Dagur - 15.07.1986, Page 6

Dagur - 15.07.1986, Page 6
6 - DAGUR - 15. júlí 1986 15. júlí 1986 - DAGUR - 7 / Heimsókn að Sumir segja að alls staðar sé fallegt í góðu veðri. Mér hefur alltaf fundist fallegt að koma heim að Ástjörn, ekki man ég hvort veðrið hefur alltaf verið gott, en hins vegar man ég að þar mætir manni alltaf gestrisni og sérlega hlýlega er tekið á móti fólki. Ekki brá út af þeim vana er ég kom við í góða veðrinu í síðustu viku. Þá var venju fremur barnmargt á Ástjörn því ungir gestir úr sumarbúðum UNÞ voru í heimsókn. Knattspyrnukeppni var að ljúka og gestirnir fengu að fara á bát- ana á tjörninni. Síðan voru þeim bornar veitingar í brúsa-og bala- magni að sjálfsögðu út í veðurblíðuna, að lokum voru þeim gefnar gjafir til minningar um komuna. Það er gott að vera gestur við Ástjörn, en hvernig er að dvelja þar? Því svara drengirnir og starfsfólkið. Það er vinsælt að skreppa út á tjömina á bát eða skútu Pétur Björgvin Þorsteinsson var forsvarsmaður Ástirninga því forstöðumaðurinn Bogi Péturs- son hafði aðeins þurft að bregða sér af bæ þennan daginn. „Ég kom hérna fyrst sex ára polli og hef komið hér hvert ein- asta sumar síðan en mismikið á hverju sumri. Nú er ég að vinna hérna og ætli það megi ekki kalla ntig aðstoðarsumarbúðastjóra. Það er söfnuðurinn á Sjónar- hæð sem rekur sumarbúðirnar og hingað koma sjálfboðaliðar frá bræðrasöfnuði hans í Færeyjum, einnig koma gamlir Ástirningar og hjálpa til. Þó söfnuðurinn á Sjónarhæð hafi aðeins aðrar skoðanir á trúmálum en þjóð- kirkjan er talað eins við börnin hérna og í öðrum kristilegum sumarbúðum. Það hefur aðeins komið til tals að gera Ástjörn að sjálfseignarstofnun vegna þess hve margir úr þjóðkirkjunni vinna hér. I suntar eruni við með 78 drengi og þetta er fertugasta sumar starfseminnar. Fyrir 41 ári kom Arthur Gook hingað og hafði hug á að stofna hér sumar- búðir. Hann hélt á fund Sigríðar í Ási, landeigandans. Hún sagði að margir hefðu áður ásælst þennan stað en hún hefði alltaf neitað en börnunum gæti hún ekki neitað. Sumarið eftir var byrjað, þá var vikudvöl fyrir drengi og viku- dvöl fyrir stúlkur. Síðan þróaðist þetta þannig að stúlkunum fækk- aði alltaf en aðsókn drengjanna jókst, einnig hef ég heyrt því fleygt að erfiðara hafi verið að stjórna stelpunum, alla vega var þetta gert að drengjaheimili ein- göngu og við höfum fulla aðsókn drengja í þessa tvo ntánuði. Þeir dveljast hér ýmist í einn eða tvo mánuði. Það tók sautján ár að byggja húsið sem við erum í núna, en nýja húsið var byggt á 44 dögum, að vísu var það flutt hingað frá Kröflu. Það hús heitir Maríubúð og er nefnt í höfuðið á Maríu Pétursdóttur systur Boga sem var ráðskona hér í mörg sumur. Hún stóð ýmist við olíu-, kola- eða gaseldavélar, bakaði allt brauð og eldaði allan mat. Þá voru aðstæður allt aðrar. Fyrst yar bragginn þar til þetta hús kom og Pétur Björgvin Þorsteinsson, húsið í baksýn. t.d. kom ekki rafmagn fyrr en 1968 hingað. Nú eru hérna tíu sinnum fleiri drengir en í fyrstu og stundum er starfsfólkið einnig tíu sinnum fleira. Einn daginn geta verið fimmtán manns að vinna hér en næsta dag þrjátíu, þetta er svo rokkandi vegna starfa sjálfboða- liðanna. Við erum aðeins fjögur á launum hérna og störfum allt sumarið. Sjálfboðaliðarnir starfa aftur á móti skemur, frá einni helgi og upp í þrjár vikur eða mánuð. Bogi hefur verið for- stöðumaður hérna í tuttugu og sjö ár og hann hefur aldrei þegið krónu fyrir sína vinnu.“ Bogi hefur verið forstöðumað- ur hérna í tuttugu og sjö ár og hann hefur aldrei þegið krónu fyrir sína vinnu.