Dagur - 05.01.1987, Qupperneq 11
5. janúar 1987 - DAGUR - 11
Minning:
Ý Steingrímur Jóhannesson
Fæddur 23. febrúar 1921 - Dáinn 23. desember 1986.
Þann 23. desember síðastliðinn
andaðist að heimili sínu Gríms-
stöðum í Mývatnssveit, bernsku-
vinur okkar og félagi Steingrímur
Jóhannesson.
Hann lést nær fyrirvaralaust og
um aldur fram. Steingrímur
fæddist að Grímsstöðum 23.
febrúar 1921 og ól þar allan sinn
aldur að undanskildum tíma-
bundnum frávikum. - Foreldrar
hans voru Elín Kristjánsdóttir og
Jóhannes Sigfinnsson bóndi þar.
Elín var skyld foreldrum okkar
báðum og ræktuð frændsemi og
vinátta þeirra á milli. Þar við
bættist að móðir Elínar, Arnfríð-
ur Björnsdóttir, var heimilisföst á
Gautlöndum í mörg ár og einnig
þrjú börn hennar, sum aðeins um
stundarsakir en önnur lengur.
Arnfríður var dálæti heima-
manna ekki síst okkar barnanna
svo að okkur fannst jafnan að við
eiga hlut í henni með barnabörn-
um hennar. Þannig mynduðust
eins konar fjölskyldutengsl við
Grímsstaði, og þá fyrst og fremst
Elínu og Steingrím með tilheyr-
andi frændrækni.
Ógleymanlegar verða okkur
heimsóknir í Grímsstaði. Fram-
andlegt lífríki þessarar landar-
eignar, framandleg störf við vatn
og veiði, Elín með sína smitandi
gleði í augum og hlátri, er sá svo
um, að við nutum lífsins til
grunns og svo Stjana á Gríms-
stöðum með fiðluna sína - ekki
gleymist hún heldur. Með árun-
um lögðust niður þessar heim-
sóknir og sundur dró með okkur
frændsystkinunum þar til við fór-
um að starfa saman í ungmenna-
félaginu Mývetningi.
þátttakandi. Ávallt reiðubúinn
til starfa án annars ágóðahlutar'
en þess að vinna vel að góðu
málefni. Þannig munum við vinir
hans og félagar jafnan minnast
hans - með hönd í hönd.'
Eflaust munu einnig margir
minnast Steingríms sem afreks-
manns á leiksviði. Þar undi hann
sér sem fiskur í vatni og leysti
hlutverk sín með ágætum. Að
öðrum ólöstuðum munu þó þrjú
hlutverk bera hæst á leikaraferli
hans; Hjálmar tuddi í Maður og
kona, Candy í Mýs og menn og
Skrifta-Hans í Ævintýri á
gönguför. Svo ólík sem þau eru
einkenndust þau öll af næmi fyrir
gerð persónunnar og hófstillingu
í meðferð hennar. Skynjun hans
á harmi og skopi skáldlistarinnar
var honum slíkur vegvísir við val
á upplestrar- og skemmtiefni,
sem hann oft var krafinn um, að
undrun sætti.
Steingrímur lagði mikla stund
á íþróttir svo sem skíðagöngu og
tók þátt í mörgum skíðamótum.
Á meðan leikfimifélag Mývetn-
inga starfaði var hann þar stöðug-
ur þátttakandi. Á glímuvelli var
hann góður liðsmaður bæði sem
leikmaður og dómari. Síðast en
ekki síst hefur hann ástundað
knattspyrnu allt frá unglingsárum
og fram að hinstu stund, og nú
síðustu árin með sonum sínum.
Steingrímur kvæntist Þorgerði
Egilsdóttur Jónassonar frá Húsa-
vík. Þau eignuðust átta börn sem
öll eru á lífi og ennfremur stóran
hóp barnabarna.
