Dagur - 09.12.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 09.12.1986, Blaðsíða 5
9. desember 1986 - DAGUR - 5 3 - Slys í fjallgöngu í hæsta fjallgarði heims Myrkrið grúfði yfir Ogre-fjalls- tindinum í Himalayafjallgarðin- um í Nepal þar sem feiknastórir fjallatindar rísa úr snæviþaktri auðninni. Tveir þekktir fjall- göngumenn, Chris Bonington og Doug Scott, hafa klifið 7500 metra hátt fjallið og eru að undir- búa sig fyrir að fara niður aftur. Aðstæður á fjallinu voru ekki slæmar þetta kvöld. Himinninn var heiður og veðrið var kalt en stillt. Stormarnir, sem oft æða um fjöllin á þessum slóðum, létu ekki kræla á sér. Doug Scott lagði af stað á undan meðan Bon- ington virti fyrir sér fegurð sólar- lagsins. Hann lét sig síga rólega niður nærri lóðréttan klettavegg- inn en var ekki kominn langt þeg- ar hann heyrði skaðræðisöskur í félaga sínum. Doug klifraði að- eins ofar og sá kaðalinn sem Chris var bundinn í hverfa í myrkrinu. Pá heyrði hann rödd félaga síns sem hrópaði: Ég held ég sé fótbrotinn. Chris Bonington hafði hrapað fram af klettabelti og lent á örmjórri syllu. Hann kom niður á fæturna en það kom ekki í ljós fyrr en síðar að hann hafði fót- brotnað - á báðum fótum. Þegar þetta gerðist voru fjallgöngu- mennirnir um hálfan kílómetra frá áningarstað sínum. „Við höfðum ekkert með okkur, ekki mat, ekkert að drekka, engin ein- angrunarföt," sagði Chris síðar. „Kuldinn nísti okkur inn að beini. Ég reyndi að telja mér trú um að þetta væri ekki svo slæmt, sólin mundi koma upp eftir nokkra klukkutíma og þá myndi hlýna.“ Þegar sólin kom upp tókst Scott að koma félaga sínum í Chris Bonongton utan ■ lóðréttum klettavegg. fjallgönguskóna. Það tók þá tvo klukkutíma að komast í skjól í snjóhúsi sem þeir höfðu áður gert í fjallshlíðinni. Þeir tóku þá hressilega til matar síns ásamt tveimur öðrum mönnum sem biðu þeirra. Þegar þeir lögðu af stað niður fjallið skall á blindbyl- ur sem gerði þeim lífið leitt næsta sólarhringinn. „Fötin okkar voru eins og verstu klakabrynjur, maður gat varla hreyft sig innan í þessu. Maturinn var næstum allur búinn, við höfðum ekkert annað en te, dálítinn sykur og súputen- inga. Það var erfitt að koma stór- slösuðum manninum niður snar- brattar fjallshlíðarnar. Við höfð- um nú verið nærri matarlausir í fimm sólarhringa og vorum að því komnir að örmagnast. Svefn- pokarnir okkar frusu en þiðnuðu og urðu rennandi blautir þegar við lögðumst til svefns,“ ságði Scott síðar. Þegar hópurinn var að þrotum kominn barst hjálpin - þyrla kom og náði í slasaða manninn. Þeim fannst síðar eins og fjallið hefði verið ákveðið í að stríða þeim. „Það var eins og fjallið vildi ekki sleppa okkur fyrr en öruggt væri að við myndum ekki gleyma þessari lífsreynslu," sagði Chris. Það kemst tilskilaíDegi Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^ | restaurant café MATUR - KAFFI BRAUÐ -KÖKUR SEAFOOD SPECIALS SANDWICHES* CAKES DESSERTS VEITINGAR „Mikiö verið bókað fyrir næsta sumari' - segir Júlíus Snorrason í Sæluhúsinu á Dalvík Sæluhúsið á Dalvík hefur nú um nokkurt skeið starfað með myndarskap og ófáir eru þeir sem leggja þangað leið sína. Júlíus Snorrason, sem rekur Sæluhúsið, svaraði nokkrum spurningum um veitingastað- inn, reksturinn og ferða- mannastrauminn á árinu. - Hvaða framkvæmdir eru þetta hérna á neðri hæðinni, Júlíus? „Við höfum rekið myndbanda- leigu þarna um hríð en erum nú búin að flytja hana burt úr húsinu og hugsum okkur að taka plássið undir veitingastarfsemina. Þetta verður salur sem verður notaður fyrir fundi, samkomur og minni árshátíðir. Þarna verða ekki nein skilrúm eða þ.h.