Dagur - 20.08.1986, Blaðsíða 12

Dagur - 20.08.1986, Blaðsíða 12
* Diskettur * Skjásíur + Ýmsar rekstrarvörur Tölvutæki sf. Gránufélagsgötu 4, 2. hæð • Akureyri • Sími 96-^6155 Meira en nóg að gera hjá Árverí - Rækjuvinnslan flyst í nýtt húsnæði „Það er alveg bullandi vinna hérna. Við höfum unnið allan sólarhringinn á þrískiptum vöktum, en núna erum við með tvískiptar vaktir,“ sagði Jón Héðinn Pálsson fram- kvæmdastjóri Arvers á Árskógsströnd í samtali við Dag. A hverri vakt vinna að jafnaði 14 manns og eru tvær pillunarvél- ar í gangi. Vinna hefst klukkan 4 á morgnana og unnið er fram á kvöld. í gær lönduðu tveir bátar hjá Árveri, annar með tæp 8 tonn og hinn rúm 5. Jón Héðinn sagði að á milli 5-6 tonn af rækju væru unnin á hverri vakt, þannig að þegar unnið cr á þrískiptum vöktum eru unnin allt upp í 16 tonn af rækju á sólarhring. Rækj- an er seld til Bretlands og Pýska- lands. Fimm bátar leggja nú upp rækju hjá Árveri, en tveir bátar sem landað hafa þar eru í slipp. Sveinn Jónsson stjórnarformaður Árvers sagði að í sumar hefði fengist aðkomubátur frá Keflavík til að landa hjá Árveri og von væri á öðrum. Starfsemi rækjuvinnslunnar fer fram í leiguhúsnæði, en unnið er að byggingu húss undir vinnsl- una og er það komið undir þak. Húsið er 960 fermetrar að stærð og er í svokölluðu Iðnaðarhverfi, mitt á milli Árskógsstrandar og Hauganess. Fyrirhugað er að starfsemi flytjist þangað um áramótin, en Sveinn sagði að nú vantaði smiði til að ljúka verk- inu. „Það kvartar enginn yfir verk- efnaleysi, það er frekar að fólk hafi ekki tíma til að líta upp,“ sagði Jón Héðinn. -mþþ Kiwanis-turninn: „Lætin koma á óvart“ - segir Stefán Jónsson Þaö er mest lítið aö gerast í málinu núna, en þessi læti í bænum koma okkur mjög mik- ið á óvart. Sá sem stóð í þess- um leyfisveitingum er ekki á landinu núna, þannig að ég veit ekki hvernig málin standa,“ sagði Stefán Jónsson, formaður auglýsinganefndar Kivvanisklubbsins á Akureyri um hið svokallaða turnmál. Ólafsfjörður: Næg fiskvinna „Það er allt gott að frétta héðan, því hér er næg og góð atvinna fyrir alla,“ sagði Val- týr Sigurbjarnarson bæjar- stjóri i Olafsfirði. Togararnir í Ólafsfirði hafa aflað vel og hcfur það haldið stöðugri vinnu í frystihúsunum. Trillur hafa verið frá veiðum um tíma en eru nú komnar aftur á miðin og aflað vel. gej- Kiwanisturninn í göngugöt- unni hefur vakið athygli, en kannski ekki þá athygli sem Kiwanismenn bjuggust við. Mik- ill styr liefur staðið um bæði útlit hans, svo og staðsetningu. Talað hefur verið um að hann eyðileggi ljósaröðina og sumir jafnvel gengið svo langt að segja að hann sé Ijótur. „Pað hefur mér vitan- lega ekkert gerst í þessu máli enn, en eins og ég skildi málið, þá var komið samþykki frá bæj- arráði og bæjarverkfræðingi og öllum þeim mönnum, og maður frá bæjarverkfræðingi kom á staðinn, þegar að við vorum að ákveða staðsetningu turnsins og sagði okkur nákvæmlega hvar við áttum að setja hann upp. Þeir voru búnir að sjá teikningar af honum, þannig að þetta kom okkur ákaflega mikið á óvart. En það verður fundur hjá okkur á næstunni um þetta mál. Fyrr verður ekkert gert,“ sagði Stefán að lokum. -SÓL Fomleifafræðingarnir Margrét og Bjarni við steinhleðslu kirkjunnar á Gásum. Mynd: -gej „Merkustu og fallegustu tóftir á landinu“ - segja Margrét Hermannsdóttir og Bjarni Einarsson sem vinna við rannsóknir að Gásum „Við reiknum með því að vera við útivinnu í einn mánuð og annan mánuð við innivinnuna, sem felst í skýrslugerð, athug- unum á hlutum og öðru sem finnst, ef eitthvað finnst að þessu sinni,“ sögðu þau Mar- grét Hermannsdóttir og Bjarni Einarsson fornleifafræðingar þar sem við hittum þau við vinnu sína í gömlum tóftum á friðlýstu