Dagur - 17.06.1986, Side 9
17. Júní 1986 - DAGUR - 9
_íþ róttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
„Júdó er fyrst og
fremst tækniíþrótt"
- segir Auöjón Guðmundsson sem hlaut
tækniverðlaun Júdósambands íslands í drengjaflokki
Auðjón Guðmundsson júdó-
maður úr KA hlaut tækniverð-
laun Júdósambands íslands í
drengjaflokki. Auðjón er 14
ára gamall og hefur æft júdó
síðastliðin þrjú ár. Á síðasta
ári hlaut þessi verðlaun félagi
Auðjóns úr KA, Freyr Gauti
Sigmundsson. Tækniverðlaun-
in eru eins og nafnið bendir til
veitt fyrir besta tækni. Auðjón
hefur staðið sig mjög vel á
mótum í vetur. Hann varð
íslandsmeistari í drengja-
flokki, var í sigursveit ÍBA á
íslandsmótinu og þá sigraði
hann í sínum flokki á KA-mót-
inu.
Dagur fékk Auðjón í stutt
spjall og hann var fyrst spurður
hvort hann ætlaði að halda áfram
að æfa júdó?
„Já, ég er ákveðinn í því að
halda áfram. Þetta er skemmtileg
íþrótt og við strákarnir í KA
erum í mjög góðum höndum
Jóns Óðins Óðinssonar þjálfara.“
- Hafið þið æft vel í vetur?
„Það hefur verið æft mjög vel.
Við höfum æft daglega fyrir mót
en annars æfðum við 4 sinnum í
viku. í sumar ætlum við að halda
okkur við og æfa svona 3-4 sinn-
um í viku. Við erum þó miklu
færri sem komum til með að æfa í
sumar en í vetur en þá var mikill
fjöldi á æfingum.“
- Hvernig æfingaaðstöðu búið
þið við?
„Aðstaðan sem við höfum er
ekki nógu góð. Við æfum í litlum
sal í Höllinni en það er súla í
miðjum salnum sem er til mikilla
trafala fyrir okkur. Það getur þó
verið að við fáum annan sal í
Höllinni en hvenær það verður
veit ég ekki.“
- Þarf maður ekki að vera
rosalega sterkur til að geta eitt-
hvað í júdó?
„Nei ekkert endilega. Þetta er
fyrst og fremst spurning um tækni
og þá sérstaklega í léttari flokk-
unum. í þyngri flokkunum kem-
ur sér þó vel að hafa krafta í
kögglum."
- Áttu þér einhverja fyrir-
mynd í júdó?
„Já, mér finnst þeir Bjarni
Friðriksson og Halldór Guð-
björnsson skemmtilegir keppnis-
menn. Það væri gaman ef maður
gæti náð jafnlangt í íþróttinni og
þeir hafa gert,“ sagði Auðjón að
lokum.
Sveit Sambands-
ins sigraði
Auðjón Guðmundsson júdómaður í KA með tækniverðlaun Júdósambands-
ins. Mynd: BV
- í firmakeppni GA í golfi
Vormót KRA í knattspyrnu:
Léleg mæting dóm-
ara setur svip á mótið
Sveit Sambandsins varð hlut-
skörpust í firmakeppni Golf-
klúbbs Akureyrar í golfi sem
lauk nú um helgina. Keppnin
stóð yfír frá laugardegi til laug-
ardags. Fyrsta keppnisdaginn
var leikinn höggleikur og sveit-
unum síðan skipt niður í riðla
eftir árangri og voru 4 Iið í
riðli. Síðan léku allar sveitirnar
sem voru saman í riðli hver við
aðra 9 holu holukeppni og 9
holu fjórleik með tveimur
boltum.
Tiilögu um fjölgun liða í
Úrvalsdeildinni í körfubolta
var vísað tii milliþinganefndar
á ársþingi KKÍ um helgina.
Það þýðir það að Þórsarar
leika áfram í 1. deild næsta
vetur.
Þórsarar höfðu gert sér vonir
um að tillaga um fjölgun yrði
samþykkt og að leikið yrði um
Sveit Sambandsins sigraði eftir
harða keppni við a sveit Slipp-
stöðvarinnar sem varð í öðru
sæti. í þriðja sæti varð sveit
Mjólkursamlagsins.
í sigursveitinni voru, Jón Þór
Gunnarsson, Jónína Pálsdóttir,
Héðinn Gunnarsson, Guðjón E.
Jónsson, Óli Magnússon og
Þórður Valdimarsson.
Þá fór fram Vélamót í golfi að
Jaðri um helgina og þar urðu þau
Rósa Pálsdóttir og Áuðunn Þor-
steinsson jöfn í fyrsta sæti.
laus sæti í Úrvalsdeilinni í haust.
Þetta hefur einnig það í för
með sér að Valur Ingimundarson
leikmaður UMFN kemur ekki til
Akureyrar sem þjálfari Þórs.
