Dagur - 15.09.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur____________Akureyri, mánudagur 15. september 1986 171. tölublað
★ Tölvupappír og
ljósritunarpappír
frá Odda
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
GLERÁRGATA 20, AKUREYRI,S:(96)25004
Eyjafjörður:
Riöuveiki breiðist út
- Tilfelli staðfest á þremur bæjum
Drangey
er á
heimleið
Þá er Urangey togari Útgerð-
arfélags Skagfirðinga loksins á
heimleið. Skipið fór úr skipa-
smíðastöðinni á fimmtudaginn
og sigldi til Cuxhaven til að
sækja fiskikassa sem þar hafa
verið geymdir síðan skipið
seldi þar fisk í vor.
Drangey lagði svo af stað
heimleiðis á föstudag og er áætl-
að að skipið verði komið til Sauð-
árkróks í dag eða morgun. Tafir
á afhendingu skipsins nema um 2
mánuðum.
Síðustu fréttir herma að togar-
inn Skafti verði tilbúinn um 20.
september. Þriöji togari útgerð-
arfélagsins Hegranes, sem nær
einn hefur séð um hráefnisöflun
fyrir húsin 2 á Sauðárkróki og
Hraðfrystihúsið á Hofsósi hefur
ekki aflað vel síðustu daga. Skip-
ið kom inn vegna brælu um næst-
síðustu helgi með lítinn afla eftir
stutta útiveru og síðustu daga hef-
ur veiðin verið mjög dræm. -þá
Akureyri:
Bílum
stoliö
Tveimur bílum var stolið á
Akureyri um helgina og eftir
því sem best er vitað eru þeir
ófundnir enn.
Um eittleytið aðfaranótt laug-
ardags var drapplitaður Lancer,
A-10604, tekinn ófrjálsri hendi
og tilkynnti eigandinn um stuld-
inn skömmu síðar. Á laugardags-
morguninn tók svo einhver bláan
Daihatsu Charmant, A-7538,
traustataki í leyfisleysi.
Talið er að í báðum tilfellum
hafi lyklarnir verið í bílunum og
því hæg heimatökin fyrir þá sem
leið áttu um. BB.
„Riðuveiki hefur verið staðfest
í Villingadal í Saurbæjarhreppi
í fjögur ár, eða frá árinu 1982
og fram til áramóta 1985-86,
að þá var staðfest nýtt tilfelli á
Hólum. Þar hefur nokkrum
kindum verið lógað. Til við-
bótar þessu kom þriðji bærinn,
Krónustaðir inn í myndina og
það gerðist fyrir fáeinum
dögum. Þannig að riðuveikin
virðist vera að breiðast eitt-
hvað út í Eyjafirði,“ sagði
Olafur Vagnsson ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar.
Ólafur sagði að Villingadalur
væri afskekktur bær og mikil var-
úð hefði verið viðhöfð í sam-
bandi við öll samskipti fjár. Nú
hefði riða hins vegar verið stað-
fest á bæjum sem væru miðsvæðis
í sveitinni og menn væru því
hræddir um að riðan væri að
breiðast út.
Sagði Ólafur að riða hlyti að
hafa verið til staðar í a.m.k. tvö
ár þegar hún kemur fram í þetta
miklum mæli og raun ber vitni.
„Það er ekki búið að taka
ákvörðun um hvað gert verður,
en þó er búið að sækja um bætur
til Sauðfjárveikivarna og land-
búnaðarráðuneytis, ef til niður-
skurðar kemur. Svar hefur ekki
borist, en málið er í athugun.
Heimamenn hafa óskað eftir
niðurskurði á þessum bæjum, en
auðvitað eru menn tregir til þess
ef ekki fást bætur.“
Bætur eru greiddar til þeirra
sem skera niður allt sitt fé og
þurfa þeir að vera fjárlausir í tvö
ár. Bændur fá greidda ákveðna
tekjutryggingu fyrir hverja full-
orðna kind sem lóga þarf. Sauð-
fjársjúkdómanefnd hefur sett
það skilyrði að fyrir liggi loforð
frá öllum bændum á ákveðnu
svæði um að þeir skeri niður fé
sitt komi upp riða. Nú er unnið
að því heimafyrir að ná samstöðu
um að allir fallist á þetta ákvæði.
