Dagur - 20.06.1986, Page 11
20. júní 1986 - DAGUR -11
Laugardagur 22. mars. Far-
þegarnir okkar virðast kunna vel
við sig og taka virkan þátt í lífinu
um borð. Þeir standa vaktir og
elda fyrir okkur. f dag byrjuðu
þeir að læra þýsku, þótt enginn
viti ennþá hvaða land muni taka
við þeim.
Sunnudagur 23. mars. Klukkan
tvö í nótt sást ljósmerki alllangt
frá okkur. Það reyndist vera bil-
aður bátur með 50 flóttamenn
um borð. Bátstjóri var 21 árs
gömul stúlka, Hoa að nafni.
Flóttinn var skipulagður líkt og á
báti Kim Longs. En skipstjórinn
með konu sinni og sex börnum
ásamt vélamanninum, sem ætl-
uðu að koma með allar vistirnar
um borð, komu aldrei fram.
Sennilega höfðu sjóræningjar séð
fyrir þeim.
Bátsverjar tóku þá þann kost
að freista þess að ná til Singa-
pore, þótt þeir hefðu engar vistir
og aðeins 50 lítra af vatni. Þegar
þeim var bjargað, höfðu þeir ver-
ið tvo sólarhringa á leiðinni. Þeir
voru villtir, því að Hoa hafði einu
sinni sofnað við stýrið. Tveim
klukkustundum eftir að flótta-
fólkið var komið um borð í Cap-
Anamur II og bátnum þess hafði
verið sökkt, rákumst við á fyrsta
sjóræningjabátinn af fjórum, sem
mynduðu röð til að sitja fyrir
flóttamannabátnum.
Mánudagur 24. mars. í dag
kynntist ég Loan, níu ára telpu.
Hún flúði með nágrönnum for-
eldra hennar. Fyrst í stað var hún
alltaf döpur og alvarleg, en hún
grét ekki.
Ég ræddi líka við Chi, 36 ára
gamlan kaþólskan mann, sem
flúði með tveim af fjórum börn-
um sínum. Hvert pláss á flótta-
mgnnabáti kostar 50.000 krónur.
Chi gat ekki borgað nema þrjú
píáss.
Fimmtudagur 27. mars. Uda
skipslæknir kvartar sáran undan
skorti á lyfjum um borð. Það er
ekki eftir nema ein túpa af áburði
gegn útbrotum og sveppasýk-
ingu, sem flest fólkið þjáist af.
Saltvatnsþvotturinn gerir útbrot-
in enn verri. Sótthreinsunarefni
fyrir svefnmotturnar vantar
nauðsynlega.
í morgun sló áhöfnin saman
dálítilli fjárupphæð til að kaupa
sígarettur handa flóttafólkinu,
þegar við komum til Singapore.
„Fólkið má til með að fá eitthvað
að reykja eftir álagið," sagði
Franz, kokkurinn okkar. '
Laugardagur 29. mars. Það var
fundur klukkan 10 í morgun.
Skipstjórinn tilkynnti okkur að
við hefðum enn vistir í tvær
vikur. Við þyrftum bara að spara
vatnið svolítið meira. Og það í
meira en 30 stiga hita í forsælu!
Ákveðið var að færa leitarsvæðið
nær víetnömsku ströndinni.
Klukkan fjögur fengum við
umbun erfiðis undanfarinna
daga. Við fundum bát með 101
flóttamanni um borð. Einn var
fárveikur af malaríu.
Mánudagur 31. mars. Klukkan
15.20. Við siglum fram á lítinn,
sökkhlaðinn bát. Flóttamaður
lyftir litlu barni sfnu á móti
okkur. Hinir veifa og kalla. Það
eru 64 menn um borð. Þar á með-
al er 68 ára gamall maður með
fertugum syni sínum. Konan
hans hafði flúið áður og fengið
hæli í Bandaríkjunum.
Miðvikudagur 2. apríl. Enn
fannst lítill bátur með 66 flótta-
mönnum. Um borð kunni enginn
til skipstjórnar. Sá sem átti að
hafa stjórnina með höndum,
hafði neitað að fara með og taka
ábyrgð á farþegunum, því að bát-
urinn var allt of hlaðinn. Nú eru
farþegar um borð í Cap-Anamur
II orðnir 328.
Sunnudagur 6. aprfl. í dag er
hvassviðri og stórsjór. Hvergi er
nokkurt skip að sjá. Skipstjórinn
ákveður að halda strax til Singa-
pore, nokkrum dögum fyrr en
áætlað var.
