Dagur - 18.12.1986, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 18. desember 1986
_yiðtal dagsins.
IMOE
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR PÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðari.________________________________
Sameiginlegir hags-
munir íbúa sveita
og þéttbýlis
Oft vill það gleymast í umræðum um land-
búnaðarmál og þann mikla samdrátt sem þar
er að verða, hversu þéttbýlisstaðirnir víðs
vegar um landið eru háðir þessari atvinnu-
grein. Margvísleg atvinnustarfsemi tengd
landbúnaði er rekin í þéttbýlinu, misjafnlega
mikil, en snertir bæði úrvinnslu afurða s.s.
kjöts, mjólkur, skinna og ullar og fjölbreytta
þjónustustarfsemi.
Á fundi fjórðungsstjórnar Fjórðungssam-
bands Norðlendinga sem haldinn var nýlega
kom þetta mál til umræðu, þ.e. um áhrif sam-
dráttar í landbúnaðarframleiðslu á þéttbýlis-
þróun. Eftirfarandi ályktun var þá samþykkt:
„Ljóst er að samdráttur í landbúnaði raskar
búsetu í sveitum og hefur áhrif á atvinnu
þeirra, sem í þéttbýlisstöðum vinna að
vinnslu landbúnaðarafurða og annast við-
skipti eða þjónustu við íbúa sveitanna. Af
þessum ástæðum má ekki líta á samdrátt
búvöruframleiðslunnar sem byggðamál sveit-
anna einna, heldur alls viðkomandi byggða-
svæðis.
Ljóst er að samdráttur framleiðslu er tilvilj-
unarkenndur eftir byggðarlögum. Hann er oft
án tillits til gildis einstakra býla í því að
tryggja lágmarks byggð á ákveðnum
svæðum. Þannig verður samdrátturinn mis-
jafnlega djarftækur eftir framleiðslusvæðum.
Með þetta í huga leggur fjórðungsstjórn til
að á hverju framleiðslusvæði á Norðurlandi
verði hafnar viðræður milli sveitarstjórna
þéttbýlisstaðanna, forráðamanna vinnslu-
stöðvanna og fulltrúa bændasamtaka, um að
gera á eigin vegum úttekt á þróuninni frá
byggðalegu sjónarmiði og benda um leið á
úrræði. Fjórðungsstjórn skorar á Byggða-
stofnun og Ræktunarfélag Norðurlands að
taka þátt í þessu starfi, með leiðbeiningum
og sérfræðilegri aðstoð, m.a. til að gæta sam-
ræmis í vinnubrögðum. “
Hér er tekið á mikilvægu máli, því búast má
við að tilviljanir geti ráðið miklu um samdrátt-
inn í landbúnaðarframleiðslunni, verði ekki
reynt að taka á málinu og skipuleggja fram-
leiðsluna með tilliti til hagsmuna íbúa bæði
sveitanna og þéttbýlisstaðanna, sem margir
hverjir eiga stóran hluta afkomu sinnar undir
framleiðslu sveitanna komið. HS
„Hef gaman af
stærðfræði"
— segir Guðbjörn Freyr Jónsson, sigurvegari á neðra stigi
í stærðfræðikeppni framhaldsskóla
Stærðfræði- og eðlisfræði-
keppnir eru orðinn fastur liður
í starfsemi framhaldsskólanna
á Islandi. Búið er að halda
undanúrslitakeppni í stærð-
fræði í vetur og var það nem-
andi í Menntaskólanum á
Akureyri sem stóð sig best í
yngri flokki. Nemandi þessi er
Guðbjörn Freyr Jónsson, úr
Borgarfirði. Guðbjörn er í 2.
bekk, stærðfræðideild og er
hér kominn í viðtal dagsins, er
hann spurður um keppnina og
fleira.
„Þessi keppni skiptist í tvö stig,
það er efra og neðra stig. Á efra
stigi eru þeir sem eru í tveimur
efri bekkjum framhaldsskóla og á
neðra stigi eru síðan þeir sem eru
í tveimur neðri bekkjunum. Jú,
sumt af þessu er nokkuð erfitt.“
- Hvar fer keppnin fram?
