Dagur - 09.12.1986, Blaðsíða 16

Dagur - 09.12.1986, Blaðsíða 16
wrnrn, Akureyri, þriðjudagur 9. desember 1986 CT7 SA* SOUCISsnyrtivörur BADEN-BADEN • PARIS Snyrtiyörudeild Byggir Hagkaup yfir Noröurgötuna? Forstjóri verslunarinnar Hag- á Akureyri, er beiöni þessi til- bygginguna ná út á Norðurgöt-| kaups hefur sent Bygginga- nefnd Akureyrar bréf þar sem leitað er eftir samþykki bæjar- yfírvalda á stækkun verslunar- húss Hagkaups að Norðurgötu 62 á Akureyri. Jafnframt er farið fram á að fá viöbótarlóð undir bílastæði á horni Hjalt- eyrargötu og Grenivalla. Að sögn Þórhöllu Þórhalls- dóttur, verslunarstjóra Hagkaups komin vegna þess að verslunar- húsnæðið er of lítið fyrir þá starf- scmi sem þar er nú. „Lagerplássið er allt of lítið, við þurfum að setja upp fleiri afgrciðslukassa og ef við stækk- um á annað borð, viljum við gera það almennilega,“ sagði Þór- halla. í umsókninni er m.a. spurt hvort til greina komi að láta við- Ispan hf. í rekstrarerfiðleikum: Leitar eftir bæjarábyrgð - „Nú reynir á áhuga bæjaryfirvalda, “ segir Jóhann Jóhannsson framkvæmdastjóri Glerverksmiðjan íspan hf. á Akureyri hefur óskað eftir því við bæjarstjórn Akureyrar að hún veiti ábyrgð fyrir láni að upphæð 6 milljónir króna. Lánið v.erður að öllum líkind- um fengið frá Byggðastofnun en ekki hefur fengist endanlegt svar þar um. í surnar var íspan hf. skipt upp og síðan hefur fyrirtækið átt í umtalsverðum rekstrarerfiðleik- um. Láninu er ætlað að fleyta fyrirtækinu yfir erfiðasta hjallann. Að sögn Jóhanns Jóhannssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins er einkum um að ræða skuld við einn ákveðinn aðila scm reynst hefur erfitt að semja við. Jóhann sagði að ef hægt væri að losa fyrirtækið við þessa skuld þá væri hægt að taka markaðsöflun fyrir af alvöru. ís- pan á talsvert fé í útistandandi skuldum. Jóhann sagði að 65% af tekj- um fyrirtækisins væri aflað ann- ars staðar en á Akureyri og nú væri jafnvel stefnt að því að vinna markaði í Reykjavík. Markaður fyrir þessa starfsemi er nú í dvala má segja alls staðar nema í Reykjavík þar sem hús- byggingar eru stundaðar af miklu kappi. „Ef þetta fyrirtæki leggur upp laupana þá teljum við að erfitt verði að koma því af stað aftur. Hins vegar má þá telja víst að eitthvert þeirra fyrirtækja, sem við þetta fást í Reykjavík, komi hér upp útibúi. Við erum að leita eftir stuðningi yfirvalda til að komast yfir erfiðleika og nú reyn- ir á það hvort áhugi er fyrir því að halda þessu fyrirtæki í bænum,“ sagði Jóhann. ET una eða jafnvel alveg yfir hana. Pá yrði að sjálfsögðu að loka göt- unni og beina umferðinni inn á aðrar akstursleiðir. „Þetta er ein hugmyndin og ég býst við að skipulagsncfnd og bygginganefnd muni vega og meta hvað rétt sé að gera í þessu sambandi. Þetta er það mikið sem við erum að fara frani á, að ég býst við að bæjaryfirvöld skoði málið gaumgæfilega áður en ákvörðun verður tekin.“ Aðspurð sagði Þórhalla að húsgagnadeild Hagkaups, IKEA, yrði ekki flutt norður við stækk- unina. Tilgangurinn væri fyrst og fremst að bæta þá þjónustu sem fyrir væri, fá inn meiri og betri aðstöðu undir ferskt kjöt og ávaxtasöiu og setja upp bakarí til þess að geta boðið upp á heit brauð. Samkvæmt heimildum Dags kemur til greina að leita eftir kaupum á húsnæði íspan h.f., hinum megin við Norðurgötuna, ef bæjaryfirvöld leyfa viðbygg- ingu yfir götuna. A síðasta fundi bygginga- nefndar var ekki tekin afstaða til ofangreindrar umsóknar. BB. Framkvæmdir við Akureyrarkirkju liggja niðri í frostinu, en hefjast að von- um strax og hlýnar. Mynd: ÁE Bændafundur í V.