Dagur - 11.06.1986, Blaðsíða 2

Dagur - 11.06.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 11. júní 1986 -viðtal dagsins. ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik), KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. JeiðarL Gull og grænir skógar Á þessum tíma árs er talsvert um að auglýst sé eftir kennurum til starfa við grunnskól- ana. Það hefur reynst mjög erfitt fyrir stjórn- endur skóla úti á landsbyggðinni að fá kennara með full kennsluréttindi til starfa og hafá mörg sveitarfélög þurft að grípa til þess ráðs að bjóða ýmis hlunnindi til þess að lokka kennara út á land. Þessa dagana kepp- ast skólanefndir og skólastjórar í dreifbýlinu við að bjóða kennurum gull og græna skóga ef þeir flytji burt af mölinni og út á land, en höfuðborgarsvæðið hefur fram til þessa verið eina svæðið á landinu þar sem kennara- ráðningum er tiltölulega vel borgið. Reyndar hafa fleiri opinberir starfsmenn en kennarar fengið slík boð utan af landi og má þar nefna hjúkrunarfræðinga og sjúkra- liða. Fríðindin eru mismunandi mikil eftir sveitarfélögum. Umsækjendum er boðinn flutningsstyrkur, lítil eða engin húsaleiga, lágur húshitunarkostnaður, mötuneyti og síðast en ekki síst mikil yfirvinna. Það er eðlilegt og óeðlilegt í senn að sveit- arfélög skuli fara þessa leið til að freista þess að fá hæft starfsfólk til vinnu. Það er eðlilegt út frá sjónarhóli þeirra sem stjórna viðkom- andi skólum og sjúkrastofnunum, því reynsla undanfarinna ára sýnir að öðruvísi fá þeir ekki fólk til starfa. Hins vegar er það langt í frá eðlilegt að sveitarfélög taki á þennan hátt þátt í að greiða laun sem ríkið á með réttu að greiða. Hér er um hreinar yfirborganir að ræða og sú staðreynd, að sveitarfélög eru farin að aug- lýsa yfirborganir opinberlega, sýnir betur en nokkuð annað að það launakerfi sem opin- berir starfsmenn búa við er fyrir löngu búið að ganga sér til húðar. Laun þeirra eru of lág en það fæst ekki viðurkennt opinberlega af réttum aðilum. Því verða sveitarfélögin að hlaupa undir bagga og bæta í launaumslögin ef þau vilja fá fólk til starfa. Þessar yfirborg- anir hafa mikinn kostnað í för með sér fyrir mörg sveitarfélög, sérstaklega þau smærri, en stjórnendur þeirra eiga ekki annarra kosta völ. Það er kominn tími til þess fyrir löngu að endurskoða launakjör opinberra starfs- manna og búa svo um hnútana að laun þeirra séu í samræmi við það sem gerist og gengur í þjóðfélaginu. Þá munu þessi gylli- boð sveitarfélaga heyra sögunni til. BB. Viðtal dagsins að þessu sinni er við varaformann félags psori- asis- og exemsjúklinga á Akur- eyr. „Hann“ er reyndar kvenkyns og heitir Margrét Jónsdóttir. Það eru e.t.v. ekki margÍL' sem hafa heyrt minnst á þetta l élag, enda er það tiltölu- lega nýstofnað hér norðan heiða, þótt slíkt félag hafi all- Iengi verið starfandi á höfuð- borgarsvæðinu. Það lá beinast við að spyrja fyrst hvernig stofnun félagsins hefði borið að. „Félagið var stofnað árið 1983 og aðal hvatamaðurinn að stofn- un þess var Hjörtur Fjeldsted, sem nú er reyndar látinn. Strax á fyrsta fundi félagsins var kjörin stjórn og hana skipaði mjög dug- mikið fólk sem kom miklu til leiðar. T.d. kom það því til leiðar að sett var á laggirnar göngudeild fyrir psoriasis- og exemsjúklinga. Þessi göngudeild hefur aðsetur á Bjargi og hún hefur náttúrulega breytt mjög miklu fyrir okkur því engin slík aðstaða var fyrir hendi áður. Það má kannski koma fram að þessi göngudeild var ekki stofnuð fyrir tilstuðlan ríkisvalds- ins heldur voru það ýmis félaga- samtök og sjúkrasjóðir sem lögðu þar hönd á plóginn. En eft- ir að við fengum aðstöðu á Bjargi varð miklu auðveldara að þrýsta á hið opinbera og í dag er rekstur deildarinnar orðinn þáttur í rekstri Bjargs." - Hvernig starfar þessi göngu- deild? „Göngudeildin er opin fjóra tíma á dag og við hana starfar sjúkraliði í hálfu starfi og auk þess erum við með húðsjúk- dómalækni sem er þar svona einu sinni til tvisvar í viku. Þarna fer fólk fyrst og fremst í ljósaböð en á þessari deild er mjög fullkom- inn ljósaskápur. Einnig getur fólk fengið áburðarmeðferð, það getur komið á hverjum degi eða sjaldnar, allt eftir Jjörfum hvers og eins.