Dagur - 20.08.1986, Síða 3

Dagur - 20.08.1986, Síða 3
20. ágúst 1986 - DAGUR - 3 „Sumir halda að heilt tungumál geti farið fjandans til vegna þess að menn „flippa“ eitt árið og „fríka það næsta“. fræði alveg ágætlega sjálfur og það væri í sjálfu sér lítill vandi fyrir mig að þusa þau yfir bókar- lausum nemendunum. Það er hins vegar hreinasta ókurteisi við nemendur.“ - Þú sagðir áðan að svona bækur þyrftu reynslu og þín hef- ur verið lesin í tvo vetur. Hvernig hefur hún reynst? „Ég held að hún hafi reynst alveg þokkalega. Mér hefur verið sagt að það sé þægilegt að lesa- hana og hún sé nokkuð aðgengi- leg fyrir nemendur. Þetta er að sjálfsögðu nokkuð stórt atriði. Én það verður seint skrifuð galla- laus bók og mig dreymir ekki svo stórt. Félagar mínir hafa bent mér á ýmislegt sem betur mætti fara og ég reyni að taka tillit til þess við endurbætur á bókinni.“ - Það er mjög í tísku þessa dagana að hafa áhyggjur af af- drifum íslenskunnar. Telur þú að íslenskan sé í einhverri sérstakri hættu þessa dagana? „Það er erfitt að svara tísku- spurningum án þess að nota tískusvör. Nei ég held ekki að íslenskan sé í bráðri hættu. Það er reynt að halda tungunni lifandi í skólunum og við kennararnir verðum meira að segja varir við að nemendur hafi áhyggjur af henni ekki síður en annað full- orðið fólk. Það eru þættir um daglegt mál í útvarpinu og fólk gerir mikið af því að senda fyrir- spurnir og aðfinnslur þangað þannig að það er greinilega mikið hlustað á þessa þætti. Einnig er mikið hringt í kennara og ís- lenskufræðinga og þeir spurðir um tiltekin atriði. Én þetta eru oftast einangruð smáatriði, svo sem beygingar eða stafsetning til- tekinna orða.“ - Hefurðu þá engar áhyggjur af öllum slettunum í málinu? „Ég held að það sé engin stór- bylting í nánd. Sumir halda að heilt tungumál geti farið fjandans til vegna þess að menn „flippa“ eitt árið og „fríka“ það næsta en flestar þessar slettur eru tískufyr- irbrigði sem deyja fljótt. Svo má heldur ekki gleyma því að það eru ekki allar slettur vondar. Á meðan útlend orð hegða sér eins og íslensk og laga sig vel að íslensku málkerfi þá geta þau orðið ágætir þegnar, rétt eins og mennskir útlendingar. Ef aldrei hefði verið tekið við útlendu orði þá ættum við hvorki kirkju né sápu og ekki heldur Kristínu og Maríu. Ég hef miklu meiri áhyggjur af því þegar fólki liggur svo óskap- lega á að það hefur varla tíma til að segja það sem það ætlar sér. Það er alltaf nauðsynlegt að vanda málfar sitt, ekki bara orða- lagið heldur líka framburðinn. í þessu efni hafa útvarp og sjón- varp ekki staðið sig nógu vel, þ.e.a.s. það hefur ekki verið staðið nægilega vel að vali manna. Á þessum stofnunum finnst allt of mikið af óskýrmæltu fólki og einnig finnst þar fólk með talgalla sem mætti auðveld- lega laga ef vilji væri fyrir hendi. Það virðist bara vanta metnað til þess, bæði hjá viðkomandi ein- staklingum og stofnunum. Þetta er hættulegt vegna þess að hvers kyns ónákvæmni og subbuskapur í tali síast ótrúlega auðveldlega inn í áheyrendur. Áheyrandinn hættir að taka eftir því að illa er gert og smám saman fer hann að gera þetta sjálfur. Það hefur margsinnis verið tal- að um að það sé pottur brotinn í þessum efnum hjá þeim sem sjá um tónlistarþætti og það er full ástæða til að taka undir það. Og þetta á ekki bara við um Rás tvö, öðru nær. Það er eins og sumt af þessu fólki sé að reyna að herma eftir erlendum plötusnúðum, það sönglar með vitleysum áherslum sem maður á alls ekki að venjast í íslensku máli. Þetta er eitt af því sem auðvelt væri að laga ef viljinn væri fyrir hendi. Þetta er kjánalegt þegar til lengdar lætur. Meira að segja unglingunum, sem þó er verið að höfða til, finnst þetta kjánalegt. íslending- ar hljóta að geta talað og skilið íslensku með íslenskum hreim, héðan af sem hingað til. Hún hef- ur dugað okkur ágætlega fram að þessu og því skyldi hún ekki geta gert það áfram? JHB Ólafsfjörður: „Eins og best gerist“ - segir Valtýr Sigurbjarnarson eftir breytingar á sundlauginni „Iðnaðarmenn hafa haft nóg að gera hér á Ólafsfirði að undanförnu og hefur verið mikið um framkvæmdir sem tengjast viðhaldi og breyting- um á húsum hér,“ sagði Valtýr Sigurbjarnarson bæjarstjóri í Ólafsfirði. Unnið hefur verið við miklar lag- færingar á sundlaug bæjarins, þar sem endurnýjaðir voru búnings- klefar og böð. „Vissulega var tími til kominn að vinna þetta verk, því sundlaugin er 40 ára gamalt mannvirki. Fyrir nokkru var séð að gera þyrfti