Dagur - 01.09.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, mánudagur 1. september. 1986 161. tölublað
28. fjórðungsþing Norðlendinga:
Steingrímur hlynntur
3. stjórnsýslustiginu
Steingrímur Hermansson,
forsætisráðherra, sagði á
Fjórðungsþingi Norðlendinga
á Siglufirði á föstudag, að hann
teldi þriðja stjórnsýslustigið
vel koma til greina. „Það er
margsinnis búið að reyna að
sameina minni sveitafélög, en
án árangurs og ég verð að
segja að ég er búin að gefast
upp við það,“ sagði forsætis-
ráðherra.
Steingrímur sagðist geta tekið
undir það sem fram hefði komið í
íkveikjur
Talið er að um íkveikju hafi
verið að ræða þegar eldur kom
upp á tveimur stöðum á Odd-
eyri á Akureyri aðfaranótt
föstudagsins.
Þetta átti sér stað um kl. 4 um
nóttina og var fyrst tilkynnt um,
eld í bílskúr við Eyrarveg. Þegar
máli Sigfúsar Jónssonar, bæjar-
stjóra á Akureyri, að koma þyrfti
á fót stjórnsýslustöðvum úti um
land, sem væru tengiliðir við
ráðuneytin og aðrar stjórnar-
stofnanir í Reykjavík. Þá kom
það fram í máli ráðherra, að
þetta væri í fyrsta sinn sem hann
lýsti yfir stuðningi við þessa hug-
mynd og hann gæti að mörgu
leyti tekið undir það sem samtök
um jafnrétti milli landshluta
hefðu á stefnuskrá sinni.
Hann benti hins vegar á að öll
á Oddeyri
slökkviliðið var nýkomið þangað
kom tilkynning um að eldur væri
laus í bifreið í Fjólugötu. Nokkr-
ar skemmdir uðru á báðum
stöðunum og sem fyrr sagði er
talið að um íkveikju hafi verið að
ræða og er unnið að rannsókn
málsins. gk-.
þessi mál þyrfti að skoða vel áður
en farið yrði út í einhverjar
breytingar og gæta þess að rasa
ekki að neinu í því sambandi.
Ráðherra sagði það vera sína
skoðun að það hefði verið rétt
ákvörðun hjá stjórn Byggða-
stofnunar að flytja ekki stofnun-
ina til Akureyrar. Það kom ein-
nig fram í máli Steingríms að
hann teldi rétt að leggja aukna
áherslu á iðnað úti á landsbyggð-
inni og nefndi hann sérstaklega í
því sambandi að styðja þyrfti vel
við hátækniiðnaðinn, sem hann
taldi eiga mikla framtíð fyrir sér.
Það kom og fram í máli
margra, sem töluðu á fyrri degi
þingsins, að sú skoðun virðist
verulega vera að ryðja sér til
rúms, að þriðja stjórnsýslustigið
væri vænlegur kostur, sem milli-
stig milli ríkis og sveitafélaga.
Meðal annars kom það fram í
máli Ragnars Arnalds og Pálma
Jónssonar. Þá sagði Stefán Val-
geirsson, að kannski væri þetta
leið til að landsbyggðin fengi not-
ið í ríkara mæli þess sem hún afl-
ar til þjóðarbúsins. G.Kr.
Framsoknarflokkurinn:
Afl nýrra tíma
- segja ungir framsóknarmenn -
vel heppnað þing að Hrafnagili
21. þing Sambands ungra
framsóknarmanna, SUF, var
haldið að Hrafnagili í Eyjafirði
um helgina. Þingiö var haldið
undir kjörorðinu, Framsókn-
arflokkurinn - afl nýrra tíma.
Þingið var vel sótt og alls
mættu 140 manns, víðs vegar að
af landinu. Á þinginu fór fram
opinská umræða um stöðu Fram-
sóknarflokksins í dag. Þingfull-
trúar voru sammála um að gera
þyrfti verulegar skipulagsbreyt-
ingar á innra starfi flokksins.
„Endurnýjun í þingflokknum
þarf að koma til, við þurfum að
koma yngra fólki að á listum
flokksins í komandi Alþingis-
kosningum," sagði Finnur Ing-
ólfsson, fráfarandi formaður
SUF, m.a. í ræðu sinni.
Á þinginu voru kynntar niður-
stöður skoðanakönnunar um
þjóðmál, sem Félagsvísinda-
stofnun Háskólans gerði fyrir
SUF. Þær niðurstöður eru að
mörgu leyti mjög athyglisverðar
og verður þeim gerð skil í blað-
inu síðar.
Þingið samþykkti fjölmargar
ályktanir, s.s. um byggðamál,
umhverfismál, húsnæðismál,
skattamál og utanríkismál.
