Dagur - 11.06.1986, Qupperneq 3
11. júní 1986 - DAGUR - 3
Skógerð Iðunnar á Akureyri 50 ára:
Hefur framleitt 2.600.000
pör af skóm á þessum tíma
Fyrir 17. júní
Nýkomið: Föt og stakir jakkar frá
-|rfalbe »g
ROY ROBSON®
Einhneppt, tvíhneppt.
Tískusnið, venjuleg snið, yfír-
stærðir.
Stakar buxur, köflóttar og einlitar.
Silkibindi með og án klúta, slaufur
og lindar og m.fl.
Væntanlegt í vikunni:
Skyrtur frá
goLdress
Ný sending af hálsbindum WW'
m/klút.
Sumarstakkar köflóttir, einlitir frá Ivalmelinel
Svört tvíhneppt föt frá Falbe og m.fl.
Ath. Pantanir fyrír máisaum er ekki hægt að afgreiða fyrr en íbyrjun
ágúst v/sumaríeyfa.
Klæðskeraþjónusta.
Smókingleiga
VISA
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.
Bændur - Verktakar
Til sölu tómar stáltunnur
Smjörlíkisgerð
sími 21400.
Skógerðin Iðunn á Akureyri er
50 ára á þessu ári. - Akvörðun
um stofnun verksmiðjunnar
var tekin á aðalfundi Sam-
handsins í júní 1936. í gögnum
má sjá að bygging verksmiðju-
húss tók ekki nema fjóra mán-
uði og kostaði á þeim tíma
33.300 gamlar krónur. Fyrstu
starfsmenn verksmiðjunnar
voru ráðnir í desember 1936.
Skóverksmiðjan var byggð til
að fjölga atvinnutækifærum og
fullnýta innlend skinn. Krepp-
unni var að ljúka á þessum tíma,
atvinnuleysi hafði verið viðloð-
andi og fátt um nýjungar í
atvinnulífinu. Um tíma var skó-
iðnaður blómlegur hér á landi, í
stríðinu og árin þar á eftir. Skó-
gerðin á Akureyri er nú eina
skógerðin hérlendis og hefur ver-
ið svo um allmörg ár. Frá stofnun
verksmiðjunnar og til 1969 fram-
leiddi verksmiðjan eingöngu skó
úr íslensku leðri. Leðurvinnsla
lagðist af 1969 og hefur frá þeim
tíma verið nær eingöngu fram-
leitt úr innfluttu leðri. Arið 1969
brann skóverksmiðjan en var
strax endurbyggð.
Skóiðnaður er vandasöm og
erfið iðngrein sem krefst sérþjálf-
aðs starfsfólks. Nú starfa um 65
manns í skóverksmiðjunni og
hefur margt starfsfólk mjög lang-
an starfsaldur hjá verksmiðjunni.
Hefur verksmiðjan haft á að
skipa góðu starfsfólki í gegnum
árin.
í lok áttunda áratugarins voru
uppi hugmyndir um að hætta rekstri
- Verksmiðjan synd almenningi á föstudag og laugardag
verksmiðjunnar. Frá því var
horfið og var hafin öflug vöru-
þróun og verksmiðjan endur-
skipulögð. Tók verksmiðjan þá
upp nýtt vörumerki ACT og hef-
ur ACT nafnið verið notað á alla
skó frá skóverksmiðjunni frá
þeim tíma. Auk þess framleiðir
verksmiðjan skó fyrir Axel Ó.,
sem seldir eru undir nafninu
Puffins. Verksmiðjan hefur á að
skipa sérmenntuðum hönnuðum.
Lögð er áhersla á að fylgjast með
tískustraumum og eru skósýning-
ar sóttar reglulega í leit að nýjum
hugmyndum.
ACT skór eru seldir í yfir 100
verslunum hér á landi. Fram-
leiðslan hefur farið vaxandi hin
seinni ár og var árið 1985, 63.500.
Utlit er fyrir að í ár verði fram-
leidd 70.000 pör af skóm. Alls
hefur skógerðin framleitt yfir 2,6
milljón pör á þessum 50 árum.
Myndin er tekin í Skógerð Iðunnar í gær.
Arnarneshreppur
Kjörfundur til sveitarstjórnar og sýslunefndarkosn-
inga sem fram eiga að fara laugardaginn 14. júní
1986 verður haldinn á Freyjulundi og hefst kl. 10.00
f.h.
Kjörstjórn.
í tilefni afmælisins verður
verksmiðjan opin almenningi
n.k. föstudag og laugardag kl. 9
til 16. Þar gefst kostur að sjá
starfsfólk verksmiðjunnar að
störfum, skoða skóminjasafn er
geymir sýnishorn af hálfrar aldar
framleiðslu verksmiðjunnr og fá
sér hressingu.
Vinabæja-
mót á
Blönduósi
Um næstu mánaðamót verður
haldið á Blönduósi vinarbæja-
mót Blönduóss og vinabæja frá
Norðurlöndunum, en þeir eru:
Moss í Noregi, Karlstad í
Svíþjóð, Nokia í Finnlandi og
Horsens í Danmörk.
Um er að ræða æskulýðsmót
þar sem þátttakendur eru á aldr-
inum 16 til 25 ára. Búist er við að
50 manns verði í hópnum sem
mun koma til Blönduóss I. júlí
og dvelja til 5. júlí.
Hópurinn mun gista í grunn-
skólanum á staðnum en á meðan
á dvölinni stendur verður farið í
skoðunarferðir um nágrennið og
gestunum sýndir markverðir
staðir, þá er í athugun hvort ekki
verði unnt að bjóða gestunum á
hestbak í samvinnu við hesta-
menn á Blönduósi og nágrenni.
Slík vinabæjamót hafa verið
haldin árlega en nú mun vera í
athugun að þau verði haldin ann-
að hvert ár. G.Kr.
Erum fluttir
í Frostagötu 3b
Kæliskápa- og frystikistu viðgerðir.
Uppsetning á kæli- og frystikerfum.
Viðgerðir * Nýsmíði * Efnissala
Kæliverk sf.
Frostagötu 3B • Akureyri • 'Sími