Þriðjudagur 8. aprfl. Við komum
til Singapore, og ferð mín með
Cap-Anamur II er á enda. Ég
kveð Loan og alla hina vinina um
borð. Loan grætur, og ég lofa að
fylgjast með henni og hitta hána
aftur síðar.
Fólkið stendur á þilfarinu og
veifar þegar ég fer frá borði.
Næsti áfangastaður þess verður
yfirfylltar flóttamannabúðir á Fil-
ippseyjum. Um það veit fólkið
ennþá bara óljóst. En það kemst
brátt að raun um það.
(Þýð. Magnús Kristinsson.)
Ljósmerki í næturniyrkrinu batt endi á martröðina. Flóttafólkið kvcikti bál til
að vekja athygli bjurgunarmannanna á bátnuni. Þegar skipið er komið að
bátnum klifrar fólkið um borð eftir kaðalstigum.
EIGNAKJ0R
Fasteignasala - Sími 26441
Hafnarstræti 108.
Sölumaður: Páll Halldórsson,
heimasími: 22697.
Lögmaður: Björn Jósef Arnviðarson.
Álfabyggð: Einbýlishús m/bílskúr
ca. 228 fm.
Glerárgata: Skrifst.húsn. 383 fm.
Góöir greiösluskilmálar.
Gránufélagsgata: 5 herb. íbúð ca.
150 fm. Allt sér.
Hamarstígur: 5 herb. íbúö á 2
hæöum ca. 112 fm.
Helgamagrastr.: Einbýlishús á 2
hæöum 130 fm.
Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 3.
hæö 56 fm.
Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 3.
hæö 52 fm.
Hólabraut: 4ra herb. íbúð e.h. 114
fm. Allt sér.
Kringlumýri: Einbýlishús á 1. hæð
129 fm. Bílskúr.
Langamýri: 4ra herb. íbúö á n.h.
120 fm.
Mýrarvegur: 5-6 herb. einbýlishús
240 fm. 2 hæðir og kjallari.
Oddeyrargata: Einbýlishús 2 hæð-
ir og kjallari 200 fm.
Ráðhústorg: 4ra herb. íbúð á 3.
hæö 105 fm. Laus strax.
Skarðshlíð: 4ra herb. íbúö á 3.
hæö 90 fm.
Strandgata: 6 herb. íbúð á 2 hæö-
um 120 fm.
Strandgata: 50 fm hús til flutnings.
Tjarnarlundur: 2ja nerb. íbúð 48
fm. Jarðhæð. Laus 1. sept.
Vanabyggð: 5 herb. íbúö n.h. 124
fm. Laus strax.
Þingvallastræti: 5-6 herb. íbúö
e.h. 150 fm. Laus strax.
Fjolugata: Einbýlishús á 2 hæöum
4-5 herb. 110 fm. Mikiö endurb.
Góðir tekjumöguleikar: Fyrirtæki í
fullum rekstri. Tilvaliö fyrir sam-
henta fjölskyldu.
Okkur vantar allar gerðir
húseigna á söluskrá.
í sumar verða veitingasalir
hótelsins opnir
sem hér segir:
Höfðaberg veitingasalur á annarri hæð
opinn fyrir hádegisverð kl. 12-14.
Súlnaberg opið frá 8-22.
Aðrar veitingar kl. 14-18
Kvöldverð kl. 18-22
Barinn opinn frá kl. 18-23.30
Hinit stórgóði Ingimar Eydal leikur iétta tóniist
fyrir matargesti fimmtudag til sunnudags.
Dansleikur
Laugardagskvöld 21. júní.
Rokkbandið leikur fyrir dansi til kl. 03.
Uppselt fyrir matargesti.
Ltfeyrissjóður verksmiðja SÍS
Akureyri
Almennur fundur með sjóðfélögum í Lífeyrissjóði
verksmiðja SÍS verður haldinn í Félagsborg sunnudaginn
22. júní kl. 14.00 (kl. 2 e.h.).
Fundarefni:
1. Kynning á nýrri reglugerð fyrir sjóðinn.
2. Rætt um hugsanlega sameiningu sjóðsins við Samvinnulíf-
eyrissjóðinn.
Gestur fundarins verður Margeir Daníelsson framkvæmdastjóri
Samvinnulífeyrissj óðsins.
Áríðandi að sjóðfélagar mæti vel og stundvíslega.
Einnig er sjóðfélögum bent á að kynna sér vel kafla um lífeyrissjóðs-
mál í tveimur síðustu tölublöðum Hlyns.
Stjórnin.
Akureyringar — Nærsveitarmenn
Kynning veröur í Hagkaupi á
Kjamapizzu
og Kjarnasalati
í dag föstudag frá kl. 14-19.
HAGKAUP Akureyri