Dagur - 20.08.1986, Síða 4

Dagur - 20.08.1986, Síða 4
4 - DAGUR - 20. ágúst 1986 ,_á Ijósvakanum. lsjónvarpM MIÐVIKUDAGUR 20. ágúst 19.00 Úr myndabókinni - 16. þáttur. Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. Gamli prófessorinn segir frá Charles Dickens, Ali Bongo, Raggi ráðagóði - lokaþáttur, Kuggur - loka- þáttur, Villi bra bra, Snúlli snigill og Alli álfur, Alfa og Beta og Klettagjá. Umsjón: Agnes Johansen. 19.50 Fréttaágrip á tákn- máli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Við kranans máttuga söng. Það er hald manna að hafnarskilyrðin hafi ráðið miklu um þá ákvörðun Ing- ólfs Amarsonar að byggja í Reykjavík fremur en á öðmm stöðum á íslandi. Tæknisýning Reykjavíkur hefur látið gera mynd um Reykjavíkurhöfn undir heitinu Við kranans mátt- uga söng. Kvikmyndun: Sigurður Jakobsson. Texti: Ólafur Bjarni Guðnason. Lesari: Arnar Jónsson. Hjóðsetning: Kot. 20.45 Nýjasta tækni og vís- indi. Umsjónarmaður: Sigurður H. Richter. í þættinum er m.a. fjallað um hreinsun á koparstyttum, nýjungar í flugvélasmíðum og tækni- brellur í kvikmyndagerð. 21.15 Djasshátíð á Arnar- hóli. Bein útsending frá djass- tónleikum á Arnarhóli, í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Það er Jazzvakning sem stendur fyrir þessum tónleikum, en hljómsveitimar sem fram koma em Tríó Jóns Páls Bjarnasonar, Bjöm Thor- oddsen og félagar og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar. Dagskrárlok óákveðin. Jrás H MIÐVIKUDAGUR 20. ágúst 7.00 Veðurfregnir • Fréttir • Bæn. 7.15 Morgunvaktin. 7.30 Fróttir • Tilkynningar. 8.00 Fróttir • Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Fróttir á ensku. 9.00 Fróttir. 9.05 Morgunstund barn- anna: „Olla og Pési“ eftir Iðunni Steinsdóttur. Höfundur les (10). 9.20 Morguntrimm • Til- kynningar • Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesið úr fomstugrein- um dagblaðanna. 10.00 Fróttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá kvöldinu áður sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Land og saga. Ragnar Ágústsson sér um þáttinn. 11.00 Fróttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Guðmundur Jónsson. 12.00 Dagskrá ■ Tilkynning- ar. 12.20 Fróttir. 12.45 Veðurfregnir • Til- kynningar • Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Börn og umhverfi þeirra. Umsjón: Anna G. Magnús- dóttir og Berglind Gunn- arsdóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Fólk á fömm" eftir Ragnhildi Ólafsdóttur. Elísabet Jónasdóttir þýddi úr dönsku. Torfi Jónsson les (2). 14.30 Norðurlandanótur. Danmörk. 15.00 Fréttir • Tilkynningar • Tónleikar. 15.20 Á hringveginum - Vesturland. Umsjón: Ævar Kjartans- son, Ásþór Ragnarsson og Stefán Jökulsson. 16.00 Fróttir • Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. 17.00 Fróttir. 17.03 Barnaútvarpið. Umsjón: Kristín Helga- dóttir og Sigurlaug M. Jón- asdóttir. 17.45 í loftinu. - Hallgrímur Thorsteins- son og Guðlaug María Bjarnadóttir. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir • Dag- skrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 20.00 Sagan: „Sonur elds og ísa" eftir Jóhannes Heggland. Gréta Sigfúsdóttir þýddi. Baldvin Halldórsson les (2) 20.30 Ýmsar hliðar. Þáttur í umsjá Bernharðs Guðmundssonar. 21.00 íslenskir einsöngvar- ar og kórar syngja. 21.30 „Þættir úr sögu Reykjavíkur - Skólamál- in. Umsjón: Sumarliði ísleifs- son. 22.00 Fréttir Dagskrá morgundagsins Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Hljóð-varp. Ævar Kjartansson sér um þátt í samvinnu við hlust- endur. 23.10 Djassþáttur. - Jón Múh Árnason. 24.00 Fréttir • Dagskrárlok. ]rás 2M MIÐVIKUDAGUR 20. ágúst 9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Hall- dórsdóttur, Kristjáns Sig- urjónssonar og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Guðríð- ur Haraldsdóttir sér um barnaefni í fimmtán mínútur kl. 10.05. 12.00 Hlé. 14.00 Kliður. Þáttur í umsjá Gunnars Svanbergssonar og Sig- urðar Kristinssonar. (Frá Akureyri). 