Dagur - 15.07.1986, Side 4
4 - DAGUR - 15. júli 1986
á Ijósvakanum
IsjónvarpM
ÞRIÐJUDAGUR
15. júlí
19.00 Á framabraut.
(Fame 11-19).
Bandariskur myndaflokk-
ur.
Þýðandi: Kristrún Þórðar-
dóttir.
19.50 Fróttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Daginn sem veröldin
breyttist.
(The Day the Universe
Changed).
Lokaþáttur: Óendanlegir
heimar.
Breskur heimildamynda-
flokkur í tíu þáttum.
Umsjónarmaður: James
Burke.
í þessum þætti veltir Jam-
es Burke fyrir sér heims-
mynd nútímamannsins og
ber hana saman við ýmsar
fyrri hugmyndir manna
sem nú þykja úr sér
gengnar en þóttu óhrekj-
andi á sínum tíma.
Þýðandi: Jón O. Edwald.
Þulur: Sigurður Jónsson.
21.25 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður: Margrét
Heinreksdóttir.
22.00 Kolkrabbinn.
(La Piovra II)
Lokaþáttur.
ítalskur sakamálamynda-
flokkur í sex þáttum.
Þýðandi: Þuríður Magnús-
dóttir.
23.15 Fréttir í dagskrárlok.
Grimmsævintýri
Þriöjudaginn 15. júlí kl. 20.40 verður ævintýrið
um Mjallhvít lesið á rás eitt. Gunnar Stefánsson
les og flytur formálsorð. Þetta sígilda ævintýri
Grimmbræðra er nú flutt í elstu íslensku þýð-
ingu sem til er. Hún kom út árið 1853 og þýðandi
var séra Magnús Grímsson. Er þýðing hans
jafnframt hið fyrsta sem íslendingur þýddi úr
Grimmsævintýrum.
ÞRIÐJUDAGUR
15. júlí.
7.00 Veðurfregnir • Fréttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fróttir • Tilkynningar.
8.00 Fróttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fróttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Pótur Pan og
Vanda" eftir J.M. Barrie.
Sigríður Thorlacius þýddi.
Heiðdís Norðfjörð les. (15)
9.20 Morguntrimm ■ Til-
kynningar ■ Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Lesið úr forustugrein-
um dagblaðanna.
10.00 Fróttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Ég man þá tíð“.
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
11.00 Fróttir.
11.03 Samhljómur.
Umsjón: Þórarinn Stefáns-
son.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fróttir.
12.45 Vedurfregnir • Til-
kynningar - Tónleikar.
13.30 í dagsins önn -
Heilsuvernd.
Umsjón: Jón Gunnar Grét-
arsson.
14.00 Miðdegissagan:
„Katrín“ saga frá Álands-
eyjum eftir Sally Salmin-
en.
Jón Helgason þýddi. Stein-
unn S. Sigurðardóttir les
(11).
14.30 Tónlistarmaður vik-
unnar.
Gísli Helgason.
15.00 Fréttir • Tilkynningar
• Tónleikar.
15.20 Á hringveginum -
Austurland.
Umsjón: Inga Rósa Þórðar-
dóttir, Örn Ragnarsson og
Ásta R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir ■ Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Divertimento.
17.00 Fróttir.
17.03 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Vernharður
Linnet. Aðstoðarmaður:
Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu.
- Hallgrímur Thorsteins-
son og Guðlaug María
Bjarnadóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fróttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál.
Guðmundur Sæmundsson
flytur þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb.
Guðrún Birgisdóttir talar.
20.00 Ekkert mál.
Ása Helga Ragnarsdóttir
stjórnar þætti fyrir ungt
fólk.
Aðstoðarmaður: Bryndís
Jónsdóttir.
20.40 „Mjallhvít", ævintýri
úr safni Grimmsbræöra.
Gunnar Stefánsson les
þýðingu Magnúsar Gríms-
sonar og flytur formálsorð.
21.00 Perlur.
Alfred Clausen og Nana
Mouskori.
21.25 Útvarpssagan: „Njáls
saga“.
Dr. Einar Ólafur Sveinsson
les (24).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð
kvöldsins.
22.15 Vedurfregnir.
22.20 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í
Háskólabíói 20 feb. sl.
