Dagur - 10.06.1986, Page 2

Dagur - 10.06.1986, Page 2
2- DAGUft'- 10. júní 1986 _i/iðtal dagsins ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Jeiðari____________________________ Framsóknarflokkurinn og samvinnuhreyfingin Tengsl Framsóknarflokksins og samvinnu- hreyfingarinnar hafa oft verið gerð að umtalsefni fyrir kosningar og pólitískir andstæðingar flokksins hafa reynt af fremsta megni að gera þau tortryggileg. í viðtali við Guðmund Bjarnason alþingismann og ritara Framsóknarflokks- ins í Degi í gær er m.a. komið inn á þetta atriði. Um það segir Guðmundur: „Við þurfum að taka samstarf flokksins og samvinnuhreyfingarinnar til endur- skoðunar. í mínum huga er þetta samstarf ekkert leyndarmál og á alls ekki að vera það. En einhvern veginn er það að verða svo í hugum fólks að samvinnuhreyfingin er ekki það afl og sá máttur sem hún hefur verið. Sumt fólk sem vinnur hjá samvinnu- hreyfingunni hugsar ekki á sama hátt til síns atvinnufyrirtækis og gert var hér áður fyrr og telur e.t.v. að pólitísk þátttaka sam- vinnuhreyfingarinnar eigi að vera með nokkuð öðrum hætti en verið hefur. Þar á ég við að auðvitað hlýtur samvinnu- hreyfingin að þurfa að hafa pólitískt afl í forsvari fyrir sig og það hefur Framsóknar- flokkurinn vissulega reynt að vera í gegn- um árin. Einhver hugarfarsbreyting hefur samt orðið hjá fólki og samvinnuhreyfingin og þar með kaupfélögin hafa neikvæða merkingu í hugum margra og Framsókn- arflokkurinn hefur goldið þess í ríkum mæli. Þessu verðum við að breyta. Þegar svo eitthvað bjátar á í atvinnulíf- inu úti um land kemur strax upp sú krafa að kaupfélagið á staðnum eða samvinnu- hreyfingin hlaupi undir bagga og reyni að leysa vandann. Það tel ég reyndar að hún eigi að gera en mér finnst að hinn almenni kjósandi eigi að meta það og virða þegar hann gengur til kosninga, meta það við samvinnuhreyfinguna og það stjórnmála- afl sem mest og dyggilegast hefur stutt við bakið á þeirri hreyfingu.“ Það er ástæða til að taka undir þessi orð Guðmundar. Ákveðin öfl í þjóðfélaginu hafa reynt með öllum tiltækum ráðum að koma höggi á samvinnuhreyfinguna og kaupfélögin og sverta ímynd þeirra í aug- um almennings. Gegn þessum atlögum þarf að snúast af fullri einurð. BB wmtiiHjáw&iíjM Mynd: BV. „Ábendingar frá neyt- endum mikilvægar" - segir Steinunn Sigurðardóttir, starfsmaður Neytendaféiags Akureyrar og nágrennis Neytendafélag Akureyrar og nágrennis, skammstafað NAN, var stofnað 17. mars 1979. Það er deild innan Neyt- endasamtakanna. Þar til í síð- asta mánuði var allt starf neyt- endafélagsins unnið í sjálf- boðavinnu, en nú hefur verið ráðinn starfsmaður til neyt- endafélagsins í hálft starf og er það Steinunn S. Sigurðardótt- ir. Neytendafélagið er með skrifstofu á 3. hæð í Gránu- félagsgötu 4 og sími þeirra er 22506. Steinunn var spurð hvers vegna neytendafélagið hefði ráðið starfsmann nú. „Það er vegna samstarfs um verðgæslu og verðkönnun milli verkalýðsfélaganna á Eyjafjarð- arsvæðinu og Neytendafélags Akureyrar og nágrennis. Þetta er atriði sem samið var um í síðustu kjarasamningum. Fyrsti formað- ur félagsins var Steinar Þorsteins- son, sl. 3 ár hefur Arnheiður Eyþórsdóttir verið formaður og nýkjörinn formaður er Sigfríður Þorsteinsdóttir. Á þessum 7 árum sem félagið hefur starfað hefur verið unnið geysilega mikið starf í sjálfboðavinnu, miklu meira en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Mér finnst það alveg stórkostlegt. Hvað gerir fólk mikið í sjálfboðavinnu nú til dags?