“ - Veistu nokkuð hvenær þetta verður opnað? „Ég get nú ekki svarað því nákvæmlega, það fer eftir ýmsu. Þetta verður þó vonandi komið í notkun um mánaðamótin janúar- febrúar.“ - Hvernig hefur reksturinn gengið frá því þú opnaðir Sælu- húsið? „Þetta hefur gengið þokka- lega, það er ekki hægt að segja annað. Síðasta sumar var dálítið skrýtið að því leyti að við sáum lítið af ferðamönnum fyrr en komið var fram í ágúst. Það hef- ur ekkert af þessum sumrum sem við höfum rekið þetta verið með svipuðu móti. Ég hef ekki neina skýringu á þessu nema að vorið og fyrrihluti sumars voru frekar köld hérna á annesjunum. Ég geri ráð fyrir að ferðafólk hafi frekar leitað í austurátt." - Hvernig er aðsókn bæjarbúa hingað? „Það má segja að þetta byggist á bæjarbúum, það væri ekki hægt að reka svona stað ef bæjarbúar sýndu þessu ekki skilning og kæmu hingað. Það verður að segjast eins og er að aðsóknin hefur alltaf farið vaxandi. Mér finnst fólk vera mjög ánægt með að geta haft þessa aðstöðu. Það er opið hérna frá kl. 9 á morgn- ana á sumrin og til miðnættis en á veturna styttist sá tími sem við höfum opið hérna. Við höfum samt opið allar helgar til mið- nættis." - Verður þú var við aukna aðsókn um hátíðarnar? „Nei, það hefur ekki verið neitt sérstakt um að vera hjá okk- ur þá, t.d. um jólin. Nóvember og desember hafa náttúrlega allt- af verið langlélegustu mánuð- irnir. Þetta fer að aukast um miðjan janúar þegar þorrablótin fara að byrja, þá fara líka árshá- tíðir að komast á fullt skrið. Þau ár sem við höfum rekið þetta höfum við selt talsvert af mat út úr húsinu, í Víkurröst, út á Árskógsströnd og jafnvel út í Hrísey." - Hvar liggur aðalkostnaður- inn í rekstrinum? „Hráefniskostnaður vegur sífellt meira og mér finnst hann verða þyngri með árunum. Launakostnaður hefur líka farið upp hjá okkur á síðasta ári.“ - Hentar Víkurröst ekki illa fyrir minni samkvæmi? „Jú, eins og það hús er úr garði gert núna þá hentar það illa fyrir smærri samkvæmi. Það verður að segjast eins og er að hérna á Dal- vík er lítið um húspláss fyrir minni hópa. Kiwanisidúbburinn hérna er með hús sem rúmar um 40 manns en þegar hóparnir eru stærri þá er ekki um neitt að ræða nema Víkurröst. Ef þetta er hóp- ur sem er innan við hundrað manns þá er húsið óþarflega stórt. Þessi nýi salur sem við erum að vinna við núna er reikn- aður fyrir 65 til 70 manns. Hann uppfyllir sem sagt það bil sem var á milli Kiwanishússins og Víkur- ■rastar.“ - Hvaða möguleika gefur sal- urinn aðra en fyrir samkvæmi? „Hann hentar vel fyrir ýmsar sýningar. Þá er hann mjög hent- ;ugur til minni fundarhalda og samkoma af ýmsu tagi.“ - Hvernig íeggst næsta sumar í Þig? „Mjög vel, ég er bjartsýnn því við höfum nú þegar fengið mikið af bókunum fyrir næsta sumar. Við rekum heimavist skólans yfir sumarið í þrjá mánuði og það hefur aldrei fyrr verið svona mik- ið um bókanir á þessum tíma.“ F.HB á Sanítas gosdrykkjum í VA lítra flöskum á öllu félagssvæðinu Kjinbúðir-^j^

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.