Dagur - 12.03.1987, Page 2

Dagur - 12.03.1987, Page 2
2 - DAGUR - 12. mars 1987 imm, ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR PÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari.____________________________ Landsfundur Sjálfetæðisflokksins Nýafstaðinn landsfundur Sjálfstæðisflokksins var á yfirborðinu ein allsherjar Hallelúja-sam- koma. Morgunblaðið flutti að sjálfsögðu ítarleg- ar fréttir af gangi mála og ekki var laust við að lesendur blaðsins væru orðnir þreyttir á hinum hástemmdu lýsingum sem notaðar voru í ann- arri hverri setningu í frásögnum af fundinum, s.s. „gífurleg samstaða", „alger samhugur11 og „mikil ánægja", svo dæmi séu nefnd. Forystu- menn flokksins fengu síðan „austur-evrópska" kosningu í fundarlok; þ.e. voru endurkjörnir með um eða yfir 90% atkvæða. Þótt yfirborðið væri slétt og fellt var skammt í ólguna. Fyrir landsfundinn höfðu forystumenn Sjálfstæðisflokksins lagt mikla áherslu á að þetta yrði einn allsherjar „Já og amen-fundur“, því eins og allir vita eru alþingiskosningar á næsta leiti og því til mikils að vinna. ímyndin sem eftir átti að standa í hugum fólks var, að þetta væri flokkur samstöðu, flokkur þar sem meðlimirnir gengju samstíga til kosninganna, allir sem einn, með sameiginleg og vendilega skilgreind markmið að leiðarljósi. Vel má vera að sú ímynd sitji eftir í hugum einhverra, en hitt er ljóst að mun fleiri gerðu sér enn betur grein fyrir þeim gífurlega skoðanamun sem er að finna inn- an Sjálfstæðisflokksins. Frjálshyggjudeildin er smám saman að vinna á í stefnumörkun flokksins og þess verður skammt að bíða að gríman falli alveg af og í ljós komi ómengaður íhaldsflokkur í ætt við þá sem þekkjast í nágrannalöndunum. Stefna Sjálf- stæðisflokksins snýst í raun um afnám ríkis- rekstrar á öllum sviðum. Allt skal látið í hendur hinna frjálsu markaðsafla, þar með talið það velferðarkerfi sem hér hefur verið byggt upp á síðustu áratugum. Anga þessarar stefnu má merkja í einstaka liðum kosningayfirlýsingar landsfundarins svo og yfirlýsingum forystu- manna flokksins í fjölmiðlum fyrir og eftir lands- fundinn. Þar má nefna tillögu um að færa dag- vistarstofnanir í hendur einkaaðila og gefa inn- flutning á landbúnaðarafurðum frjálsan. Síðar- nefnda tillagan náði reyndar ekki fram að ganga að þessu sinni, enda hefði samþykkt hennar get- að orðið flokknum dýrkeypt úti á landsbyggð- inni, svo skömmu fyrir kosningar. Formaður flokksins sté í pontu um það bil sem ágreiningurinn var að brjótast upp á yfirborðið. Hann bað menn að slíðra sverðin, draga fjöl- margar breytingartillögur við kosningayfirlýsing- una til baka og samþykkja hana óbreytta. Munið kosningarnar! Herbragðið heppnaðist fullkomlega. Hinn sundurleiti flokkur gengur því sameinaður til kosninga að þessu sinni. BB. _viðtal dagsins.______________________________ „Þetta voru stórjaxlar sem maður jafnvel beygði sig fyrir“ - segir Sigurður Magnússon á Sauðárkróki Sigurður Magnússon. „Alveg síðan ég var unglingur hef ég verið í Framsóknar- flokknum og talið mig vera framsóknarmann. Sem ungur maður á Skagaströnd skráði ég mig í flokksfélag sem þar var starfandi. Þá voru aðrir tímar en nú, minni atvinna og lífs- baráttan öll harðari og ansi var hún hörð frá 1925 og fram- undir ’38-’9 að aðeins fór að rofa til í efnahagsmálunum.“ Það var á dögunum sem Sigurður Magnússon á Sauðár- króki einn af grjóthörðustu stuðningsmönnum Framsókn- arflokksins var tekinn tali í gærusal sláturhússins þar sem hann vinnur fullan vinnudag, þótt kominn sé hátt á áttræðis- aldur. - En af hverju framsóknar- maður, Sigurður? „Mér hefur fundist stefna Framsóknarflokksins samræmast vel mínum skoðunum og virst flokkurinn hafa verið í fylkingar- brjósti við að byggja upp atvinnulíf fyrir fólkið vítt og breitt um landið.