Dagur - 11.06.1986, Blaðsíða 7

Dagur - 11.06.1986, Blaðsíða 7
11. júní 1986 - DAGUR - 7 Þau voru að vinna að blaðinu en þegar þau voru spurð hvort þau ætluðu kannski að verða blaðamenn seinna varð lítið um undirtektir nema tveir sem sögðust ætla að verða sjómaður og hinn lyfjafræðingur „því þeir græða svo mikið“, sagði hann. krökkunum handbolta auk þess sem hann stjórnar handbolta- keppni. Eftir kvöldmat hefur hann svo sýnt þeim myndband um handknattleik og útskýrt leik- inn. Okkur finnst við hafa verið mjög heppin að fá Þorbjörn með okkur í þetta og hann hefur átt hylli krakkanna óskipta þegar hann hefur verið hér.“ - Hvernig hefur krökkunum líkað hérna hjá ykkur, hafið þið fengið einhver viðbrögð þeirra við þessu öllu saman? „Eg held að þeim hafi yfirleitt líkað mjög vel og sem dæmi get ég sagt þér að okkur hafa borist kort og skeyti frá krökkum sem hafa verið hér þar sem þau þakka fyrir sig og segjast hlakka til að koma næsta sumar. Svo að ég held þeim hljóti að hafa líkað afskaplega vel.“ Sigurður sagði að allir leið- beinendurnir væru að fást við þetta í fyrsta skipti og að sínu mati hefði góð samstaða og já- kvætt hugarfar þeirra allra gert það að verkum að námskeiðin hefðu tekist mjög vel. „Við höf- um því hug á að halda þessari starfsemi áfram næsta vor, og :a Rúnarsdóttir Skagaströnd og eðislega gaman þarna og sumar ferð yfir fjörðinn og síðan geng- um við inn á Laxárdal síðan kom rúta og sótti okkur og keyrði til baka. Svo höfum við notað þenn- an tíma til að fara í Byggðasafn, tarzanleik í leikfimisalnum, gönguferðir og ýmsar íþrótta- keppnir." - Svo er það trompið ykkar, Þorbjörn Jensson handknatt- leiksmaður, hver er hans hlutur í þessu? „Þorbjörn kemur einu sinni á hvert námskeið og kennir vonandi fáum við tækifæri til þess.“ Þegar krakkarnir fara heim af námskeiðinu fá allir viðurkenn- ingarskjal og að sjálfsögðu blaðið en auk þess eru seldir bolir merktir héraðssamböndunum og sumarbúðunum, og allir krakk- arnir hafa keypt sér einn slíkan á 300 krónur. Sigurður sagðist að lokum vilja koma á framfæri þökkum til allra sem gerðu þeim kleift að hefja þessa starfsemi. Jónína Benediktsdóttir og Gunnar Gunnarsson. „Eg veit nokkum vegin hvað það er sem fólk gerir rangt“ - segir Jónína Benediktsdóttir Flestir, ef ekki allir, lands- menn hafa heyrt minnst á Jón- ínu Benediktsdóttur. Ef ein- hverjir ekki vita, þá sér hún um morgunleikfimi Ríkisút- varpsins og rekur eigin heilsu- ræktarstöð, þar sem hún hefur m.a. tekið handknattleiks- landsliðið í kennslustund eins og frægt er orðið. Nú fyrir skömmu fréttist af Jónínu þar sem hún var að taka upp þætti sína í útvarpshúsinu á Akur- eyri, og að sjálfsögðu var undirleikari hennar með í för- inni, en hann heitir Gunnar Gunnarsson og mun vera inn- fæddur Akureyringur. En hvers vegna er Jónína farin að taka upp þætti sína hér norðan heiða? „Ég er nú bara stödd hér í sumarfríi, en maður sleppur aldrei alveg frá vinnunni.“ - Nú sé ég að þú hefur ekkert fólk með þér sem gerir æfingar- nar, fer þetta aldrei þannig fram? „Jú, jú, ég hef oft haft fólk með mér en það var bara svo stuttur tími til stefnu núna að það hreinlega gafst ekki tími til að útvéga þátttakendur. Hins vegar hef ég það mikla revnslu í leik- fimikennslu að ég veit nokkurn veginn hvað það er sem fólk gerir rangt. Ég loka því bara augunum og ímynda mér að hér inni sé fullt af fólki og þannig gengur þetta.