Dagur - 15.07.1986, Síða 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
15. júlí 1986 - DAGUR - 9
Að lokinni verðlaunaafhendingu. Hluti þátttakenda á meistaramóti GH um helgina.
Meistaramót Golfklúbbs Húsavíkur:
Einn keppendanna
fór holu í höggi
- Öruggur sigur Kristjáns í 1. flokki
Meistaramóti Golfklúbbs
Húsavíkur lauk á sunnudag.
Keppt var í fjóra daga og 27
þátttakendur hófu keppni.
Keppt var í þrem flokkum
karla, einum kvennaflokki og
einum unglingaflokki.
2. Kristinn Lúðvíksson 391
3. Jón Guðlaugsson 392
Kvennaflokkur: högg
1. Sigríður Birna Ólafsd. 438
2. Þóra Sigmundsdóttir 447
3. Arnheiður Jónsdóttir 449
kostleg tilfinning sem erfítt væri
að lýsa.
Hann leikur í öðrum flokki,
byrjaði að leika golf 1975, þó hef-
ur hann ekki stundað íþróttina
samfleytt síðan.
Kemst KA á
toppinn á ný?
- Liðið sækir Einherja heim í kvöld
í kvöld lýkur 10. umferð í 2.
deildinni í knattspyrnu en þá
mætast Einherji og KA á
Vopnafirði kl. 20. Bæði liðin
eru í toppbaráttuni og þurfa
nauðsynlega á sigri að halda.
KA hefur 19 stig en Einherji er
með 17 stig.
KA leikur í kvöld án Hauks
Bragasonar markvarðar sem er
meiddur. Haukur meiddist á
æfingu sl. sunnudag og verður frá
í a.m.k. mánuð. Dagur hafði
samband við Gústaf Baldvinsson
þjálfara KA og Njál Eiðsson
þjálfara Einherja og spurði þá
um leikinn í kvöld.
„Við höfum náttúrlega orðið
fyrir miklu áfalli við það að missa
Hauk. Ég veit að þetta verður
erfiður leikur, Einherji hefur
ekki tapað leik heima í tæp tvö
ár. En við munum samt sem áður
fara með það sem markmið að
ná þremur stigum. F>að verður
engin breyting þar á. Ég veit þó
af reynslu að það er ekki hlaupið
að því að ná stigum á Vopnafirði.
En með góðum leik eigum við
möguleika á sigri og þá komumst
við á toppinn á ný og þar er best
að vera.“
- Hefur árangur Einherja
komið þér á óvart?
„Nei alls ekki. Ég þekki það
vel til þessara stráka og þetta er
nánast það sama lið og ég þjálf-
aði fyrir nokkrum árum og að
auki hefur Njáll bæst í hópinn og
hann er topp leikmaður. Nú svo
er það líka það, að 2. deildin í ár
er frekar slök. Það eru þarna lið
sem eru mjög slök. Nú ef við
vinnum Einherja þá standa þeir
bara eftir um miðja deild þannig
að það má lítið út af bera,“ sagði
Gústaf Baldvinsson þjálfari KA.
„Leikurinn leggst vel í mig.
KA-menn skulu aldeilis fá að
hafa fyrir því ef þeir ætla að ná
stigi hér á Vopnafirði. Þeir fengu
svo auðveldan sigur í vor á Akur-
eyri. Þeir áttu að vísu sigurinn
skilið í þeim leik en hann var að
mínu viti of stór og við eigum
harma að hefna. Við verðum
með okkar sterkasta lið í leikn-
um,“ sagði Njáll Eiðsson.
- Ertu ánægður með árangur
Einherja það sem af er?
„Já, ég held að það sé ekki
hægt annað en vera ánægður.
Þetta hefur gengið vonum
framar. Þar fyrir utan eigum við
sex heimaleiki eftir en aðeins
þrjá úti. En það er ekki nóg að
eiga þessa leiki eftir, þeir verða
að vinnast."
- Er þið farnir að horfa til 1.
deildar sætis?
„Nei, það held ég ekki. En ef
við vinnum KA í kvöld getum við
kannski farið að gæla við þá hug-
mynd en annars ekki. Þetta er
geysilega mikilvægur leikur fyrir
bæði lið. En Einherji hefur aldrei
unnið KA, liðið hefur gert jafn-
tefli við þá hér heima en annars
tapað og við erum ákveðnir í því
að gera bót þar á,“ sagði Njáll
Eiðsson þjálfari Einherja að
lokum.
Úrslit urðu þessi:
Karlar 1. flokkur: högg
1. Kristján Hjálmarsson 315
2. Ragnar Þór Ragnarsson 329
3. Axel Reynisson 339
Karlar 2. flokkur: högg
1. Gísli Vigfússon 350
2. Örvar Þór Sveinsson 352
3. Hreinn Jónsson 352
Karlar 3. flokkur: högg
1. Hjálmar Vigfússon 382
Unglingaflokkur: högg
1. Sigþór Skúlason 410
2. Hörður Harðarson 528
Hreinn sló draumahöggið.
Hreinn Jónsson Golfklúbbi
Húsavíkur fór holu í höggi á mót-
inu um helgina. Þetta gerðist á
þriðju braut og notaði Hreinn
járn no. 8.
Hreinn sagði að þetta hefði
verið mjög ánægjulegt og stór-
Meistaramót Golfklúbbs Sauðárkróks:
Góð þátttaka
Meistaramót Golfklúbbs Sauð-
árkróks hófst á miðvikudag í
síðustu viku og lauk á laugar-
dag. Góð þátttaka var í mót-
inu. I öðrum og þriðja flokki
voru leiknar 72 holur af gulum
teigum, í fjórða flokki voru
ieiknar 54 holur og í fimmta
flokki og unglingaflokki voru
leiknar 36 holur af rauðum
teigum.
