Dagur - 10.06.1986, Page 12

Dagur - 10.06.1986, Page 12
Akureyri, þriðjudagur 10. júní 1986 Breyttur opnunartímí á Bauta í sumar frá föstudeginum 6. júní verður opið frá kl. 9 til 23.30. Dalvíkingar lýsa yfir stuðningi við bæjarstjórann Ummæli Svanfríðar Jónas- dóttur efsta manns Alþýðu- Norðurland: Slydda eða rigning víðast hvar Það brá mörgum manninum í brún þegar hann reis úr rekkju í gær. Veður var hið versta, snjór niður fyrir miðj- ar hlíðar og slydda eða rign- ing víðast hvar á Norður- landi. Á Veðurstofu íslands fengust þær upplýsingar að það væri lægð við Norðausturströndina sem ylli norðanátt, slyddu og rigningu. Búist er við að vindátt verði breytileg fram á miðviku- dag en eftir það verði suðlægir vindar ráðandi fram að helginni og þá muni hlýna og úrkoma minnka. Og þá er bara að vona að sumarveðrið fari að koma og Norðlendingar fái að sjá til sólar. JHB bandalagsins á Dalvík um að bæjarbúar hafi sagt hug sinn í garð núverandi bæjarstjóra á Dalvík í kosningunum hafa vakið reiði margra Dalvík- inga. Flestir bæjarbúar hafa verið ánægðir með störf Stefáns Jóns Bjarnasonar bæjarstjóra og finnst það óeðlileg túlkun hjá Svanfríði að kosningarnar hafi að einhverju leyti snúist um störf hans. Nær allir starfsmenn Dalvík- urbæjar hafa nú skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við bæjar- stjórann. „Við lýsum yfir fullum stuðningi við störf núverandi bæjarstjóra í þágu bæjarfélags- ins og vonumst til þess að störf hans verði metin að verðleik- um,“ segir í stuðningsyfirlýs- ingunni. Búast má við fleiri stuðningsyfirlýsingum við bæjarstjórann á næstu dögum.BB. Kaupfélag Eyfirðinga á aldarafmæli þann 19. júní n.k. og verður þeirra tímamóta minnst á viðeigandi hátt og ýmislegt gert til hátíðabrigða. Blaða- mönnum var kynnt dagskrá hátíðarhaldanna á laugardaginn. Þá var þessi mynd tekin framan við höfuðstöðvar KEA í Hafnarstræti. Valur Arnþórs- son kaupfélagsstjóri og Sigurður Jóhannesson aðalfulltrúi halda á afmælis- fánanum á milli sín en til hliðar stendur Áskell Þórisson blaðafulltrúi KEA. Mynd: BV. Húsavík: Ný tilraun til meirihluta- myndunar Fæðing nýs bæjarstjórnar- meirihluta á Húsavík hefur ekki gengið hríðalaust. Fyrst reyndu Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur með sér og síð- an fór Alþýðubandalagið á fjörurnar við Framsókn. Þess- ar viðræður báru ekki árangur. Það nýjasta sem gerst hefur í þessum málum er að þreifingar eru hafnar milli Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks. Var fyrsti viðræðufundur þessara aðila um myndun nýs meirihluta í gærkveldi. Væntan- lega munu línurnar skýrast næstu daga. -þá Dalvík: D og G í eina sæng Nú er ljóst að það verða bæjar- fulltrúar D-listans og G-listans sem mynda meirihlutann í bæjar- stjórn Dalvíkur næsta kjörtíma- bil. Um þetta náðist samkomulag á fundi þessara aðila í fyrrakvöld. BB. Áburðarkaup bænda: Fá ekki lengri greiöslufrest Nú í vor hafa komið nokkrar áskoranir frá aðalfundum kaupfélaganna og öðrum aðil- um til stjórnvalda um að knýja fram lengri greiðslufrest á áburði. Blaðið snéri sér til Hákonar Björnssonar framkvæmda- stjóra í Aburðarverksmiðjunni og kvað hann þessi erindi hafa fengið umfjöllun á stjórnar- fundi verksmiðjunnar á sínum tíma og þeim verið vísað frá. Aðspurður um áburðar- söluna, sagði Hákon að hún hefði dregist mikið saman síð- ustu árin. Reglum um greiðslur á áburði var breytt í vor. Nú þarf greiðsl- um að vera lokið í ágúst í stað október áður. Hákon Björnsson sagði að vanskil viðskiptaaðila hefðu ollið verksmiðjunni veru- legum erfiðleikum á undanförn- um árum, og nú væri svo komið að eigið fé fyrirtækisins væri upp- urið.“ Við sjáum ekki með nokkru móti að verksmiðian geti lengt greiðslufrestinn. Á hitt ber að líta að Áburðarverksmiðjan er heildsöluaðili, en kaupfélögin og aðrir innkaupaaðilar sjá um smásöludreifinguna. Spumingin er því hver á að fjármagna þessa lánastarfsemi,“ sagði Hákon að lokum. Þess má geta að sala á áburði frá Áburðarverksmiðjunni hefur dregist mjög saman síðustu árin. Árið 1983 var hún 65 þús. tonn, 1984 61.800 tonn og á síðasta ári var salan 55 þús. tonn. - þá Sauðárkrókur: Snorri Bjöm Sigurðsson ráðinn bæjarstjóri - Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokkur og Óháðir í meirihluta Á Sauðárkróki hefur formlega verið gengið frá meirihluta- myndun Sjálfstæðisflokks, AÍþýðuflokks og óháðra í bæjarstjórn. Á félagsfundum á föstudagskvöld samþykktu fundarmenn þennan ráðahag. Samkomulag flokkanna hefur ekki verið birt og verður ekki birt fyrr en bæjarstjórn hefur fjallað nánar um það síðar í þessum mánuði, en ný bæjar- stjórn tekur við 15. júní. Fullvíst má þó telja Þorbjörn Árnason, frá Sjálfstæðisflokki, verði forseti bæjarstjórnar, Björn Sigurbjörnsson, frá Alþýðu- flokki, formaður bæjarráðs og Hörður Ingimarsson, frá óháð- um, oddviti í veitustjórn, hafnar- nefnd og nýstofnuðu íþróttaráði. Snorri Björn Sigurðsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri. Snorri hefur sl. 3 ár verið sveitarstjóri á Blönduósi en var þar á ur.dan bæjarritari á Sauðárkróki 1978- ’83. Snorri er frá Stóru-Gröf í Skagafirði, fæddur 23.07.1950. Er viðskiptafræðingur að mennt. Snorri er kvæntur Ágústu Eiríks- dóttur og eiga þau 3 börn. þá/-HJS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.