stórátak í ■ ■ ii -■ Akurevri: Malbikun gengur samkvæmt áætlun „Þetta gengur ósköp eðli- Iega,“ sagði Guðmundur Guð- laugsson verkfræðingur um malbikunarframkvæmdir á Akureyri, er hann var spurður um þau mál. Eins og fram hefur komið átti að leggja megináherslu á malbik- un gangstétta í bænum í sumar. Guðmundur sagði að búið væri að leggja malbik á um fjórðung þeirra stétta sem á áætlun voru. „Við gerum ráð fyrir að hitt haf- ist á eðlilegum tíma,“ sagði Guð- mundur. Um malbikun þeirra gatna sem vinna á við í sumar sagði hann að nokkuð væri búið. „Þó er Dals- braut eftir og nú verður farið að grafa upp Grænugötu, því hún var aldrei undirbyggð fyrir mal- bikun á sínum tíma og þar af leiðandi alltaf erfið á vetrum." S; gði Guðmundur að vinna við malbikun væri áætluð fram í október. gej- endurbótum á sundlauginni og var því frekar ákveðið að bíða með verkið í stað þess að veita litlar fjárhæðir á hverju ári. Nú er þett1 cins og best gerist og allir ánægðir með framkvæmd- ina,“ sagði Valtýr. Vinna við sundlaugina tók um 3 mánuði og þurfti að loka laug- inni á meðan. „Hörðustu sund- menn voru orðnir ansi óþolin- móðir og voru farnir sækja sund í nærliggjandi laugar, en ég vona að allir geti tekið gleði sína að nýju og notið þess sem gert hefur verið,“ sagði Valtýr. Kostnaður við breytingarnar nam rúmum 2,5 milljónum króna. Iðnaðarmenn í Ólafsfirði eru einnig að vinna við lagfæringar á gamla Barnaskólanum, þar sem skipt er um alla glugga, skipt um járn á þaki og málað. Það verk unnið af iðnaðarmönnum í Olafs- firði eins og verkið við sundlaug- ina. „Þetta er veruleg breyting til batnaðar á þessu fallega húsi,“ sagði Valtýr. gej- Miklilax: Fyrirtækið hefur loksins fengið bankaviðskipti „Þetta er búið að ganga mun erfíðar en maður bjóst við, því að við töldum okkur standa vel að vígi með mjög mikið hluta- fé. Við erum nú loksins búnir að fá bankafyrirgreiðslu. Það er útibú Búnaðarbankans á Sauðárkróki, sem tók okkur í viðskipti. Við teljum okkur vera búna að tryggja uppbygg- ingu fyrirtækisins, en Byggða- sjóður ábyrgist 75% af stofn- kostnaði. Enn er eftir að útvega fjármagn í reksturinn, þar sem við seljum líklega ekki seiði fyrr en eftir 2 ár,“ sagði Reynir Pálsson framkvæmda- stjóri Miklalax í Fljótum í sam- tali við blaðið. En við Miklavatn í Fljótum er nú að rísa 350 seiða laxeldisstöð og þeir Fljótamenn eru búnir að standa í stappi undanfarið við að fá bankafyrirgreiðslu. Reynir sagði að sér virtist að það sem hefði verið að gerast hér á landi undanfarið. T.d hefði Hafskips- málið gert það að verkum að bankarnir gerðu meiri kröfur um ábyrgð og væru mun betur á varðbergi en áður. Hann sagði þetta hafa verið mjög erfiðan tíma undanfarið, erfitt að ná í menn og þetta væri búið að taka langan tíma. Framkvæmdir hefðu samt ekki tafist svo neinu næmi. Unnið hefði verið á fullu og sú áætlun sem var gerð eftir að byrjað var hefur staðist. Er von- ast til að stöðin verði að ein- hverju leyti komin í notkun í október. „Þetta rennur alveg upp. Það er byrjað á veggjunum og verið að steypa hluta af grunnplötunni í dag. Þá er búið að setja niður nokkra kerbotna og verið að leggja kalda vatnið. Ekki verður borað meira eftir heitu vatni, en fóðruð upp hola við hliðina þar sem heita vatnið er,“ sagði Reynir Pálsson. Þess má að lokum geta að mikið af verktökum og vinnuafli við upp- byggingu stöðvarinnar kemur frá Siglufirði. Þaðan kom einnig nokkuð af hlutafénu. Á Siglufirði er útibú Útvegsbankans, en það treysti sér ekki til að taka Mikla- lax í bankaviðskipti. -þá Ólafsfjörður: Tvö hús byggð á síðustu fjómm árum - skortur á leiguhúsnæði „Hér hefur verið mjög lítið byggt á undanförnum árum,“ sagði Valtýr Sigurbjarnarson bæjarstjóri í Olafsfírði, er hann var spurður um bygg- ingaframkvæmdir á staðnum. Kom fram hjá Valtý að skortur væri á íbúarhúsnæði og „slegist“ um hverja leiguíbúð sem losnaði. „Málið er líka það að ungt fólk treystir sér ekki í það að byggja þak yfir höfuðið. Ég reikna með því að fjörkippur hlaupi í bygg- ingamál með haustinu, eða þegar nýjar Hnareglur taka gildi. í Ólafsfirði hafa verið byggð 2 einbýlishús á síðustu 4 árum. Nýlega var auglýst eftir fólki sem vildi taka þátt í því að byggja félagslegar íbúðir. Sagði Valtýr að engar umsóknir hefðu borist, „enda er auglýsingin rétt komin fram. Ef áhugi reynist fyrir þessu er hugmyndin að ráðast í þessar byggingar næsta sumar," sagði Valtýr. gej-

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.