Dagur - 17.07.1986, Blaðsíða 11
17. júlí 1986 - DAGUR - 11
„ísland er land framtíð-
arinnar í ferðaþjónustu“
- segir Ármann Rögnvaldsson í Syðri-Haga
Árið 1982 voru stofnuð Sam-
tök um ferðaþjónustu bænda á
íslandi. Er menn aka þjóðvegi
landsins má víða sjá skilti þar
sem segir að á þessum tiltekna
bæ sem ekið er framhjá sé að
fá þjónustu, svo sem gistingu,
fæði, þar sé hestaleiga og svo
framvegis. Slík skilti eru á
nokkrum stöðum í Eyjafirði.
Einn af þessum þjónustubæj-
um, ef segja má svo, er Syðri-
Hagi í Árskógshreppi. Þar býr
Ármann Rögnvaldsson ásamt
fjölskyldu sinni. Þessi fjöl-
skylda hefur verið með í Sam-
tökum um ferðaþjónustu
bænda frá því þau voru stofn-
uð og veitt þjónustu sína að
mestu leyti heima í Syðri-Haga.
Nú hefur orðið breyting þar á
því Ármann og sonur hans Búi
festu kaup á fallegu sumarhúsi
sem tekið var í notkun fyrir
nokkrum dögum.
Er við renndum í hlaðið á eyði-
býlinu Götu í Árskógshreppi
blasti við okkur gamli bærinn
sem hefur ekki verið nýttur síðan
1956 og fallegt sumarhús sem
verið var að klára áður en fyrstu
gestirnir fengju þar inni.
„Áður vorum við með þessa
þjónustu á heimilinu og einnig í
hjólhýsi sem við leigðum út. Síð-
an var ákveðið að fara út í kaup á
þessu húsi og staðsetja það hér,
en jörðin Gata tilheyrir okkur,“
sagði Ármann bóndi.
- Eru uppi hugmyndir um að
fjölga húsum hér?
„Já, þær eru til staðar. Hins
vegar erum við ákveðin í að hafa
húsin ekki of þétt saman, því fólk
vill finna friðsæld og vera út af
fyrir sig er það dvelur á svona
stað.“
Staðsetning hússins er falleg og
umhverfið ekki síðra. Þarna ætti
fólk sem sækist eftir rólegheitum
að finna eitthvað við sitt hæfi.
Enda er það ekkert nema fugla-
söngur sem heyrist þar sem stað-
ið er fyrir framan nýja húsið.
Umhverfið býður upp á fallegar
gönguleiðir um klettahjalla og
móa. Ármann sagði að berjaland
væri mjög gott rétt við húsdyrnar
og fólk sem dveldi þar fengi full-
an aðgang að því. Þeir sem ekki
vilja ganga um, geta notið útsýnis
um Eyjafjörðinn frá sumarhúsinu
fallega, sem fæst til afnota með
borðbúnaði, sængurfötum, snyrt-
ingu, sturtu og öðrum þægindum
sem þykja tilheyra nútíma
sumarbústað. Hægt er að hýsa
allt að 8 manns í einu. Húsið er
leigt út í viku í senn.
Ármann og hans fólk stundar
búskap í Syðri-Haga. Þegar hann
var spurður hvort ferðaþjónustan
væri ekki mikið álag ofan á önnur
störf í sveitinni sagði hann,
„Auðvitað er það aukaálag og
mikið er að gera samhliða bú-
skapnum. En við höfum trú á
þessu, annars værum við ekki að
því.“
- Hvernig er með pantanir?
„Þetta þarf allt sinn tíma í
kynningu. Þrátt fyrir það er búið
að panta töluvert. Fyrsta fjöl-
skyldan kemur til dvalar um leið
og húsið er tilbúið. Það er búið
að panta töluvert í sumar. Við
eigum von á sænskum ævintýra-
klúbbi í haust. Þar er á ferðinni
fólk sem vill eitthvað sérstakt í
sínum ferðum og hefur farið ann-
að en á hefðbundna ferða-
mannastaði. Þetta fólk ætlar að
ganga á fjöll, fara ríðandi í göng-
ur með heimamönnum, og njóta
Nýr kynningarbæklingur um
starfsemi Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda kom formlega út
þriðjudaginn 15. júlí. FIB er
ungt félag á mælikvarða bif-
reiðaeigendafélaganna í heim-
inum, var stofnað hinn 6. maí
1932. Það ár voru skráðar um
1700 bifreiðir á landinu.
Allt frá stofnun hefur megin-
markmið FÍB verið fjölþætt hags-
munagæsla fyrir bifreiðaeigendur
og er félagið neytendafélag
þeirra. FÍB hefur beitt ýmsum
aðferðum til þess að hafa áhrif á
málefni sem varða bifreiðaeign
sérstaklega. Einkum er átt við
skattlagningu bifreiða og rekstr-
arvara þeirra, vegamál, þjónustu
bifreiðaumboða, öryggismál
umferðarinnar og slysavarnir.
