Dagur - 15.07.1986, Side 5

Dagur - 15.07.1986, Side 5
15. júlí 1986 - DAGUR - 5 Undirbúningsnefnd að afmælishófí 45 ára Hólasveina ásamt eiginkonum sínum. Hólasveinar hitta í marií Framfærsluvísitalan: Hækkaði um 1,43% í júní Kauplagsnefnd hcfur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í júlíbyrjun 1986. Revndist hún vera 170,89 stig eða 0,43% hærri en í júníbyrjun 1986. Af þessari hækkun stafa 0,3% af hækkun á verði matvöru og þar af 0,1% af verðhækkun land- búnaðarafurða. 0,1% stafa af hækkun á yerði fatnaðarvöru og 0,3% af verðhækkun ýmissa vöru- og þjónustuliða. Þessu til frádráttar kemur verðlækkun á bensíni um 7,1% 3. júlí sl., sem olli 0,3% lækkun vísitölunnar. Síðstliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 21,5%. Hækkun vísi- tölunnar um 0,43% á einunt mánuði frá júní til júlí svarar til 5,3% árshækkunar. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,8% og jafngildir sú hækkun 11,8% verðbólgu á heiiu ári. Aðalfundur Dagsprents h.f. - 45 ára Hólasveinar hittust á Akureyri nýlega og rifjuðu upp skemmtileg atvik fyrri ára „Dýrðlegt veður endurnærði okkar fríða ferðahóp.“ Afmælishófíð þótti takast Ijómandi vel, enda hópurinn ákaflega heppinn með veður. Pegar hittast Hólamenn hlýtur gleðin völdin. Við getum saman sungið enn svo að styttist kvöldin. Þeir Hólasveinar sem út- skrifuðust úr Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal árið 1941 hittust á Akureyri góðviðris- helgina síðustu í júní, en þá voru liðin 45 ár frá útskriftinni. Hinir 45 ára Hólasveinar voru að hittast formlega í þriðja siptið frá því þeir skildu við Hólaskóla, ungir menn. í mars árið 1971, þegar liðin voru 30 ár frá útskrift hittust Hólasveinar á Hótel Sögu í Reykjavík „og vorum við konu- lausir í það sinnið," sagði Björg- vin Jónsson, einn af Hólasvein- um. Þá var það næst árið 1981, á 40 ára afmælinu sem þeir hittust, Hólasveinarnir og það árið var einnig hist í Reykjavík. Farið var í skoðunarferð um Reykjanes og hafði Hjalti Pálsson leiðsögn fyrri hluta leiðarinnar eða til Grinda- víkur, en síðari hlutann Friðrik Pétursson og var gerður góður rómur að leiðsögn þeirra. Og svo var það þriðja skiptið sem hinir síungu Hólasveinar hittust, en það var nú fyrir skömmu á Akur- eyri. Hólasveinar sem yfirgáfu skól- ann árið 1941 voru 27 talsins, af þeim hópi mættu 22 til Akureyr- ar. „Þetta er alveg sérstakur þjóðflokkur, þessi árgangur. Menn eru dreifðir um alla landshluta, en samt er mætingin alltaf einkennilega góð. Við tengdumst sterkum vinaböndum á meðan við vorum á Hólum og þau eru alltaf að styrkjast." Björgvin sagði að mjög vel hefði tekist til með hófið á Akur- eyri. Á laugardagsmorgni settust menn upp í rútu og byrjað var á að aka um bæinn undir leiðsögn Árna Jóhannssonar. Síðan var haldið áfram og farið fram í Fjörð. Þetta var einmitt daginn sem flóð voru hvað mest í Eyja- fjarðará. Kirkjan á Grund var skoðuð og síðan farið í bæinn þar sem borðað var í Fiðlaranum, „og voru menn hátt uppi í gleði og gáska.“ Um kvöldið hittust menn að Hótel KEA og rifjuðu upp skemmtileg atvik frá fyrri árum. Björgvin sagði að fundur Hóla- sveina hefði tekist ljómandi vel og menn farið ánægðir heim. Þeir Björgvin Jónsson, Björn Gests- son á Björgum og Jón Laxdal í Nesi sáu um allan undirbúning. Næst fyrirhuga Hólasveinar að hittast að Hólum eftir 3 ár og hef- ur Skagfirðingum verið falið að undirbúa þá samkomu. „Við norðanmenn viljum þakka öllum sem hingað komu fyrir góða samveru og við hugs-i um vel til þeirra sem ekki komust að þessu sinni. En við vonum að þeir sjái sér fært að koma næst." í samsæti á Hótel KEA flutti Björgvin Jónsson brag er hann kallar Hólamannabrag. Við end- um á síðasta erindi bragsins, en það sagði Björgvin að hefði verið ort í tilefni dagsins: Drottinn okkur dásemd færði dýrðarveður endurnærði okkar fríða ferðahóp. Nú er gott að syngja saman sjá í augum Ijóma gaman líkt og æskan eitt sinn skóp. Glaðbeittir og síungir. Hluti hópsins sem útskrifaöist úr Bændaskólanum á Hólum árið 1945 á góðum degi. Myndir: Sigríður Magnúsdóttir. veröur haldinn mánudaginn 28. júlí n.k. kl. 17.00. í kaffistofu Dagsprents h.f. Strandgötu 31, Akur- eyri. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga um útgáfu á jöfnunarhlutabréfum. 3. Önnur mál. Akureyri 9. júlí 1986. Stjórn Dagsprents h.f. Nýsmíði - Endurbætur - Þjónusta Hurðir • Gluggar • Gler frá Glerborg Leitið upplýsinga og verðtilboða -trésm/Öjan »j Furuvöllum 1, 600 Akureyri, s. 96-24000 Notice to British Citizens resident in lceland Representation of the people act 1985 Regulations recently approved by both Houses of Parliament extend the franchise to certain British Citizens abroad and allow holidaymakers an absent vote. The Regulations will enable British Citizens abroad who have been present in the UK and registered as electors within the previous five years to make an annual declaration. This will allow their name to be included on the Electóral Register in the Constitu- ency where they were registered before they went abroad and to vote by proxy at any Parliamentary or European Parliament elections which occurs during the life of that register. Declaration forms are available from the British Emb- assy, Reykjavik, and persons who consider that they may have an entitlement undir the Act should contact the Embassy for furhter information.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.