“ - Hvernig gengur dagurinn fyrir sig á Astjörn? „Allir strákarnir vakna klukk- an átta á morgnana og safnast saman í Maríubúð eða þar fyrir utan ef veðrið er gott. Þá er morgunsöngur. Söngurinn i*r nú ekki alltaf alveg æðislegur svona í morgunsárið, en þeir vakna við hann. Síðan er morgunbæn og fánahylling, þá kemur að morg- unmatnum þegar drengirnir eru búnir að vera á fótum um það bil klukkutíma. Eftir morgunmat fer elsti hópurinn í biblíutíma, alla daga nema sunnudaga og síðan út að leika sér með hinum drengjunum. Það er hægt að fara bæði á árabáta og skútur á vatninu og skógurinn býður upp á allt mögu- legt fyrir stráka með hugmynda- flug. Einnig er fótboltavöllur hér fyrir ofan og hann er mjög mikið notaður, íþróttakennari kemur hér tvisvar í viku. Eftir hádegis- mat fer miðaldurshópurinn í í biblíutíma og yngsti aldurshópur- inn eftir kaffið. Eftir kvöldmat safnast allir sáman í salnum og gera ýmislegt sér til dundurs, syngja saman, horfa á góða teiknimynd og stundum eru kvöldvökur og þá er oft mikið stuð á mannskapnum. Einn daginn fórum við með alla inn að Hljóðaklettum. Það þótti þeim æðislegt sport og þeir sem voru búnir að vera hér áður montuðu sig af því hvað oft þeir væru búnir að koma þangað. Þetta er árlegur viðburður ásamt því að fara í Asbyrgi, að Grettisbæli og jafnvel upp á Hafrafell ef vel viðrar. Við förum upp að tjörn sem við köllum Litlutjörn en ég held að heiti Botnstjörn. Við fáum hesta frá hestaleigunni og ýmislegt svona breytir út af hinni venjulegu dagskrá.“ - Fáið þið oft heimsóknir eins og í dag? „Við höfum fengið hundrað manna kór frá Færeyjum í heim- sókn og fleiri kóra og hópa. Um daginn kom fólk frá vinabæjum Akureyrar á Norðurlöndum, það var fólk sem sér um unglingastarf í sinni heimabyggð. Þeir fóru í fótbolta við strákana og fleira og það var gaman að sjá hvað strákarnir höfðu gaman af að tala við útlendingana þó að þeir skildu ekkert hvað sagt var við þá. Ef til vill hafa þeir svolítið lært að reyna að krafla sig áfram í dönsku og ensku við að tala við Færeyingana sem vinna hérna, annars eru Færeyingar furðu fljótir að læra íslenskuna, þetta eru svo lík tungumál.“ - Á ekki að fara að bjóða stúlkum sumardvöl? „Það hefur aðeins komið til tals, en aðsóknin hjá strákunum er svo mikil og oft vill sumarið vera stutt svo að þetta er spurning. En þegar búið verður að einangra húsið betur getum við boðið upp á haustdvöl. Það væri óskandi að stelpur gætu líka verið hérna því margar segja þeg- ar þær heimsækja bræður sína: „O, af hverju get ég ekki fengið að vera hérna.“ - Sérð þú einhverja kosti við að hafa bara annað kynið? „Já, því fylgja margir kostir, maður nær betur til hópsins og það ber meira á feimni í blönduð- um hópi. Eins hef ég tekið eftir því að strákarnir ærslast miklu meira þegar stelpur eru, því þá þurfa þeir að sýna sig.“ - Koma drengirnir frá mörg- um stöðum á landinu? „Já, flestir í sumar eru af Reykjavíkursvæðinu, en hingað til hafa flestir verið frá Akureyri og nágrenni, þetta er að breytast. Hver sem er getur sótt sumardvöl en drengirnir eru á aldrinum 6 til 12 ára. Hins vegar þarf að huga að því snemma því að í vetur var upppantað í janúar." - Finnur þú aukinn trúar- áhuga hjá drengjuum eftir dvöl- ina hérna? „Maður tekur kannski mest mið af því sem foreldrar hafa sagt en þeir hafa margir orð á því að strákarnir hlýði miklu betur og séu allt öðruvísi þegar þeir koma heim. Það sem mér finnst hafa breyst þennan tíma sem ég hef verið starfsmaður er að áhugi stráka á trúmálum er að aukast. Á laugar- dagskvöldum höfum við svokall- aðar vitnisburðarsamkomur og þar standa upp allt niður í sjö ára strákar og segjast hafa lært mikið um trúmál hér og að þekkja Jesúm og þetta horfir maður mest á og finnst stórkostlegast.