FÍB hóf til dæmis að beita sér fyr-
ir „hægri umferð" þegar árið
1939.
Það sem af er árs 1986 hefur
margt gerst í málefnum bifreiða-
eigenda og má jafnvel tala um
1986 sem „ár bílsins“ á íslandi.
Ber þar hæst verulega lækkun að-
flutningsgjalda á bifreiðum og
hjólbörðum og lækkun bensín-
verðs. Til viðbótar býðst bif-
reiðaeigendum nú val á mismun-
andi bensíni og aurhlífar eru ekki
lengur skyldaðar á stóran hluta
fólksbifreiða. Að auki ber að
geta um nýtt og alsjálfvirkt bíla-
símakerfi, sem tekið var í notkun
í byrjun mánaðarins. Af þessari
upptalningu er ljóst, að vel hefur
gengið og á FÍB verulegan þátt í
að þessum árangri var náð.
þess að vera hér á norðurslóð-
um.“
- Hvað þarf mikla nýtingu á
húsinu svo þið verðið ánægðir?
„Við gerum okkur ánægða
með 3-4 mánuði í nýtingu. Hins
vegar er ekkert á móti því fyrir
fólk að dvelja hér yfir vetrartím-
ann, því hér er hægt að ganga um
á gönguskíðum og renna sér í
brekkum við húsið."
- Þið hafið trú á þessu?
„Svo sannarlega, annars vær-
um við ekki aö því. Ég tel ísland
land framtíðarinnar í ferðaþjón-
ustu. Aðalmálið er að halda land-
inu hreinu og ómenguðu. Ef það
tekst, er ég viss um að fólk vill
koma hingað í hreint og fallegt
umhverfi frekar en fara eitthvað
annað," sagði Ármann Rögn-
valdsson. gej-
kyrtnmg
Fé/ag ídenzkra bifreidaeigenda
Margt hefur breyst á þeim 54
árum sem félagið hefur starfað,
en tveir þjónustuþættir eru þó
enn í fullu gildi. Það er annars
vegar lögfræðiráðgjöf félagsins,
sem rekin hefur verið frá árinu
1933 og vegaþjónustan, sem
hófst sumarið 1953. Aðrir þjón-
ustuþættir eru einnig nokkuð
raktir í þessum bæklingi ásamt
upplýsingum um afsláttarkjör
félagsmanna, stjórn félagsins,
uppbyggingu og skilgreiningu á
helstu markmiðum.
Kynningarbæklingur FÍB er
allur hinn vandaðasti og í honum
er m.a. að finna greinar um lög-
fræðiráðgjöfina, vegaþjónustu,
varahlutaútvegun, ábyrgðar-
tryggingu bifreiða og iðgjöld
þeirra o.m.fl.
Nýr kynningarbæklingur
um starfsemi FIB
óshar að ráða
til starfa, helst frá 1. september.
Þeir sem áður hafa sótt um blaðamannsstarf
o§ hafa enn áhuga verða að endurnýja
umsóhnir sínar.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst.
Umsóknir sendist:
hermann Sveinbjörnsson, ristjóri
Dagur, Strandgötu 31,
Pósthólf 58,
602 Akureyri
Iðjufélagar
Nokkur sæti laus í sumarferð félagsins til Horna-
fjarðar og nágrennis 24.-29. júlí nk.
Þeir sem hafa áhuga hafi samband við skrifstofu
sem allra fyrst í síma 23621.
Ferðanefnd.
Hið sívinsæla
Rallyball
verður í Félagsheimili Húsavíkur, laugardag-
inn 19. júlí. Húsið opnað kl. 22.00. Upplyfting
leikur.
Bifreiðaíþróttaklúbbur Húsavíkur.
2ja vikna námskeið hefst mánud. 21. þ.m.
djassleikfimi
Tímar: 3svar í viku, mánudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga.
Upplýsingar og innritun
í síma 24979 frá
kl. 18.00-20.00
fimmtudag og föstudag. i'V'aHa'
Tryggvabraut 22
jn V|J.
/lamtudíói
Wn.lirr 1
Ráðskona
Viljum ráða konu til að sjá um kaffistofu o.fl. þar
að lútandi.
Vinnutími frá kl. 8.00 til 17.00.
Vel borgað.
K. Jónsson & Co hf.
600 Akureyri.
Skipstjóri
Skipstjóri óskast á 300 tonna rækjuskip sem hef-
ur veiðar í haust.
Upplýsingar gefur Kristján Jónsson í síma 21466
eða 23881.
K. Jónsson & Co hf.
600 Akureyri.