Dagur - 11.06.1986, Page 9
11. júnf 1986 - DAGUR - 9
íþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Markasúpa á Þórsvelli
er Þór sigraði IBV 4:3 í 1. deild
„Ég er ánægður með þetta sér-
staklega fyrri hálfleik, en þá
spiluðum við mjög vel og átt-
um leikinn, hefðum átt að
skora flmm til sex mörk.
Seinni hálfleikur var að vísu
ekki eins góður við drögum
okkur alltaf aftur þegar við
komumst yfir og virðumst
hreinlega missa einbeitinguna.
En ég er bjartsýnn á næstu
leiki, þetta hlýtur bara að vera
að koma hjá okkur.“
Petta sagði Nói Björnsson
fyrirliði Þórs eftir sigurleikinn
gegn ÍBV í gærkvöldi.
Vestmannaeyingar komust í 1-0
strax á 2. mín. er Bergur Ágústs-
son rak boltann upp vallarhelm-
ing Þórs og renndi fyrir markið
þar sem Ómar Jóhannsson kom á
fullri siglingu og skoraði auðveld-
lega. En þar með var lokið þætti
Vestmannaeyinga í fyrri hálfleik.
Þórsarar sóttu það sem eftir var
hvað þeir gátu, sköpuðu sér
mýmörg færi en tókst ekki að
skora. Á 35. mín. lenti Bjarni
Sveinbjörnsson í samstuði við tvo
Vestmanneyinga með þeim af-
leiðingum að krossband slitnaði í
hnéi hans og mun Bjami að öllum
líkindum ekki leika meira í
sumar.
Hlynur Birgisson kom inn á
fyrir Bjarna og hafði hann ekki
leikið nema í 30 sek. er hann náði
að jafna fyrir Þór. Halldór
Áskelsson splundraði þá vörn
ÍBV og renndi út á Hlyn sem
skoraði af stuttu færi. 5 mín.
seinna fengu Þórsarar víti er Sig-
uróla Kristjánssyni var hrint inni
í vítateig. Jónas Róbertsson tók
spyrnuna og skoraði örugglega.
Aðeins tvær mín. voru liðnar
af seinni hálfleik er Þórsarar juku
muninn í 3-1. Kristján Kristjáns-
son tók stutta hornspyrnu, Hall-
dór skallaði aftur fyrir sig á Nóa
Björnsson sem skorar glæsilega
með hjólhestaspyrnu. Stórglæsi-
legt mark!
Eftir markið slökuðu Þórsarar
á og ÍBV komst betur inn í leik-
inn. Á 52. mín. minnkaði ’ Ingi
Sigurðsson muninn með lausu
skoti utan úr teig. Eftir þetta
varð dálítill barningur á miðjunni
en Þórsarar þó heldur hættulegri
upp við markið.
A 68. mín. kom Halldór ÍBV
vörninni enn einu sinni í opna
skjöldu hann sendi góða send-
ingu á Jónas sem var óvaldaður
inni í vítateig og skoraði örugg-
lega. Staðan orðin 4-2 fyrir Þór.
En Eyjamenn gáfust ekki upp og
10 mín. seinna minnkuðu þeir
muninn er Baldur Guðnason brá
Jóhanni Georgssyni inni í víta-
teig og var umsvifalaust dæmd
vítaspyrna. Jóhann tók vítið
sjálfur og skoraði. Það sem eftir
lifði leiksins reyndu Vestmanna-
eyingar að jafna en Þórsurum
tókst að halda fengnum hlut.
í stuttu máli sanngjarn sigur
Þórsara sem yfirspiluðu ÍBV
algjörlega í fyrri hálfleik. Seinni
hálfleikur var ekki eins góður -
einbeitingin virtist detta niður
hjá strákunum og áhugann virtist
vanta, sérstaklega hjá vörninni
sem gerði of oft glapleg mistök.
Bestir í liði Þórs voru: Halldór
Áskelsson, og Baldvin Guð-
mundsson. í liði ÍBV voru þeir
skástir Jóhann Georgsson og
Bergur Ágústsson.
Ágætur dómari leiksins var
Sveinn Sveinsson.
-BV
Halldór Áskelsson lék mjög vel með Þór í gærkvöldi. Hér sést hann í baráttu í vítateig Eyjamanna. Mynd: KG A
Landsbankahlaupið:
Mjög góð þátttaka
Landsbankahlaupið fór fram á
Akureyri á laugardag. Það var
stjórn F.S.L.A sem hafði veg
og vanda af hlaupinu. Hlaupið
var frá Landsbankanum á
Akureyri, norður Brekkugötu,
niður í Glerárgötu, til suðurs
með íþróttavellinum, suður
Hólabraut og í mark við Ráð-
hústorg, samtals 1,5 km.
