Dagur - 17.03.1986, Page 8
8 - DAGUR - 17. mars 1986
Ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar 1986 í Þelamerkurskóla:
„Orð em til alls fyrst“
Ársþing Ungmennasamhands
Eyjafjarðar, hið 65., var hald-
ið í Þelamerkurskóla dagana 1.
og 2. mars. UMF Öxndæla sá
um þingið. Rétt til setu á þing-
inu sem fulltrúar aðiidarfélag-
anna áttu um 75 einstaklingar,
og var mjög vel mætt á þetta
þing. Auk fulltrúanna og
stjórnar UMSE voru mættir
allmargir gestir. Frá UMFÍ
kom Pálmi Gíslason formaður,
- frá ISÍ Sigurður Magnússon
framkvæmdastjóri, einnig
mættu allmargir fulltrúar sveit-
arstjórna hér á félagssvæðinu
til að kynna sér starfsemi
UMSE.
Þingforsetar voru kjörnir þeir
Ari Jósavinsson frá ÚMF Öxn-
dæla og Þóroddur Jóhannsson frá
UMF Mööruvallasóknar. Þegar
kjörbréfanefnd haföi yfirfarið
kjörbréf og þau samþykkt voru
géstir þingsins kynntir. Því næst
flutti fráfarandi stjórn skýrslu
sína. Þar kom ýmislegt fram
varðandi starfsemina árið 1985.
Markviss þjálfun í
ýmsum íþróttagreinum
Nær allt árið var starfandi fram-
kvæmdastjóri í V.2 starfi og var
skrifstofa UMSE að Óseyri 2
Akureyri opin þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 13-17. A
skrifstofunni fara fram flestir
stjórnar- og nefndafundir. Alls
var skipað í um 15 nefndir og ráð
á vegum sambandsins og mikil
vinna lögð fram í þeim flestum.
Eins og ætíð áður bar íþrótta-
starfið hæst í starfi sambandsins,
og flestar nefndir starfandi í
tengslum við íþróttir. Voru mjög
mörg íþróttamót haldin innan
UMSE, en einnig keppti margt
íþróttafólk frá sambandinu á
mótum víða um land og einnig
erlendis.
Fræðslustarfsemi er allnokkur
hjá Ungmennasambandi Eyja-
fjarðar, og árið 1985 var m.a.
haldið námskeið fyrir frjáls-
íþróttaþjálfara, svokallað A-stigs
námskeið, og voru um 15 þátt-
takendur á því námskeiði. Kenn-
ari var Jón Sævar Þórðarson úr
Reykjavík. Einnig er rétt að geta
um félagsmálanámskeið fyrir
stjórnarmenn UMSE og forystu-
menn aðildarfélaganna. Sóttu
námskeiðið alls 22 félagar, og
nutu ágætrar leiðsagnar Sigur-
jóns Bjarnasonar frá Egilsstöð-
um. Framkvæmdastjóri UMSE
sótti framkvæmdastjóranámskcið
sem haldið var á Núpi í Dýra-
firði. En einnig sóttu fulltrúar frá
UMSE flest þing og ráðstefnur
sem haldnar eru á vegum UMFÍ
og.íSÍ.
Dagana 1.-4. mars 1985 fór
í'ram í Hrafnagilsskóla merkileg
ráðstefna sem UMSE annaðist.
Var hér um að ræða ráðstefnu
æskufólks í bændastétt, en slíkar
ráðstefnur eru árlega haldnar til
skiptis á Norðurlöndum. Alls
komu 19 gestir frá hinum
Norðurlöndunum en íslensku
þátttakendurnir voru 7. Dagana
7.-31. júlí fóru svo 8 íslensk ung-
menni, þar af 3 frá UMSE, til
Kannonkoski í Finnlandi á nor-
ræna ungmennaviku.
Ungmennasamband Eyja-
fjarðar hóf sumarið 1985 að nýju
að starfrækja sumarbúðir fyrir
börn og unglinga. Þessar sumar-
búðir voru í ágætum húsakynn-
um barnaskólans í Árskógi, og
íþróttasvæði Reynis nýttist búð-
unum mjög vel. Dvöldu milli 60
og 70 börn í sumarbúðunum
þetta sumar og gekk starfið
prýðilega. Var ákveðið að halda
starfserninni áfram ef þess væri
nokkur kostur.
Aðeins helmingur
sveitarfélaganna
veitir fjárstyrk
Á ári æskunnar voru haldnir
Norðurlandsleikar æskunnar á
Sauðárkróki. Ungmennasam-
band Eyjafjarðar tók mjög virk-
an þátt í þessum leikum, og sendi
170 þátttakendur af svæðinu, auk
þess sem Dalvíkingar sendu 62
keppendur. Aðeins þátttakendur
frá Akureyri gátu státað af fjöl-
mennara liði, en víst er að börnin
og unglingarnir frá UMSE stóðu
sig með sóma og komu heim með
fjölda verðlauna.
Margs fleira má geta úr skýrslu
stjórnar, en þetta verður látið
duga. Því miður var ekki hægt að
samþykkja reikninga sambands-
ins á þessu þingi þar sem endan-
leg niðurstaða lá ekki fyrir.
Að loknum ávörpum og ræð-
um gesta var gert kaffihlé, en síð-
an voru nokkur mál kynnt þing-
inu. Því næst var skipað í starfs-
nefndir og hófu þær þegar störf.
Var unnið í nefndum fram eftir
kvöldi. Skyldu nefndir hafa lokið
álitum sínum og þeim skilað full-
frágengnum.fyrir kl. 10 á sunnu-
dagsmorgun, þegar þingfundur
var settur á ný. I áliti allsherjar-
nefndar kom fram hvatning um
aukið starf og stefnt skal að því
að hafa framkvæmdastjóra í fullu
starfi. Einnig er hvatt til útgáfu
fréttabréfa með reglulegu milli-
bili. Þá lýsir nefndin eindregnum
stuðningi við sumarbúðastarf
UMSE og telur það mikils virði.
