Dagur - 17.09.1986, Page 9
17. september 1986 - DAGUR - 9
Þegar vertíð knattspyrnu-
manna er lokið líður aldrei
langur tími þar til farið er að
huga að næsta keppnistímabili,
athuga með ráðningu þjálfara
og fleira í þeim dúr.
Gústaf Baldvinsson þjálfari
KA sagði að það hefði ekkert
verið rætt hvort hann yrði með
KA-liðið áfram. Hann sagðist
vera búinn að stjórna liðinu í
þrjú ár og hann teldi það nægilegt
og reiknaði því síður með að
Fimleikar:
Vetrar-
starfið
er
hafið
Fimleikaráð Akureyrar hefur
nú hafið starfsemi sína og er
reiknað með að fjöldi unglinga
muni stunda fimleika á vegum
ráðsins í vetur.
Tímar fyrir byrjendur eru á
fimmtudögum kl. 17 en hjá A, B,
C, D og E hópum á mánudögum
kl. 19. Þeir krakkar sem voru á
fimmtudögum sl. vetur eiga að
mæta nk. fimmtudag kl. 18,
námskeiðsgjald er kr. 1000 fram
til áramóta.
Fimleikaráð Akureyrar vildi
koma því á framfæri að enn vant-
aði þjálfara fyrir pilta, og eru þeir
sem hafa áhuga á því starfi beðn-
ir að hafa samband við Önnu í
síma 25135. gk-.
Jþróttic.
- í fyrsta leik 1. deildar - Guðmundur
Björnsson leikur aftur með Þór
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Vertíðinni
að
Nú líður senn að því að golf-
vertíðinni Ijúki, og hjá nokkr-
um klúbbum er henni þegar
lokið.
Hjá Golfklúbbi Akureyrar eru
einungis eftir þrjú mót sam-
kvæmt niðurröðun. Það eru
firmakeppni sem verður nk. laug-
ardag, hjóna- og parakeppni sem
verður nk. sunnudag og þann 4.
okt. verður síðasta keppnin, hin
árlega „Bændaglíma“ sem jafnan
er síðasta keppni ársins. Þá mun
áformað að setja á keppni um
aðra helgi.
Þótt öllum helstu mótum
sumarsins sé lokið er fram-
lcvæmdum við völlinn haldið
áfram af krafti. Aðaláherslan
verður lögð á að byggja upp nýja
og stærri teiga á flestum holum
vallarins, og er það mjög nauð-
synleg framkvæmd þar sem teig-
arnir eru margir hverjir mjög litl-
ir og illa farnir sökum þess.
Eins og fram hefur komið í
fréttum verður landsmót 1987
haldið á Akureyri og verður það í
annað skipti á þremur árum sem
mótið er haldið á Akureyri. Þá
hefur Golfklúbbur Akureyrar
sótt um að fá að halda Norður-
landamótið 1989 og eru taldar
góðar líkur á að það mál nái
fram að ganga. gk-.
Frá fímleikasýningu í Höllinni á Akureyri.
Körfuboltinn:
æfingar að undanförnu undir
stjórn Ivars „Spóa“ Webster
sem ætlar sér stóra hluti með
Þórsliðið.
„Þetta er allt að komast í gang.
Þó höfum við ekki getað verið
með allan mannskapinn vegna
þess að menntaskólastrákarnir í
liðinu eru ekki komnir í bæinn
ennþá,“ sagði Eiríkur Sigurðs-
son, sá gamalreyndi jaxl er við
ræddum við hann, en Eiríkur ætl-
ar að vera á fullri ferð með bolt-
ann í vetur.
Eiríkur sagði að sami mann-
skapur yrði með í vetur og var í
fyrra. Að auki mun Guðmundur
Björnsson mæta til leiks en hann
lék með KR í Úrvalsdeildinni í
fyrra.
Fyrsti leikur Þórs í 1. deildinni
verður eftir rúmar þrjár vikur. Þá
koma ÍR-ingar til Akureyrar og
verður þar um að ræða einn af
úrslitaleikjum 1. deildar. ÍR-ing-
ar hafa æft mjög vel undir stjórn
Einars Bollasonar en Þórsararnir
með Webster í fararbroddi ætla
sér örugglega ekkert nema sigur í
þessari viðureign.
stjórna liðinu næsta sumar.
Árni Gunnarsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs sagði að
fundur yrði haldinn með leik-
mönnum liðsins í kvöld og kann-
að þeirra viðhorf til þjálfara-
málanna, en ekki væri neinnar
ákvörðunar að vænta strax í þeim
efnum. Þá sagði Árni að ekki
lægi Ijóst fyrir hvort Þór yrði með
óbreyttan mannskap næsta sumar
eða hvort einhverjir leikmenn
hygðust hætta eða flytja sig um
set. gk-.
Guðmundur Bjömsson (nr. 9) leikur aftur með Þór í vetur.
KA fær góðan
liðsauka í blakinu
Karlaliöi KA í blaki hefur
bæst góðurliðsauki fyrir vet-
urinn. Þar er um aö ræða
Hauk Valtýsson sem jafnframt
mun þjálfa liðið.
Haukur sem er landsliðsmaður
í blaki hefur einnig getið sér gott
orð sem þjálfari þannig að KA-
menn ættu að geta komið sterkir
til leiks þegar Islandsmótið hefst
í næsta mánuði. Liðið hefur þó
misst tvo leikmenn frá síðasta
keppnistímabili, Gunnar Svan-
bergsson og Hjalta Halldórsson,
en nýir leikmenn koma í þeirra
stað þótt enn sé ekki hægt að
skýra frá hverjir það verða.
Æfingar eru þegar hafnar og er
fyrst um sinn um að ræða úti-
æfingar sem verða á mánudög-
um, miðvikudögum og föstudög-
um kl. 20.
Kvennaliðið hefur einnig feng-
ið nýjan þjálfara, en það er hinn
gamalreyndi Halldór Jónsson
sem er án efa reyndasti blakþjálf-
ari landsins.
KA og Þón
Allt óráðið í
þjálfaramálum
Þórsarar mæta
Bollasyni og Co.
Nú styttist óðum í það að ver-
tíð körfuknattleiksmanna hefj-
ist og hjá Þór á Akureyri hafa
menn lagt hart að sér við
Kemst Hvöt
í 3. deildina?
Svo kann að fara að lið Hvatar
sem sat eftir í úrslitakeppni 4.
deildar muni leika í 3. deild
næsta keppnistímabil. Þetta
kemur til í kjölfar þess að lið
Skallagríms mun verða dæmt
til að leika í 4. deild en ekki 3.
deild eins og verið hefði ef
Skallagrímur hefði ekki gefið
leik sinn gegn ÍBÍ um helgina.
Við þetta losnar sæti í 3. deild,
og talið er víst að um það sæti
muni Hvöt leika við Leikni
Reykjavík sem hafnaði í 3. sæti í
úrslitariðli á Suðvesturlandi.