„Það er viss ágreiningur í gangi
um vissa hluti. Bent hefur verið á
að þeir bændur væru ansi illa sett-
ir ef riða kæmi upp að hausti en
þá væri búið að leggja í mikinn
kostnað við áburðarkaup og
heyöflun. Heyið er dæmt til að
eyðileggjast, sem auðvitað er
blóðugt þegar búið er að leggja
út í allt að 5-700 þúsund króna
kostnað. Það er ekkert annað ráð
en að brenna heyinu, því bændur
þurfa að losna við allt hey þegar
þeir fá sér fé að nýju. Það er ver-
ið að skoða hvort einhverjir aðil-
ar geti hugsanlega komið til móts
við þá bændur sem í þessu
lentu.“
í þessu sambandi er einnig ver-
ið að athuga hvort möguleiki sé á
að þeir bændur sem förguðu fé
sínu gætu fengið mjólkurkvóta í
staðinn. En það kæmi að vísu
eingöngu þeim bændum til góða
er stunduðu blandaðan búskap
og ættu fjós. -mþþ
Rjúpna-
stofninn
í hámarkl
Ovenju mikið hefur sést af
rjúpum við Húsavík í haust og
eru hópar jafnvel á lóðum við
hús inni í bænum. Ævar
Pedersen, fuglafræðingur,
sagði að talning sem gerð hefði
verið á 6 svæðum í S.-Þingeyj-
arsýslu síðan 1980, sýndi að
stofninn væri í vexti og reikn-
aði hann fastlega með að stofn-
inn næði hámarki í ár.
Rannsóknir sem gerðar hafa
verið á stofninum síðan 1920
sýna að sveiflur verða á stofn-
stærðinni á 10 ára tímabili og nær
stofnstærðin hámarki þegar ártal-
ið endar á tölunni 6. Á hámarks-
árunum, þegar mest er af rjúpu,
verður hún meira áberandi, þarf
meira rými og því ber meira á
henni í og við byggð. IM
Völsungar urðu 2. deildar nicistarar í gærdag er þeir Iögðu Selfyssinga að velli á Húsavík á sama tíma og KA tapaði
fyrir Víkingum á Akureyri. Eins og nærri má geta var fögnuður Húsvíkinga mikill. Blómum og heillaóskaskeytum
bókstaflega rigndi yfir leikmenn og stjórnarmenn og síðan var heimamönnum boðið á dansleik í gærkvöldi og stóð
gleðin langt fram á nótt. Þessa mynd tók KK. þegar fyrirliði Völsungs, Björn Olgeirsson, tók við sigurlaununum úr
hendi eins stjórnarmanna KSÍ. Til hamingju Völsungar, þetta er frábær frammistaða!
Ógreiddar útflutningsbætur:
c inrr nol pf hpftsi ck jlop opp a\Aiiu
> III ll lldl cl pclld on JiQÍ dCl Cllm
segir Þórarinn E. Sveinsson mjólkursamlagsstjóri
„Þetta er mjög alvarlegt mál,
stórmál ef þessir peningar skila
sér ekki. En það er verið að
vinna í þessum málum á fullu
og allar líkur á að þau leysist á
næstu vikum.“
Þetta sagði Þórarinn E. Sveins-
son mjólkursamlagsstjóri um þær
50 milljónir króna sem samlagið
á af ógreiddum útflutningsbót-
um. Að sögn Þórarins er uppi-
staðan í þessum útflutningi
Óðalsostur til Bandaríkjanna og
er það allur útflutningur þessa
verðlagsárs sem er inni í þessu
dæmi. Þess má geta að innvegin
mjólk hjá samlaginu var á síðasta
ári um 22,4 milljónir lítra
þannig að hér er um að ræða
rúmar tvær krónur á hvern lítra
af innveginni mjólk. Sams konar
staða er uppi hjá öðrum mjólkur-
búum. Á Sauðárkróki er t.d. um
að ræða milli 40 og 50 milljónir
þannig að þar er um mun hærra
hlutfall af heildarveltu að ræða.
Óskar H. Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Osta- og smjör-
sölunnar sagði í samtali við blað-
ið að lögin um framleiðslu og
sölu á landbúnaðarvörum, sem
samþykkt voru í fyrra kvæðu
skýrt á um þetta og þetta væri því
nokkuð sem ekki ætti að koma á
óvart. Óskar sagði að samkvæmt
samningi sem gerður var milli
Stéttarsambands bænda og ríkis-
ins, ábyrgðist ríkið aðeins sölu á
108 milljónum lítra af mjólk. Það
sem ekki fer í innanlandsneyslu
er flutt út og til þess að fá fullt
verð fyrir þá vöru eru greiddar
útflutningsbætur. Að sögn Ósk-
ars hafa þegar verið greiddar um
180 milljónir en eftir eru einhvers
staðar í kringum 220 milljónir
sem líklega verða greiddar út nú í
lok mánaðarins.
Þegar Snorri Evertsson mjólk-
ursamlagsstjóri á Sauðárkróki
var inntur eftir stöðu mála á
Króknum staðfesti hann að hjá
þeim væri um að ræða milli 40 og
50 milljónir króna. „Við erum
með mun minni mjólk en KEA
en við höfum verið settir í að
flytja mikið út og höfum því oft
verið verr settir en t.d. KEA. Við
erum náttúrlega búnir að vita
það núna í surnar að þetta yrði
ekki gert upp fyrr en í september
en svo er bara hvort það verður
gert upp þá. Ég held við reynum
nú samt að vera bjartsýmr svona
eitthvað fram eftir hausti," sagði
Snorri að lokum. ET