mörg glæsileg mörk og lék
stórvel. Einnig var Axel Stefánsson
markvörður Þórs góður og varði
m.a. tvö víti.
Þórsarar tóku aðalskyttu KA-
manna Svan Valgeirsson úr umferð
og tókst það nokkuð vel. Bestir í liði
KA voru þeir Svanur og Björn
Pálmason.
Mörk Þórs: Kjartan Guðmunds-
son 6, Sævar Árnason 5, Páll V.
Gíslason 3 (2), Árni Þ. Árnason 2
(1), Guðmundur Jónsson 2 og Axel
Stefánsson markvörður skoraði 1
mark úr víti.
Mörk KA: Svanur Valgeirsson 5
(2), Björn Pálmason 4, Trausti Jóns-
son 1, Jón Einar Jóhannsson 1 og
Þaö var hart baríst þegar 9 manna
lið kraftajötna frá íslandi fór til
Bandaríkjanna og atti kappi við
kraftlyftingamenn þaðan, fyrír
skömmu. Keppt var í Kaliforníu
við góðar aðstæður og voru veitt
glæsileg verðlaun.
Fyrirkomulag mótsins var þannig
að tveir menn, hvor frá sínu landi
kepptu sín á milli í hverjum flokki.
Þegar upp var staðið höfðu Banda-
Ingvar Ingason 1.
Leikinn dæmdu þeir Stefán Arn-
aldsson og Ólafur Haraldsson og
dæmdu þeir erfiðan leik vel.
ríkjamennirnir unnið sigur í sveita-
keppninni með 96 stigum gegn 93.
Þeir Kári Elísson og Víkingur
Traustason voru meðal keppenda á
þessu móti og náði Víkingur mjög
góðum árangri og sigraði andstæðing
sinn örugglega.
Kára gekk aftur á móti ekki eins
vel og tapaði fyrir sínum andstæð-
ingi. Kári varð fyrir því óhappi að
missa ofan á löppina á sér 260 kg
Það verða því Þórsarar sem fara
suður til Reykjavíkur og keppa til
úrslita við lið úr hinum riðlunum í 3.
flokki.
þunga og brákaðist hann á rist við
það.
Árangur Víkings varð þessi í 125
kg flokki. Hann lyfti 332,5 kg íihné-
beygju, 205 kg í bekkpressu sem er
Ak. met, 330 í réttstöðulyftu og
867.5 kg samanlagt sem einnig er
Ak.met. Andstæðingur Víkings lyfti
827.5 kg.
Kári keppti í 75 kg flokki og hann
lyfti samanlagt 635 kg en andstæð-
ingur hans lyfti 680 kg.
Kári og Víkingur kepptu núvfyrir
skömmu á íslandsmótinu í hekk-
pressu sem haldið var í Kópavogi um
daginn. Kári sigraði í 75 kg flokki
lyfti 160 kg en honum mistókst
naumlega að lyfta 170 kg.
Víkingur varð að láta sér lynda
annað sætið í plús 125 kg flokki en
þar sigraði Jón Páll Sigmarsson og
vann hann einnig- besta afrek
mótsins. Víkingur lyfti 210 kg en Jón
Páll 215 kg.
Þeir félagar Kári og Víkingur æfa
á fullu um þessar mundir og ætla sér
báðir stóra hluti á íslandsmótinu í
kraftlyftingum sem fram fer í Höll-
inni á Akureyri þann 5. apríl næst-
komandi. Nánar verður sagt frá því
síðar í blaðinu.
Kári og Víkingur ætla sér stóra hluti á íslandsmótinu sem fram fcr á Akureyri.
Kári og Víkingur
kepptu í Bandaríkjunum
- og einnig á íslandsmótinu í bekkpressu
Umsjón: Kristján Kristjánsson
17. mars 1986 - DAGUR - 7
íslandsmót juniora í Judó:
Góður árangur
akureyrskra pilta
Um helgina kepptu ungir og
efnilegir júdómenn frá Akur-
eyri á íslandsmóti júníora I
júdó sem fram fór í íþróttahúsi
Kennaraháskólans í Reykj-
avík. Árangur norðanstrákana
varð nokkuð góður þó þjálfari
þeirra Jón Oðinn Óðinsson
hafl ekki verið alveg ánægður
með sína menn.
