Dagur - 05.01.1987, Síða 5

Dagur - 05.01.1987, Síða 5
5. janúar 1987 - DAGUR - 5 Gæsluvellir: Gjaldið hækkar Frá og með 1. janúar 1987 hækkar gjaldtaka á gæsluvöll- um á Akureyri sem hér segir: Gjald fyrir hverja heimsókn er kr. 25 í lausasölu, en greiða skal með 2 gæslumiðum fyrir hverja heimsókn, þ.e. kr. 20 ef keypt eru kort. Kort með 25 miðum kostar 250 kr. Ef systkini sækja gæsluvöll skal greiða með 3 gæslumiðum fyrir 2 börn eða fleiri, þ.e. kr. 30, en samsvarandi gjald í lausasölu er kr. 38. Gjald skal aðeins innheimta fyrir börn á aldrinum 2-7 ára og miðast neðri aldursmörkin við það að barnið hafi náð 2 ára aldri, en þau efri að barnið nái 7 ára aldri á almanaksárinu. Húsavík: Lifur seld til Kanada Fyrirtækið HIK hf á Húsavík var að fá pöntun frá Kanada á rúmlega 60 þúsund dósum af niðursoðinni lifur. Stór mark- aður er fyrir þessa vöru í Kanada en mjög erfitt mun vera að komast inn á hann vegna þess að miklar kröfur eru gerðar til gæða framleiðsl- unnar. HIK hóf starfsemi í september og nú er búið að sjóða niður lifur í um 70 þúsund dósir, varan hef- ur verið seld til Ítalíu, Bandaríkj- anna og Kanada. Strax eftir að sending barst þangað um daginn kom þessi stóra pöntun og auk þess var hærra verð boðið fyrir vöruna. Hráefnisskortur háði fyrirtækinu í nóvember en nú lít- ur betur út með hráefnisöflun því stærri bátarnir eru að hefja róðra auk þess sem fyrirtækið fær alla lifur sem hægt er að nýta af Kol- beinsey. Útlitið er því bjart fyrir fyrirtækið eftir áramótin, öll fyrirhuguð framleiðsla í janúar og febrúar er seld. IM Ólafsfjörður: Grútar- mengun í höfninni „Þetta var visst vandamál hér, en það hafa farið fram nokkrar úrbætur sem að gagni komu,“ sagði Valtýr Sigurbjarnarson bæjarstjóri í Olafsfirði um grútarmengun í höfninni. Slíkt vandamál þekkja menn á þeim stöðum þar sem loðnulönd- un fer fram. Siglfirðingar hafa átt í miklum erfiðleikum vegna grút- armengunar í höfninni og fleiri staðir hafa gert ráðstafanir til að losna við þessa mengun. Löndunarbúnaðurinn í Ólafs- fjarðarhöfn var lagfærður veru- lega til að losna við grútinn. „Þetta kom að góðum notum, því í höfnina barst meira af þessu heldur en nauðsynlegt kann að teljast, svo hér var allt löðrandi í þessum óþverra. Því má ekki gleyma að menn eru ekki nógu passasamir við losun úr bátum sínum og skipum. Það er vitað mál að menn hafa lensað hér inn- an hafnarinnar. Þeir hafa verið teknir tali og virðist ástandið frekar að skána. Maður ætlar engum að hann geri svona nema í hugsunarleysi,“ sagði Valtýr. gej- Brunabótafélag íslands hóf starfsemi sína 1. janúar 1917 og á því 70 ára starfsafmæli nú í upphafi árs 1987. Opióhús Sjanúar 1987 í tilefni þessara tímamóta í sögu félagsins munum við hafa opið hús og taka á móti viðskiptavinum og vel- unnurum á aðalskrifstofu Bruna- bótafélagsins, Laugavegi 103, Reykjavík og í eftirtöldum umboðum okkar: Akranes, Ölafsvík, Grundar- fjörður, Stykkis- ---- hólmur, Isafjörður, BRUNABtXTAFÉLAG Sauðárkrókur, Siglufjörður, Ólafs- fjörður, Dalvík, Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Reyðar- fjörður, Eskifjörður, Norðfjörður, Vestmannaeyjar, Selfoss, Hveragerði, Mosfells- hreppur, Hafnarfjörður, Kópavogur, Garða- bær, Grindavík og Keflavík. fSLANDS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.