Stjórnandi: Klauspeter
Seibel.
Kór og barnakór íslensku
óperunnar syngja. Ein-
söngvarar: Sigríður
Gröndal, Júlíus Vífill Ing-
varsson og Kristinn Sig-
mundsson.
23.20 Frá tónskáldaþingi.
Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
24.00 Fróttir • Dagskráriok.
rás 2M
ÞRIÐJUDAGUR
15. júli
9.00 Morgunþáttur.
Stjórnendur: Ásgeir Tóm-
asson, Páll Þorsteins-i
son og Gunnlaugur Helga-
son. Inn í þáttinn fléttast
u.þ.b. fimmtán mínútna
barnaefni kl. 10.05 sem
Guðríður Haraldsdóttir
annast.
12.00 Hlé.
14.00 Blöndun á staðnum.
Stjómandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Hringiðan.
Þáttur i umsjá Ólafs Más
Björnssonar.
17.00 í gegnum tíðina.
Jón Ólafsson stjórnar
þætti um íslenska dægur-
tónlist.
18.00 Dagskrárlok.
3ja mín. fréttir kl. 9, 10, 11,
15,16, og 17.
17.03-18.30 Rikisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.
.hér og þac.
Þær eignuðust
symsamadag
Þær eignuðust
syni sama dag
Þegar maður sér þær er hægt að halda að þær séu tvíbur-
ar, en svo er ekki. Samt eru þær alltaf saman, hugsa svip-
að og fá sömu hugmyndirnar á sömu stundu. Með nok-
kurra klukkutíma millibili eignuðust þær syni sem eru
mjög líkir hvað útlit, þyngd og lengd varðar.
„Það má auðvitað kalla þetta tilviljun en það kom okk-
ur eiginlega á óvart þegar við fæddum svona jafnt. Okkur
þykir vænt hvorri um aðra, fáum oft sömu hugmyndirnar
og stöndum saman hvað sem á dynur. Hvers vegna þá
ekki að eignast börn á sama tíma?“
Hugsa líkt
Samheldni einkennir mest þessar tvær nýbökuðu mæður
sem búa í Sönderborg í Danmörku, Inu 28 ára og Jytte
23ja ára. Báðar bera þær eftirnafnið Petersen. Þær eru
systur, ógiftar og báðar 2ja barna mæður. Fyrir stuttu
eignuðust þær hvor sinn soninn á fæðingardeild sjúkra-
hússins í Sönderborg með örstuttu millibili.
Ina á 3ja ára stúlku, Pernille, og nú bættist Kenni við,
en hann var 53ja cm langur og 3700 g þungur við fæðingu.
Stuttu síðar kom Jytte á fæðingardeildina og sömu nóttina
fæddi hún son sem var 1 cm lengri og 50 g þyngri en
Kenni. Hann heitir Dennis, en áður átti Jytte Ricco, 2ja
ára.
„Margir halda að við Jytte séum tvíburar, af því við
erum svo mikið saman, gerum sömu hluti og hugsum
líkt,“ segir Ina. „Pau ráku upp stór augu á fæðingardeild-
inni þegar Jytte kom svo fljótt eftir að ég átti Kenni. Hún
neitaði því samt ákveðið að við værum tvíburar, enda er
hún 5 árum yngri en ég.“
s
Ur stórum systkinahópi
„Nú halda auðvitað allir að við höfðum ákveðið þetta,“
segir Jytte. „En það er öðru nær. Við höfum verið ófrísk-
ar dálítinn tíma áður en við trúðum hvor annarri fyrir
leyndarmálinu. Og það gladdi okkur þegar við reiknuðum
út að við myndum fæða á svipuðum tíma. Samt héldu
læknarnir því fram að ég myndi eiga hálfum mánuði á
undan Inu. En náttúran lét ekki að sér hæða og við lágum
á sæng saman. Petta hefur verið mikil reynsla og í raun-
inni tvöföld ánægja af því að okkur þykir svo vænt hvorri
um aðra og bæði börnin.“
Ina og Jytte eru úr hópi 5 systkina en á milli þeirra hef-
ur alltaf verið sérstakt samband. Þegar Jytte kom á fæð-
ingardeildina vissi hún að Ina hafði eignast rétt skapaðan
dreng.