Árangur strákana frá Akureyri
varð þessi: f flokki mínus 55 kg
varð Baldur Stefánsson í öðru
sæti.
í mínus 60 kg flokki varð
Freyr Gauti Sigmundsson í öðru
sæti en Gauti hefur ávallt verið
mjög sigursæll á þeim mótum
sem hann hefur tekið þátt í.
í mínus 65 kg flokki náðist
besti árangurinn en þar sigruðu
norðanstrákarnir þrefalt. Gunnar
Gunnarsson sigraði, Trausti
Harðarson varð annar og Arnar
Harðarson varð þriðji.
í mínus 71 kg flokki sigraði
Adam Traustason og Njáll Stef-
ánsson hafnaði í þriðja sæti. En
þeir félagar Adam og Trausti
lentu saman í undanúrslitum og
gátu því ekki náð í annað sætið.
Þessi árangur strákana er mjög
góður og geta þeir verið ánægðir
með sinn hlut á þessu móti.AE/
KK
Akureyrskir júdópiltar stóðu sig vel á íslandsmóti juniora í Reykjavík á laugardag
Halldór Áskelsson.
Halldór
enn á
skotskónum
Halldór Áskelsson leikmaður
Þórs í knattspyrnu sem er um
þessar mundir með íslenska
landsliðinu í keppnisferð í
Bahrain hefur verið iðinn við
kolann. En Halldór hefur skorað
fyrir landann í báðum leikjunum
gegn Bahrain.
I síðustu viku var sagt frá því í
Degi að Halldór hefði skorað
eina mark íslands í fyrri leik lið-
anna en þeim leik tapaði ísland
2:1. Liðin léku síðan að nýju á
föstudag og þá sigraði íslenska
liðið örugglega 2:0 og skoraði
Halldór fyrra markið og lagði
upp það síðara sem Guðmundur
Steinsson Frammari skoraði.
Hinn nýji landsliðsþjálfari Sigi
Held hefur stjómað liðinu og ætti
Halldór að vera búinn að leggja
aðeins inn í komandi baráttu um
stöðu í landsliðinu með góðri
frammistöðu þarna úti.
Arnar Bragason frá Húsavík. Jóhannes Baldursson frá Akur-
eyri.
Bikarmot
á Dalvík
- í flokki 13-14
Á laugardag og sunnudag fór
fram bikarmót í svigi og stór-
svigi í flokki 13-14 ára. Keppt
var í Böggvisstaðarfjalli á
Dalvík. Á meðan keppni fór
fram var frábært veður og
einnig þótti færið gott.
Úrslit í svigi og stórsvigi í
stúlkna- og drengjaflokki urðu
þessi:
Svig drengja
1. Arnar Bragason H 77,19
2. Jóhannes Baldursson A 77,39
3. Vilhelm Þorsteinsson A 78,55
ára unglinga
Stórsvig stúlkna
1. Hanna Mjöll Ólafsdóttir í
102,78
2. Sara Halldórsdóttir í 104,13
3. María Magnúsdóttir A 105,15
Svig stúlkna
1. Hanna Mjöll Ólafsdóttir í 89,48
2. Anna íris Sigurðardóttir H 90,68
3. María Magnúsdóttir A 91,14
Stórsvig drengja
1. Jóhannes Baldursson A 94,76
2. Jón Ólafur Árnason í 95,73
3. Magnús Karlsson A 98,23
Bikar- oq
punktamót
a Siglufirði
Um helgina fóru fram bikar-
mót og punktamót í göngu á
Siglufirði. Keppt var í fullorð-
ins og unglingaflokkum bæði
með frjálsri og hefðbundinni
aðferð. Helstu úrslit urðu þessi
í bikarmótinu á laugardag:
Stúlkur 13-15 ára 2,5 km