-Húnavatnssýslu: Verður fjöldi bænda að hætta búskap? Gm 200 manns voru mættir á fund sem haldinn var í Asbyrgi á Laugarbakka í Vestur-Húna- vatnssýslu síðastliðið föstu- dagskvöld, þar sem til umræðu Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson: Engin síld í Eyjafirði - og mun minni síld í Húnaflóa en í fyrra „Það er mun minni síld í Húnaflóa núna en var í fyrra. Við fundum enga sfld í Eyja- fírði en hún var þar töluvert í fyrra á svipuðuin tíma. Síldin í Húnaflóa er mest tveggja ára smásíld,“ sagði Ólafur Hall- dórsson leiðangurstjóri á haf- rannsóknaskipinu Arna Friðr- ikssyni er Dagur hafði sam- band við hann um borð, þar sem skipið var statt á Öxarfírði á leið austur fyrir. En um þess- ar mundir er Hafrannsókna- stofnun að kanna ástand og magn síldarinnar í kringum landið. „Þeir sögðu mér það trillusjó- menn í Eyjafirði sem ég talaði við að engin síld fyndist í firðin- um og væru þeir í vandræðum nteð beitu fyrir vikið. Þetta er mjög mismunandi á milli ára. Smásíldin heldur sig inni á fjörð- unum á þessum árstíma en fer síðan á hreyfingu og þá austur fyrir, ef hún heldur sama munstri og hún hefur gert. Það má segja að þetta séu bara uppeldisstöðvar fyrir síldina þarna fyrir vestan og norðan," sagði Ólafur Halldórs- son leiðangursstjóri á Árna Friðrikssyni. -KK voru erfíðleikar bænda og þó sérstaklega sauðfjárbænda. Eftirtektarvert var hvað sam- staða Vestur-Húnvetninga var mikil varðandi þessi mál, því auk bændafólks var þó nokkur fjöldi fólks frá Hvammstanga mættur á fundinn, og lesin var upp ályktun Verkalýðsfélags- ins Hvatar varðandi þessi mál. Þingmenn kjördæmisins höfðu verið boðaðir á fundinn og voru þeir allir mættir utan einn sem var erlendis. Framsögumenn fundarins svo og aðrir sem tóku til máls beindu máli sínu mjög til þingmannanna og gerðu kröfu til þeirra um athafnir varðandi málefni bænda. „Nú duga ekki orðin tóm, við þurfum athafnir og frábiðjum okkur allar framboðsræður,“ sagði einn fundarnranna nt.a. Það kom mjög vel í ljós á þessurn fundi hve illa horfir fyrir mörgum bændum í sýslunni og augljóst er að margir þeirra sjá ekki fram á annað en gjaldþrot innan mjög skamms tíma verði ekkert að gert. Á fundinum var lýst ástand- inu hjá að minnsta kosti tveim ungum bændum sem hafa á undanförnum árum verið að byggja upp sínar jarðir og liggur við að allar þær svörtu skýrslur sem svo iðulega eru nefndar um hin ýmsu mál, blikni við saman- burðinn. Talið er að, að minnsta kosti sjö bændur í sýslunni verði tilneyddir að hætta búskap fljót- lega miðað við óbreytt ástand og að aðrir sjö til átta séu það illa staddir að tvísýnt sé unt hvort ekki fari fljótlega á sama veg hjá þeim. Þá kom í Ijós á fundinum að sú skoðun virðist vera ráðandi með- al bænda að koma þurfi stjórnun á alla landbúnaðarframleiðslu og lýstu menn áhyggjum sínum varðandi þá kröfu verkalýðs- hreyfingarinnar að ekki verði komið á kvóta í eggja- og kjúkl- ingaframleiðslu. Fram kom að Vestur-Húnavatnssýsla er mjög vel til sauðfjárræktunar fallin og töldu menn að sérstaklega þyrfti að hafa það í huga í umræðunni um búháttabreytingar. Nokkurs efa gætti í máli sumra um að svokallaðar auka- eða nýbúgrein- ar ættu verulega framtíð í sýsl- unni, og t.d. sagði Gunnar Sæ- mundsson í Hrútatungu að enda þótt refarækt væri hafin í sýslunni teldi hann margt benda til þess að hún gæti orðið óhagstæðari þar en víða annars staðar. Fundurinn hófst klukkan níu á föstudags- kvöld og stóð til klukkan að ganga fjögur um nóttina, fjöl- margir fundarmenn tóku til máls og var greinilegt að mikill uggur er í mönnum varðandi málefni bænda. G.Kr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.