“ - Hvað hefur hann gert hér? „Ég get nefnt sem dæmi Fisk- iðjuna hvernig væri hér umhorfs ef hún hefði ekki komið upp? Samvinnuhreyfingin studd af Framsóknarflokknum hefur byggt atvinnulífið hér upp að miklu leyti. Framsóknarflokkur- inn hefur gert marga góða hluti, en kannski stundum orðið smá- vegis á. Ég veit ekki hvernig er hægt að hugsa sér að þessi flokksbrot sem verið er að mynda núna geti komið einhverju til leiðar, í samanburði við Framsóknar- flokkinn. Ég hef ekki nokkra trú á þessum smáfylkingum sem eru að brjótast fram núna og reyna að fá fólk til að kjósa sig.“ - Hvað finnst þér um framboð Stefáns Valgeirssonar og hans manna? „Ég vil nú sem minnst um það segja, annað en að ég hefði viljað gefa honum BB og hann þannig fengið að fljóta á því inn á þing ef svo vildi verða. Flokkurinn hefði þá notið umframatkvæðanna og svo er vitanlega slæmt að missa fólk úr flokknum." - Hvað um hugsanlegt fram- boð Þjóðarflokksins, af fólki úr Samtökum um jafnrétti milli landshluta? „Menn tala um jafnrétti á milli landshluta og eru að tala um að byggðarlögin fái að njóta þess sem aflað er á viðkomandi stoðum. Að þau fái það sem þeim ber úr ríkiskassanum. Ef ég held mig hér við Sauðárkrók, þá höfum við aðhafst mjög mikið og miðað við þá almennu uppbygg- ingu sem hér hefur orðið, held ég að byggðarlagið hafi fengið það af þjóðarkökunni sem því bar og kannski vel það, miðað við aðra staði á landsbyggðinni." - Er það Framsókn að þakka? „Já, það er auðvitað fyrst og fremst framsóknarmönnum að þakka, þó hinir hafi hjálpað eitthvað til og að minnsta kosti alls ekki séð sér fært að vera á móti því. Núna í vetur fáum við fé í höfnina, erum kannski með uppundir 10 millj. til að bæta höfnina núna, bæði frá ríki og bæ. Og það er svo margt og margt sem hér er búið að gera, gríðarlega mikið. Sjúkrahúsmál- in vel á veg komin, þessi stór- kostlegu glæsilegu íþróttamann- virki o.s.frv.“ - Hvað finnst þér um sam- vinnuhreyfinguna í dag, kaffi- baunamálið t.d.? „Varðandi kaffibaunamálið finnst mér ekki hægt að dæma samvinnuhreyfinguna þó að mistök hafi átt sér stað. Mönnum getur alltaf orðið eitthvað á og þó þeir hafi ekki verið að draga sjálfum sér fé er þetta ekki nógu gott.“ - Hverjir finnst þér vera mestu andstæðingar Framsóknar- flokksins? Sigurður hlær. „Sjálfstæðis- menn eru taldir mjög miklir kapi- talistar og eru það í raun og veru. Þeir eiga mikla hagfræðinga og hafa náttúrlega komið miklu til leiðar í íslensku efnahagslífi og helvíti hefur manni fundist þeir vera seigir að ná fylgi. Hér áður • Kennarar í umræðum um hugsanlegt kennaraverkfall hefur undir- búningstfma kennara m.a. borið á góma. Jónas Helga- son skiptir kennurum í tvennt: Annars vegar eru þeir sem búa sig undir 10-20 ár í senn, kenna alltaf sama efnið og hins vegar eru þeir sem undirbúa sig fyrir hvern tíma, fylgjast ávallt með nýjungum. Jónas segir að fyrri hópurinn þurfi lítið að hafa fyrir kaupi sínu en sá seinni vinni fyrir þvf og gott betur. En báðir hóparnfr fá sama kaup. Þetta er mikið vandamál, kennarar vilja skiljanlega fá greitt f samræmi við vinnu, en það er erfitt að fylgjast með og meta vinnu einstaka kennara. Bárður Halldórsson sagði eitt sinn í helgarviðtali að ómögulegt væri að meta þetta starf í samræmi við tíma, þetta væri meirí hug- sjón en svo. „Kennsla verður aldrei metin í tíma. Hun er list, ekki skurðmokstur," sagði hann. Þá er það ykkar að velja kennarar. Skurð- mokstur og peningar, eða list og engir peningar? • Að svíkjast um Jónas Helgason segir einnig að á meðan kaupfð sé svona lágt hafi menn ekki efni á öðru en að svíkjast um. Þar á hann til dæmis við auka- vinnu. „Ég er að berjast fyrir því núna að fá það há laun að ég geti hætt að svikjast um,“ segir Jónas. Hann segir líka að margir góðir kennarar gef- ist hreinlega upp og hætti, þeir geti ekki uppfyllt nauð- synlegar kröfur á þessum launum. Verri kennarar, verri nemendur, verra þjóðfélag; Þetta er framtíðin ef ástandið verður ekki bætt. Ég spyr: Hefur Sverrir áhyggjur? Hann hefur a.m.k. lítið haft sig í framml. # Epilogus Að endingu langar mig að birta hér vísu sem þættinum barst, en hún fjallar einmitt um ofangreindar hræringar: Efþú sækist eftir því að eignast aldrei neitt; kennsluna skaltu krækja í, þar kemstu sko í feitt. I

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.