Úrslit urðu þessi:
2. flokkur: högg
1. Haraldur Friðriksson 334
2. Steinar Skarphéðinsson 346
3. Halldór Tryggvason 369
3. flokkur:
1. Stefán Pedersen 345
2. Sverrir Valgarðsson 361
3. Sigfús Sigfússon 364
4. flokkur:
1. Sigmundur Guðmundsson 272
2. Páll Þorsteinsson 276
3. Kári Valgarðsson 292
5. flokkur:
1. Björn Jón Björnsson 203
2. Björgvin Sveinsson 204
3. Jón Hreinsson 217
Unglingaflokkur:
1. Friðrik Haraldsson 197
2. Guðmundur Sverrisson 219
3. Kristján Kristjánsson 248
Verður ekkert mát?
Frestur til að tilkynna þátttöku
í íslandsmóti Körfuknatt-
leikssambands íslands rann út
4. júlí sl. ,
Einungis þrjú lið hafa tilkynnt
þátttöku í Úrvalsdeild og enn
færri í aðrar deildir.
Þar sem gert er ráð fyrir því að
piðurröðun íslandsmóts hefjist
strax upp úr 15. júlí þá er allt útlit
til þess að fjöldinn allur af liðum
sem þátt tóku í íslandsmótinu s.l.
ár verði ekki með þetta árið.
Ef fram fer sem horfir þá verð-
ur íslandsmótið fremur fámennt.
Unglingalandsliðið á
ferð um Norðuiiand
Landslið íslands í knattspyrnu
skipað leikmönnum 18 ára og
yngri var fyrir og um helgina á
æfíngaferð um Norður- og
Austurland og lék fjóra leiki í
ferðinni. Fyrst gegn Tinda-
stóli, síðan Magna á Grenivík,
þá liði KA og síðast gegn
úrvalsliði ÚÍA.
A fimmtudag léku strákarnir
gegn Tindastóli á Sauðárkróki og
lauk leiknum með sigri landsliðs-
strákanna sem skoruðu þrjú
mörk gegn tveimur mörkum
heimamanna.
Grenvíkingar gerðu betur er
Knattspyrna:
Auðunn
heldur hreinu
Auðunn Sigurðsson markvörð-
ur Hvatar á Blönduósi hefur
haldið marki sínu hreinu það
sem af er Islandsmótinu. En
lið hans hefur leikið sjö leiki í
fjórðu deildinni til þessa.
Þetta er fyrsta árið sem Auð-
unn leikur sem aðalmarkvörður
liðsins. Hefur hann sýnt framfarir
í hverjum leik og spurningin er
hver verður fyrstur að skora
mark hjá honum í ár.
Hafa menn jafnvel talað um að
árangur hans sé íslandsmet en
það hefur ekki fengist staðfest.
þeir mættu landsliðsstrákunum.
Þeir sigruðu í leiknum sem fram
fór á Grenivík á föstudag með
einu marki gegn engu. Einn
hinna ungu leikmanna Magna lék
vel í leiknum og var hann valinn
til að spila með unglingalandslið-
inu gegn KA daginn eftir og stóð
sig vel í þeim leik. Þetta var Þor-
steinn Jónsson. En þrátt fyrir að
Þorsteinn léki vel gegn KA tap-
aði liðið leiknum 2:0.
Síðasti leikur landsliðsstrákana
var gegn úrvalsliði ÚÍA og fór
leikurinn fram á Eiðum á sunnu-
dag. Landsliðsstrákarnir sigruðu
með fjórum mörkum gegn
þremur.
Þess má geta að auk Þorsteins
frá Grenivík tóku þrír Akureyr-
ingar þátt í þessari æfingaferð,
þeir Árni Þór Árnason og Páll V.
Gíslason úr Þór og Gísli Símon-
arson úr KA.
Næsta alvöru verkefni liðsins
er Evrópumótið í haust.
Með liðinu í þessari ferð voru
þeir Guðni Kjartansson þjálfari
U-21 árs landsliðsins og Sigfried
Held landsliðsþjálfari karla.
Héldu þeir ásamt Lárusi Lofts-
syni þjálfara U-18 ára landsliðs-
ins námskeið hér á Akureyri og
þar m.a. útskýrði Lárus nýjar
æfingar sem komu fram á þjálf-
aranámskeiði sem hann sótti í
apríl síðastliðnum ásamt Guðna
og Sigurbergi Sigsteinssyni þjálf-
ara kvennalandsliðsins. Einnig
gátu þeir þjálfarar sem nám-
skeiðið sóttu rætt við þá félaga á
eftir.
Þá voru þeir Held og Guðni
með æfingu hér á Akureyri og
eins á Húsavík fyrir yngstu knatt-
spyrnumennina og vakti það
mikla ánægju fjölmargra þátttak-
enda.
Ekki er annað hægt en að
þakka þeim KSÍ-mönnum fyrir
komuna til Norðurlands og þessi
ferð þeirra er mikil lyftistöng fyr-
ir knattspyrnuna á svæðinu.
KA - Einherji:
Bein lýsing
á leiknum
Eins og fram kemur í blaðinu í
dag verður hörkuleikur í 2.
deildinni í knattspyrnu í kvöld
á Vopnafirði. Þar mætast
heimamenn, Einherjar og KA-
menn kl. 20.
KA-menn verða með skemmti-
lega nýbreytni í kvöld en þeir
ætla að lýsa leiknum beint sím-
leiðis í nýja KA-húsið. Mun Þor-
móður Einarsson sjá um að lýsa
leiknum.
Allir knattspyrnuáhugamenn
eru velkomnir upp í KA-hús til
að fylgjast með leiknum í beinni
útsendingu sem hefst kl. 20.