hefðbundin aðferð:
1. Ester Ingólfsdóttir S 10,02
2. Magnea Guðbjörnsdóttir Ó 10,35
3. Lena Rós Matthíasdóttir Ó 10,59
Drengir 13-14 ára 5 km
hefðbundin aðferð:
1. Sölvi Sölvason S 18,35
2. Guðmundur Óskarsson Ó 19,28
3. Grétar Björnsson Ó 20,15
Stúlkur 16-18 ára 3,5km frjáls aðferð:
1. Stella Hjaltadóttir í 12,29
2. Málfríður Hjaltadóttir í 15:50
3. Eyrún íngólfsdóttir í 16;02
Karlar 20 ára og eldri 15 km
frjáls aðferð:
1. Haukur Sigurðsson Ó 54,21
2. Einar lngvason í 54,46
3. Ingþór Eiríksson A 54,49
Piltar 17-19 ára 10 km frjáls aðferð:
1. Rögnvaldur Ingþórsson í 35,50
2. Baldur Hermannsson S 36,40
3. Brynjar Guðbjartsson í 37,42
Úrslitin í gær í punktamótinu urðu
þessi:
Karlar 20 ára og eldri 10 km
hefðbundin aðferð:
1. Haukur Sigurðsson Ó 37,21
2. Einar Ingvason í 37,55
3. Ingþór Eiríksson A 40,04
Drengir 17-19 ára 7,5 km
hefðbundin aðferð:
1. Baldur Hermannsson S 26,54
2. Rögnvaldur Ingþórsson í 27,38
3. Heimir Hannesson í 28,17
Stúlkur 16-18 ára 3 km
hefðbundin aðferð:
1. Stella Hjaltadóttir í 11,55
2. Eyrún Ingólfsdóttir í 13,26
3. Málfríður Hjaltadóttir í 14,19
Stúlkur 13-15 ára 2 km frjáls aðferð:
1. Ester Ingólfsson S 9,03
2. Magnea Guðbjörnsdóttir Ó 10,03
3. Valborg Konráðsdóttir í 10,15
Drengir 13-14 ára 3,5 km frjáls aðferð:
1. Sölvi Sölvason S 12,15
2. Grétar Björnsson Ó 12,28
3. Guðmundur Óskarsson Ó 13,17
Sveitaglíma ísiands:
Búningarnir
og beltin
urðu eftir
Ekkert varð af fyrirhugaðri
sveitaglímu Islands sem halda
átti að Laugum í Reykjadal um
helgina.
Tvær sveitir voru skráðar til
keppninnar, sveit HSÞ og sveit
KR. Á laugardag flugu KR-ingar
til Akureyrar og hugðust aka
þaðan á keppnisstað. Hins vegar
kom í ljós á Akureyrarflugvelli
að búningataska þeirra hafði orð-
ið eftir í Reykjavík og stóðu þeir
því í flustöðinni án búninga og
glímubelta.
í glímu er að sjálfsögðu nauð-
synlegt að hafa hin sérsmíðuðu
glímubelti, (venjuleg belti eða
axlabönd koma ekki að notum).
Þar sem þessi varningur er ekki
til á hverju heimili og ekki reynd-
ist unnt að fá útbúnaðinn aö
sunnan í tæka tíð, máttu KR-ing-
ar gera svo vel að fljúga aftur
suður.
Ekki er vitað hverjar lyktir
þessa máls verða, hvort HSÞ
verður dæmdur sigur, eða KR-
ingar geri aðra atlögu og þá vænt-
anlega með búninga og belti
meðferðis. Þess má geta að lok-
um að flugvélin sem KR-ingarnir
komu með norður var svo hlaðin
að skilja þurfti eftir hluta af far-
angri farþega og þar á meðal
voru búningarnir og beltin.gk/
gej-KK
VERÐLAUNAPENINGAR
stærö 42 mm.
Verð 75 kr. stk.
með áletrun.
Einnig mikið úrval af bikurum.
Sendum burðargjaldsfritt.
Pantið timanlega.
GULLSMIÐIR
Sigtryggur & Pétur.
Brekkugötu 5 - Akureyri.
Simi: 96-23524.