Hann lét af búskap fyrir all-
mörgum árum og hefur síðan
unnið við Kísiliðjuna í Mývatns-
sveit. En sér til upplyftingar og
yndisauka átti hann jafnan
nokkrar kindur er tengdu hann
við jörð og gróanda.
Steingrímur á Grímsstöðum
lagði ekki fyrir sig langa skóla-
göngu eða heimsreisur. En sem
náttúrubarn, því það var hann
reyndar, safnaðist honum ýmis
fróðleikur, sem hvorki verður
kenndur né numinn nema í
tengdum við lifandi náttúru
umhverfisins.
Hann lifði og dó á bökkum
Mývatns þar sem móðir náttúra er
gædd meiri grósku og auðugra lífi
en annars staðar gerist og fegurð-
in gengur aldrei til viðar. Og nú,
er við kveðjum okkar gamla góða
vin fögnum við því hlutskipti
hans.
Ásgerður og Böðvar
á Gautlöndum.
Hjálparsveit skáta
óskar bæjarbúum
gleðilegs nýs árs.
Með þökk fyrir veittan stuðning á liðnu ári.
Hjálparsveit skáta
Akureyri
Afgreiðslustarf
Óska eftir að ráða starfskraft til afgreiðslustarfa.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Verslunin Garðshorn
Byggðavegi 114.
Óskum eftir að ráða
afgreiðslufólk
i bókaverslun
Leitað er eftir fólki vönu afgreiðslustörfum.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags fyrir 9.
janúar
Stýrimann
vanan netaveiðum vantar á 90 lesta bát
frá Dalvík.
Uppl. í síma 61408.
Núna á dögum harðvítugrar
auðs- og einkahyggju, er vissu-
lega tímabært að rifja upp og
skilgreina eðli og kjarna ung-
mennafélaganna, áhrif þeirra á
einstaklingana og þá jafnframt. á
þjóðfélagið allt. Um leið og við
gengum í ungmennafélagið, á
hverjum stað, skynjuðum við og
námum smám saman þá sameign-
ar- og samvinnukennd sem var,
og er væntanlega enn, einkunn
þessa félagsskapar, þar sem allir
unnu með öllum og fyrir alla til
þess að félagið þeirra mætti leysa
sem flest og stærst verkefni til
velferðar fyrir það sjálft og þjóð-
félagið.
Að sjálfsógðu höfðu, og hafa
ekki allir jafnnæman félagsanda.
En Steingrímur á Grímsstöðum
var dæmigerður ungmennafélagi
og vék aldrei af þeim vegi í hverj-
um féiagsskap, er hann gerðist
Höfðing-
leg gjöf
Síðasta sunnudag í aðventu voru
tendruð ljós á nýjum krossi við
kirkjugarð Akureyrar. Gefandi
krossins er Benedikt Arthúrsson
Hafnarstræti 7 Akureyri.
Stjórn kirkjugarða Akureyrar
færir gefandanum bestu þakkir
fyrir hina höfðinglegu gjöf og
þann hlýhug er hann sýnir kirkju-
görðum Akureyrar með gjöf
þessari.
Um leið og við óskum gefand-
anum svo og Akureyringum öll-
um gleðilegs árs og velfarnaðar á
nýju ári viljum við þakka starfs-
fólki kirkjugarðanna fyrir vel
unnin störf á liðnum árum.
Stjórn kirkjugaröa Akureyrar.
Dansstudio Alice
óskar öllum gleðilegs heilsuríks komandi árs með þakklæti fyrir það gamla.
Við byrju
12. janúar
Jazzdans
fyrir 7 ára og eldri, byrjendur og framhald.
Jazzleikfimi
fyrir konur, byrjendur og framhald.
Almenn leikfimi - rólegir tímar
fyrir konur á öllum aldri, byrjendur og framhald.
Jazzleikskóli
fyrir 4 til 6 ára, byrjendur og framhald.
Kennarar:
Aerobic
Tryggvabraut 22 •
Akureyri
Alice Jóhanns.
Hulda Ringsted.
Gestakennari;
Richard Bradley.