Dagur


Dagur - 07.01.1987, Qupperneq 3

Dagur - 07.01.1987, Qupperneq 3
7. janúar 1987 - DAGUR - 3 Einn af eldsvoðum ársins á sl. ári á Akureyri var í Skipasmíðastöðinni Vör á Akureyri. Hér sjást slökkviðliðsmenn að störfum þar. Mynd: kga Akureyri: Bmnaut- köllum fækkaði Brunaútköll hjá Slökkviliöi Akureyrar á sl. ári voru 71 talsins og fækkaði því um 11 frá árinu 1985. Af þessuni útköllum voru þrjú utanbæjar. Mestu eldsvoðarnir voru að Sólbergi á Svalbarðsströnd og Fjólugötu 2 en þar lést kona í brunanum. Slökkviliðið annast einnig rekstur sjúkrabifreiðanna. Sjúkraútköll voru á sl. ári 977, þar af 130 utanbæjar. Árið 1985 voru 1050 útköll, þar af 172 utan- bæjar. Um fækkun er því að ræða bæði hvað varðar brunaútköll og sjúkraútköll. Brunaútköllin á sl. ári voru flest í maí eða 9 talsins, en í fjór- um mánuðum voru þau 8 talsins. í maímánuði var ekkert bruna- útkall. í tveimur eldsvoðum sem báðir áttu sér stað í ágúst, var um tjón að ræða sem metið er yfir 2 milljónir króna en í öðrum elds- voðum var lítið tjón. gk-. Símagjöld: Símtöl eftir kl. 19 hækka mest Þann 1. janúar hækkaði gjaldskrá fyrir símaþjónustu almennt um 10%. Þannig hækkar t.d. afnotagjald fyrir síma úr 530 kr. í 585 kr. og verð fyrir umframskref úr 1,20 kr. í 1,32 kr. Stofngjald síma hækkar nokkuð meira eða úr 3.500 kr. í 5.000 kr. Gjald fyrir 10 orða símskeyti hækkar úr 43,90 í 48,60 kr. og gjald fyrir hverja mínútu í farsímaþjón- ustu hækkar úr 6,00 kr. í 6,60 kr. Gjöld þessi eru án sölu- skatts. Þá er gerð sú breyting á nætur- og helgidagataxta sjálfvirkra sím- tala að afsláttur frá kl. 19:00 til 08:00 frá mánud. til föstud. og frá kl. 19:00 á föstud. til 08:00 næsta mánudag breytist úr 50% í 33%. Þá hefur samgönguráðherra falið stofnuninni að gera tillögur til breytinga á uppbyggingu gjaldskrár fyrir símaþjónustu er leiði m.a. til eftirfarandi: 1. Lagður verði niður gjald- flokkur 1 fyrir sjálfvirk símtöl, þ.e. 60 sek. í skrefi og verði sá gjaldflokkur sameinaður gjald- flokki 0, þ.e. 360 sek. í skrefi. Verði framkvæmd við þessa breytingu hafin eins fljótt og kostur er eftir því sem nauðsyn- legar tæknibreytingar leyfa. Nú þegar hafa slíkar breytingar verið gerðar á nokkrum stöðum á land- inu. 2. Gerðar verði breytingar á gjaldflokkum fyrir sjálfvirk sím- töl þannig að dregið verði úr þeim mikla mun sem nú er á verði langlínusamtala og staðar- samtala. 3. Samtímis framkvæmd iiðar 2 hér að ofan verði veittur viðbót- arafsláttur á langlínusamtöl eftir kl. 23:00 til 08:00 frá mánud. til föstud. og um helgar umfram þau 33% sem ákv. er að gildi frá 1. jan. 1987. Símgjöld hafa ekki hækkað síðan í ágúst 1983, en í júlí 1985 lækkuðu þau að meðaltali um 8%. (Úr frcttatiikynningu). Einn af fjölmörgum árekstrum í umferöinni á Akureyri á síöasta ári. Þessi árekstur varð á mótum Hrafnagilsstrætis og Þórunnarstrætis. Akureyri: Aldrei fleiri árekstrar Árekstrar og umferöaróhöpp á Akureyri á sl. ári voru alls 810 talsins og hafa aldrei oröiö lleiri á einu ári hér í bæ. Alls var um 466 skráða árekstra að ræða þar sem gerðar voru lögregluskýrslur, og í 344 tilfellum var um það að ræða að ökumenn gáfu sjálfir skýrslur hjá viðkomandi tryggingarfélagi. Desembermánuður sló öll met varðandi fjölda árekstra. í þeim mánuði urðu alls 67 árekstrar og umferðaróhöpp í bænum og hafa aldrei orðið fleiri í einum rnánuði á Akureyri. Eitt banaslys varð í umferðinni á Akureyri á síðasta ári, en það varð er ekið var á mann á Hörgárbraut. gk-. Laxdalshús opnað á ný Gagngerar skipulagsbreytingar hafa átt sér stað í Laxdalshúsi og hefur Bjarni Ingvason mat- reiðslumeistari tekið að sér reksturinn á móti Erni Inga. Húsið hefur verið lokað undanfarna fjóra mánuði en nú er meiningin að rífa starf- semina upp. Laxdalshús verð- ur opnað næstkomandi föstu- dagskvöld og er þá boðið upp á sérstakan tilboðsmatseðil fyrir leikhúsgesti frá kl. 18. Verðið er einstaklega hagstætt. Örn Ingi Gíslason sagði að húsið hefði verið rekið með ýms- um hætti undanfarin þrjú ár, aðallega sem sumarhús, en nú væri stefnt að því að hafa það opið meira eða minna allt árið. Hægt er að leigja það fyrir veislur og uppákomur og sagði Bjarni að nú þegar væri hægt að panta hús- ið fyrir þorrablót. Hugmyndin er að bjóða upp á hljóðfæraleik og viðeigandi húslestur á þessum þorrablótum. Örn sagði að það væri mikill akkur í því að fá mat- reiðslumeistara í reksturinn og ætti tilkoma hans eftir að opna augu Akureyringa enn frekar fyr- ir þessu einstaka húsi. Áfram verður boðið upp á myndlistarsýningar og ýmsar uppákomur í Laxdalshúsi og er helmingur neðri hæðarinnar hugsaður fyrir slíkt. Salurinn uppi tekur 40-50 manns i sæti. Fólk getur alltaf komið, skoðað húsið og sýningar, án þess að nokkur kvöð fylgi. En það er óvitlaust að skella sér á ríkulega máltíð fyrir 850 krónur og ganga síðan fimm mínútn,a gang norður í Samkomhús og njóta leiksýn- ingar. Fyrirtaks kvöldstund. SS Meiraprófs- námskeið bifreiöastjóra veröur haldiö á Akureyri, ef næg þátt- taka fæst og hefst þá í janúarmánuði. Væntanlegir þátttakendur hafi samband viö Bifreiöa- eftirlitið á Akureyri fyrir 15. janúar. Bifreiðastjóranámskeiðin. Evrópuráðsstyrkir Evrópuráöið veitir fólki sem starfar á ýmsum sviðum félagsmála styrki til kynnisdvalar í aöildarríkjum ráösins á árinu 1988. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í félags- málaráðuneytinu, Hafnarhúsinu viö Tryggvagötu. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Félagsmálaráðuneytið, 5. janúar 1987. Yerslunin Utlog nn Sunnuhlíð 12, sími 22484. Við erum ekkert y að bíða. Utsalan hjá okkur hefst 7. janúar og stendur til 17. janúar. Allar vörur í versluninni á 20-40% afslætti. Kreditkortin í fullu gildi. ^ftor gallery

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.