Þegar stjórnin hafði lokið máli
sínu og allmargir fulltrúar sagt
sitt álit á henni var orðið gefið
laust fyrir gesti þingsins. Pálmi
Gíslason formaður UMFÍ og
Sigurður Magnússon fram-
kvæmdarstjóri. ÍSÍ fjölluðu um
starfsemi sinna samtaka og
tengslin við UMSE. Kynntu þeir
ýmislegt sem er á döfinni hjá
þessum landssamtökum.
Mikið starf í
íþróttanefnd
Allsherjarnefnd telur brýnt að
UMSE standi fyrir námskeiðum í
stjórnunarstörfum í auknum
Frá ársþingi UMSE 1986.
mæli og efli einnig félagsmála-
fræðsluna. Þá lagði nefndin fram
áskorun til allra félaga UMSE að
berjast gegn hvers konar vímu-
efnum, sem svo mjög herja nú á
æsku þessa lands. Nefndin benti
á þá miklu þörf sem væri fyrir
íþróttahús á starfssvæði UMSE,
og hvatti ráðamenn til að hraða
framkvæmdum sem mest við þau
íþróttahús sem þegar væru hug-
myndir um að reisa eða fram-
kvæmdir hafnar við.
Þá kom fram í áliti allsherjar-
nefndar áskorun til Mjólkursam-
lags KEA að hefja sem fyrst
pökkun og sölu nýmjólkur í rör-
fernum, sem væru hentugar til
neyslu í skólum, dagheimilum og
vinnustöðum. Ýmislegt fleira
kom fram frá allsherjarnefnd og
urðu nokkrar umræður um álitið
en það síðan samþykkt einróma.
Á þingum UMSE er ætíð mik-
ið starf lagt fram í íþróttanefnd
og kemur sú nefnd víða við. Svo
var einnig nú, og urðu miklar og
líflegar umræður um álit nefndar-
innar. Tóku umræður nokkrar
klukkustundir og sýndist sitt
hverjum í skipulagningu og fram-
kvæmd hinna ýmsu móta á veg-
um UMSE. En eftir breytingar-
tillögur á breytingartillögur ofan
varð til álit í 10 greinum sem allir
gátu sætt sig við.
Glæsilegt tilbod
í paskamatinn á
öllu félagssvæðinu!
Bayonne-
skinka
Verðlækkun:
149 kr. pr. kfíó frá janúarverði
Takmarkaðar birgðir!
Mátti glöggt greina á þeim
fjölda sem tók til máls um álitið,
að mikill áhugi er fyrir auknu
íþrótta- og mótastarfi innan
UMSE.
Aðalsteinn
Bernharðsson
íþróttamaður
ársins
Var nú gengið til kosninga.
Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í
stjórn Ungmennasambands
Eyjafjarðar næstá starfsár:
Björn Ingimarsson, UMF
Möðruvallasóknar, formaður.
Klængur Stefánsson, UMF
Möðruvallasóknar, varaformað-
ur. Helgi Steinsson, UMF
Skriðuhrepps, gjaldkeri. Pétur
Þórarinsson, UMF Möðruvalla-
sóknar, ritari. Valgeir Anton
Þórisson, UMF Skriðuhrepps,
meðstjórnandi.
/ varastjórn voru kjörnir:
Guðrún Lárusdóttir, UMF
Þorsteini Svörfuði. Stefán Árna-
son, UMF Skriðuhrepps. Krist-
inn Kristinsson, UMF Vorboðan-
um.
Endurskoðendur voru kjörnir:
Birgir Marinósson og Finnur
Sigurgeirsson.
Þá voru kjörnir fjórir fulltrúar
á þing ÍSÍ og loks skipuð uppstill-
ingarnefnd fyrir næsta þing.
Þegar kosningum var lokió var
komið undir kvöld og þingstörf-
um senn lokið. Var þingfulltrú-
um nú boðið til veislu af UMF
Öxndæla og þar fór fram afhend-
ing verðlauna og viðurkenn-
inga á vegum UMSE.
Fyrst var tilkynnt um val á
íþróttamanni UMSE árið 1985.
Það sæmdarheiti hlaut Aðal-
steinn Bernharðsson, frjáls-
íþróttamaður.
Skíðafélag Dalvíkur hlaut sér-
staka viðurkenningu fyrir dugnað
og atorku í starfi árið 1985, en
eins og flestum er kunnugt hafa
þeir stórbætt skíðaaðstöðu sína í
Böggvisstaðafjalli.
Styrk úr Menningarsjóði
UMSE fékk UMF Möðruvalla-
sóknar fyrir leikstarfsemi árið
1985. Loks var afhentur svokall-
aður Sjóvábikar, sem er viður-
kenning til þess félags sem hlýtur
flest stig úr íþróttakeppnum
hvers árs. Að þessu sinni var það
UMF Svarfdæla á Dalvík sem bar
sigur úr býtum í þessari stiga-
keppni, en UMF Reynir
Árskógsströnd kom næst að
stigum.
Eftir þakkir, árnaðaróskir og
kveðjur var 65. ársþingi UMSE
slitið. En svona í lokin má geta
þess til gamans, að Ari Jósavins-
son annar þingforsetinn hafði
tölu á fluttum ræðum á þessu
þingi. Alls voru fluttar 96 ræður
af um það bil 30 einstaklingum.
Vonandi reynist það rétt, að orð
eru til alls fyrst.