Þórsarar þurfa þó ekki að
örvænta því þeir hafa þegar feng-
ið góðan liðstyrk sem er ívar
Webster frá Haukurn. En hver
verður þjálfari meistaraflokks er
óráðið á þessu stigi.
Vormót KRA í yngri flokkum
er hafið og hafa nokkrir leikir
farið fram. Það hefur þó geng-
ið misjafnlega að láta leikina
hefjast á auglýstum tíma og
komið hefur fyrir að einstök-
um leikjum hefur þurft að
fresta. Er það einungis vegna
dómarahallæris. Annað hvort
hafa dómararnir komið of seint
eða alls ekki mætt. Ekkert er
eins niðurdrepandi fyrir hina
ungu leikmenn félaganna og að
þurfa að bíða eftir dómurum.
Ber þeim mönnum sem eiga að
sjá um að dómaramál á Akur-
eyri séu í lagi, skylda til að
koma þeim í lag, ekki seinna
en strax.
Annars urðu úrslit leikjanna
sem lokið er þessi:
6. fl. a Þór-KA 5:4
6. fl. b Þór-KA 2:3
6. fl. c Þór-KA 2:6
5. fl. a Þór-KA 4:0
5. fl. b Þór-KA 0:4
5. fl. c Þór-KA 2:2
4. fl. a Þór-KA 3:1
4. fl. b Þór-KA 0:2
3. fl. a Þór-KA 3:1
3. fl. b Þór-KA 6:2
2. fl. kv. Þór-KA 2:2
6. flokkur:
Þórsarar náðu að knýja fram sig-
ur í annars jöfnum og skemmti-
legum leik a liðanna 5:4. Mörk
Þórs gerðu þeir Kristján Örnólfs-
son 2, Atli Þór Samúelsson 2 og
Þórður Steindórsson 1. Mörk KA
gerðu þeir Matthías Stefánsson 3
og Þórhallur Hinriksson 1.
KA-menn náðu að snúa dæm-
inu við í leik b liðanna og vinna
3:2 sigur. Mörk KA gerðu þeir
Óskar Bragason 1, Óli Björn
Ólafsson 1 og Birkir Magnússon
1 en mörk Þórs skoruðu Erlendur
Ari Óskarsson og Bjarni Guð-
mundsson.
KA-menn gerðu gott betur og
unnu stóran sigur í leik c liðanna
í 6. flokki. Úrslitin 6:2. Mörk KA
gerðu þeir Sverrir Björnsson 4,
Halldór Sigfússon 1 og Gunnar
Már Sigurðsson 1 en Guðmundur
Þór Jónsson skoraði bæði mörk
Þórs.
5. flokkur:
Þórsarar unnu óruggan sigur í
viðureign a liða 5. flokks 4:0.
Mörkin gerðu þeir Guðmundur
Benediktsson 3 og Samúel Jóns-
son 1.
KA-menn unnu aftur á móti leik
b liðanna 4:0. Mörkin í þeim leik
gerðu Gunnlaugur Torfason 2,
Ingimar Erlendsson 1 og Þor-
valdur Sigbjörnsson 1.
í leik c liðanna varð jafntefli í
jöfnum leik 2:2. Mörk KA gerðu
þeir Ingólfur Pétursson og Hilm-
ar Þór Pálsson en mörk Þórs
gerðu Kári Jóhannesson og
Ómar Kristinsson.
Þórsarar héldu uppteknum
hætti er a lið 4. flokks mættust og
unnu öruggan 3:1 sigur. Mörk
Þórs gerðu þeir Steindór Gísla-
son 1, Aðalsteinn Pálsson 1 og
Rúnar Sigtryggsson 1 en Jón
Egill Gíslason gerði mark KA.
KA-menn unnu öruggan sigur
í leik b liða 4. flokks, 2:0. Mörkin
gerði Sveinn Tryggvason.
Þórsarar unnu báða leikina í 3.
flokki. A liðið vann 3:1 með
mörkum þeirra Árna Þórs Árna-
sonar sem skoraði 2 og Þóris
Áskelssonar en mark KA gerði
Kristinn Magnússon.
Loks léku svo stúlkurnar í 2 fl.
kvenna og lauk þeim leik með
jafntefli. Hvort lið skoraði tvö
ntörk í miklum rokleik. Mörk
Þórs skoraði Ellen en fyrir KA
skoruðu þær Arndís Ólafsdóttir
og Ingibjörg Stefánsdóttir.
Næstu leikir í vormótinu fara
fram þann 23. júní en þá leika 3.
flokkur Þórs og KA.
Loks má geta þess að 3. flokk-
ur KA og Þórs léku um helgina
æfingaleik fyrir unglingalandsliðs-
nefnd KSÍ. Voru hér staddir tveir
menn úr nefndinni og voru þeir
að skoða leikmenn sem hugsan-
lega gætu verið brúklegir í lands-
liðið skipað leikmönnum á aldr-
inum 14-16 ára. Leiknum lauk
með 3:2 sigri Þórs en ekki er enn
ljóst hvort einhverjir leikmenn
liðanna hafi náð að spila sig í
landsliðið.
Þór áfram í 1. deild