Dagur - 15.09.1986, Page 2
2 - DAGUR - 15. september 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDI'S FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Jeiðari___________________________________
Ytri aðstæður nýttar
til hagsbóta
Nú eru allar horfur á því að verðbólgan verði inn-
an við 10% á þessu ári, fari jafnvel allt niður í 7%
að sumra mati. Margvíslegar ástæður eru fyrir
þessari þróun, en sú er mikilvægust, að að þessu
hefur verið stefnt og öll hugsanleg tæki notuð til
að draga úr verðbólguvextinum. Þetta er mikil-
vægasti árangurinn í efnahagsstjórn núverandi
ríkisstjórnar.
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna reyna
hins vegar hvað þeir geta til að gera lítið úr þeim
árangri sem náðst hefur. Ef farið væri að þeirra
tillögum þyrfti ekki að kjósa hér á landi, heldur
væri nóg að krossa við „ytri aðstæður", því sam-
kvæmt kokkabókum stjórnarandstöðunnar hafa
þær ráðið öllu um efnahagsþróunina og þann
bata sem orðinn er í efnahagslífi þjóðarinnar.
Ekki skal hér gert of lítið úr því að aðstæður
hafa verið okkur íslendingum hagstæður að
ýmsu leyti. Þannig hefur lækkun Bandaríkjadoll-
ars líklega verið til góðs, þótt áhrif lækkunar hans
séu ekki einhlít. Aflabrögð hafa aukist án þess að
veiðiskipum hafi fjölgað. Þarna hefur náttúran
gengið til liðs við okkur, en það er ekki af náttúr-
legum ástæðum að tekist hefur að sporna gegn
fjölgun veiðiskipa. Það ættu þeir Svavar og Jón
Baldvin að geta skilið.
Hagvöxtur hefur aukist, viðskiptahallinn hefur
minnkað, erlendar skuldir hafa lækkað nokkuð þó
vissulega megi ná betri árangri í þeim efnum. En
við ramman reip er að draga, þar sem erfiðlega
gengur að greiða niður skuldirnar vegna gífur-
legrar vaxtabyrði á erlendum fjármagnsmörkuð-
um. Eins og forsætisráðherra hefur bent á er sá
ávinningur sem nú er orðinn í stórhættu ef ekki
verður eftir sem áður beitt ýtrasta aðhaldi á öll-
um sviðum. Til dæmis verður að koma í veg fyrir
það að aftur verði tekið upp víxlhækkunarkerfi
kaupgjalds og verðlags.
Launabreytingar hafa orðið mun meiri en ætlað
var í kjölfar kjarasamninga í ársbyrjun. Því er
spáð að atvinnutekjur hækki um 31% að meðal-
tali frá því í fyrra og kauptaxtar um 25% að með-
altali. Kaupmáttur atvinnutekna verður mun
meiri á árinu 1986 en áður var reiknað með og er
hann nú talinn munu aukast um 8% frá því í
fyrra. Kaupmáttur atvinnutekna yrði þar með
meiri en nokkru sinni fyrr og sama máli gegnir
um kaupmátt ráðstöfunartekna heimilanna og
það er nákvæmlega kaupmáttaraukning heimilis-
teknanna sem skiptir máli.
Stjórnarandstæðingar vilja gleyma þeirri stað-
reynd, að vegna góðrar efnahagsstjórnar ríkis-
stjórnarinnar, undir forystu Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra, hefur tekist að
nýta þær hagstæðu ytri breytingar sem orðið
hafa. Það er ekkert auðveldara en að láta þessar
hagstæðu „ytri aðstæður" eyðileggja efnahags-
kerfi okkar. Ríkisstjórninni hefur tekist að nýta
þær okkur til hagsbóta. HS
-viðtal dagsins.
Gunnar Níelsson eða Gunna
Nella eða Nelson þekkja flestir
sem koma nálægt íþróttum á
Akureyri, að minnsta kosti
vita þeir hver maðurinn er.
