Dagur - 11.06.1986, Side 6
6 - DAGUR - 11. júní 1986
Sigurður Guðmundsson
íþróttakennari í Reykjaskóla
forstöðumaður sumarbúðanna.
Að Reykjum í Hrútafírði eru starfræktar sumarbúðir fyrir
krakka á aldrinum níu til fjórtán ára. Það er Héraðssamband
Austur- og Vestur-Húnvetninga ásamt Héraðssambandi
Strandamanna sem standa sameiginlega að rekstrinum. En
þetta mun vera í fyrsta sinn sem slík samvinna er höfð um
rekstur sumarbúða.
Forstöðumaður námskeiðanna er Sigurður Guðmundsson
íþróttakennari við Reykjaskóla og hann er einnig aðalhvata-
maður þess að út í þessa tilraun var farið. Sigurður sagði að
upphaflega hefði verið meiningin að einungis yrðu þarna
börn af svæði héraðssambandanna í Húnavatnssýslum en síð-
ar hefði verið ákveðið að bjóða Strandamönnum að vera með
og það hafi sýnt sig að sú ákvörðun hefði verið hárrétt því
nærri helmingur þátttakendanna er úr Strandasýslu.
dráttarvél og ríkir geysigóð
stemmning í vagninum, mikið
sungið og grínast.
Ég spurði Sigurð hvort það
væri ekki nýtt á verkefnaskrá í
sumarbúðum að vera með tölvu-
kennslu?
„Petta er nýjung, að hafa tölv-
urnar með í daglegri dagskrá og
eins er með blaðaútgáfuna hún er
algjör nýjung."
- Segðu mér frá blaðaútgáf-
unni.
„Við erum með aðstöðu hér
í kjallaranum þar sem krakk-
arnir hafa nokkrar ritvélar og þau
sem eiga að vera í blaðahópnum í
það og það skiptið vinna þar við
að vélrita textann, en síðan fá
þau aðstoð við myndatökur og
framköllun. Þau vinna þetta yfir-
leitt þannig að þau fá myndirnar
fyrst og semja svo textann út frá
þeim. Á hverju námskeiði er
unnið eitt blað sem krakkarnir
taka svo með sér heim, en í blað-
inu eru myndir af öllum sem voru
á námskeiðinu ásamt heimilis-
föngum, svo að þau geta auð-
veldlega haldið við þeim kunn-
ingsskap sem varð á námskeið-
inu.“
Sumarbúðir
í Reykjaskóla
Nú stendur yfir þriðja og síð-
asta námskeiðð að þessu sinni en
upphaflega var meiningin að þau
yrðu aðeins tvö, en eftir að upp-
lýsingar um sumarbúðirnar höfðu
verið sendar í grunnskólana í
sýslunum, bárust svo margar
umsóknir að ákveðið var að bæta
einu námskeiði framan við.
Fyrsta námskeiðið stóð því
aðeins í sex daga en hin síðari í
átta daga. Að meðaltali hafa ver-
ið 47 krakkar á hverju nám-
skeiði.
Leiðbeinendur á námskeiðun-
um eru fimm, Sigurður er fyrir
hönd V.-Hún. Sigríður Þórarins-
dóttir skólastjóri í Broddanesi og
séra Baldur R. Sigurðsson prest-
ur í Hólmavík eru fulltrúar
Strandamanna og frá A.-Hún-
vetningum eru tvær ungar og
upprennandi íþróttakonur Krist-
jana Jónsdóttir frá Skagaströnd
og Una Marsibil Lárusdóttir frá
Blönduósi.
„Reynslan af þessu er það góð
að við ætlum að reyna að semja
við ríkið um afnot af skólanum
allan júnímánuð næsta ár,“ sagði
Sigurður.