“ - Hvert er markmið félagsins? „Það er fyrst og fremst að gæta hagsmuna neytenda á verslunar- svæði Akureyrar og nágrennis. Þar er verðgæsla í forgangi." - Steinunn er í hálfu starfi hjá NAN, 13-17 mánudaga-fimmtu- daga og 10-15 föstudaga. Hún hefur fastan símatíma milli 13 og 14 mánudaga-fimmtudaga og 11-12 á föstudögum. Steinunn var spurð í hverju starf hennar fælist. „Ég sé um verðkannanir, bæði geri ég þær sjálf og eins fæ ég fólk til þess. Ég vonast eftir að geta átt góða samvinnu við Dag og fá að birta verðkannanir í blaðinu, helst vikulega. Ée fæ blað frá Verðlagsstofnun hálfs- mánaðarlega og þar eru gefnar upp ákveðnar vörutegundir sem á að kanna verð á, ég ræð engu um það. Hina vikuna myndi NAN gera sínar eigin verðkann- anir. Það er mjög mikilvægt að fá ábendingar frá neytendum sjálfum. Þeir geta hringt hingað á símatíma og fengið upplýsingar eða komið með ábendingar um eitthvað sem vert væri að athuga. Þetta er svo kölluð kvörtunar- og upplýsingaþjónusta. Oft þarf ég ekki að gera annað en benda fólki á hvert það getur leitað til að ná rétti sínum. Fólk gefst oft upp á því og þetta getur verið allt frá gölluðum sokkabuxum til gallaðs bíls. Þótt ég hafi ekkert vit á bílum get ég bent fólki á hvert það á að leita. Síðan ég byrjaði í þessu starfi hef ég átt mjög gott samstarf við verslunareigendur og þeim finnst yfirleitt sjálfsagt að bæta gallaða vöru. Auk þess sem ég hef hér talið upp bíður mín bunki af er- lendum neytendablöðum sem ég þarf að vinna upp. Ég fæ hjálp við það frá góðu fólki í félaginu. í þessum blöðum eru oft mjög gagnlegar upplýsingar fyrir okkur og við vinnum spjaldskrá um efni þeirra. Mig langar líka til að þýða greinar upp úr þessum blöðum og fá birtar í Degi, einnig gefum við út NAN fréttir öðru hvoru. Ann- ars er þetta starf alveg nýtt og á eftir að mótast. Ég er með ýmsar hugmyndir sem ég vona að ég geti hrint í framkvæmd.“ Húsnæðið NAN við Gránu- félagsgötu er rúmgott. Þar er skrifstofa Steinunnar og inn af henni er fundaherbergi. „Ég er síður en svo einmana þó ég sé ein hér á skrifstofunni. Ég kynnist mörgum í gegnum starfið, er fél- agslynd og hef gaman af að tala við fólk. Ég sit síður en svo auð- um höndum i þessu starfi, það er alltaf nóg að gera og reyndar finnst mér skemmtilegast í vinn- unni þegar er svo mikið að gera að ég rétt sé fram úr því. Ég geri dagbækur um allt sem gerist hér. Hef reyndar haldið dagbækur fyrir sjálfa mig alltaf af og til síð- an ég var krakki.“ Steinunn tók stúdentspróf úr öldungadeild 1980 og segist hafa unnið mörg og margvísleg störf síðan. „Ég kenndi t.d. esperanto í 3 ár í Menntaskólanum. Það voru aðallega 19 og 20 ára krakk- ar og ég hefði aldrei trúað að það gæti verið svona gaman. Þetta var valgrein og hefur ekki verið kennt í nokkur ár, líklega hef ég verið of ströng og þess vegna hafa nemendur ekki sótt í þetta“, segir Steinunn og hlær, „það gæti nú líka verið það að framboð á valgreinum er mjög mikið.“ Steinunn er formaður Norda Stelo, sem er esperanto félag á Akureyri. „Ég hef ferðast mikið með fólki alls staðar að úr heimin- um og við eigum það sameigin- legt að tala esperanto. Það er frábært að ferðast með þessu fólki þó að við séum frá ólíkum þjóðum því við eigum það sam- eiginlegt að kunna þetta mál.Ég stefni að því að fara til Póllands á næsta ári, því þá er esperanto 100 ára.“ -HJS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.