Dagur - 17.07.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 17.07.1986, Blaðsíða 3
17, júlí 1986 - DAGUR - 3 Fyrir utan höfuðstöðvar Dags á Sauðárkróki. Ungu mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Karl Sigurðsson framkvæmdastjóri Dags, ritstjórinn Hermann Svcinbjörnsson og blaðamaður Dags á Sauðárkróki Þórhailur Asmundsson. Myndir: mþþ Skagfiröingar og Sauökrækingar kunni eins og Húnvetningar aö meta þetta framtak. Áhugi Þing- eyinga og Húsvíkinga á blaóinu jókst mjög áþreifanlega þegar skrifstofa Dags á Húsavík var opnuð í september í fyrra. Innan tíöar veröur veruleg breyting á samskiptum milli skrifstofanna annars vegar og ritstjórnar blaösins á Akureyri. Nú þegar skrifa allir blaðamenn á Akureyri fréttir og annað efni inn á tölvur og þegar í næsta mánuöi má reikna meö aö fréttamennirn- ir á hinum stööunum tengist rit- stjórnarskrifstofunni á Akureyri meö tölvutengingu. Þeir munu þá skrifa sitt efni beint inn á tölvu og sentla síðan textann um símalínu inn í móöurtölvuna í Dagsprenti, þar sem efniö veröur framkallað meö sama hætti og þaö sem skrif- aö er á ritstjórninni á Akureyri. mþþ/HS Degi fagnað á Blönduósi, Frá vinstri Bessi H. Þorsteinsson hótelstjóri, Sigmar Jónsson fulltrúi kaupfélags- stjóra, Árni S. Jóhannsson kaupfé- lagsstjóri og Guðrún Ólafsdóttir eiginkona Gests blaðamanns Krist- inssonar. Dagur færir út kvíamar — skrifstofur opnaðar á Blönduósi og Sauð- árkróki, sem verða tölvutengdar við ritstjórn á Akureyri innan tíðar Um síöustu helgi voru form- lega opnaðar skrifstofur Dags á Blönduósi og Sauðárkróki. Þar með er Dagur kominn með skrifstofur á þremur stöð- um á Norðurlandi, utan Akur- eyrar, en síðastliðið haust var skrifstofa Dags á Húsavík formlega opnuð. Blaðamaður Dags á Blönduósi er Gestur Kristinsson, en á Sauðárkróki er það Þórhallur Ásmundsson. Skrifstofan á Blönduósi var opnuð síðastliöinn laugardag og var hreppsnefndarmönnum ásamt fleirum boöið til opnunar- innar. Húsnæði Dags á Blöndu- ósi hefur enn ekki allt verið tekið í notkun, en svo mun verða innan skamms og verður þá hið vistleg- asta. Áskrifendum í Húnavatnssýsl- um hefur fjölgað nokkuð á síð- ustu mánuðum og sagöi Gestur að ekki væri annað að sjá en Húnvetningar væru ánægðir með framtakið. Skrifstofan á Blöndu- ósi er að Húnabraut 29 og síminn þar er 4070. Skrifstofa Dags á Sauðárkróki var opnuð sl. sunnu- dag og hún er til húsa að Skag- firðingabraut 47 og síminn þar er 5960. Reiknað er með því að Frá opnun skrifstofu Dags á Blönduósi. Á myndinni iná sjá Frímann Hilmarsson lögregluvarð- stjóra, Pál Pétursson alþingismann, Hermann Sveinbjörnsson ritstjóra Dags, Gest Kristinsson blaðamann Dags á Blönduósi og Hilmar Krist- jánsson oddvita. „Ferðin hefur gengið ágæt- lega, en þetta er erfiðara en ég bjóst við“ -sagði Sigurgeir Einarsson um borð í Lýsiströtu sem er í siglingu hringinn í kringum landið „Við erum að skríða fyrir Mýr- dalsjökul, á leið til Vest- mannaeyja,“ sagði Sigurgeir Framleiðslu- kostnaður á heyi: 6,40 krónur á kílóið Búreikningastofa landbúnaðarins hefur áætlað framleiðslukostnað á heyi sumarið 1986. Er miðað við kostnað undanfarið ár að við- bættum hækkunum. Framleiðslu- kostnaðarverð er þannig áætlað um það bil kr. 6,40 á kg af heyi fullþurru í hlöðu (5,50 1985). Verð á teignum er áætlað 10-15% lægra. Einarsson, þegar við náðum sambandi við hann í fyrrakvöld um borð í skútunni Lýsiströtu. Sigurgeir ásamt Bjarna Júl- íussyni og Guðmundi Stefáns- syni á Lýsiströtu og Steindóri Helgasyni og Láru Þorvalds- dóttur á Hafsvölunni lögðu af stað frá Akureyri þann 3. júlí í siglingu kringum landið. Sigurgeir sagði að ferðin hefði gengið ágæflega. „Veðrið var að vísu leiðinlegt til að byrja með, fjandans ruddi. En frá Raufar- höfn og niður á Stöðvarfjörð fengum við vindinn í bakið allan tímann og þá gekk þrumuvel. Á Stöðvarfirði þurftum við að lyfta bátnum upp og skipta um splitti í skrúfunni. Veðrið hefur verið dálítið misjafnt, ýmist sól eða öskrandi rigning.1' Félagarnir biðu í tvo daga á Höfn í Hornafirði vegna þess að ekki blés byrlega, „Það blés í öfuga átt,“ sagði Sigurgeir. - Er þetta erfiðara en þið bjuggust við? „Ætli ég verði ekki að viður- kenna það að maður þreytist meira en ég átti von á. Jú, þetta er erfiðara en ég bjóst við. Við reynum að hvíla okkur vel þegar við kontum í höfn.“ Samkvæmt upphaflegri áætlun ætluðu þeir hringfarar að koma til Akureyrar þann 27. júlí. „Ég á að mæta í vinnu þann 28. þannig að við leggjum okkur fram um að vera komnir til Akureyrar þá,“ sagði Sigurgeir að lokum. -mþþ Frá opnun skrifstofu Dags á Sauðárkróki. Mynd: HS LYFTARAR Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft- ara. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Líttu inn - við gerum þér tilboð. Tökum lyftara í umboðssölu. LYFTARASALAN HF. Vitastíg 3, símar 91-26455 og 91-12452. Umboð - Þjónusta Gler frá Glerborg • Gluggar frá Ramma Þakgluggar frá Plastfag Gagnvarið efni í glugga og sólpalla Leitið upplýsinga “trésmiöjan Furuvöllum 1, 600 Akureyri, s. 96-24000 UMFI - Fram- kvæmdastjóri Ungmennafélag íslands óskar að ráða framkvæmdastjóra fyrir samtökin. Starfið felst m.a. í fjármálastjórn, umsjón með erlendum samskiptum svo og kynningar og útbreiðslustarf- semi. Umsækjandi þarf að hafa áhuga fyrir starfi og stefnu ungmennafélagshreyfingarinnar og gjarnan að þekkja eitt- hvaðtil almennrarfélagsmálastarfsemi úti álandsbyggðinni. Nánari upptýsingar hjá stjórnarmönnum UMFÍ og á skrifstof- unni að Mjölnisholti 14, Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1986. Ungmennafélag íslands.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.