Varðandi kostnaðinn við rekst-
urinn sagði hann að hver krakki
þyrfti að greiða 4900 krónur og
síðan væri styrkur frá ungmenna-
samböndunum sem næmi 15 þús-
undum á samband en auk þess
ætluðu þeir að reyna að fá styrk
úr sýslusjóðunum, en vonandi
þyrfti þess ekki nema í þetta eina
skipti en fjárþörfin væri auðvitað
mest í upphafi. Þá sagði Sigurður
að U.M.F.Í., Í.S.Í og Æskulýðsr-
áð ríkisins veittu einhvern styrk
til sumarbúðanna.
inu og heima við hús ef þau
treysta sér ekki í útreiðartúr.“
- Svo eruð þið með kvöldvöku
á hverju kvöldi, er ekki erfitt að
finna alltaf upp eitthvað nýtt fyrir
hvert kvöld?
„Nei það er ekkert vandamál,
engin vöntun á hugmyndum. En
annað hvert kvöld spilum við
bingó sem hefur vakið mikla
hrifningu hjá krökkunum, vinn-
ingar eru ekki stórir en það er
heldur ekkert aðalatriði hjá
krökkunum.11
- í reglum er bannað að vera
með gos eða sælgæti og á dag-
skránni er liður sem segir „tekið
til í herbergjum". Hvernig geng-
ur að framfylgja þessu eða að fá
þau til að borða það sem er á
matseðlinum hverju sinni?
„Þetta hefur allt saman gengið
vel. Auðvitað eru krakkar innan
um sem eru ekki vanir því að
þurfa að búa um rúmin sín eða
laga til í kringum sig en þeir gera Sigrún Sævarsdóttir Hólmavík, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir Skagaströnd, Ái
það rétt eins og aðrir á meðan Aðalbjörg Signý Sigurðardóttir frá Hrafnabjörgum í Svínadal sögðu að það væri
þeir eru hér. Og í svona stórum ®fluðu að koma aftur næsta sumar.
- En svo farið þið í útreiðar-
túra, ekki hafið þið 50 hross, eða
hvað?
Nei nei, við fáum lánuð hross
hér í nágrenninu og það fara 10
krakkar í einu. Og það fara allir á
hestbak, líka þeir óvönu, við
teymum bara undir þeim í gerð-
Það var geysilegt fjör hjá sjómönnunum enda allir í björgunarvestum og því færir í allan sjó.
Una Marsibil Lárusdóttir 16 ára
leiðbeinandi á námskeiðunum
hópi eru alltaf einhverjir sem
vilja ekki borða þetta eða hitt en
það er ekkert vandamál þeir fá
sér þá bara eitthvað annað sem á
boðstólum er.“
- Á dagskránni er liður eftir
hádegi sem heitir ekkert heldur
er merktur með spurningar-
merkjum, hvað táknar það?
„Þetta er tími sem við notum
til ýmiss konar hluta, t.d. er einn
daginn farið í heimsókn á sveita-
bæi og skoðað kúabú og kindabú
á Brautarholti og svínabú er líka
skoðað, krökkunum finnst nú
lyktin vond en þau hafa mjög
gaman af grísunum. Það hefur
komið í ljós að tiltölulega fá
þeirra hafa séð svín svo þetta er
nýnæmi fyrir þau. Síðan förum
við í kirkju þar sem er stutt æsku-
lýðssamkoma sem séra Baldur
sér um. í bakaleiðinni förum við
svo í Staðarskála og fáum svala-
drykk og súkkulaði sem er eina
sælgætið sem neytt er á tímabil-
inu. Þessar ferðir förum við í
stórum vagni sem dreginn er af
- Á dagskránni er liður nefnd-
ur bátar, eruð þið með útgerð?
„Já það má segja það, við
leggjum net hérna í Hrútafjörð-
inn og einnig er nokkuð reynt við
stangaveiði. Aflinn hefur að vísu
verið nokkuð tregur nema þá
helst marhnútar, allt upp í 36
einn daginn, en þó veiðist alltaf
eitthvað af silungi. Það er eins
með bátinn og annað hérna það
er skipt um áhöfn með skipstjóra
og öllu saman, daglega.
„Við höfum líka farið í báts-