“ - Er trúarlegt uppeldi vanrækt á íslandi í dag? „Það er alveg pottþétt, kannski vegna þess að ömmurnar eru allt of mikið komnar á elliheimili. Þetta var annað fyrir krakka á mínum aldri, amma kenndi mér að biðja og amma kenndi mér versin mín, en núna koma hingað margir krakkar sem segjast aldrei Jónas Páll fékk pakka með póstinum. hafa lært að biðja og ekkert vita hvað það sé og þá finnst manni oft stórkostlegt að geta tekið að sér ömmuhlutverkið. Annars er þetta mjög mismunandi eftir heimilum." - Að lokum Pétur, hvernig verður haldið upp á fertugsaf- mælið? „Afmælishátíðin verður laug- ardaginn níunda ágúst og við vonumst eftir að sem allra flestir heimsæki okkur, bæði gamlir Ástirningar og foreldrar þeirra og allir sem áhuga hafa á starf- inu. Það er hægt að tjalda hérna eða inni í Ásbyrgi og öllum er velkomið að dvelja hér um helg- ina. Eins og fylgir veislum mun sjálfsagt einhver taka til máls og eitthvað verður um að vera, en ekki er komin mótuð dagskrá enn. Fyrst og fremst er hugsað um að fólk geti komið saman þessa helgi hérna.“ IM „Kynnist Jesú betur“ Geir Magnússon er ellefu ára, hann sagðist eiga heima í Akur- gerði 3 d á Akureyri og vinna við að bera út Dag. Hann sýndi mér Geir Magnússon. þann heiður að bjóða mér upp í skóg að skoða bænarjóðrið sitt. Það dvelur hann oft, fer með bænirnar sínar eða les í bók. - Er þetta í fyrsta skipti sem þú ert á Ástjörn? „Já og mér líkar mjög vel. Maður kynnist svo mörgu nýju, t.d. kynnist maður Jesú betur og mér líður miklu betur. Ég er miklu meira farinn að vera með honum og á bænarjóður, mér finnst miklu skemmtilegra, leik mér meira, en fyrst eftir að ég kom leiddist mér svolítið. Svo hefur mér gengið vel í ýmsu og Guð hefur verið með mér í marga daga.“ - Ætlar þú að byggja bæna- hreiður þegar þú kemur heim? „Ef ég finn góðan stað þó að hann sé langt í burtu, eins og staðurinn minn hérna sem er svo- lítið langt frá.“ - Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera hérna? „Mér finnst skemmtilegast að vera á nýju skútunum, þær eru miklu betri en hinar. Ég er mikið á skútunum en mjög lítið á árabátunum. Mér líkar ntjög vel við fólkið sérstaklega Önnu og Boga, Bigga og Óðin. Það eru allir góðir hérna og maturinn er ágætur. En svolítið misjafn, sumt vill maður ekki borða.“ - Hvað þá fáið þið ekki neitt? „Þá segja þeir bara að þessi drengur sé ekki á sérfæði hann eigi að borða þetta eða ekki neitt og maður fær að kynnast því. Þegar ég var heima var ég líka alltaf í ísskápnum og borðaði aldrei á matmálstímum, en hérna þýðir það ekkert svo kannski venst ég þessu.“ - Heldur þú að þú hafir gott af því? „Örugglega, maður á ekki að vera að borða mikið á milli mála. Það er margt hérna sem maður lærir vel af. Það verður örugglega margt að segja mömmu og pabba þegar ég kem heim. Þau hafa einu sinni heimsótt mig og þá sváfum við í Ásbyrgi, skeifunni þar sem Sleipnir rak niður fótinn.