„Hún fer fram í skólunum,
prófin eru send að sunnan og það
geta allir tekið þátt sem vilja, líka
þeir sem ekki eru í stærðfræði-
deildunum. Já, já, það er ágæt
þátttaka. Framhaldið er síðan
það að 20 efstu á efra stigi og 5
efstu á neðra stigi taka þátt í úr-
slitakeppni sem fer fram í mars.
Eftir þá keppni verður valið
Olympíulið í stærðfræði, ég held
að það séu 2 eða 3 sem fara til
Kúbu næsta sumar að keppa.“
- Gerirðu þér vonir um að
komast til Kúbu?
„Nei, ég á ekki von á því.“
- Er mikill undirbúningur fyrir
svona keppni?
„Nei, það er nú lítið hægt að
undirbúa sig. Þetta er almenn
stærðfræði og það er því aðal-
atriðið að beita skynsemi, það
byggist ekki svo mikið á því að
kunna einhver ósköp en auðvitað
eru viss grundvallaratriði sem
maður þarf að kannast við. Á
neðra stigi er prófið eingöngu
krossapróf og það dregst frá ef
maður er með vitlaust svar. Á
efra stiginu er hluti krossapróf og
síðan þarf líka að skila útreikn-
ingum. Fyrir keppnina í mars
getum við að vísu æft okkur, við
fáum send fjögur æfingadæmi
hálfsmánaðarlega. Ég er búinn
að fá eina sendingu og það gekk
sæmilega."
- Þú segir að þetta sé ein-
göngu krossapróf á neðra stigi, er
þá ekki hægt að fara í prófið og
giska á rétt svar, eins og í Lottó?
„Nei, það er erfitt. Svörin eru
mjög lík og ég held að flestir
reikni dæmin til að geta merkt
við rétt svar.“
- Hvernig stóðu nemendur
MA sig í þessari keppni?
„Ég held að árangurinn hafi
verið ágætur. Á efra stigi voru
tveir sem komust í úrslit héðan,
en á neðra stigi var ég einn, en
það var nemandi héðan í 13. sæti.
Ég held að í gegnum árin hafi
nemendur MA staðið sig vel í
þessari keppni. í fyrra held ég að
einn hafi komist í úrslit á efra
stigi og nokkrir á neðra stigi.“
- Eru keppendur jafnt strákar
og stelpur?
„Nei, það eru aðallega strákar
sem taka þátt í þessari keppni, en
það eru nokkrar stelpur. Nei,
það eru engar stelpur í úrslitum
héðan núna.“
- Hefurðu gaman af stærð-
fræði?
„Já, mér finnst hún ágæt. Já,
ég hef nú yfirleitt verið með 10 í
stærðfræði, þangað til ég kom í
MA.“
- Fleiri áhugamál en stærð-
fræði?
„Já, ég hef mikinn áhuga á
tölvum. Ég veit ekki hvort ég fer
í tölvunarfræði, það er allt
óákveðið með framtíðina.“
- Nú ert þú úr Borgarfirði,
hvers vegna valdirðu MA?
„Hérna er heimavist, systir
mín var hérna í skóla og ég
þekkti nokkra krakka sem voru
að fara hingað og það hafði líka
áhrif. Já, mér líkar mjög vel
hérna. Það er gott að vera á
heimavist, heilmikið fjör. Nei,
það er oft lítill friður til að læra.“
-HJS
Rangárbræður
árita plötu sína
Hljómplatan Rangárbræöur
hefur selst mjög vel, fyrsta
upplagið er nú uppselt og ann-
að upplag komið á markað.
Fjöldi áskorana, sérstaklega úr
Skagafirði, hefur borist til bræðr-
anna um að þeir árituðu plötu
sína fyrir kaupendur eins og þeir
gerðu á Húsavík um síðustu
helgi.
Baldur og Baldvin Kr. Bald-
vinssynir og Úlrik Ólason munu
því árita plötuna í Tónabúðinni á
Akureyri frá kl. 20-22 á fimmtu-
dagskvöld og í Skagafirði á laug-
ardag, þeir verða í Skagfirðinga-
búð á Sauðárkróki frá kl. 16-18
og í Kaupfélaginu í Varmahlíð
kl. 20-22. IM