svæði við Gásir í Glæsibæjarheppi. Þau höfðu nýlokið við að grafa skurð þvert á vegg sem var sýni- legur á yfirborði jarðar. Sam- kvæmt heimildum sem Finnur Jónsson skrifaði eftir uppgröft 1907, á þar að hafa staðið timb- urkirkja sem varin var með torfi. Þar fundu þau Margrét og Bjarni steinhleðslu sem þau álitu vera svokallaðan steinfót, sem var hlaðinn undir timburveggi. Einn- ig fundu þau bein í þessum skurði, en vildu ekkert fullyrða Hagnýtt háskólanám á Akureyri - og fjarkennsla eru meðal hugmynda nefndar um fjárlaga- og þróunaráætlun fyrir Háskóla íslands í skýrslu um fjárlaga- og þró- unaráætlun fyrir Háskóla Islands, sem nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins hef- ur unnið að og nýlega var send fjölmiðlum, er lagt til að kennsla á háskólastigi á Akur- eyri á vegum H.I. hefjist haustið 1987 og að í stað hefð- bundins náms verði megin- áherslan lögð á stutt hagnýtt nám. I skýrslunni kemur fram að vaxandi þörf sé fyrir slíkt nám og að það muni nýtast jafnframt til áiramhaldandi náms í Háskóla Islands, enda verði námið skipulagt af honum. „Verklega kennslu og þjálfun væri æskilegt að veita að hluta í samvinnu við fyrirtæki og stofn- anir í viðeigandi atvinnugreinum, svo og Tækniskóla íslands. Slík samvinna eykur gagnkvæmt traust milli fyrirtækja og nemenda," segir m.a. í áður- nefndri skýrslu. Þar eru eftirtald- ar greinar taldar athyglisverðar í þessu sambandi: Tölvutækni, við- skiptagreinar, matvælatækni, fjölmiðlun og tungumál. Jafn- framt er talið eðlilegt að verkleg þjálfun í læknisfræði, hjúkrunar- fræði og sjúkraþjálfun verði áfram veitt á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Einnig er lagt til að sinnt verði vaxandi þörf fyrir endurmennt- un, almenningsfræðslu og kennslu utan Reykjavíkur með því að Háskóli íslands hefji fjar- kennslu, þ.e. miðlun þekkingar til allra landsmanna, yngri sem eldri, óháð búsetu. Slík fjar- kennsla með aðstoð fjölmiðla, bæði sjónvarps og hljóðvarps og ekki síst með myndböndum, gæti hentað dreifðri byggð landsins og gerði landsmönnum kleift að njóta frekari menntunar við eigin hentugleika. Með þessum hætti má veita undirstöðumenntun í hugvísindum og raunvísindum og ætti slík kennsla að gefa kost á áfangaprófum sem leiddu til lokaprófs, t.d. B.A. eða B.S. prófs frá Háskóla íslands. Aðstoð við nemendur og leið- beiningar væru veittar í Háskóla íslands og í framhaldsskólum eða sérstökum útibúum, t.d. á Akur- eyri og víðar, segir í skýrslunni. HS um hvers konar bein er um að ræða. „Finnur Jónsson og Daniel Bruun grófu hér árið 1907 og töldu sig hafa fullrannsakað svæðið. Okkar álit er að hér sé að finna með merkilegustu forn- minjum á íslandi," sagði Bjarni. „Þetta eru alla vega fallegustu tóftir sem til eru,“ sagði Margrét. Bæði eru vongóð um að finna við uppgröftinn minjar sem varpað gætu ljósi á verslunarsögu landsins. Fé það sem þau fengu til verks- ins á þessu ári er um 500 þúsund krónur. Ætla þau að grafa 4 eða 5 holur af sömu stærð og þau voru búin að grafa er okkur bar að. Voru þau að merkja fyrir annarri holunni og hófu þegar að stinga torfið ofan af. Þegar því var lokið voru notaðar litlar múrskeiðar til að skafa hvert moldarlagið af öðru. Ef eitthvað óvenjulegt kom upp, svo sem steinn eða lítil flís sem gat verið bein var það grandskoðað og lagt til hliðar. Þau Margrét og Bjarni reikna með því að grafa þessar 4 eða 5 holur að Gásum, auk þess sem áhugi er á því að grafa við Eyra- land og Kaupang, því þau telja að samhengi geti verið milli þess- ara staða. En þau búast við því að það taki 2 til 3 sumur að grafa að Gásum, svo góðar heimildir fáist um verslunarsögu landsins. gej-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.