Heillandi reynsla
„Aftur á móti var ég í óvissu fram á síðustu stundu,“ segir
Jytte. „Eiginlega skipti það mig engu máli hvort barnið
yrði drengur eða stúlka, svo framarlega sem það væri
hraust og rétt skapað. En ég var afskaplega hamingjusöm
þegar ég eignaðist dreng og frétti nokkrum tímum seinna
að Ina hefði líka átt dreng.“
Par er ekki bara hvað hjúskapinn varðar að systurnar
eru sammála (hvorug þeirra vill giftast). Pær hafa líka
sömu skoðanir um
barnauppeldi. Það að auki eru þær sammála um að tvö
börn sé alveg mátulegur fjöldi eins og er. „En ef svo
skyldi vilja til að önnur okkar skipti um skoðun og vildi
eignast fleiri börn, höfum við samið um að tilkynna hinni
það, svo hún gæti þá orðið ófrísk líka,“ segir Ina. „Pessi
reynsla hefur nefnilega verið svo heillandi að við hefðum
ekkert á móti því að endurtaka hana.“
„Við höfðum alls ekki ákveðið að fæða saman, það kom bara af sjálfu sér,‘'
segja Jytte (t.v.) og Ina.
# Heilsu-
gæsla í
dýrari
kantinum
Það getur verið dýrt að
fara til læknis, það vita
allir, a.m.k. hjónin sem
voru á ferð um ónefnda
sveit hér á Norðurlandi
með ungum syni sínum.
þegar þau höfðu dvalið
þar um stund taka þau eft-
ir torkennilegu útbroti
sem komið hafði fram á
handlegg drengsins. Þar
sem þau höfðu aldrei séð
neitt þessu líkt áður urðu
þau sammála um að best
væri að iáta lækni líta á
þetta. Skunduðu þau þvi á
heilsugæslustöð sem var
þar skammt frá. Þar tók á
móti þeim kvenmaður
sem var öll hin alúðleg-
asta. Hún skoðaði hand-
legg drengsins og lýsti
því síðan yfir að hún hefði
aldrei séð svona lagað
áður. Spurði hún hjónin
hvort þau væru ekki á leið
til Akureyrar og svöruðu
þau því játandi. Sagði hún
að best væri að fara með
hann til læknis þar og láta
líta á þetta. Var þá heim-
sókninni lokið og þökk-
uðu hjónin fyrir sig og
hugðust ganga á dyr. En
því var nú aldeilis ekki að
heilsa, þeim var vinsam-
lega bent á að þau ættu
eftir að greiða reikning
upp á 280 krónur og orð-
laus hjónin áttu að sjálf-
sögðu engra kosta völ og
lr
greiddu reikninginn. Þess
má geta að „skoðunin“ tók
u.þ.b. tvær mínútur.
• Hjá
tannlækni
Fyrst við erum byrjuð á
svona sögum þá er sjálf-
sagt að bæta aðeins við.
Kona ein hér á Akureyri
fór með dóttur sína til
tannlæknis. Hún átti aðra
yngri stúlku sem hún vildi
ekki skilja eftir eina heima
þannig að hún fékk að
fara með tii tannlæknis-
ins. Segir síðan ekki af
þeim mæðgum fyrr en
viðgerðinni í eldri stúlk-
unni er lokið. Sú litla hafði
staðið opinmynnt hjá og
fylgst með undrum
læknavísindanna. Þar
sem henni þótti þetta
meira en Iftið heillandi
linnti hún ekki látum fyrr
en móðirin gafst upp og
spurði lækninn hvort
hann myndi ekki vilja
leyfa henni að setjast
örlitla stund í stólinn. Það
reyndist auðsótt mál og
alúðlegur tannlæknirinn
lét meira að segja svo lítið
að hífa stólinn upp og
stinga speglinum í munn
stúlkunnar. Síðan skutl-
aði hann henni niður, til-
kynnti henni að hún væri
greinlega dugleg að
bursta tennurnar og bætti
siðan 1350 krónum á
reikninginn! Þetta mun
hafa verið fyrir nokkru
þannig að sjálfsagt þætti
þetta vel sloppið í dag.