“ IM „Bogier alveg sérstakur“ Þegar rúmlega hundrað börn voru sest í hring framan við Ástjörn og biðu eftir veitingum, vaknaði sú spurning hvort ekki væri mikil vinna að elda ofan í allan fjöldann. Það lá beinast við að fara í eldhúsið og spyrja ráðs- konuna Guðrúnu Sigurðardótt- ur. Þetta er fyrsta sumarið sem hún vinnur á Ástjörn. „Ég skal segja þér að það er býsna gott að elda ofan í hópinn, ég var fljót að venjast því og núna finnst mér eins og ég sé búin að vera við þetta í mörg ár. Það má segja að vinnudagur- inn sé langur, ég er komin hérna rúmlega sjö á morgnana og kem heim til mín um klukkan átta á kvöldin og ég vinn alla daga vik- unnar. Ég ek á milli því að ég á heima í Öxarfirðinum." - Ert þú með mikla hjálp í eld- húsinu? „Auk mín er ein stúlka í eld- húsinu, svo vilja allir hjálpa til. Strákarnir snúast í kringum mig og eru mjög liprir að hjálpa mér.“ - Hvað finnst þeim best að borða? Guðrún Sigurðardóttir rúðskuna. „Það besta sem þeir fá er pönnuhakk, mér finnst þeir taka því vel að þorða svona reglulega og þeir hafa góða lyst. Byrja á morgnana með hafragraut og borða hann vel, en það kom mér á óvart, því örugglega eru ntargir krakkar hér sem aldrei hafa feng- ið hafragraut á morgnana. Nú borða allir hafragraut og líkar vel. Það er gaman að elda ofan í þessa krakka, virkilega gaman. Þau eru þakklát og láta það í ljós ef maturinn er góður og það segja þau yfirleitt.“ - Eitthvað sem þeim líkar miður? „Ég man ekki til þess, þó að ég segi sjálf frá held ég að þeim líki yfirleitt maturinn. Mér líkar sérstaklega vel að vinna hérna. Hér eru öll þægindi og Bogi er alveg sérstakur. Hann vill allt fyrir starfsliðið sitt gera. Hann ætti svo mikið skilið þessi maður, hann er búinn að fórna sjálfum sér fyrir þetta og það er mikill plús við að vinna hérna hvað hann hugsar vel um okkur starfsfólkið. IM Ellert Rúnarsson. „Það er ofcalega gaman hénia" Ellert Rúnarsson er ellefu ára, hann kemur frá Keflavík og þetta er annað sumarið hans á Ástjörn. - Líkar þér vel? „Það er ofsalega gaman hérna, það er gaman á bátunum og veðr- ið er svo gott, fólkið er skemmti- legt. Mér finnst mest gaman núna að vera í skóginum og leika mér. Það eru líka bænastundir á morgnana, við morgunmatinn og í hádeginu. Sumir eiga líka bæna- hreiður." - Hvernig eru þau? „Það eru holur í skóginum þar sem strákarnir biðja bænirnar sínar. Við ráðum hvort við förum í bænahreiðrin til að biðja þegar okkur líður illa og svoleiðis. Ég á ekkert bænahreiður núna, bið bara inni í Maríubúð." - Ert þú að hugsa um að búa til bænahreiður þegar þú kemur heim? „Já, ég á vin sem gæti búið það til með mér.“ - Eitthvað fleira sem þið hafið verið að gera hérna? „Þegar veðrið er vont fáum við að horfa á videó, He-man og svo- leiðis myndir, það hefur verið leiðinlegt veður í nokkra daga.“ IM Ásgeir Örn Hlöðversson. „Krakkamír eru skemmtilegir“ Ásgeir Örn Hlöðversson á heima í Reykjavík og þetta er hans fyrsta sumar á Ástjörn. - Hvernig líkar þér? „Bara vel, krakkarnir eru skemmtilegir og svona.“ - Hvað er skemmtilegast að gera? „Bara allt, en ég held að bát- arnir séu skemmtilegastir og mér líkar vel við fólkið. Ég hef kynnst krökkum frá Húsavík, Akureyri og fleiri stöðum." - Hefur þú áður verið í sveit? „Já, en ég man ekki alveg hvað það heitir, Langholt eða eitthvað svoleiðis, en það er miklu skemmtilegra að vera á Ástjörn." IM Sigurbjörn Hreiðarsson. „Læri mannasiði og alltu Sigurbjörn Hreiðarsson er frá Reykjavík, hann er tíu ára og þetta er þriðja sumarið hans á Ástjörn. „Mér líkar allt hérna mjög vel, en fótboltinn er skemmtilegast- ur.“ - Hvað lærir þú hérna? „Ég læri margt, mannasiði og allt.“ - Langar þig að koma aftur næsta sumar? „Já, fyrir tveim dögum var lið- ið okkar að vinna gullmedalíu á pollamótinu á Raufarhöfn, ég spila center í liðinu." IM

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.