Hvort sem það eru félagar
hans í KA, Þórsarar eða bara
krakkar að fara í leikfimi í
íþróttahöllinni hljóta þeir að
rekast á Gunnar baðvörð.
Menn eiga sér yfirleitt ein-
hvern uppruna og svo er einnig
með Gunnar. „Jú það er rétt. Ég
er sonur þeirra sómahjóna Birnu
Gunnarsdóttur frá Grenjaðar-
stað og Jakobs Níelsar Halldórs-
sonar. Hann er verðlagseftirlits-
maður hér í bæ og móðir mín er
ræstingakona og húsmóðir þó að
kannski megi nú segja að það
væri fullt starf að vera húsmóðir,
alla vega með svona son, en samt
sem áður tók hún að sér ræsting-
ar.
Nú ég naut þess í frumbernsku
að eiga heima í Oddeyrargötu í
mjög góðu yfirlæti. Nágranni
minn var Arni nokkur Ingimund-
arson KA-maður með meiru.
Hann lenti nokkuð oft í því þegar
við vorum í fótbolta að boltinn
barst inn á lóð til hans. Þar sem
hann sá að þetta voru ungir KA-
menn þá tók hann þessu nú með
jafnaðargeði en blómin hans létu
heldur á sjá. Þó að Árni hafi
sennilega talið þarna að við yrð-
um nokkuð liðtækir í knattspyrn-
Svipað og ef KA færi að
spila í svörtu og hvítu
- segir Gunnar Níelsson baðvörður
unni þá greindi ég það nú nokkuð
snemma sjálfur að styrkur minn
yrði sennilega mestur utan vallar,
þar sem ég myndi þá láta að mér
kveða, og ekki myndi ég taka
beinan þátt í leiknum. Ég ákvað
það að reyna að efla íþróttalíf á
Akureyri sem ég frekast gæti sem
svo rættist síðar þegar ég gerðist
baðvörður. Það var nú samt ekki
alveg strax sem ég gerði mér
grein fyrir þessu og á tímabili
taldi ég jafnvel að ég yrði góður.
Ég orðaði það við foreldra mína
að sennilega myndi ég staðna
þarna í hverfinu og lagði til að
við flyttum um set. Eftir nokkra
umhugsun var þetta látið eftir
örverpinu og við fluttum í Hafn-
arstræti 86b þar sem áður var
verslunin Eyfjörð. Þarna var
geysilega gott að vera. Þetta er
nú þarna í Miðbænum og það var
bara yfir götuna að fara og þá var
maður kominn í fjöruna.“
- Kunnirðu vel við þig í fjör-
unni?
„Þar blómstraði maður virki-
lega. Við félagarnir, sem þá voru
náttúrlega orðnir aðrir undum
okkur ekki við þessar hefð-
bundnu stangveiðar heldur
stunduðum marglyttuveiðar af
mikilli list.“
- Hverjir voru þessir félagar
helstir?
„Þar ber nú fyrstan að telja Jón
Óðin Óðinsson sem nú er mann-
bætir og j údóþj álfari. Mér þykir
allverulega ótrúlegt að Jón
Óðinn sé orðinn mannbætir mið-
að við það hvernig hann hagaði
sér í æsku. Það var nefnilega talið
að ef einhverjum myndi auðnast
að spilla þessum unga og ég vil
leyfa mér að segja efnilega manni
sem ég var þá væri það Ódi. En
ég var nú viljasterkur maður og
stóðst þetta."
- En hvað með knattspyrnu-
iðkun þarna í Miðbænum?
„Jú ég náði þeim merka áfanga
þarna með þeim félögum mínum
að leika mína einu opinberu
knattspyrnuleiki því við stofnuð-
um nefnilega lið. Liðið hét Hvítu
drengirnir sem kom til af því að
við vorum allir á kafi í KFUM og
vissum það því að hvítt var litur
hreinleika og töldum það eiga vel
við okkur hreina og beina dreng-
ina. Við spiluðum eina þrjá eða
fjóra leiki og fórum frekar illa út
úr því. Ég lék sem hægri bak-
vörður og ég man það að eftir
þrjá leiki var markahlutfallið
óhagstætt um 36 mörk. Þetta er
mér mjög minnisstætt því að eftir
þetta þá fór ég að efast um að ég
ætti framtíð fyrir mér sem knatt-
spyrnumaður. Við lékum gjarnan
á Sana-vellinum og hann reyndist
okkur fullstór og hentaði illa.
