Dagur - 09.12.1986, Blaðsíða 15
9. desember 1906- DAGMB - 15
Steinar Frímannsson:
Neikvæð sjónarmið hafa
ráðið í umræðu um
Hitaveitu Akureyrar
Hvað Heldurðu
að sé að gerast á
Sólstofu Dúfu?
Veit það ekki.
Flott jólatilboð í desember.
En gaman, við skulum hringja í síma
23717 og kanna málið.
SóLSTOFA DúFU
KOTÁRGERÐI2
Hr. ritstjóri.
Vegna fréttar í Degi í síöustu
viku um óþægindi vegna rofinnar
rafhitunar langar mig að koma
með eftirfarandi ábendingar.
Þeir sem kaupa heitt neyslu-
vatn frá Hitaveitu Akureyrar en
kynda með rafmagnsþilofnum
borga fyrir það um 250 kr. á mán-
uði í mælagjald og 56 kr. fyrir
hvern rúmmetra sem notaður er.
Ef viðkomandi setur nú vatns-
ofnakerfi í hluta af húsinu sem
samsvarar 2,8 kW eða 1 1/mín. í
hámarksnotkun þarf hann samt
sem áður aðeins að borga 250 kr.
í fastagjald á mánuði. Miðað við
að nýta 40° C hitafall út úr vatn-
inu orku sem kostar 1,21 kr./
kWh á móti 1,26 kr./kWh í raf-
hitun. Þar að auki fá menn
órofna hitun í hluta af húsinu.
Séu hins vegar settir heldur stærri
ofnar í húsið þannig að 50° C
hitafall náist fást mest 3,5 kW og
kostar 0,97 kr./kWh.
Það sem vinnst við þessa breyt-
ingu er eftirtalið.
1. Órofin hitun í a.m.k. hluta
húss.
2. Ekki þarf að bíða eins lengi
eftir að heitt neysluvatn hitni.
3. Þar sem mikið er um rafhitun
í ákveðnum hverfum verður
óeðlileg kólnun í dreifikerfi.
Það ástand myndi lagast til
mikilla muna ef þessi breyting
yrði almenn.
4. Ef fleiri nota hitaveituna til
kyndingar þýðir það að flejri
Leikfélag Akureyrar:
Ferðalög með
„Dagsláttu"
„Það er ákveðið að fara með
sýninguna til Reykjavíkur og
sýna hana þar,“ sagði Sunna
Borg leikari og stjórnandi sýn-
ingarinnar „Dreifar af dag-
sláttu,“ sem sýnd hefur verið á
vegum Leikfélags Akureyrar í
Alþýðuhúsinu að undanförnu.
Sýningin sem sett var saman í
tilefni 70 ára afmælis Kristjáns frá
Djúpalæk hefur nú verið sýnd 6
sinnum á Akureyri. Eins og áður
sagði er ákveðið að fara með sýn-
inguna til Reykjavíkur og sýna
hana í Norræna húsinu laugar-
daginn 13. og sunnudaginn 14.
desember.
Þetta er ekki eina ferðalag
„Dagsláttumanna“, því sýningin
hefur verið keypt til Sauðár-
króks. Er það starfsfólk á sjúkra-
Húsavík:
Skerðingu
Jöfnunar-
sjóðs
mótmælt
Á fundi bæjarstjórnar Húsa-
víkur á fimmtudag kom fram
mikil gagnrýni á ríkisvaldið
vegna skerðingar á framlagi
ríkissjóðs, til Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga, í fjárlagafrum-
varpi 1987.
Eftir því sem næst verður kom-
ist mun skerðingin þýða tekjumissi
fyrir bæjarsjóðinn um að minnsta
kosti 2lÆ til 3 milljónir króna,
milli ára og auka útsvarsálögur á
borgarana.
Bæjarráð hefur falið bæjar-
stjóra að skrifa hlutaðeigandi
aðilum þ.á m. þingmönnum
kjördæmisins og mótmæla
skerðingunni. IM
húsinu sem óskaði eftir henni
þangað. Sýning á Sauðárkróki
verður fimmtudaginn 11. des.
Upphaflega var áætlað að sýn-
ing á „Dagsláttunni“ yrði aðeins
ein. Þær eru nú orðnar 6 og verða
2 aukasýningar á laugardag og
sunnudag milli jóla og nýárs.
gej-
borga niður skuldirnar. Þann-
ig gæti hlutur hvers og eins
orðið minni.
Undanfarið hafa neikvæð sjón-
armið ráðið í umræðu um Hita-
veitu Akureyrar. Raunhæfur
samanburður á valkostum í
kyndingu hefur ekki verið gerður
fyrir almenning. Sérstaklega
finnst mér samanburður við
gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur
bera vott um grunnhyggni. Sann-
leikurinn er sá að H.R. selur
orku á svipuðu verði inn í hús og
Landsvirkjun selur ÍSAL. Er þá
miðað við kr./kWh. Slíku verði
verður aldrei náð nema í stóru
kerfi og við hagstæðar aðstæður.
Fyrr eða síðar lækkar orkuverð
hjá H.A. Það er því ekki spurn-
ing hvort, heldur hvenær þeir
sem hafa rafmagnsþilofna skipta
yfir í vatnsofna. Þetta er hægt að
gera í áföngum. Það skiptir þó
máli í því sambandi að hugsa
málið til enda áður en fram-
kvæmdir hefjast. Full ástæða er
'til að fá tæknimann til að hanna
og gera teikningar af öllu kerfinu
strax. Bæði er það tilskilið í bygg-
ingarreglugerð og eins getur það
komið í veg fyrir mistök sem oft
reynast bæði dýr og óþægileg.
Sömuleiðis er ekki hagstætt að
spara sérþekkingu pípulagninga-
manna.
Það sem liggur að baki þessu
tilskrifi er fyrst og fremst áhugi á
að miðla leiðbeiningum til fólks.
Einnig verð ég að viðurkenna að
ég vil hag Hitaveitu Akureyrar
sem mestan.
Akureyri 5. des. 1986
Steinar Frímannsson.
Hestur í óskilum
Brúnn, ca. tveggja vetra ógeltur.
Var tekinn í ungfolahólfi, Syðri-Bakka.
Upplýsingar veitir:
Gauti Valdimarsson. Sími 21337 í hádeginu.
Iðnráðgjafi
með
Starf iðnráðgjafa á Norðurlandi vestra
aðsetri á Blönduósi er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 20. desember og
skal umsóknum skilað til Knúts Aadnegard Raftahlíð
22, 550 Sauðárkróki, en hann gefur jafnframt allar
nánari upplýsingar um starfið í síma 95-5669 eftir kl.
20. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra.
Starfsmaður óskast
Félagsmálastofnun Akureyrar óskar eftir að ráða
sálfræðing eða félagsráðgjafa.
Nú þegar eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma
96-25880 kl. 11-12 daglega.
Umsóknarfrestur rennur út 15. jan. 1987.
Félagsmálastjóri.
Frá kjörbúðum KEA
Ódýrt í
jólamatinn
Lambahamborgarhryggur á aðeins
kr. 384,90 kg
Til sölu á öllu félagssvæðinu
meðan birgðir endast
^ kjörbúðir