Dagur - 18.12.1986, Side 1

Dagur - 18.12.1986, Side 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Húsavík: Bjami ekki út kjöitímabilið? „Ráðning mín sem bæjarstjóra var á þann veg að ég er ráðinn út kjörtímabilið. Þrátt fyrir það er sérákvæði í samningn- um þannig að bæjarfulltrúum er það Ijóst að ég mun ekki starfa út allt kjörtímabilið,“ sagði Bjarni Aðalgeirsson bæjarstjóri á Húsavík. Bjarni sagði að sig langaði að breyta til í starfi. „Ég byrja ekki á því að tilkynna það blöðum, það er alveg ljóst,“ sagði Bjarni er hann var spurður um það hvað væri á döfinni hjá honum. Vitað er að Bjarni ætlaði að taka þátt í kaupum á bátnum Ljósfara sem nýlega var keyptur til Húsavíkur, en ekkert varð úr því. Hins vegar á Bjarni og gerir út bátinn Björgu Jónsdóttur og hefur heyrst að hann hyggist snúa sér alfarið að útgerð. gej- Margrét EA: Alvarleg bilun í spilbúnaði - Ekki á veiðar fyrr en eftir áramót „Það er Ijóst að þetta er mikið áfall og skipið fer ekki á veiðar fyrr en eftir áramót,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri Samherja hf. um bilunina í Margréti EA | 710. Skipið kom nýlega frá Noregi þar sem það var mikið lagfært og endurbætt. Hér er verið að hífa í land hluta af rörum sem taka þarf úr Margréti EA. Mynd. gej- Togarinn Margrét EA sem áður hét Maí og var gerður út frá Hafnarfirði er gerður út af úgerð- arfélaginu Samherja hf. sem meðal annars gerir út aflaskipið Akureyrina og hið nýja rækju- skip Oddeyrina sem er eitt af raðsmíðaskipunum. í fyrstu veiðferð Margrétar EA varð bilun í spilbúnaði skipsins og kom það til hafnar eftir stutta útiveru. Talið var að bilunin væri ekki stórvægileg, en nú er komið í ljós að skipið fer ekki á veiðar „fyrr en eftir áramót,“ eins og Þorsteinn Már sagði. Ljóst er að járnsvarf hefur komist í vökva- kerfi skipsins og þarf því að taka það allt í land til hreinsunar. „Þetta eru margir kílómetrar af rörum og vinna 26 menn á vökt- um við þetta verk. Það verða eflaust skiptar skoðanir um orsökina, en afleiðingarnar eru ljósar. Þetta er því geysilegt áfall fyrir okkur,“ sagði Þorsteinn Már. Auk starfsmanna Samherja. hf. eru það starfsmenn á Vél- smiðjunni Atla sem vinna að við- gerðinni. gej- Forvitin augu gægjast út úr búri er komið var á íslenska grund. Myndir: rþb. Flogið með dýrmæta refi frá Noregi: Refir flugleiðis frá Noregi - Sá dýrasti kostar 70 þúsund Verömætasti refafarmur sem til landsins hefur borist kom til Akureyrar í gær, en þá flutti Flugleiðaþota 200 refi frá Nor- egi. Verðmætið skiptir millj- ónum en dýrasti refurinn kost- aði 70.000 kr. Viðtakandinn er 25 ára loðdýratæknir, Ragnar Sverrisson, en í sumar reisti hann 1.300 fermetra refabú að Hyrnu í Skagafirði og eru þetta fyrstu refirnir í búið. Hér er um að ræða blárefi, silf- urrefi og einnig 6 litaafbrigði sem að sögn Ragnars eru ekki til í landinu. Þar á meðal er polarref- krónur ur sem er mjög mikilvægur við framleiðslu á ættarblendings- skinnum svo sem Golden Island o.fl. Ættarblendingar hafa skinnaverðmæti silfurrefs og frjósemi blárefs. Þarna voru einnig tegundir á borð við Fire and Ice, Gleaser blue, Carrier og Platina. Jólabækurnar: Alistair MacLean slær enn í gegn Þegar gefnar eru út bækur á íslandi þá er yfirleitt talað um jólabækur og ástæðan augljós. En hvernig ætli jólabókunum reiði af fyrir þessi jól. Við leituðum til bókaverslana á Akureyri, Húsavík og Sauðár- króki og fengum lista yfir 10 söluhæstu bækur í hverri versl- un miðað við gærdag. Meðal- talslistinn lítur svona út: 1. Svarti riddarinn - Alistair MacLean. 2. Alíslensk fyndni - Magnús Óskarsson tók saman. 3. Grámosinn glóir - Thor Vilhjálmsson. 4. Saman í hring - Guðrún Helgadóttir. 5. Líf mitt og gleði (ferill Puríðar Pálsd.) - Jónína Michaelsdóttir skráði. 6.-7. Aldnir hafa orðið - Erl- ingur Davíðsson. 6.-7. Enga stæla! - Andrés Indriðason. 8.-9. Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur, æska. 8.-9. Jólasveinarnir - Iðunn Steinsdóttir. 10.-12. Dreifar af dagsláttu - Kristján frá Djúpalæk. 10.-12. Purpuraliturinn - Alice Walker. 10.-12. Saklaus svipur - Sidney Sheldon. Pessi röð gefur ekki til kynna í hvaða magni bækurnar hafa selst heldur er þetta meðaltal yfir 10 söluhæstu bækur í hverri verslun, en auðvitað er það bundið við staðhætti og íbúafjölda í hvaða magni bækur seljast. Pær bækur sem voru nálægt því að komast á þennan lista eru Kæri Sáli, Tíma- þjófurinn og A misjöfnu þrífast börnin best. Að sögn bóksala eykst salan jafnt og þétt. Stefán Jónasson í Bókabúð Jónasar sagði barna- og unglingabækur seljast mjög vel um þessar mundir, en yfirleitt kæmi verulegur kippur í sölu á reyfurum og ævisögum rétt fyrir jól. Ingvar Pórarinsson hjá Bóka- verslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík sagði að þá vantaði t.d. bækur eins og Líf mitt og gleði og Grámosinn glóir og hefðu þær eflaust verið ofar á lista hjá sér ef hægt hefði verið að fá þær jafn- óðum. ' SS Á Akureyrarflugvelli tóku sendibílar við dýrunum og fluttu þau til Skagafjarðar. Vopnaðir lögregluþjónar fylgdust með, reiðubúnir að láta til skarar skríða ef refunum tækist að sleppa. Dýrin virtust ágætlega á sig komin eftir flugferðina, en létu lítið á sér kræla. Að sögn Ragnars Sverrissonar þurfa refirnir að vera í sóttkví í 16 mánuði og þá fyrst verður hægt að huga að sölu á skinnum. Hann sagði verð á skinnum lágt um þessar mundir en það stæði til bóta. Ragnar fær fóður frá Mel- rakka á Sauðárkróki. Spurning- unni um það hvort þetta myndi borga sig svaraði hann á þessa leið: „Annað hvort éta þeir mig út á gaddinn eða ég lifi á þeim. Ég ætla að lifa á þeim.“ SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.