“ - Eru þetta þá ekki dýrar meðferðir? „Nei, þær eru ókeypis og ég vil því nota tækifærið og hvetja fólk til að nýta sér þessa þjónustu. Ég veit að það er mikið af sjúkling- um sem ekki kemur þarna, sumir vita einfaldlega ekki af þessari þjónustu, hún hefur kannski ekki verið nógu vel kynnt, og aðrir hafa sig ekki út í þetta af ein- hverjum ástæðum. Margir eru „Margir eru mjog feimmr - segir Margrét Jónsdóttir, varaformaður Félags Psoriasis- og exemsjúklinga mjög feimnir, vilja ekki viður- kenna að þeir séu með psoriasis fyrr en í algert óefni er komið en það er mjög slæmt vegna þess að þessum sjúkdómi fylgir t.d. oft liðagigt sem getur farið illa með fólk. Þetta fólk vill ekki ganga í félagið eða samtökin af hræðslu við að það spyrjist út að það sé með psoriasis. Þessi hræðsla eða feimni á sér mjög eðlilegar orsak- ir. Margir vita mjög lítið, jafnvel ekkert, um sjúkdóminn og ef sjúklingur bregður sér í sund eða gufubað þá er starað á hann í for- undran. Menn eru líka hræddir um að smitast en sú hræðsla er með öllu óþörf þar sem psoriasis getur alls ekki smitast.“ - En hvað getur fólk gert ef meðferðin á göngudeildinni dug- ar ekki? „Það er engin önnur aðstaða hér þannig að eina ráðið er að fara í meðferð í Reykjavík, en þar er mjög góð aðstaða, t.d. er þar legudeild þar sem fólk getur lagst inn og fengið meðferð, aðal- lega Ijósaböð og áburðarmeð- ferðir eins og hér en munurinn er að þetta eru samfelldar meðferð- ir sem taka lengri tíma og eru því árangursríkari. Einnig hjálpar þetta fólki sem þjáist af streitu því það getur lagst inn og tekið því rólega í nokkra daga, en það er margt sem bendir til þess að psoriasissjúklingum geti versnað ef þeir eru mjög strekktir. Þessi legudeild er því mjög góð og það er mín von að ein slík eigi eftir að komast í gagnið hér.“ - En aftur að félaginu sjálfu, er þetta fjölmennt félag? „Nei, það er ekki fjölmennt hér, a.m.k. ekki enn sem komið er. Félagar eru rétt á annað hundrað og af þessum félögum eru langflestir sjúklingar, en félagið er öllum opið. Það segir sig auðvitað sjálft að eftir því sem fleiri eru í félaginu, því sterkara er það og því hvet ég alla psorias- issjúklinga, og aðra sem vilja okkur vel, til að ganga í félagið. Árgjöldin ættu ekki að verða neinum fjötur um fót því þau eru ekki nema 500 krónur á ári. Ég held að ástæðan fyrir því að félagið er ekki fjölmennara sé aðallega það sem ég nefndi áðan, þ.e.a.s. annað hvort veit fólk ekki um félagið eða þá að það er feimið. Mestur kraftur síðustu stjórnar fór í að koma göngudeildinni á laggirnar og það er vissulega lofs- vert að það skyldi takast. Nú hef- ur svo verið kjörin ný stjórn og við ætlum fyrst og fremst að beita okkur fyrir aukinni kynningu á félaginu og reyna að auka tengsl- in milli fólksins í því, t.d. með því að gefa út fréttabréf annað slagið. Einnig má búast við því að við reynum að hafa einhverjar skemmtanir eða annað slíkt í framtíðinni til að kynna félagið sem flestum. Því eins og ég sagði áðan þá er það hagur fólksins að sem flestir séu í félaginu, eða a.m.k. viti af þjónustunni sem því stendur til boða.“ - Að lokum Margrét, ertu bjartsýn á framhaldið? „Já, ég er bjartsýn, ég get ekki verið annað. Ég veit að þetta félag á rétt á sér því þörfin fyrir það fer sífellt vaxandi, og ég er viss um að það á eftir að verða mikil fjölgun í því og þetta verð- ur á endanum stórt og dugandi félag sem tekið verður mark á.“ JHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.