Dagur - 20.06.1986, Blaðsíða 6
6- DAGUR-20. júní 1986
Bændur ★ Bændur
Vorum að taka upp tinda og hnífa í allar algengustu
tegundir heyvinnuvéla.
Drifskaftsrör í metratali, drifskaftshlífar, hjöruliðs
krossar, reimar og margt fleira.
Dráttarvélahjólbarðar.
Sláttuvélar, múgavélar, heyþyrlur o.fl. á lager.
Vélarnar eru til sýnis samansettar á staðnum.
Lítið inn og kynnið ykkur verð og kjör.
Dragi
Fjölnisgötu 2a • Sími 96-24666.
Bæjarstjóri
Dalvík
Staða bæjarstjóra á Dalvík er laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. júní n.k. Nánari upplýsing-
ar veitir Trausti Þorsteinsson í síma 96-61491 og
Svanfríöur Jónasdóttir í síma 96-61460.
Bæjarstjórn Dalvíkur.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 13., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Karlsbraut 7, Dalvík, þinglesinni eign Sigurjóns
Kristjánssonar, ferfram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. á eign-
inni sjálfri miðvikudaginn 25. júní 1986, kl. 14.00
Bæjarfógetinn á Dalvík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sandskeiði 20, neöri hæð, (Baldurshagi),
Dalvík, þinglesin eign Jónu Vignisdóttur, fer fram eftir kröfu
Ólafs B. Árnasonar hdl. og Skúla Bjarnasonar hdl. á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 25. júní 1986, kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 13., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Hafnarbraut 21 b, Dalvík, þinglesinni eign Bergs
Höskuldssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkisjóös
og Byggðasjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 25. júní 1986,
kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
, $jáum fram á að þurfa
að taka upp með hönámumu
- Spjallað við hjónin í Ártúni í Höfðahverfi um kartöflurækt
í Höfðahverfí er mikið af kart-
öflubændum. Þar er bærinn
Ártún hvar Matthildur Þór-
hallsdóttir og Sveinn Sigur-
björnsson búa, með kartöflur
að sjálfsögðu. Eitthvað er líka
af sauðfé á bænum eða 250
stykki og einn hundur, hann
Kátur sem er af ísienska fjár-
hundakyninu. Á leið blaða-
manna til Grenivíkur á dögun-
um lögðu þeir lykkju á leið srna
og stoppuðu andartak á Ár-
túni.
Matthildur var ein heima við til
að byrja með og hún var spurð
hvort það hefði ekki komið illa
við kartöfluframleiðendur eins
og aðra hvað vorið hefði verið
kalt. „Jú, vissulega. Við vorum
viku seinna en venjulega að ljúka
við að setja niður. Við byrjuðum
að setja niður um hvítasunnu, en
síðan fór að rigna og garðarnir
urðu mjög blautir, það olli
nokkrum töfum.“
Sagði Matthildur að þau settu
niður premiu, gullauga og rauðar
íslenskar. Hún var spurð hvert
þau seldu uppskeruna. „Vonandi
fer hún á Svalbarðseyri, okkar
kartöflur hafa alltaf farið þangað.
Mér finnst skrítið að það skuli
vera seldar kartöflur að sunnan
hér norðanlands þegar nóg er til
af kartöflum hér. Astæðan gæti
verið sú að það var bara til prem-
ia sem er ekki talin nógu góð.“
Á Ártúni vinnur öll fjölskyldan
við búskapinn. Eins og áður
sagði búa þau einnig með fé og
vinnan kemur því í törnum, á
vorin og haustin. „Við tökum
bæði upp með höndununt og
vélum. Við sjáum fram á það
núna að þurfa að taka allt upp
með höndunum. Nú er farið að
þvo kartöflurnar í pökkunar-
stöðvunum og þá er best að þær
líti sem best út. Vélarnar fara oft
illa með kartöflurnar og þeir sem
taka upp með vélum geta þá ekki
selt sína vöru. Kartöflur hafa
hingað til ekki verið þvegnar fyrr
en þær eru settar í pottinn, enda
verða þær ónýtar á nokkrum dög-
um þegar búið er að þvo þær.
Yfirleitt senda bændur frá sér
góða vöru, en síðan er farið illa
með þær í búðunum. Þær eru
ekki geymdar í kulda og það skín
á þær ljós. Þetta fælir fólk frá því
að kaupa og borða kartöflur. Það
þarf að koma þessum málum í
lag, en það er ekki nóg að bænd-
ur standi sig vel, það verða allir
aðilar að gera það.“
Sveinn var nú kominn inn og
farinn að leggja orð í belg. „Við
setjum niður í 5 hektara, sem er
ekki mikið. Það eru 6-7 tonn af
kartöflum sem fara ofan í þessa 5
hektara. Hvað uppskeran verður
mikil? Ja, við megum ekki fá
miklu minna en 20 tonn af hekt-
ara.“
- Hvað hafið þið búið hér
lengi?
„Það eru orðin 22 ár og alltaf
eitthvað með kartöflur,“ það er
Sveinn bóndi sem hefur orðið.
„Við leiddumst út í þessi ósköp.
Það er eins og þrældómur að
lenda í kartöfluhokrinu. Já, það
er hægt að hafa það gott í kart-
öflubúskapnum, en þá verða
menn að vera sæmilega vinnu-
samir.“ Við látum það verða
lokaorð þeirra sæmdarhjóna.
Komið hádegi, allir út á stétt og
nokkrar myndir teknar. -HJS
Heimilisfólkið í Ártúni
Jónsmessuævintýri á
Húsavík
Hótel Húsavík hefur ævintýralegt tilboð á gistingu í
fjórar nætur með morgunverði, þríréttaður kvöldverður
og útsýnisferð í miðnætursólina dagana 22.-26. júní.
Auk þess er hægt að fá skoðunarferðir um nágrennið
með eða án bílstjóra eða siglingu um Skjálfanda.
Við veitum með ánægju nánari upplysingar
í síma 41220. Hótel Húsavík.
Hötel_________
Húsavik sími 41220.