15.00 Nú er lag. Gunnar Salvarsson kynnir gömul og ný úrvalslög að hætti hússins. 16.00 Taktar. Stjómandi: Heiðbjört Jóhannsdóttir. 17.00 Erill og ferill. Ema Amardóttir sér um tónlistarþátt blandaðan spjalli við gesti og hlust- endur. 18.00 Dagskrárlok. 3ja mín. fréttir kl. 9, 10, 11, 15, 16 og 17. RI KISUIVARPID A AKURLYRI 17.03-18.30 Rikisútvarpið á Akureyri - Svæðisútvarp. ______________________________________hér og þac Ástimingar héldu upp á 40 ára afmælið í sól og blíðu: „Þetfa var sannkallað sólsldns- sumar“ „Þetta var sannkallað sólskinssumar og ákaflega ánægjulegt afmælisár. Og eftirminnilegastur var laugardagurinn 9. ágúst, en þá héldum við Ástirningar upp á 40 ára afmælið okkar,“ sagði Bogi Pétursson forstöðumaður Ástjarnar. „Við erum mjög lánsamir, Ástirn- ingar.“ Myndir: Þórarinn Ágústsson. blikuna, „en við erum alltaf bjartsýnir. Enda var komið ákaflega gott veður um hádegi og það hélst allan daginn.“ Borðum og stólum var komið fyrir úti og allir drukku þar kaffið sitt og líkaði vel. „Það skemmtu allir sér vel. Þetta var sérlega ánægjulegur og eftirminnilegur dagur. Þrátt fyrir mikið annríki, þá fór allt mjög vel fram og menn undu glaðir við sitt. Lífið hefur leikið við okkur Ástirninga, við erum mjög lánsamir,“ sagði Bogi að lokum. -mþþ Það var sól og blíða þegar Ás- tirningar héldu upp á 40 ára afmæli sitt fyrir skömmu. Og allir drukku kaffið sitt úti. Bogi Pétursson forstöðumaður sumardvalarheimilisins að Ástjörn. Bogi sagði að um 400 manns hefðu tekið þátt í veislunni á afmælisdaginn, en um 100 dvöldu þá í sumarbúðunum. Fjölmargar gjafir bárust og má þar m.a. nefna að hjón frá Reykjavík gáfu 5 handslökkvitæki, 6 reykskynjara og 2 mottur. „Okkur bárust margar gjafir og margir lögðu hingað leið sína og sýndu þann hlýhug sem þeir bera til okkar. Pað gladdi okkur mikið.“ Er afmælisdagurinn rann upp var dumbungsveður og leist þeim Ástirningum ekki á Óneitanlega glæsileg rjómaterta. Enda ekki lengi að hverfa ofan í maga hinna 400 afmælisgesta. • Étiðþað sjálfir Afskipti Bandaríkjamanna af hvalveiðum okkar íslendinga hafa mikið ver- ið til umræðu undanfarið. Finnst mörgum það hart að við kyngjum þvi frá verndaranum f vestri að éta helminginn af kjötinu sjálfir og mega ekki selja það öðrum þjóðum. Er þetta örugglega eins- dæmi um viðskiptahætti milii þjóða. Engu er Ifkara en það sé af sem áður var, að bein sé í nefjum islenskra ráðamanna. Við erum í geysilega sterkri aðstöðu til að þrýsta á Bándaríkjamenn en ger- um það ekki. Það þarf enginn að halda því fram að bandarfskur her sé hér í landi til að vernda okkur eyjabúa eingöngu. Því var þessi aðstaða ekki notuð? „Við blöndum ekki saman viðskiptamálum og öryggismálum,“ eitthvað á þá leið voru rök ráða- manna okkar. En eins og staðan er f dag virðist það eina sem hægt er að gera, að halda áfram með kjötmálið. Harð- banna Bandarfkjamönn- um með lögum að flytja inn kjöt til herstöðvarinn- ar á Keflavfkurflugvelli og skylda þá í staðinn til að borða hvalkjöt úr Hval- stöðinni f Hvalfirði. # Enn einn samkeppn- isaöilinn Síðustu daga hafa borist fregnir af mikilli hvaikjöts- sölu í búðum fyrir sunnan, allt að fimmtán- faldri frá síðasta ári. Skrásetjari S&S sem ber mikla umhyggju fyrir bændum landsins hefur stórar áhyggjur af sívax- andi hvalkjötsáti íslend- inga, því af þvf hlýtur sölu á fjallalambi að vera hætta búin. Það ætlar ekki af blessuð- um sauðfjárbændunum a ð ganga. íslendingar hafa tekið upp á þeim óskunda á sfðari árum að leggja sér kjúklingakjöt, svfnakjöt og nautakjöt f síauknum mæli til munns og vanrækja lambakjötið. Svo þegar fjallalambið kom til sögunnar virtust góðar horfur á betri tíð með blóm í haga bænda. En nú sjást enn á ný óveð- ursblikur á lofti. Það á að fara að venja landsmenn á að éta hvalkjöt. Enn einn samkeppnisaðili fslensks landbúnaðar hefur skotið upp kollinum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.