“ - Nú man ég að þú varst með tónlist af plötum í þessum þáttum til að byrja með en nú virðist það vera úr sögunni. Hvað kom til? „Mér voru settar ákveðnar skorður varðandi lagaval sem ég var í sjálfu sér mjög ósammála. En þar sem ég er aðeins starfs- maður hjá Ríkisútvarpinu þá varð ég að hlýða og úr því sem komið var fannst mér þægilegra að vera bara með einn undir- leikara." - Eru þessir þættir aldrei í beinni útsendingu? „Jú, það kemur fyrir og mér finnst það mun skemmtilegra, en það fylgja því ákveðnir tæknileg- ir örðugleikar. Þær útsendingar hafa hins vegar gengið mjög vel, jafnvel betur en hitt. Ég hef líka haft það þannig, að upptökurnar eru sjaldnast fínpússaðar og gallalausar. Ef ég geri mistök í upptöku þá tek ég ekki yfir þau heldur reyni að afsaka mig og held svo áfram. Ég held að þátt- urinn verði bara líflegri fyrir vikið, hann er ekki alveg „sótt- hreinsaður". - En notfærir fólk sér þessa þætti? „Já ég er alveg viss um það, ég hef fengið margar sannanir fyrir því. Ég fæ mikið af bréfum þar sem fólk biður um upplýsingar, segir hvað það er ánægt með, hvað það er óánægt með o.s.frv. Sumir eru óánægðir, t.d. vegna þess að þeir heyra illa, það er stundum vandamál að stilla sam- an píanóið og röddina. Einnig var kvartað yfir því að æfingarnar væru gerðar á of miklum hraða en ég er búin að bæta úr því og held að það geti ekki verið vandamál lengur. Hvað varðar endurnýjun á æf- ingunum þá hjálpar það mér mik- ið að ég rek eigið fyrirtæki þar sem ég er með svokallaða „aerobic" leikfimi og þar verð ég að fylgjast með öllum nýjungum. Ég les blöð og bæklinga um þetta efni og fer erlendis til að læra nýj- ar æfingar og þetta kemur mér að góðum notum í morgunleikfim- inni.“ - Af því að þú minnist á fyrir- tækið þitt þá minnist ég þess að þú tókst landsliðsmennina í handknattleik í gegn fyrir síðustu heimsmeistarakeppni. „Jú, það er rétt og þú getur rétt ímyndað þér hvað þetta var gaman. Þetta byrjaði nú bara þannig að Bogdan kom til mín og bað mig að taka landsliðsmenn- ina í þrekþjálfun. Ég hélt nú að hann væri að grínast, en samt sem áður vissi ég að „aerobic“ leikfimin er það erfið að jafnvel bestu íþróttamenn geta átt í erf- iðleikum með hana. En ég komst svo að því að Bogdan var fyllsta alvara með þetta, þannig að ég setti upp „prógramm" sem lands- liðsmennirnir okkar fóru eftir. Ég er nú gömul handboltakona sjálf þannig að ég vissi hvaða atriði það voru sem þurfti að leggja sérstaka áherslu á, það er fyrst og fremst hraði, og þá hraði yfir langan tíma í einu, það þýddi ekki að fara að setja þá í svona hægari maraþonhlaup eins og oft er í tímunum hjá mér. Æfingarn- ar byggðust því á keyrslu í rúm- lega klukkustund í senn og ég held mér sé óhætt að segja að þeir voru að niðurlotum komnir eftir æfingarnar. Ég veit að „aerobic" er orðin þáttur í grunnþjálfun hjá flestum handbolta- og fótboltaliðum er- lendis, þannig að Bogdan vissi náttúrulega alveg hvað hann var að fara.“ - En aftur að morgunleikfim- inni, áttu von á að verða jafn lengi í þessu starfi og forveri þinn? „Nei, það verð ég örugglega ekki. Ég reikna með því að verða í þessu svona u.þ.b. eitt ár í viðbót. Ég er samt mjög ánægð í starfi, þetta hefur verið reglulega skemmtilegt. En ég verð líka að viðurkenna að ég hefði viljað hafa þessa þætti öðruvísi, en íhaldssemin er nokkuð mikil í þessari stofnun, það er erfitt að fá fram breytingar.“ - Jæja Jónína, eitthvað að lokum?. „Ég vona bara að það komi ekki meiri snjór.“ JHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.