Dagur - 17.06.1986, Blaðsíða 3
'Aii&t im’i< Tf' -- P9U0ACI -- v
17. júní 1986 - DAGUR - 3
Þórður Sverrisson, aðstoðarframkvæmdastjóri Eimskips og Jenný Gunnarsdóttir „tölvusérfræðingur“ við nýju tölv-
una- Mynd: BB
Akureyri:
Eimskipafélagið eykur þjónustuna
Á föstudaginn náöist talsvert
stór áfangi í þjónustu Eim-
skipafélags Islands á Akureyri.
Þá var afgreiðslan á Akureyri
tengd beint inn á tölvukerfi
Eimskipafélagsins. Meö þess-
um áfanga mun öll þjónusta
fyrirtækisins við Norðlendinga
batna til muna auk þess sem
þetta flýtir afgreiðslu verulega.
Nýja tölvan er mjög fullkomin.
Meö henni er hægt aö kalla fram
á augabragði ýmsar upplýsingar
sem koma viðskiptavinunum til
góða. Möguleikarnir eru niargir
en sem dæmi má nefna að menn
geta fengið að vita hvort þeir eigi
sendingu í þvt skipi sem er vænt-
anlegt, hvaða vörur sé um að
ræða og í hvaða gámi þær séu.
Fljótlega eftir að skip Eimskipa-
félagsins leggja úr höfn, hvort
sem er erlendis eða innanlands,
eru allar slíkar upplýsingar
komnar inn í aðaltölvu félagsins.
Aðalskrifstofa Eimskipafélags-
ins er í Pósthússtræti en bein
tölvutenging er við afgreiðslurnar
í Sundahöfn, Hafnarfirði og nú
síðast Akureyri. Skip frá Eim-
skipafélaginu hafa viðkomu á
Akureyri vikulega. Skrifstofu-
stjóri Eimskips á Akureyri er
Stefán Tryggvason.
Til að fagna þessum áfanga
sem nú hefur náðst bauð Eim-
skipafélagið nokkrum viðskipta-
vinum til samsætis á föstudaginn
og kynnti Þórður Sverrisson
aðstoðarframkvæmdastjóri Eim-
skips breytingarnar. BB.
Sumarferð Iðju
Lúxusferð um landið þvert
Sumarferðin verður dagana 24. til
29. júlí næstkomandi
Ferðaáætlun:
24. júlí: Flogið til Hafnar í Hornafirði, brottför frá
Akureyrarflugvelli kl. 22.20.
25.-28. júlí: Dagsferðir, um Lón, Álftafjörð, Ham-
arsfjörð, Nes og Mýrar, auk þess
möguleikar á bátsferðum á Breiða-
merkurlóni og Hornafjarðarósi og
snjóbílaferð um Vatnajökul.
29. júlí: Frjáls dagur á Höfn fram til heimferðar
frá Hafnarflugvelli kl. 18.25.
Verð kr. 11.500,- fyrir manninn.
Innifalið: Flug, lúxushótel, fullt fæði og skoðunar-
ferðir með leiðsögn.
Lúxusferð - Lúxusaðbunaður
Hafið samband við skrifstofuna fyrir 27. júní.
Ferðanefndin.
Síldarverksmiðjan í Krossanesi
auglýsir eftir
skrifstofustjóra
Æskilegt er að umsækjendur séu viðskiptafræðingar
eða hafi sambærilega menntun, en menn með góða
starfsreynslu koma þó til greina.
Upplýsingar um starfið eru gefnar á skrifstofu fyrir-
tækisins að Glerárgötu 30 Akureyri og umsóknir
sendist þangað fyrir 24. þ.m.
Passíukórinn
með tónleika
- í Skemmunni á
miðvikudagskvöld
Miðvikudaginn 18. júní kl.
20.30 heldur Passíukórinn vor-
tónleika sína í íþróttaskemm-
unni á Oddeyri. Tónleikarnir
eru tileinkaðir 100 ára afmæli
Kaupfélags Eyfirðinga, sem
hefur styrkt tónleikahaldið
verulega. Að þessu sinni verð-
ur flutt oratorian „Sköpunin“
eftir Haydn.
Joseph Haydn (1732-1809) var
einn af stóru snillingum tónlistar-
sögunnar. Hann samdi meðal
annars fjölda þekktra strengja-
kvartetta og aðra kammertónlist,
en auk þess frægar oratoriur.
Sköpunina samdi hann á efri
árum, en hún var frumflutt árið
1798. Verkið er mjög fallegt og
er oft talið hápunktur á tón-
smíðaferli Haydns, enda hefur
það notið mikilla vinsælda allt frá
því að það var fyrst flutt. Textinn
fjallar um sköpun heimsins og er
að mestu eyti byggður á Paradís-
armissi Miltons svo og sköpunar-
sögunni í Gamia textamentinu.
Flytjendur auk Passíukórsins
eru einsöngvararnir Sólrún
Bragadóttir sópran, Michael J.
Clarke tenór og Bergþór Pálsson
bassi, ásamt kammersveit skipuð
hljóðfæraleikurum frá Akureyri
og Reykjavík. Hjónin Sólrún
Bragadóttir og Bergþór Pálsson
hafa undanfarin ár verið við
söngnám í Bandaríkjunum. Pau
héldu söngtónleika víða um land
síðastliðið sumar. Michael J.
Clarke er Akureyringum að góðu
kunnur af söng, fiðluleik, kór- og
hljómsveitarstjórn. Roar Kvam
stjórnar flutningnum, en hann
hefur stjórnað Passíukórnum frá
stofnun hans árið 1972.
Ollum er
vinna með öðrum -
lega á þeim verkefnu
hverjum og einum ofviða.
Án samvinnu og samstöðu
manna allra hefði íslensku þjóði
seint tekist að brjóta á bak attui^
áþján erlends valds og öðlast sjálf-
stæði 17. júní 1944,
Samvinnufélögin eru frjáls og
óháð félagasamtök meiraen 45.000
einstaklinga. Samvinnuhreyfingin
vill vera öflugur þátttakandi í fram-
fararsókn íslensku þjóðarinnar. Hún
vill vinna með öðrum þjóðhollum
öflum við að byggja upp traust efn-
ahagslíf og taka á þann hátt virkan
þátt í ævarandi sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA