Dagur - 10.06.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 10. júní 1986
Skriðuhreppur
Kjörfundur vegna sveitarstjórnar- og sýslunefndar-
kosninga veröur haldinn að Melum laugardaginn 14.
júní og hefst hann kl. 11 f.h. Kosning er óhlutbundin.
Kjörstjórn.
✓
Aburðarkaupendur
Áburdarafgreiðslur vorar á Akureyri og Sval-
barðseyri verða lokaðar frá og með mánudegin-
um 16. júní nk.
Kaupfélag Eyfírðinga.
Prestskosning
veröur í Laugalandsprestakalli laugardaginn 14. júní
nk. Kosningin fer fram á kjörstööum hreppanna,
samtímis kosningu til sveitarstjórnar þennan dag.
Umsækjandi er séra Hannes Örn Blandon, prestur í
Ólafsfiröi. Kosningarétt hafa þeir, sem náö hafa
sextán ára aldri á kjördegi.
Prófastur.
Útboð
Víkurbakarí Dalvík óskar eftir tilboði í að byggja
bakarí að Hafnarbraut 5, Dalvík.
Útboðsgögn verða afhent í Víkurbakarí og á Teikni-
stofu Hauks Haraldssonar Kaupangi Akureyri gegn
5000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuö þriöjudaginn 24.06 1986 kl.
11.00 á Teiknistofu Hauks Haraldssonar.
Víkurbakarí Dalvík.
Útboð
Bröttuhlíðarskóli óskar eftir tilboðum í múrhúð-
un, gluggabreytingar o.fl. á húsi sínu að Bröttu-
hlíð 6, Akureyri.
Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu Hauks Har-
aldssonar Kaupangi og opnuð á sama stað mánu-
daginn 23.06 1986 kl. 11.00.
Bröttuhlíðarskóli
Bröttuhlíð 6, Akureyri.
Pétur Snæbjörnsson hóf störf
sem hótelstjóri á Hótel Húsa-
vík þann 15. maí sl. Pétur
fæddist á Húsavík 1959 en ólst
upp í Mývatnssveit í Reynihlíð
þar sem fjölskylda hans annast
hótelrekstur. Síðustu tíu ár
segist hann hafa haft hótelmál
sem einstefnu. Hann nam mat-
reiðslu og hlaut meistararétt-
indi 1983, starfaði við gesta-
móttöku og hjá Tonnna-
hamborgurum þar til hann fór
til náms í Noregi 1983. Þar
stundaði Pétur nám í eldhús-
stjórnun og hótelrekstri í Stav-
anger.
Að námi loknu vann Pétur í
Hollywood og á Hótel Borg í
Reykjavík, þar til hann hóf störf
sín á Húsavík og að sjálfsögðu
vaknar sú spurning hvort hann sé
ekki kominn í samkeppni við sína
eigin fjölskyldu við rekstur
Hótel Húsavíkur.
„Auðvitað, á vissan hátt er
ekki hægt að neita því að menn
verða að berjast, en fyrst og
fremst hlýtur þetta að auka
möguleika á samstarfi, bættum
rekstri og betri rekstrarhagræð-
ingu beggja fyrirtækjanna. Pað
mætti reka þau meira saman á
margan hátt.“
- Hvernig líkar þér á Húsa-
vík?
„Mér líkar náttúrlega vel, í
þingeysku lofti er alltaf gott að
vera, ég hélt að ég væri búinn að
ropa því öllu upp en það er nú
ekki. Það er gott að vera hérna.“
- Hvernig hefur þér verið
tekið?
„Mér hefur verið mjög vel
tekið, finnst allt mjög jákvætt.“
- Hvað er helst á döfinni á
hótelinu í dag?
„Það er heilmikið að gerast,
farnir að tínast hér inn hópar.
Ráðstefna hófst á sunnudag og
stendur til 12. júní, þá kemur
strax ferðamannahópur og síðan
annar um helgina svo segja má að
traffíkin sé byrjuð þessa dag-
ana.“
- Eru góðar horfur fyrir sum-
arið?
„Mjög þokkalegar, annars veit
maður aldrei fyrr en eftir á
hvernig það fer.“
- Hefur þú ekki fitjað upp á
einhverjum nýjungum?
„Við erum fyrst og fremst að
reyna að gera hótelið meira
aðlaðandi fyrir bæjarbúa og fá þá
til að koma hingað. Við erum að
reyna að fá þá til að prófa að
koma hér inn og það gengur bara
ekkert illa.
Við vorum með fjölskyldudag
sem var nokkuð vel sóttur, einnig
höfðum við kosningavöku og síð-
an ítalskan sunnudag, þá var
rólegra en samt alveg ágætt.
Pétur Snæbjörnsson.
Mynd: IM.
„Líkar vel í
þingeysku lofti“
- Pétur Snæbjörnsson hótelstjóri á Húsavík
Við vorum með sjómanna-
dagsmatseðil og ætlum að hafa
eitthvað fyrir bæjarbúa alltaf á
sunnudögum, ókeypis ís og hálft
gjald fyrir börnin."
- En hugmyndir fyrir næsta
vetur?
„Við erum með hugmyndir um
að halda sjóstangaveiðimót í
haust. Það er alveg ljóst að vetur-
inn verður að byggja á heima-
markaði. Það er of dýrt að fljúga
hingað. Þannig að það verður
aldrei neitt sem við lifum á. Við
verðum að gera eitthvað næsta
vetur til að fólk vilji koma
hingað, hvort sem um nám-
skeiðahald eða eitthvað annað
verður að ræða til að fá fólk
til að dvelja hérna. í sambandi
við Hlíðskjálf höfum við rætt um
að fá fólk til að koma þangað til
að syngja eða spila kvöld og
kvöld til að auka fjölbreytnina."
- Ertu bjartsýnn á framtíð
hótelsins?
„Já, það er góður grundvöllur
fyrir henni, hins vegar er ekki
sama hvernig á málum er haldið
og það verður að gera vel, svo er
spurningin hvernig mönnum
tekst það.“ IM
Jonas Robertsson.
á grasvelli Þórs við Glerárskóla.
Komið og sjáið spennandi leik.
mitre
Spilað verður með MITRE-bolta frá Hoffelli hf. Ármúla 36, Reykjavík.
VÖR£
BATASMIOJA