Gissur Pétursson var einn í
kjöri til formanns SUF og hlaut
einróma kosningu og var honum
vel fagnað. Mikill einhugur ríkti
á þinginu og er greinilegt að ung-
ir Framsóknarmenn eru stað-
ráðnir í að hefja stórsókn á
stjórnmálasviðinu og gera þannig
Framsóknarflokkinn að afli nýrra
tíma í íslenskum stjórnmálum.
Þinginu lauk með vel heppnaðri
hátíð að Hótel KEA á laugar-
dagskvöldið. BB
Mynd: BV
Verkmenntaskólinn á Akureyri var settur í Akureyrarkirkju í gær. í ræðu Bernharðs Haraldssonar, skólameistara,
kom fram að VMA er fjölmennasti skóli utan Reykjavíkur. Innritaðir nemendur hinn 28. ágúst síðast liðinn voru
904. Er þetta nær 100 nemenda fjölgun frá fyrra ári og er þá ótalinn sá hópur sem sækir nám í öldungadeild, alls
95. Heildartala innritaðra nemenda er því 999. Mynd: RÞB
Bílveltur og
mótorhjólaslys
Þrjú umferðaróhöpp komu til
kasta lögreglunnar á Akureyri
um helgina. Bíll valt í Öxna-
dal, önnur bílvelta varð við
Sólgarð á laugardag og aðfara-
nótt sunnudags lenti bíll á brú-
arhandriði á brúnni yfir
Hörgá.
Ökumaður bílsins sem valt í
Islenskt hugvit vekur athygli
Nýtt tölvuforrit fyrir fiskeldis-
stöðvar vakti mikla athygli á
stórri sýningu í Bergen í Nor-
egi á dögunum. Höfundar for-
ritsins eru bræðurnir Guð-
mundur Valur og Valþór Stef-
ánssynir frá Auðbrekku í Eyja-
firði. Með forritinu hefur þeim
tekist að finna lausn á vanda-
máli sem tölvusérfræðingar
hafa lengi glímt við að leysa.
Þegar sýningunni lauk höfðu
menn frá alþjóðlega fyrirtæk-
inu Siemens í Svíþjóð samband
við þá bræður og vildu kaupa
af þeim forritið fyrir nokkrar
milljónir norskra króna. Þótt
um umtalsverða fjárhæð sé að
ræða vildu bræðurnir ekki
selja en hyggjast halda áfram
að útfæra forritið sjálfir.
Hingað til hefur aldrei verið
hægt að komast hjá því að villur
komi upp í forritum sem þessu,
vegna mannlegra mistaka og oft
koma þessar villur ekki í ljós fyrr
en löngu seinna. Slíkar villur
hafa áhrif á aðrar stærðir í forrit-
inu. í forriti því sem var á sýning-
unni í Bergen er innbyggt kerfi
sem leiðréttir slíkar villur og
athugar allt sem á eftir kemur og
leiðréttir það einnig. Það er þessi
lausn sem mesta athygli hefur
vakið. Forritið sjálf er mjög sér-
hæft og er eingöngu hugsað til
notkunar í fiskeldisstöðvum.
Lausnina er hins vegar hægt að
nota á öllum sviðum tölvutækn-
innar.
Að sögn Guðmundar Vals eru
bræðurnir nú að velta því fyrir
sér hvað þeir eigi að gera. Lík-
lega munu þeir opna skrifstofu í
Noregi og einbeita sér að því að
þróa hugmynd þess enn frekar og
markaðssetja forrit sem þetta
sjálfir.
Sjá nánar viðtal við Guðmund
Val á blaðsíðu 6.
Öxnadal var einn í bílnum, var
hann fluttur á slysadeild, en að
sögn lögreglunnar voru meiðsli
hans ekki talin alvarleg. Bíllinn
er hins vegar ónýtur. Tvennt var í
bílnum sem valt við Sólgarð. Var
farþegi í bílnum fluttur á slysa-
deild en var talinn ómeiddur.
Farþegi í bílnum sem lenti á brú-
arhandriðinu skarst lítillega á
höfði. Að öðru leyti var helgin
róleg hjá lögreglunni á Akureyri.
Lögreglan á Hvammstanga átti
nokkuð annasama helgi. Dans-
leikur var haldinn á Hvamms-
tanga á föstudagskvöld og
aðfaranótt laugardags tók lög-
reglan þrjá, grunaða um ölvun
við akstur á Hvammstanga
og Skagaströnd. A laugardag var
mótorhjólaslys á Skagaströnd.
Ökumaður mótorhjólsins ók út
af og fótbrotnaði.
Á Dalvík, Ólafsfirði og Sig’u-
firði fengust þær upplýsingar að
helgin hefði verið óvenju róleg.
Að sögn lögreglunnar á Siglufirði
hafa þeir verið mikið með radar á
ferðinni í sumar og hefði umferð-
in dottið mikið niður. -HJS