Þjálfarinn var jafnaldri okkar
Bjarni Ármannsson sem var
ákaflega lítið gefinn fyrir knatt-
spyrnu. Við Bjarni komumst að
því að við náðum betur saman í
bílaleik. Við höfum sennilega
verið 13 ára þegar þetta var og
teljum núna að við höfum verið
mjög heilbrigðir ungir menn. Við
vorum um daginn að hlusta á
gamlar upptökur af þessum leikj-
um okkar og efuðumst þá nokk-
uð um að 13 ára drengir í dag
leiki sér á þennan hátt. Við telj-
um okkur vera síðustu kynslóð-
ina sem það gerir. Fimmtán ára
gamall flyst ég svo upp í Hjalla-
lund þar sem ég nú bý. Það var
heilmikil sorg að missa fjöruna
og flytja langleiðina upp á Gler-
árdal sem mér fannst þá.“
- Þú gerðist snemma KA-
maður ekki satt?
„Jú. Það var tvennt sem þótti
nokkuð ljóst með mig nokkuð
löngu áður en ég byrjaði að tala.
Það var að ég yrði KA-maður og
síðan myndi ég fylgja Framsókn-
arflokknum að málum. Þetta
fyrra er náttúrlega alveg á
hreinu en heyrst hefur frá ein-
hverjum undarlegum öflum að
þetta sé að breytast með Fram-
sóknarflokkinn. Um það mál vil
ég ekkert segja annað en það að
ég reyni að haga seglum nokkuð
eftir vindi. Ég var ekki orðinn
mjög gamall þegar ég fór með
föður mínum á knattspyrnuleiki
og þá fyrst með ÍBA. Einnig fór
ég töluvert í Skemmuna að sjá
handbolta og voru skemmtileg-
ustu leikirnir milli KA og Þórs.
Það var sérstaklega gaman að
fylgjast með Leibba sem er búinn
að vera mín hetja í íþróttum í
tuttugu og . . . ja ég get nú senni-
lega ekki sagt 23 ár því ég er jú
bara tuttugu og þriggja en alla
vega í 12 ár hefur hann verið mitt
átrúnaðargoð og mér þykir það
alveg með fádæmun ef hann ætlar
að hætta að leika. Svona svipað
og að KA færi að leika í svörtu og
hvítu.“
- Eitthvað hefur þú fylgst með
ákveðnu ensku félagsliði líka.
„Það er rétt. Ég tók Liverpool-
bakteríuna og var mjög slæmur
af henni um tíma. Ég afrekaði
það þegar bakterían var sem
verst í mér að kaupa mér mjög
vandað þýskt tæki sem kostaði
meira en dýrustu myndbands-
tæki. Ég keypti tækið undir því
yfirskyni að ég ætlaði að hlusta á
allar útvarpsstöðvar heimsins og
fræðast um siði þjóðanna. En
auðvitað var tækið einungis ætlað
til að fylgjast með íþróttafréttum
í BBC. Áður hafði ég verið með
geysilega gott rússneskt tæki sem
hét því ágæta nafni Sputnik
Spion. Það fór svolítið leiðinlega
þetta tæki því að vegna skap-
bræði minnar átti ég það til að
refsa tækinu ef Liverpool gekk
illa. Einnig fylgdist ég nokkuð
ötullega með liðinu í gegnum
síma, hvernig leikmönnum heils-
aðist og annað.“
- Jæja Gunnar ég þakka þér
fyrir kaffið, eitthvað að lokum?
„Jú verði þér að góðu. Þetta
gæti kannski komið út sem
ákveðin bilun en Drottinn gaf og
Drottinn tók.“ ET