Hlaupið var ætlað börnum
fæddum á árunum ‘75 og ‘76. Var
mjög góð þátttaka eða samtals
um 70 keppendur en í Rcykjavík
mættu aðeins 150 keppendur i
hlaupið. Var keppt í sveina- og
meyjaflokki og var þremur fyrstu
keppendunum í hvorum flokki
veitt verðlaun. Þá fengu allir
þátttakendurnir viðurkenningu.
Einnig var dregið úr númerum
keppenda um tvær kjörbækur
með 2.000,- króna innistæðu og
hlutu þær, Katrín Jóhannesdóttir
og Kristín H. Krisijánsdóttir.
Annars urðu úrslit í hlaupinu
þessi:
Sveinaflokkur:
1. Ómar Kristinsson 5:47,40
2. Kristján Örnólfsson 5:47,60
3. Páll Tómas Finnsson 5:54,60
Meyjaflokkur:
1. Linda B. Sveinsdóttir 6:26,00
2. Helga Ólafsdóttir 6:36,60
3. Halla B. Arnarsdóttir 6:54.00
Guðrún H. Kristjánsdóttir
skíðakona og „íþróttamaður
Akureyrar“ 1985 leiddi hlaupið í
upphafi og fylgdi svo þeim síð-
ustu að marklínu. Lögreglan á
Akureyri aðstoðaði við fram-
kvæmd hlaupsins með því að
vera með menn á öllum gatna-
mótum sem hlaupið var um.
Bjarni Sveinbjörnsson leikmaður Þórs sést hér borinn af velli eftir samstuð
við tvo Eyjamenn. Bjarni er sennilega úr leik í sumar þar sem annað kross-
band í hnéi slitnaði í átökunum. Mynd: KGA.
Mjólkurbikarinn:
KA-Leiftur og
KS-Tindastóll
- í kvöld kl. 20.00
í kvöld veröa nokkrir leikir í 2.
umferð Mjólkurbikarkeppn-
innar í knattspyrnu. Meðal
leikja er viðureignir KA og
Leifturs á Akureyri og KS og
Tindastóls á Siglufirði. KA
lagði Völsung að velli í 1.
umferð, Leiftur lagði Reyni
Árskógsströnd, KS Höfð-
strending og Tindastóll
Magna.
KA og KS verða að teljast lík-
legri til sigurs í kvöld. En bæði
liðin eiga heimaleiki gegn liðum í
3. deild. Þó getur allt gerst í
kvöld eins og svo oft áður í bikar-
keppninni. Það er einmitt í þeirri
keppni sem hin ótrúlegustu úrslit
líta dagsins ljós.
Ég sló á þráðinn til Óskars
Ingimundarsonar þjálfara Leift-
urs og spurði hann hvernig
leikurinn gegn KA legðist í þá á
Ólafsfirði.
„Hann leggst bara bærilega í
okkur. Við munum leika til
sigurs í kvöld sem endranær.
Fyrirfram eigum við minni mögu-
leika en KA, þeir eru 2. deildar-
lið á leið í þá 1. og á heimavelli
en við gefum ekkert eftir og reyn-
um að gera okkar besta. Við lít-
um á þennan leik sem góða
æfingu, aðstæður góðar og mót-
herjinn góður.
Ef okkur tekst að vinna í kvöld
þá fáum við sigurvegarana úr leik
KS og Tindastóls í næstu umferð
og þá heima.“
Nú standið þið vel að vígi í 3.
deildinni. Ertu ánægður með lið-
ið til þessa?
„Já þetta hefur gengið nokkuð
vel. Þessir leikir sem við höfum
verið að vinna hafa verið mjög
jafnir en einhvernveginn þróast
þannig að við höfum náð að
sigra. Deildin er jafnari í ár en
hún var í fyrra og ég á von á
geysiharðri keppni. Ég held að
það verði Þróttur, Reynir og
Tindastóll sem verði erfiðust við
að eiga og þau lið eigum við öll
eftir,“ sagði Óskar.
Leikur KA og Leifturs í kvöld
fer fram á grasvelli KA við
Lundarskóla og hefst kl. 20 eins
og leikur KS og Tindastóls á
Siglufirði.
Sigurvegararnir í l.andsbankahlaupinu.